24 stundir - 17.11.2007, Page 65
24stundir LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 65
Ítalski tónlistarmaðurinn Leone Tinga-
nelli fagnar útgáfu nýs hljómdisks með tón-
leikum í Salnum í Kópavogi á sunnudags-
kvöld kl. 20. Leone verður þó ekki einn á
sviðinu því að sér til fulltingis fær hann hóp
valinkunnra tónlistarmanna og fimm gesta-
söngvara: Stefán Hilmarsson, Heru Björk,
Guðrúnu Árnýju, Jóhann Friðgeir og Regínu
Ósk.
Hef þroskast aðeins
„Þetta verður bara líf og fjör og ég er mjög
spenntur fyrir þessa tónleika. Það var svolítil
vinna að fá alla til að koma á sama degi enda
mikið að gerast fyrir jólin, margir að gefa út
og tónleikar úti um allt,“ segir Leone.
Nýi diskurinn heitir Montagne Azzurre /
Bláu fjöllin og er annar diskurinn sem Leone
gefur út með frumsaminni popptónlist. Sá
fyrri hét Volo libero og kom út fyrir tveimur
árum. „Ég held að nýi diskurinn sé aðeins
betri en hinn og ég er mjög ánægður með
hann. Maður hefur þroskast aðeins á þessum
tíma og verður alltaf betri og betri,“ segir
hann um nýja diskinn.
Ítölsk gamantónlist
Leone er með fleiri járn í eldinum um
þessar mundir því að snemma á næsta ári
kemur út diskur með Tríói Delizie Italiane
sem hann er í ásamt Jóni Rafnssyni og Jóni
Elvari Hafsteinssyni. Sú tónlist er frábrugðin
tónlistinni sem er að finna á sólóplötum
Leone. „Þetta er gamantónlist frá Ítalíu sem
við leikum á okkar hátt. Við spilum á tvo
kassagítara, kontrabassa og syngjum. Þetta er
allt öðruvísi tónlist en popptónlistin sem ég
hef verið að gera,“ segir Leone.
Tríó Delizie Italiane kemur einnig fram á
tónleikunum í Salnum annað kvöld.
Útgáfutónleikar Leone Tinganelli í Salnum
Með mörg járn í eldinum
Í góðum félagsskap Leone
Tinganelli fær nokkra helstu
söngvara landsins í lið með sér á
útgáfutónleikum í Salnum.
24stundir/Frikki
Hljómsveitin Fimm í tangó held-
ur tónleika í Landnámssetrinu í
Borgarnesi á morgun, sunnudag
18. nóvember, kl. 16. Finnsk
tangótónlist er í sérstöku uppá-
haldi hjá hljómsveitinni, en hana
skipa Ágúst Ólafsson söngvari,
Ástríður Alda Sigurðardóttir pí-
anóleikari, Íris Dögg Gísladóttir
fiðluleikari, Kristín Lárusdóttir
sellóleikari og Tatu Antero Kant-
omaa harmóníkuleikari. Það eru
sá síðastnefndi og Haraldur V.
Sveinbjörnsson sem hafa útsett
lögin, en Haraldur hefur einnig
samið tangóa sérstaklega fyrir
hópinn.
Tangótónleikar
í Borgarnesi
Nú styttist í að Plötutíðindi þessa
árs komi út og verði dreift inn á
heimili í landinu. Fjöldi nýrra
hljómplatna streymir inn á mark-
aðinn og bætast nýir titlar við
nær daglega. Það er Vatikanið
sem hefur veg og vanda af
vinnslu Plötutíðinda að þessu
sinni, en hingað til hefur Bergur
Ísleifsson sinnt ritstjórn og
vinnslu þessa árlega upplýs-
ingarits Félags hljómplötufram-
leiðenda. Formlegur útgáfudagur
Plötutíðinda 2007 er föstudag-
urinn 23. nóvember næstkom-
andi og ætti blaðið þá að hafa
borist flestum landsmönnum.
Plötutíðindin
á leið í hús
Rokkhljómsveitin góðkunna
Dikta heldur tónleika í Tónastöð-
inni Skipholti 50d í dag kl. 15:30.
Leikin verða ný lög í bland við
eldra efni. Verslunin hefur verið
stækkuð um meira en helming og
eru tónleikarnir haldnir í tilefni
af stækkuninni.
Einnig munu hljómsveitirnar Co-
ral og Perla leika nokkra tóna fyr-
ir gesti. Enginn aðgangseyrir er
inn á tónleikana.
Tónleikar Diktu
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
70
1
Frábær kjör – takmörkuð gisting
Sand Castles
Sunset Jamaica Grande Resort
Glæsileg lúxusgisting
Gran Bahia Principe Jamaica
– nýtt lúxushótel
Opnaði
í des.
