Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 63

Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 63
VINCE VAUGHN VINCE VAUGHNBEN STILLER BEN STILLER www.laugarasbio.is DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP Nýr og betri Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 6. Þorirðu að velja á milli? Toppmyndin á Íslandi í dag Hverfisgötu ☎ 551 9000 Gwyneth Paltrow lJude Law Angelina Jolie kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Kr. 500 Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Forsýnd kl. 2. Ísl. tal. Engin bjór... ekkert net... endalaust diskó...... en svo kom pönkið! Sýnd kl. 6, 8 og 10. www.regnboginn.is Tvíhöfði Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON PIERCE BROSNAN SALMA HAYEK WOODY HARRELSON DON CHEADLE Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON PIERCE BROSNAN SALMA HAYEK WOODY HARRELSON DON CHEADLE Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Ein besta spennu- og grínmynd ársins HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI Ein besta spennu- og grínmynd ársins HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI Frumsýnd 18. nóv J U L I A N N E M O O R E HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT? SÁLFRÆÐITRYLLIR AF BESTU GERÐ SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! DodgeBall Kr. 500 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. Aðeins 300 kr. Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 1.50 og 3.50. Sýnd kl. 2 og 4. Aðeins 300 kr. Aðeins 300 kr. Aðein s 300 k r. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 63 Í dag verða haldnir svokallaðirbíótónleikar í Háskólabíói.Þar mun Sinfóníuhljómsveit Íslands leika undir sýningu á tveimur sígildum kvikmyndum frá þögla skeiðinu en tónleikarnir eru liður í tón- leikaflokki Sin- fóníunnar sem kallast Tón- sprotinn og eru ætlaðir fyrir alla fjölskylduna. Myndirnar sem sýndar verða á tónleikunum eru myndirnar Klukkan tifar! (Safety Last!) eftir Harold Lloyd frá 1923 og Hundalíf (A Dog’s Life) eftir Charles Chapl- in frá 1918. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður þýski hljómsveitarstjórinn Frank Strobel, en hann hefur áður stýrt Sinfóníunni á slíkum bíótón- leikum, við afar góðan orðstír.    Síðast gerðist það í nóvember2002 er hann stýrði Sinfón- íunni sem lék undir sýningu á Gullæði Chaplins. Í sömu heim- sókn stjórnaði Strobel Sinfóníunni er hún lék undir Metrópólis eftir Fritz Lang. Bergþóra Jónsdóttir gagnrýn- andi hreifst mjög af Chaplin- tónleikunum og sagði að flutn- ingur sveitarinnar og útsetningar hafi verið „frábærar“ og tónlistin hafi verið „meistaralega sett við myndmálið“. Hljómsveitarstjórinn Frank Strobel hafi ekki síst átt „heiðurinn af því hversu vel tókst til með nákvæmri og snarpri stjórn“. Fyrst kom Strobel að bíótón- leikum á Íslandi er hann var ann- ar tveggja sem léku undir á píanó þegar Metrópólis var sýnd í tilefni af aldarafmæli kvikmyndanna 1995. Hann stjórnaði svo hljómsveit- inni er hún lék undir sýningu á Beitiskipinu Potemkin eftir Eisen- stein. Ríkharður Ö. Pálsson gagn- rýnandi sagði „uppátækið“ vel heppnað, „mikið til fagmannlegri stjórn Franks Strobels að þakka, sem leiddi hljómsveitina hnífná- kvæmt í svo samtvinnaðri heild- artjáningu mynda og músíkur að undrun sætti“. Ríkharður líkti þessu samspili kvikmyndasýningar og lifandi tón- listarflutnings við „upplifun í þrí- vídd, þar sem eldgamlar svart- hvítar skuggamyndapersónur öðluðust göldrum líkast hold og blóð“. „Það er alveg sérstök upplifun að sjá kvikmynd með lifandi tón- list,“ segir Oddný Sen skipuleggj- andi bíótónleikanna. „Þetta er eins og að hverfa aftur til fortíðar.