24 stundir - 17.11.2007, Page 14
14 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 24stundir
SKÁLD-RÓSA
Loksin er glæsileg ævisaga
Skáld-Rósu / Vatnsenda-Rósu
komin á prent.
Hver er konan
á bak við Skáld-Rósu?
Ljósmóðir, eiginkona, ást-
kona og skáld. Hún var
kona sem fór ótroðnar
slóðir – kona sem á erindi
til íslenskra nútímakvenna.
www.salka.is
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Íslensk ferðaþjónusta gæti eflst
gríðarlega takist henni að opna
meira til Grænlands. Þetta segir
Baldvin Kristjánsson, sem rekur
ferðaþjónustu í Qaqortoq í suð-
vesturhluta Grænlands. „Stærsti
þjóðgarður í heimi er á Grænlandi
og landið er annað stærsta heim-
skautasvæði heims, á eftir suður-
skautinu. Ferðir til Suðurskauts-
landsins eru gerðar út frá
Argentínu og Nýja-Sjálandi. Gríð-
arlegur fjöldi ferðamanna sækir
þangað og ver um og yfir 20 þús-
und Bandaríkjadölum til að kom-
ast þangað.“
Baldvin segir mikilvægt fyrir
Grænlendinga að fá ferðamenn frá
fleiri löndum en Danmörku.
Tækifærin séu mikil, bæði fyrir
Grænlendinga og Íslendinga.
„Eina leiðin til að ná Grænlands-
þjóðgarðinum, stærsta þjóðgarði í
heimi, á norðausturhluta eyjunn-
ar, er í gegnum Ísland, frá Ak-
ureyri. Sömuleiðis er hagkvæmasta
leiðin til Austur-Grænlands frá Ís-
landi.“
Samstarf við Hólaskóla
Ferðamáladeild Háskólans á
Hólum vinnur nú að skipulagn-
ingu náms á sviði náttúru- og
ævintýratengdrar ferðaþjónustu í
Qaqortoq. Unnið er að fjáröflun
og námskrá og er stefnt að því að
námið geti farið af stað haustið
2008.
Baldvin segir verkefni sem þessi
bæði geta komið Grænlendingum
og Íslendingum að gagni. Nauð-
synlegt sé að leggja aukna áherslu
á menntun fyrir Grænlendinga og
nóg sé komið af fátækrahjálp.
„Grunnskólarnir hér eru mjög lé-
legir. Tæplega tvö prósent þjóð-
arinnar sækja sér háskólamennt-
un. 44 sækja nám í háskólanum í
Nuuk, þar með taldir þeir sem
læra til kennara og prests. Helm-
ingur þeirra sem sækja sér há-
skólamenntun í Danmörku snýr
ekki aftur heim til Grænlands.“
Baldvin segir að á Íslandi sé að
mörgu leyti erfitt að útbúa nám í
verklegri ferðaþjónustu, kajakferð-
um, klifri og þess háttar. „Mikill
vöxtur hefur verið í þessum geira á
síðustu árum, en það hefur ekki
skilað sér til Íslands nema að mjög
litlu leyti. Hér á Grænlandi eru
góðar aðstæður til verklegs náms
allt árið um kring. Aðstæður eru
betri bæði á fjöllum og á sjó.
Hólaverkefnið nýtist bæði Íslend-
ingum og Grænlendingum, þann-
ig að verið er að slá tvær flugur í
einu höggi.“
Vilji til samstarfs
Baldvin ítrekar þá möguleika
sem felast í því að „stækka Ísland
til Grænlands“. Að mörgu leyti
vanti pláss á Íslandi og Íslendingar
geti auðveldlega unnið á Græn-
landi. „Ekki er óalgengt að ferða-
menn vilji til dæmis vera tvær vik-
ur á Íslandi og eina á Grænlandi,
en það vantar betri tengsl milli
landanna. Hér er í raun öll ferða-
þjónusta í höndum Dana. Það sést
á komutölum og viðskiptum.
