Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Komdu í næsta útibú,
kanna›u máli› á kbbanki.is
e›a hringdu í síma 444 7000.
KYNNTU fiÉR HVERNIG
fiÚ GETUR LÆKKA‹
GREI‹SLUBYR‹I fiÍNA
ME‹ KB ÍBÚ‹ALÁNI
– kraftur til flín!
● LÆKKUN varð á verði hlutabréfa í
Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands í
gær. Þar af lækkuðu hlutabréf í
Actavis mest, eða um 2,44%, í 3 millj-
arða króna viðskiptum en alls námu
hlutabréfaviðskipti gærdagsins 5,6
milljörðum króna. Úrvalsvísitalan
lækkaði um 0,77% og var 3.386 stig í
lok dags. Af öðrum hlutabréfum varð
mest lækkun á verði bréfa í Síman-
um, eða 11%. Mest hækkun varð á
bréfum Nýherja, eða 6,08%.
Actavis lækkar í
miklum viðskiptum
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HAGNAÐUR Sláturfélags Suður-
lands það sem af er árinu nam 5,2
milljónum samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá félaginu. Á sama tímabili í
fyrra var fyrirtækið rekið með 30
milljóna króna halla.
Meðal ástæðna þessa afkomu-
bata má nefna að tekjur félagsins
hafa aukist um rúmlega 700 milljónir
síðan í fyrra en gjöld hafa aukist um
647 milljónir. Söluhagnaður af hluta-
bréfum nam 52,7 milljónum króna
en var enginn í fyrra og auk þess
minnkaði hlutdeild félagsins í tapi
hlutdeildarfélaga um 31 milljón.
Eignir Sláturfélagsins hinn 30.
september voru 3.651 milljón króna
og eiginfjárhlutfall 32%.
Tekjur SS aukast
um 700 milljónir
!"!
#$
! "# $
% "&
' ("& )"
* )"
+"& )" ' ("&
,!(
,!&
! (#
-#
- " ! ./0!
./ ! "#)$
1
%
&
$ / ' ("&
(#(!
%/ "
%() 2 3")$
% 4 $ 52 0 "
6)"
*(&)
*#"
+7 8" 2 ""
9:0!
.'
.( ;(# .("&
.(/ 0 4 0$
<"#
<4## "#/ "
= "" ( "
5/2 // >.8)!#
'& (
)!*!
)
!(& ?4
+"& 7/ ' ("& <8 8
=4## "# ;(# ' ("& .7
$!
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
!4 "#
4 $!
> > > > > > > >
>
>
> >
> >
> >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
@ >AB
@ > AB
@ > AB
@ AB
@ > AB
@ >AB
@ > AB
@
AB
@ > AB
>
>
@ AB
>
@ > AB
@ AB
>
@ > AB
>
@ >AB
>
>
>
>
>
@ AB
@
AB
@ AB
>
>
>
@ AB
>
>
>
>
>
>
%! (&
&# "
< () 7 ( &# C
* .(
$ $
$ $
$
$
$ $ $
$
>
>
$ >
$
$
>
>
>
$ >
$ >
$
$
$ >
>
$ >
>
>
>
>
>
>
= 7 D3 $ $
<%$ E 0#"( (&
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
BAUGUR Group, Straumur Fjárfestingarbanki
og félag í eigu Birgis Þórs Bieltvedt, B2B Hold-
ing, hafa tryggt sér 83% hlutafjár í félagi sem á og
rekur dönsku stórverslunina Magasin du Nord við
Kóngsins Nýja torg í Kaupmannahöfn auk sjö
annarra stórverslana. Kaupverð hlutarins í heild
sinni er um 4,8 milljarðar íslenskra króna en
stefnt er að yfirtöku á félaginu.
Hópurinn hefur þegar keypt 69% hlutafjár í
eignarhaldsfélagi verslunarinnar, TH. Wessel &
Vett, Magasin du Nord, sem skráð er í dönsku
kauphöllinni. Þá hefur hann tryggt sér 14% heild-
arhlutafjár til viðbótar. Nýtt félag verður stofnað
um eignarhlutinn og mun Baugur eiga þar 42%
hlutafjár, Straumur mun eiga 33% og B2B Hold-
ing mun eiga 25%. Hið nýja félag mun á næstu vik-
um gera öðrum hluthöfum í TH. Wessel & Vett,
Magasin du Nord yfirtökutilboð, með það í huga
að eignast alla hluti í félaginu. Í kjölfarið verður
það afskráð úr kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Í
tilkynningu frá Straumi segir að ekki séu fyrir-
hugaðar breytingar á yfirstjórn Magasin en nýr
forstjóri tók til starfa 1. nóvember sl. Hins vegar
verði boðað til hluthafafundar á næstu dögum þar
sem kosið verði til nýrrar stjórnar.