“    Þannig upplifðu menn líka kvik-myndirnar hér á upphafs- árum bíósýninga fyrir tíma tal- myndanna, sem þrívíðar væru, því þá tíðkaðist að leika undir á hljóð- færi, einkum á píanó og stundum fiðlu einnig til hátíðarbrigða. Þá voru hljóðfæraleikarar í föstu starfi hjá bíóhúsum borgarinnar, í Fjalakettinum, sem síðar varð að Gamla bíói og Nýja bíói við Lækj- argötu. Fengu þá undirleikarar ansi frjálsar hendur og léku þá tónlist sem þeim þótti eiga við hverju sinni. Léku sígildar perlur og nýrri dægurlög í bland við áhrifa- aukandi stef sem til þess voru gerð að lýsa og magna upp stemn- inguna sem fyrir augu bar á hvíta tjaldinu. Síðan hefur verið samin tónlist sérstaklega fyrir mörg af höf- uðverkum þöglu myndanna. Þann- ig samdi hinn fjölhæfi Chaplin tónlist við a.m.k. þrjár af myndum sínum árið 1958, þ.á m. Hundalíf og verður hún leikin af Sinfón- íunni í dag. Þá hafa tónskáld á borð við Carl Davis, höfund tón- listarinnar sem leikin verður með Harold Lloyd-myndinni, sérhæft sig sérstaklega í gerð tónlistar við þöglar myndir. Auk þess að vera eftirsóttur stjórnandi hefur Davis samið tónlist við þekktar þöglar myndir á borð við Ben-Hur, Flesh and the Devil, The Thief of Bagd- ad, Greed og Vindinn eftir Victor Sjöström en Sinfónían lék þá tón- list er myndin var sýnd hér árið 1993. Þá samdi Davis Liverpool- óratoríuna ásamt Paul McCartney. Bíótónleikar eins og Sinfón- íuhljómsveit Íslands hefur staðið fyrir síðustu árin, eins og Dreyer- tónleikarnir á fimmtudaginn og Chaplin/Lloyd tónleikarnir í dag, eru afar kærkomin viðbót við fá- breytta bíóflóruna. Alveg einstök og ómissandi upplifun fyrir bíó- unnendur og alla þá sem orðið hafa vitni að slíkum listviðburði. Upplifun í þrívídd ’Það er alveg sérstökupplifun að sjá kvik- mynd með lifandi tón- list.‘ AF LISTUM Skarphéðinn Guðmundsson skarpi@mbl.is Harold Lloyd fór úr axlarliðnum við upptökur á þessu fræga atriði í kvikmyndinni Klukkan tifar! GRÍNHELGI MISSTU ÞIG ÚR HLÁTRI fyrir aðeins 300 kr. Aðeins 300 kr. Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 1.50 og 3.50. Sýnd kl. 2 og 4.Sýnd kl. 2 og 4. BEN STILLERVINCE VAUGHN Aðeins 300 kr. DodgeBall Aðeins 300 kr. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Aðein s 300 kr. yfir 32.000 mann yfir 18.000 manns DÓMSTÓLL í Bretlandi hafnaði í gær kröfu bresku rokkhljómsveit- arinnar Rolling Stonesum að fá aðgang að bók- haldi útgáfu- félagsins Decca Music Group en Rolling Stones telur að útgáfan hafi ekki greitt það sem henni ber vegna sölu á hljómplötunni 40 Licks sem kom út árið 2002. Dómari komst að þeirri nið- urstöðu, að samkvæmt samningi, sem gerður var árið 1976 milli Decca og þeirra Mick Jagger, Keith Richards og Charlie Watts. Stones eigi að vísa deilumálum um sölulaun til úrskurðarnefndar en ekki dóm- stóla. Á þeirri forsendu var kröfu hljómsveitarinnar um aðgang að bókhaldinu hafnað. Á plötunni 40 Licks voru mörg af þekktustu lögum Rolling Stones frá 40 ára ferli hennar, þar á með- al „Paint It Black“ og „Sympathy For The Devil“, en Decca á enn útgáfurétt á mörgum þessara laga. Meðlimir Rolling Stones segjast eiga rétt á 80% af þeim tekjum sem Decca-lögin á plötunni afli en þær gætu numið milljónum punda. Segja þeir að endurskoðun muni leiða í ljós hvaða upphæð þeir eigi rétt á. Slegist um Stones-slagara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.