24 stundir - 17.11.2007, Page 82
Jakkinn er keyptur af bróður mín-
um þegar hann var á einhverjum
flóamarkaði í
Boston minnir
mig. Hann er
frekar þunnur og heldur ekki mikl-
um hita yfir köldustu vetrarmán-
uðina, en er fínn yfir hettupeys-
una þegar veðrið er eins og það
er búið að vera. Hann er úr silki
og næloni og gerir alveg sitt gagn
en í kaldara veðri er ég í úlpu.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Heimir Héðinsson leggur
stund á grafíknám í Listahá-
skólanum á daginn, en þegar
rökkva tekur vinnur hann fyrir
sér sem skífuþeytirinn DJ
Skeletor. Heimir þykir móðins
og flottur í
tauinu en
hann segist gefa
tískunni mikinn gaum og reynir
ávallt að vera sómasamlega klæddur
og vel til fara. „Ég er svolítill tískugúrú
og hef lengi verið. Þetta hefur ein-
hvern veginn alltaf verið í mér og núna
upp á síðkastið hefur þetta tengst tón-
listinni svolítið.
Teknótónlistartíska
Þetta er einhver teknótíska býst ég við sem
ég viða að mér héðan og þaðan, úr vinahópn-
um og slíkt,“ segir Heimir sem kaupir gjarnan
föt sín á erlendri grund. „Ég kaupi nánast öll
mín föt í útlöndum. Ef ég kaupi hér heima þá
er það helst í Kron, Gyllta kettinum og einstaka
sinnum í Spútnik. Annars reyni ég ekki að
fylgja neinum tískustraumum, heldur skapa
minn eigin stíl og prófa eitthvað nýtt,“ segir
hinn 22 ára gamli Heimir og viðurkennir að ef-
laust gengi það ekki upp ef hann ákvæði einn
daginn að umpólast í tískunni og ganga í jakka-
fötum með dæmigerða herraklippingu. „Nei,
það myndi sjálfsagt ekki gera sig. Það má segja
að það sé ákveðin tíska í kringum þennan
teknótónlistarbransa. Ég hef samt alveg þessa
þörf til að vera öðruvísi, sem er þó ekki tengd
neinni sýniþörf, þvert á móti, ég er ekki sú týpa.
En maður vill samt ekki vera eins og allir hinir
og því reyni ég að forðast þessar almennu tísku-
bylgjur einsog heitan eldinn, enda eru þær oftar
en ekki fáránlegar í mínum augum og verða
fljótt útbrunnar,“ segir Heimir sem telur stráka á
hans aldri velta tískunni töluvert fyrir sér. „Já já,
þeir gera það alveg hiklaust. Að minnsta kosti í
mínum vinahóp, enda smitumst við allir hver af
öðrum í rauninni.“
Hefur áhuga á fatahönnun
Heimir segist hugsa töluvert um fatahönnun,
en hefur látið sér nægja að silkiþrykkja myndir
og munstur á boli og aðrar flíkur. „Ég fæ að nota
aðstöðuna í skólanum fyrir prentið, en annars
hef ég ekki gefið mér tíma til að gera neitt meira,
þó svo áhuginn sé alveg til staðar. Allur minn
frítími fer í tónlistina. Kannski ég snúi mér að
þessu í framtíðinni, hver veit?“
Heimir Héðinsson er vel klæddur plötusnúður
Teknó
skapar
tískuna
Heimir Héðinsson er
einnig þekktur sem DJ
Skeletor. Hann vill skera
sig úr en segist þó ekki
haldinn sýniþörf. Heimir
þykir hafa gott tískuvit,
en hann kaupir flest sín
föt erlendis.
ÍMYND
82 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 24stundir
Dr.Hauschka
Náttúrulegar snyrtivörur
Rósakrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber
hjálpa til við að varðveita rakann í
húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og
veitir henni sérstaka vernd.
Rósakremið inniheldur einungis hrein
náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar
lækningajurtir. Það er án allra kemiskra
rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn
er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á
einnig við um allar aðrar vörur frá
Dr.Hauschka.
Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16,
Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni,
Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi
og Heilsuhornið Akureyri.
dreifing:
Ný sending
af kápum
og úlpum
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 51, s. 561 1680
Kringlunni, s. 588 1680
Hettupeysan er frá sænskum
hönnuði sem heitir Thomas
Grogg, en hana keypti ég í
Amsterdam í einhverri búð sem
hann er með þar. Ég á frekar
margar hettupeysur og er eig-
inlega alltaf í hettupeysu. Þær
eru bara svo þægilegar, sér-
staklega þessar með vösum.
Þar er fínt að geyma kveikjarann
og sígaretturnar og annað ým-
islegt smálegt sem maður þarf
að notast við.
HETTUPEYSA
Buxurnar eru frá Cheap Monday-merkinu, en ég
keypti þær einnig í Amsterdam í búð sem heitir Zip-
per. Ég á um sex buxur frá þessu merki og held mik-
ið upp á það. Þeir eru þeir einu
sem eru með þetta snið sem ég
fíla hvað best. Þessar eru
reyndar ekki úr týpísku gallaefni, þær eru þynnri en
venjulegar gallabuxur, en alveg helvíti góðar, svona
grábrúnar með ljósbrúnum röndum.
BUXUR
Skórnir eru frá Nike, en ég fann þá í skó-
búð í, jú rétt til getið, Amsterdam. Ég á
mörg skópör, en notast gjarnan við eitt í
einu og slít þeim duglega.
Ég pæli ekki of mikið í því
hvort þeir passa við þau
föt sem ég klæðist hverju sinni, þótt ef-
laust sé það alltaf eitthvað ómeðvitað.
Þeir fara flestir vel við allt og því hefur
þetta sloppið alveg held ég. Ég reyni að
hugsa vel um skóna. Það er sérstaklega
þörf á því eftir helgarnar að þrífa þá að-
eins, því allir kannast við gólfin á íslensk-
um skemmtistöðum.
SKÓR
24TÍSKA
tiska@24stundir.is a
Ég er svolítill tískugúrú og hef lengi verið. Þetta
hefur einhvern veginn alltaf verið í mér og núna
upp á síðkastið hefur þetta tengst tónlistinni svolítið.
JAKKI