Bæta reksturinn enn frekar
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í
tilkynningu um kaupin að rekstur og efnahagur
Magasin hafi tekið miklum breytingum undanfarin
ár. Markmiðið sé að vinna með nýráðnum forstjóra
félagsins við að bæta rekstur þess enn frekar. Ráð-
gert er að endurskipuleggja efnahag félagsins m.a.
með endurskoðun á fasteignamálum þess, en bók-
fært verð fasteigna er talsvert yfir markaðsvirði fé-
lagsins, að því er segir í tilkynningunni. Nýttur
verði kaupréttur á fasteigninni við Kóngsins Nýja
torg og fasteignafélag stofnað um hana sem verður
í eigu íslensku fjárfestanna og sjálfseignarstofn-
unar í eigu Wessel og Vett fjölskyldunnar, afkom-
enda stofnenda Magasin. Ekki sé útilokað að sam-
vinna verði höfð við aðrar stórverslunarkeðjur um
ýmsa þætti í verslunarrekstrinum, sem verði einnig
undir sérstöku rekstrarfélagi.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums,
segir Straum koma að kaupunum á tvennan máta.
Annars vegar sem lánveitandi og hins vegar sem
þátttakandi í hlutafjárkaupunum. „Það er stefna
okkar að taka þátt í verkefnum erlendis með ís-
lenskum aðilum sem eru í útrás. Baugur er leið-
andi aðili í þessu verkefni og þar fer fagaðili í fjár-
festingum í smásöluverslun. Við sjáum góð
tækifæri í þessu samstarfi,“ segir Þórður Már.
Henrik Wedell-Wedellsborg, stjórnarformaður
Magasin, lýsir ánægju með samkomulagið við ís-
lensku fjárfestana. Þeir hafi mikla þekkingu á
smásölugeiranum, trú á félaginu og væru tilbúnir
til að fjárfesta í framtíð Magasin. Starfsfólk Mag-
asin þyrfti því ekki lengur að kvíða framtíðinni.
Magasin var stofnað árið 1868 og rekur nú 8
deildaskiptar stórverslanir. Velta þeirra samtals
um 30 milljarðar íslenskra króna.
Þeir sem þegar hafa selt Íslendingunum hluta-
bréf sín eru Jyske Bank (25,5%), Th. Wessel &
Vett Holding (13,3%), SEB Trygg Liv Holding
(7,9%), Nordea Bank (7,3%), PKA (6,9%), ATP
(5,5%) og Codan Forsikring (3%).
Baugur, Straumur og B2B
kaupa Magasin du Nord
Í eigu Íslendinga Hin fornfræga stórverslun Magasin du Nord við Kongens Nytorv.
Morgunblaðið/Ómar
MIKILVÆGT er að eignatengsl
milli fyrirtækja liggi fyrir og séu
skýr, en mikið skortir þar á hér á
landi. Stafar það m.a. af því hve al-
gengt það er að hluti hlutafjár í
skráðu félagi er falinn á safnreikn-
ingi eða í nafni erlendra fjármálafyr-
irtækja. Eignarhaldsfélög og fram-
virkir samningar um hlutabréfakaup
flækja einnig stöðuna.
Eignatengsl á verðbréfamarkaði
eru algengari hér á landi en víða
annars staðar. Útrás fyrirtækja á er-
lenda markaði ætti hins vegar að
leiða til þess að sérstaðan hér á landi
minnki. Þetta var meðal þess sem
fram kom á fundi Verslunarráðs Ís-
lands um eignatengsl í íslensku við-
skiptalífi í gær.
Þrýst á aukið gegnsæi
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, sagði að þó að
óþarfi væri að alhæfa nokkuð mætti
telja líklegt að smæð markaðarins
hér á landi gerði það að verkum að
eignatengsl væru algengari hér en
víða annars staðar.
„Umfjöllun um verðbréfamarkað-
inn gefur til kynna að menn séu vak-
andi fyrir hugsanlegum eigna-
tengslum í mörgum tilvikum og það
er jákvætt,“ sagði Páll Gunnar.
„Umræðan sýnir hins vegar að oft og
tíðum ríkir ekki mikið traust á því að
eignarhald fyrirtækja sé sýnilegt.
Ýmislegt getur flækt mat á þessu og
dregið úr sýnileika og skýrleika.