2006
Allt innifalið í 10 eða 11 daga - frá aðeins
149.990 kr.
Allt innifalið í 10 eða 11 nætur - frá aðeins
145.390 kr.
Gran Bahia Principe Jamaica – allt innifalið
Mjög gott fjögurra stjörnu hótel við ströndina í hjarta Ocho Rios
með góðri aðstöðu. Aðstaða og aðbúnaður hótelsins var end-
urnýjað nýlega. Glæsilegur garður með 5 sundlaugum, veitinga-
stöðum, börum o.fl.. Herbergi eru með sjónvarpi, síma, loftkæl-
ingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Örstutt er í
mannlífið fyrir þá sem kjósa að leita út fyrir hótelið.
Einfalt en þokkalegt hótel við Turtle Beach ströndina, skammt
frá miðbæjarkjarna Ocho Rios. Á hótelinu eru íbúðir með einu
svefnherbergi, stúdíóíbúðir og hótelherbergi. Íbúðir og her-
bergi eru með loftkælingu, sjónvarpi, síma og ísskáp. Öll her-
bergi/íbúðir með svölum. Fallegur sundlaugargarður, bar, veit-
ingastaður og móttaka. Góður kostur fyrir þá sem vilja einfaldari
gistingu með minni þjónustu en góða staðsetningu og verð.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Stórglæsilegt og nýtt fimm stjörnu glæsihótel við ströndina í
Runaway Bay. Hér finnur þú alla þá þjónustu í fríinu sem hægt
er að óska sér. Glæsilegan garð með 3 sundlaugum, barnalaug-
um, fjölda veitingastaða, bara, verslana, líkamsrækt og tenn-
isvöllum. Golfvellir og fjölbreytt sjósport í nágrenninu. Hótelið
er með 700 herbergi sem öll eru svítur með nuddbaðkari. Öll
herbergi eru með gervihnattasjónvarpi, síma, loftkælingu, bað-
herbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Þetta er stórglæsilegt
hótel og örugglega eitt það allra besta á Jamaica – hér er dekr-
að við þig í aðbúnaði og þjónustu.
Allt innifalið:
• Morgunverðarhlaðborð
• Hádegisverðarhlaðborð
• Kvöldverður (val um 5 veitingastaði)
• Innlendir drykkir
• Aðgangur að diskóteki hótelsins
• Aðgangur að líkamsrækt
• Sólbekkir, sólhlífar og handklæði
• Skemmtidagskrá á daginn og kvöldin
• Minibar m/vatn, gos og bjór (fyllt á daglega)
• Köfunarkennsla í sundlauginni (1 klst.)
• Frítt á brimbretti, tennis, báta án mótors
eða reiðhjól (í 1 klst.)
Hvað er í boði
• 5 veitingastaðir
• 5 barir
• 3 sundlaugar
• Verslanir
• Öryggishólf
(gegn gjaldi)
• Barnagæsla
• Líkamsrækt
• Heilsulind
• Barnaklúbbur
• Tennisvellir
• Fjölbreytt sjósport
• Diskótek
• Píanó bar, Karaoke bar
og sport bar
• Mótor- og reiðhjólaleiga
• Læknisþjónusta
• Golf, Runaway Bay Golf
Club
• Kayakar
• Skemmtidagskrá fyrir börnin
Jamaica er ein fegursta eyja Karíbahafsins og hún býður stórkostlega náttúrufegurð og veðurfar. Á Jamaica ríkir einnig
einstakt andrúmsloft og menningin á sér vart hliðstæðu í Karíbahafinu. Sandstrendurnar eru drifhvítar og með þeim feg-
urstu í heimi. Eyjan skartar náttúruperlum eins og Dunn’s fossunum, Blue Mountains og YS fossunum sem eru einstakar og
láta engan ósnortinn. Reggie tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob Marleys fægasta sonar Jamaica. Þeir sem hafa komið til
Jamaica eru flestir sammála um að eyjan hafi einstakt aðdráttarafl. Hún er einn þessara heillandi áfangastaða Karíbahafsins
sem laða ferðmenn til sín aftur og aftur.
*) Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Sand Castles í 10 eða 11 nætur. Verðdæmi eru netverð á mann m.v. í gistingu tvíbýli. Verð getur breyst án fyrirvara.
Öll herbergi eru svítur
14. febrúar – 10 nætur og 24. febrúar – 11 nætur
Frá 109.890 kr.*
Glæsileg
viðbót!Getum nú loksins boðið gistingu á þessu frábæra hóteli í ferðum okkar í febrúar!Jamaica