24 stundir - 17.11.2007, Blaðsíða 60
LIGGUR Á HJARTA
Erpur Eyvindarson
tónlistarmaður
fæddur 29.08. árið 1984
Sendið fyrirspurnir á netfangið: femin@femin.is – Merkt: Fyrirspurn til ráðgjafa vegna 24 stunda
Matur fyrir
séða Íslendinga
YFIRLÝSINGIN
24stundir/Frikki
Sæl. Ég er komin 8 vikur á leið,
sem ég er ánægð með, því ég er
búin að reyna lengi, en ég var
að byrja í skóla eftir 17 ára pásu;
ekki auðvelt. Fyrir ca. ári var
ég á cypralex og sobril einstaka
sinnum vegna kvíða og þung-
lyndis og ég finn núna að ég er að
hniprast öll saman, öll orka að
verða búin og lítill lífskraftur.
Er til lyf sem skaðar ekki
óléttar konur?
Komdu sæl og þakka þér fyrir
fyrirspurnina.
Inntaka lyfja á meðgöngu er aldrei
æskileg, þar sem í flestum tilvikum
eru ekki til fullnægjandi rannsóknir
sem segja til um hvort lyf er skaðlegt
fyrir fóstur eða ekki. Það er mikil-
vægt að þú leitir til þíns læknis og
ræðir þetta nánar við hann. Hann
ætti að geta ráðlagt þér frekar og
veitt þér betri upplýsingar um skað-
semi geðdeyfðarlyfja á fóstur. Ég
vil hins vegar benda þér á að margar
konur finna fyrir einkennum eins og
mikilli þreytu, orkuleysi og aukinni
svefnþörf einkum á fyrstu 12 vikum
meðgöngunnar. Gæti verið að þú
sért að finna fyrir einkennum sem
eru eðlilegur hluti meðgöngunnar,
en túlkir þau sem upphaf kvíða og
þunglyndis? Veltu því alla vega fyrir
þér. Það er mikilvægt að þú hlustir á
líkama þinn og nýtir þann tíma sem
gefst til að hvíla þig og endurnýja
þannig orku þína. Þegar líður að-
eins á meðgönguna eykst orkan að
nýju og flestum konum líður mjög
vel og eru fullar orku um miðbik
meðgöngunnar. Þar sem þú átt sögu
um kvíða og þunglyndi þarftu auð-
vitað að passa sérstaklega vel upp á
þig á meðgöngunni. Mundu að hvíla
þig vel, borða næringarríka fæðu og
hreyfa þig reglulega, til dæmis fara í
stutta göngutúra á hverjum degi. Ég
myndi einnig ráðleggja þér að vera í
reglulegu sambandi við þinn lækni
eða leita til sálfræðings til að koma
í veg fyrir að þau einkenni sem þú
nefnir hér versni frekar.
Þó svo að lyfjameðferð gagnist oft
í baráttunni við kvíða og þunglyndi
þá er mikilvægt að vera meðvitaður
um það að það eru önnur góð úr-
ræði í boði, eins og samtalsmeðferð
og hvet ég þig eindregið til að nýta
þér slík úrræði.
Gangi þér vel
Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræð-
ingur
www.salarlif.is
Er ringluð
Hæ Soffía. Ég vona að þú getir
hjálpað mér. Ég er 18 ára og var
að missa meydóminn með kærast-
anum mínum sem er 4 árum eldri
en ég. Við elskum hvort annað
meira en allt og ég er mjög ham-
ingjusöm. En það eina sem dregur
mig smá niður er að við erum nú
nýbyrjuð að stunda kynlíf og ég
fæ ekkert út úr því. Ég hef mikið
heyrt að það sé algengt að konur
fái ekki fullnægingu en þetta
er orðið mjög þreytandi. Hann
fær það í hvert skipti og ég þarf
að „feika” það. Ég þori ekkert að
segja honum þetta því ég vil ekki
særa hann. Hvað get ég gert?
Sæl, og takk fyrir að leita til femin.
is.