Ekki er óalgengt að einhver hluti
hlutafjár í skráðu fyrirtæki sé falinn
í gegnum safnreikninga eða í nafni
erlendra fjármálafyrirtækja. Eign-
arhaldsfélög og framvirkir samning-
ar um hlutabréfakaup geta einnig
flækt stöðuna.“
Sagði Páll Gunnar að kjarnaatriði
í gegnsæi á verðbréfamarkaði væri
að í viðskiptum og í sýnileika við-
skipta ætti efni að ráða yfir formi.
Þeir sem sættu athugunum FME
hneigðust hins vegar oft til þess að
setja form framar efni.
Bankastjórar ofan á múrum
Benedikt Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar, sagði
í erindi sem hann flutti á fundinum,
að þegar áhrifamiklar stofnanir
væru að of miklu leyti í eigu fárra að-
ila, væri hætt við því að eigendur
fórnuðu hagsmunum heildarinnar til
þess að skara eld að eigin köku. „Það
er þó mun hættulegra fyrir sam-
félagið hve stór hluti atvinnulífsins
er kominn í beina eigu fjármála-
stofnana, bæði beint og með eins
konar leppum. Þegar bankar eiga
beinan hlut í atvinnulífinu skapast
hætta á árekstrum við viðskiptavini.
Það er einnig þungt á metunum að
með mikilli hlutabréfaeign bankanna
hafa þeir beinan hag af því að hafa
bein áhrif á verð hlutabréfanna með
því að halda uppi eftirspurn. Með
þessu móti eignast þeir sífellt stærri
hlut atvinnulífsins. Þjóðverjar hafa
reynslu af slíku eignarhaldi og hún
er ekki góð. Stórt skref fram á við
yrði að banna með lögum fjárfest-
ingar viðskiptabanka í fyrirtækjum.
Allir sem vilja, vita að ofan á öllum
kínamúrum sitja bankastjórar og
formenn bankaráðs, sem hafa alla
vitneskju og völd.“
Sagði Benedikt að íslenska þjóðfé-
lagið væri lítið, fyrirtækin lítil og
tengsl milli manna mikil. Kunnings-
skapur og vinátta gerði að verkum
að menn væru líklegri til að eiga við-
skipti sín á milli. Hættan magnaðist
þá fyrst þegar farið væri að kaupa
vináttuna. „Auðhringar eru hemill á
hagkvæmni og samkeppni. Þeir fela í
sér upphaf að eigin hrörnun. En það
sem verra er, er að þeir fela líka í sér
upphaf að hrörnun samfélagsins
alls,“ sagði Benedikt.
Páll Gunnar sagði í umræðum að
loknum framsöguerindum að það
væri tómt mál að tala um að banna
bönkum að taka þátt í umbreyting-
um fyrirtækja. Slíkt væri ekki hægt
samkvæmt samningnum um evr-
ópska efnahagssvæðið. Hins vegar
væri hægt að bæta starfshættina.
„Til lengdar litið borgar það sig
ekki að hafa ekki trúnað viðskipta-
lífsins. Þess vegna held ég nú að
þrátt fyrir öll tilmæli og þrátt fyrir
opinbert eftirlit þá muni markaður-
inn á endanum regúlera þetta sjálf-
ur. Þegar bankarnir fara í auknum
mæli að starfa á erlendum markaði
munu þeir átta sig betur á því hvert
viðfangsefnið er og hve áhættan er
mikil af því að missa viðskiptavini.“
Kínamúrar of þunnir
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar, tók þátt í pall-
borðsumræðum. Hann sagði mjög
mikilvægt fyrir alla að eignatengsl í
viðskiptalífinu væru þekkt. Safn-
reikningar og eignarhaldsfélög
flæktu þessa mynd þar sem ekki
lægi fyrir hver stæði þar á bakvið.
Þetta ætti til að mynda við um safn-
reikninginn Arion sem KB banki
notaði fyrir nánast alla viðskipta-
menn sína. Sagði Jafet að það væri
hans mat að svonefndir kínamúrar í
viðskiptabönkunum þyrftu að vera
þykkari en þeir eru nú. Bankarnir
þyrftu á því að halda til að það traust
sem til þeirra væri borið efldist.
Mikið skortir á að
eignatengsl séu skýr
Eignatengsl
algengari hér en
víða annars staðar
9 &F
.GH
A
A
<.?
IJ
A
A
KK -,J
A
A
*J
9 !
A
A
LK?J IM 6"!
A
A
!
"!
"!
"!
"!
"!
!
"!
"!
"!