24 stundir - 17.11.2007, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 24stundir
Leikstjórinn Frank Darabont er
greinilega aðdáandi rithöfund-
arins Stephens Kings. Nú þegar
hefur hann gert þrjár myndir
byggðar á sögum rithöfundarins
en hann hefur hug á að gera þá
fjórðu. Nú vill hann kvikmynda
söguna The Long Walk en í henni
segir frá skelfilegri keppni þar
sem ungir drengir ganga, bók-
staflega, fyrir lífi sínu. vij
Vill gera fleiri
King-myndir
Stúlkurnar í Spice Girls komu
fram á tískusýningu Victoria’s
Secret í fyrradag, en um er að
ræða fyrstu tónleika stúlknanna
eftir að tilkynnt var um end-
urkomu sveitarinnar. Uppá-
koman vakti að sjálfsögðu mikla
athygli í ljósi þess að þær hafa
ekki komið fram í níu ár, en ekki
minni athygli vakti sú staðreynd
að kryddpíurnar þöndu ekki
raddböndin á neinum stað í lag-
inu. Þrátt fyrir deildar meiningar
um frammistöðuna fullyrti Geri
Halliwell að þetta hefði verið góð
upphitun fyrir fyrirhugaða tón-
leikaferð hljómsveitarinnar. hþ
Koma fram í
fyrsta skiptið
Seth Rogen og Elizabeth Banks
munu leika aðalhlutverkin í
næstu mynd Kevins Smiths, Zack
& Miri Make a Porno. Í myndinni
segir frá vinum sem hafa staðið í
platónsku vinarsambandi um
áratugaskeið en svo þegar blank-
heit gera vart við sig ákveða þau
að framleiða klámmynd saman.
Þá sjá þau að það búa meiri til-
finningar að baki sambandi
þeirra en þau áttuðu sig á. vij
Rogen og Banks
fara í klámið
Hljómsveitin My Bloody Val-
entine er ef til vill ekki í um-
ræðunni á hverjum degi enda hef-
ur sveitin hvorki sent frá sér plötu
né spilað á tónleikum í 16 ár. Hún
var þó geysivinsæl á sínum tíma
og sendi frá sér tvær breiðskífur
sem báðar slógu í gegn. „Isn’t
Anything“ kom árið 1988 og
„Loveless“ þremur árum síðar, en
auk þess komu út nokkrar EP-
plötur.
Fyrir nokkrum dögum bárust
svo fréttir um að My Bloody Val-
entine myndi leika á þrennum
tónleikum í júní á næsta ári; í
London hinn 20. júní, í Manchest-
er 28. júní og í Glasgow 2. júlí.
Þegar miðarnir á þessa tónleika
seldust upp á 6 mínútum í gær-
morgun var bætt við tvennum
tónleikum í London, hinn 21. og
22. júní og þegar er uppselt á þá
hvoratveggju.
En hvernig stendur á því að
hljómsveit sem síðast gerði plötu
árið 1991 er enn svo gífurlega vin-
sæl? Líklegasta skýringin er að
breiðskífurnar hafi elst mjög vel,
en á þeim gætir nokkurs tímaleys-
is.
Í My Bloody Valentine eru
Colm O’Ciosoig trommuleikari,
Bilinda Butcher, söngkona og gít-
arleikari, Debbie Googe bassaleik-
ari og Kevin Shields, söngvari, gít-
arleikari, lagahöfundur, og
talsmaður hljómsveitarinnar. Ke-
vin er sagður vera haldinn full-
komnunaráráttu á háu stigi og hafi
til að mynda fengið til liðs við sig
40 upptökumenn þegar hann vann
að „Loveless“. Hann tekur iðulega
minnst þrjá tíma í að fullkomna
hljóm sveitarinnar á tónleikum en
er samt sjaldnast fyllilega ánægður
og vildi helst sleppa því að spila á
tónleikum yfir höfuð.
Sagan segir að Kevin Shields
hafi hent nokkrum fullkláruðum
plötum síðustu 16 árin, því hann
náði ekki þeim hljómi sem hann
var að sækjast eftir. Í nýlegu viðtali
við sjónvarpsmanninn Ian Sven-
onius í þættinum „Soft Focus“
segir hann frá því að þegar platan
„Loveless“ var í vinnslu hafi
hljómsveitin unnið látlaust í hljóð-
veri í tvö ár áður en hún var sátt.
Plötufyrirtækið Creation hafi oft
verið á barmi gjaldþrots, en aldrei
gefist upp á þeim og því hafi plat-
an að lokum komið út. Kevin segir
einnig frá því að í raun hafi þá í
hljómsveitinni ekkert langað að
gera plötu fyrr en nú nýlega og því
hafi þau sleppt því. heida@24stundir.is
My Bloody Valentine spilar nokkra tónleika á Bretlandseyjum næsta sumar
Endurkoma í lagi
Meistaraverk Síðasta plata My
Bloody Valentine heitir Loveless.
Söngvarinn Bobby Brown datt og
meiddist á ökkla við tónleika-
æfingar í síðustu viku. Söngv-
arinn mun hafa lent illa á ökkl-
anum og þarf því að styðjast við
hjólastól næstu dagana. Tals-
maður hans segir þó að honum
líði vel og atvikið muni ekki setja
of mikið strik í reikninginn.