Já, ég held að þú þurfir að gera eitt-
hvað í þessu. Það fyrsta sem þú þarft
að gera er að byrja að stunda sjálfs-
fróun og læra á líkama þinn og prófa
að fá fullnægingu ein og sér. Það ert
þú ein, sem getur sagt til um hvaða
staði þér finnst gott og örvandi að
láta snerta. Þú þarft að kanna líkam-
ann þinn og finna hvað það er sem
þér finnst gott. Þeir staðir sem talað
er um sem kynnæm svæði eru geir-
vörturnar, eyrun, munnurinn, lærin,
lendarnar og kynfærin. Þú getur
kannað kroppinn á þér í baði, ef þér
finnst það þægilegra. Annars er heil-
inn stærsta kynfærið og ef þú getur
fundið þér erótískar sögur eða spólur,
sem þú getur skoðað, þá hjálpar það
þér að læra að fantasera sjálf, til þess
að ná nægjanlegri örvun til þess að
ná fullnægingu, áður en þú hefur
samfarir. Þú ættir líka að stefna að
því að fá fullnægingu í forleik áður
en þú hefur samfarir, með því að
örva sjálf snípinn til fullnægingar,
eða fá kærastann til þess að hjálpa
þér. Þið getið líka reynt munnmök.
Það virkar oft mjög örvandi á konur,
ef þær eru ekki mjög feimnar við
félaga sinn. Það getur enginn gert
þetta fyrir þig nema þú sjálf. Einnig
þarft þú að öllum líkindum að fá
beina örvun á snípinn samhliða
samförunum, þá annað hvort með
fingrum, eða hjálpartækjum eins
og titrara eða eggi. Mörgum konum
hefur reynst vel að nota unaðskrem
sem auka blóðflæði til snípsins
og þannig nærðu örvun á auðveld-
ari hátt svo fullnæging er á næstu
grösum. Svo gildir hið fornkveðna,
að æfingin skapar meistarann
Og svo er það hitt málið – Aldrei
feika fullnægingu!!! Konur (og
karlar) gera sér upp fullnægingu til
að láta elskhuga sínum líða betur,
en slíkt gerir stöðuna bara verri. Ef
elskhugi þinn trúir því að þú fáir ro-
salega fullnægingu eftir 5 mínútur
þá er erfitt fyrir þig að viðurkenna
síðar að þú þurfir í raun um 20 mín-
útna örvun bara til að verða nægi-
lega æst og elskhuga þínum mun
reynast afar erfitt að komast að því
hvað vekur þér unað, því svo virðist
sem þú sért fullkomlega ánægð. Svo
hættu að feika það strax!
Gangi þér vel,
Soffía Steingrímsdóttir
www.femin.is
Fæ ekkert út úr þessu
Góðan daginn. Hvernig er það
með óvirka alka? Nú er það svo að
faðir minn kom úr meðferð fyrir
tveimur árum eða svo og segir
alltaf við okkur hin þegar kemur
að einhverjum hátíðarhöldum að
við megum alveg fá okkur í glas,
þ.e. að það trufli hann ekkert.
Hins vegar er hann alltaf með ein-
hver leiðindaskot þegar fólk fær
sér í glas fyrir framan hann.
Dregur athyglina að drykknum
og segir svo eitthvað leiðinlegt
þannig að það er varla hægt að
njóta drykkjarins. Mig langar til
að vita hvort óvirkum ölkum eigi
að vera sama um það að aðrir fái
sér í glas og hvort það sé eitthvað
sem er „kennt” á Vogi og honum
finnist hann verða að segja. Ég
veit bara hreinlega ekki hvort
hann er að meina þetta. Núna
síðast þegar ég fékk þennan pistil
um að þetta væri í lagi þá nefndi
ég þetta við hann og hann vildi
nú ekki meina það. Það tæki
enginn annar eftir þessu nema ég,
sem er reyndar ekki alveg rétt. Er
ég að gera úlfalda úr mýflugu ?
Sæl, og takk fyrir bréfið.
Ég er nú eiginlega alveg með það
á hreinu að fólki í meðferð er ekki
„kennt” hvað það á að segja við þá
sem drekka í kringum þá.
Mér finnst eins og faðir þinn sé
ekki í allt of góðum málum varðandi
sína edrúmennsku. Það er eitthvað
sem hann verður sjálfur að finna út
úr. En ekki gera honum léttara að
vera með skot með því að bregðast
við með því að verða leið þá er ein-
mitt tilganginum með skotinu náð!
Eins væri vert fyrir þig að velta
fyrir þér af hverju þú upplifir
óþægindi vegna athugasemda hans,
hvernig samskipti ykkar eru að
öðru leyti og hvort drykkja hans eða
ekki drykkja hafi eða hafi haft meiri
áhrif á þig en þú viðurkennir.
Þú ert ekki að gera úlfalda úr
mýflugu. Það er ekki þannig þegar
maður upplifir vanlíðan vegna
drykkju einhvers.
Gangi þér vel.
Guðrún Brynjólfsdóttir
Jólin og óvirki alkinn
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
107.000 eintök
á dag - ókeypis
60 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 24stundir
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is