Þetta eru mest Danir. Það liggur
mjög vel fyrir íslenskum ferða-
þjónustufyrirtækjum að víkka
starfsemina út til Grænlands.“
Baldvin segir mikinn vilja vera
til samstarfs á Grænlandi. „Það var
sagt við mig þegar ég byrjaði hér
að Grænlendingar hefðu miklu
meiri áhuga á að Íslendingar hæfu
hér starfsemi, en til dæmis Spán-
verjar sem þekkja aðstæður mun
verr. Hér á Suður-Grænlandi eru
einnig mikil söguleg tengsl við Ís-
land, svo sem í gegnum Eiríks
sögu rauða.“
Baldvin segir þá staðreynd að
grænlensk löggjöf sé að mestu leyti
send í pósti frá Danmörku, standa
einkareknum fyrirtækjum fyrir
þrifum. „Þetta er eiginlega svona
„klippt og límt“-löggjöf. Þörfum
Grænlendinga er ekki sinnt með
viðunandi hætti. Þannig sigla far-
þegabátar á Grænlandi eftir
dönskum reglugerðum. Búnaður
um borð miðast við danskt sam-
félag og danskar aðstæður, ekki
grænlenskar. Það er mjög erfitt að
reka farþegabátana hérna.“
Kerfinu viðhaldið
Í nýlegri heimildarmynd danska
ríkissjónvarpsins var dregin upp
mjög dökk mynd af félagslegum
aðstæðum Grænlendinga. Heima-
stjórnin fær nú greidda 3,2 millj-
arða danskra króna á ári hverju úr
ríkissjóði Danmerkur, jafnvirði 38
milljarða íslenskra króna.
Baldvin segir að við óbreytt
ástand gæti reynst erfitt fyrir
Grænlendinga að komast út úr fá-
tæktarvítahringnum. „Þessu kerfi
verður haldið við á meðan Sium-
ut-flokkurinn er við völd. Siumut
hefur ráðið ríkjum frá því að
Grænlendingar fengu heimastjórn,
er flokkur veiðimanna og heldur
veiðiþorpunum á lífi. Vara veiði-
manna, selskinn, og öll þjónusta,
þótt lítil sé, er niðurgreidd af rík-
inu. Veiðimennirnir fara ekki fram
á breytingar þar sem þeir borga
nær engan skatt. Það er hálfgert
þagnarsamkomulag um að Dan-
irnir borga, kerfinu er viðhaldið
og enginn segir neitt.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Mikil tækifæri
í ferðaþjónustu
Íslensk ferðaþjónusta á að opna til Grænlands, segir Baldvin
Kristjánsson Auglýsa þarf næststærsta heimskautasvæðið
➤ Háskólinn á Hólum vinnur núað skipulagningu náms á
sviði náttúru- og ævin-
týratengdrar ferðaþjónustu á
Grænlandi.
➤ Unnið er að fjáröflun og nám-skrá. Stefnt er að því að nám-
ið fari af stað haustið 2008.
➤ Möguleikar á ferðaþjónustueru miklir á Grænlandi, en
skortur á menntuðu fólki.
HÓLAVERKEFNIÐ
Nærri Isertoq Baldvin (t.v.)
starfar sem framkvæmdastjóri
Arctic Sherpas sem býður upp
á ævintýraferðir á Grænlandi.
Nítján ára gömul stúlka í
Sádi-Arabíu, sem varð
fórnarlamb hópnauðg-
unar, hefur verið dæmd
til að þola 200 svipuhögg
og sex mánaða fangels-
isvist þar sem hún braut
lög sem banna samskipti
við ókunnuga karlmenn.
Stúlkan var í bíl með
manni, sér ótengdum,
þegar ráðist var á hana.
Konan var upphaflega dæmd til að þola 90 svipuhögg. Hún áfrýjaði en
áfrýjunardómstóll þyngdi dóminn og sagði meðal annars að stúlkan
hefði reynt að nýta sér fjölmiðla til að hafa áhrif á dómsniðurstöðuna.
Lögmaður stúlkunnar var einnig sviptur lögmannsréttindum.
Dómstóllinn þyngdi einnig dóma sem árásarmennirnir, sem voru sjö,
hlutu. Þeir voru upphaflega dæmdir í eins til fimm ára fangelsi en
áfrýjunardómstóllinn tvöfaldaði lengd dómanna.
Fréttavefur BBC hefur eftir blaðinu Arab News að konunni, sem er
sjía-múslími, hafi verið nauðgað fjórtán sinnum fyrir einu og hálfu ári.
Sjömenningarnir voru hins vegar súnní-múslímar. mbl.is
Fórnarlamb nauðgunar dæmt