„Hann hefur það fínt og mun
ekki bregðast aðdáendum sínum
sem hann mun syngja fyrir á
næstu vikum.“ hþ
Bobby Brown í
hjólastól
Bandaríska hljómsveitin Interpol
hefur lengt tónleikaferð sína sem
stendur fram á næsta vor. Næst-
komandi mánudag kemur svo út
viðhafnarútgáfa af nýjustu plötu
þeirra „Our Love to Admire“ þar
sem meðfylgjandi er DVD-diskur
með 11 aukalögum af tónleikum
sveitarinnar í Astoría-klúbbnum
í Lundúnum. Út nóvember leikur
sveitin í Berlín þann 17., Köln
þann 19., Tilburg þann 20., París
þann 21., Brussel þann 23., Ham-
borg 24. og 25., Lille þann 26.,
Blackpool þann 28. og London
29. og 30. nóvember. re
Interpol bætir
við tónleikum
David Beckham bauð félögum
sínum í knattspyrnuliðinu Los
Angeles Galaxy til sjö klukku-
stunda vínþambs eftir leik gegn
Vancouver Whitecaps í vikunni.
Leikurinn átti upphaflega að fara
fram 3. október en var frestað til
þess að Beckham gæti verið með í
leiknum, sem var sýningarleikur.
Liðið mun hafa drukkið stíft og
djammað fram eftir öllu á hinum
ýmsu skemmtistöðum í boði Beck-
hams, en hann ákvað að hressa
liðsmenn upp eftir vafasama
frammistöðu í leiknum. Kunningi
Beckhams sagði greinilegt að hann
gæfi eiginkonunni, sem þótt hefur
meiri aðdáandi skemmtanalífsins,
ekkert eftir í skemmtilegheitunum.
„Hann sannaði að hann getur
djammað alveg eins og eiginkonan.
Hann fór á þvílíkt barskrall og fór
seint að sofa,“ sagði kunninginn og
bætti við að kvenkyns aðdáendur
knattspyrnukappans hefðu ekki
haft augun af honum téð kvöld.
„Hann var eltur allt kvöldið en
hafði mun meiri áhuga á að
skemmta sér með vinunum. Þess
ber að geta að Beckham og liðs-
félagar hans höfðu enga ástæðu til
að fagna en leiknum við Vancou-
ver lyktaði með 0-0-jafntefli. hþ
Beckham býður á barinn
Mynd/Reuters
Slakar ekki á klónni David gefur
konu sinni ekkert eftir.
Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur
heida@24stundir.is
Keilir, miðstöð vísinda fræða og at-
vinnulífs, hefur fengið allt að 150
íbúðir til úthlutunar fyrir náms-
menn á háskólasvæðinu á Vall-
arheiði í Reykjanesbæ. Íbúðirnar
bætast við þær 350 sem þegar er
búið í á svæðinu. Áætlað er að taka
íbúðirnar í notkun í desember og
janúar næstkomandi en heild-
arfjöldi íbúa verður þá kominn í
1100-1200 manns. Um 70 börn
stunda nám í leikskólanum og
tæplega 50 í grunnskólanum á
svæðinu.
Gamla herstöðin opnaði hlið sín
þann 15. ágúst og Guðbjörg Rann-
veig Jóhannesdóttir er í hópi þeirra
sem fluttu inn um leið. „Ég flutti
inn þann 16. ágúst og líkar vel.
Svæðið hefur þó lítið breyst síðan
ég flutti inn, þótt íbúum hafi fjölg-
að statt og stöðugt.“ Aðspurð
hvort eitthvað sé hægt að gera sér
til dundurs á svæðinu segir Guð-
björg litla afþreyingu í boði, en til
standi að opna veitingastaði og
kaffihús. „Það er helst að maður
hitti aðra íbúa svæðisins í rútunni
á morgnana, en hún er vel sótt.“
Á svæðinu var opnuð verslun í
september en önnur þjónusta er
ekki fyrir hendi og hana verður
enn sem komið er að sækja til
Keflavíkur. Runólfur Ágústsson,
framkvæmdastjóri Keilis, segir þó
að engin vandamál hafi komið upp
en mörg úrlausnarefni. Sem dæmi
hafi þurft að búa til skóla og leik-
skóla fyrir börnin og nú sé unnið
að stækkun þannig að hægt verði
að fjölga þar börnum um áramót.
„Nýtingin á rútu til Reykjavíkur
var líka langt umfram væntingar.
Við þurftum að finna út hent-
ugustu tímasetningarnar og sam-
hæfa ferðirnar eftir því. Annars
hefur allt gengið vel. Við settum
fram áætlun um það að vera kom-
in með 800 íbúa árið 2009, en náð-
um þeim áfanga í október.“
En var flutt of snemma inn áður
en öll almenn þjónusta var fyrir
hendi? „Svo tel ég ekki vera. Íbúð-
unum þurfti að skila áður en skól-
inn byrjaði svo það var ekkert val.
Á næstunni verður opnuð íþrótta-
miðstöð og viðræður eru í gangi
um að opna heilsugæslustöðina.
Það gæti gerst bara strax eftir ára-
mót.“
Fjölmargir háskólanemar nýta ódýrt húsnæði
Íbúum Keilis
fjölgar stöðugt
FyrstarÞessar stúlkur eru
starfsmenn Keilis. Þær
meðal íbúa fyrstu svæð-
isins eftir að herinn fór.
➤ 1100 stúdentar bíða eftir hús-næði í Reykjavík.
➤ 100 manns eru á biðlista eftirhúsnæði hjá Keili.
STÚDENTAÍBÚÐIR
Íbúum á gamla varn-
arsvæðinu fer fjölgandi
og mun íbúafjöldi fara yf-
ir eitt þúsund um næstu
áramót. Nú þegar búa
tæplega 800 manns á
svæðinu.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Hann sannaði að hann getur djamm-
að alveg eins og eiginkonan. Hann
fór á þvílíkt barskrall og fór seint að sofa.