Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 55 DAGBÓK Einn af vinsælustu og þekktustu forn-leifafræðingum Norðurlanda, dr. LotteHedeager, er stödd hér á landi í boðiFornleifafræðingafélags Íslands. Lotte, sem er dönsk, er prófessor við Háskólann í Osló og er sérfræðingur í Járnaldartímabilinu, bæði þjóðflutningunum og víkingaöldinni. Hún varð fyrst þekkt fyrir doktorsritgerð sína „Dan- marks jernalder, fra stamme til stad,“ sem kom út 1992. Lotte heldur í dag kl. 14 opinn fyrirlestur um dýr og stríðshetjur á heiðnum tíma í löndum nor- rænna manna í nýjum fyrirlestrarsal Þjóðminja- safns Íslands. „Ritaðar heimildir, hvort sem um er að ræða ís- lendingasögurnar eða Eddu, gefa í skyn að vissar manneskjur (og guðir) hafi getað holdgervst sem dýr, bókstaflega tekið sér líkama dýra,“ segir Lotte um efni fyrirlesturs síns. „Án efa voru ham- skipti og umbreytingar álitin náttúrulegur hlutur, einfaldlega eitthvað sem ekki var efast um. Það var vel samþykkt og vottað að líkaminn gæti verið til utan húðarinnar, þ.e.a.s. innan annarrar húðar eða felds. Þessi hugmynd sést í hlutlægri menn- ingu og gripum frá þessum tíma.“ Hvaða þekkingu færa rannsóknir á járnaldar- tímabilinu okkur? „Í skandínavískri fornleifafræði er járnöldin tímabilið frá árinu 500 f.k til ársins 1000 e.k. Forn- leifafræðingar rannsaka hinar löngu línur í þessu menningartímabili. Þetta er hið einstaka við- fangsefni fornleifafræðinnar. Í seinni rann- sóknum mínum hef ég sérstaklega einbeitt mér að svokölluðum síðari járnöldum, þ.e.a.s. tímabilinu frá upplausn Rómaveldis í kringum 400 e.Kr. og fram til miðalda. Ég hef sérstaklega skoðað hugrænar og vits- munalegar hliðar undanfarið. Það sem leiddi mig inn á þær slóðir voru rannsóknir á norrænum dýraskreytimunum, sem hefjast í kringum árið 400 og halda áfram til kristnitöku Norðurlanda. Séu þær skoðaðar sem annað en einfalt skraut kemur í ljós að þarna hlýtur að vera um að ræða táknrænt tungumál sem gefur okkur á vissan hátt innsýn í hvernig fólk upplifði heiminn og stað sinn í honum.“ Hver er sérstaða norrænnar fornleifafræði, t.d. miðað við breska? „Sérstaða norrænnar fornleifafræði felst m.a. í þeim möguleikum sem tengslin við skriflegar heimildir gefa. Við höfum geymt heimildir eins og Edduna og aðra norræna texta sem gefa okkur af- ar verðmæta innsýn hvað varðar heimsmynd og hugarheim fólks á þessum tíma og gerir okkur kleift að öðlast betri skilning á hugarfari, minni, sjálfsmynd og öðrum vitsmunalegum hliðum forn- leifafræðinnar.“ Fornleifafræði | Dr. Lotte Hedeager flytur fyrirlestur í Þjóðminjasafninu Skriflegar heimildir verðmætar  Lotte Hedeager er fædd í Kaupmannahöfn árið 1948. Hún útskrif- aðist með BA-gráðu í fornleifafræði frá Kaup- mannahafnaháskóla 1976 og doktorsgráðu í sama fagi frá Árósahá- skóla 1990. Lotte starfaði að fornleifarannsóknum við háskólana í Kaup- mannahöfn og Lundi en er nú prófessor í forn- leifafræði við Óslóarháskóla síðan 1996. Lotte er gift dr. Kristian Kristianssen pró- fessor við Gautaborgarháskóla og eiga þau einn son. ÓL í Istanbúl. Norður ♠KG96 ♥10842 S/Enginn ♦G10 ♣Á64 Vestur Austur ♠87 ♠D5 ♥3 ♥ÁK76 ♦8643 ♦ÁKD95 ♣1087532 ♣D9 Suður ♠Á10432 ♥DG95 ♦72 ♣KG Eins og títt er um úrslitaleiki var fegurðin ekki alltaf við völd í leik Ítala og Hollendinga. Einn af ritstjórum mótsblaðsins í Istanbúl, Bretinn Mark Horton, hafði lúmskt gaman af óförum keppenda í þessu spili. Gefum honum orðið: Vestur Norður Austur Suður Brink Bocchi Prooijen Duboin – – – 1 spaði Pass 3 tíglar * Dobl 3 spaðar Pass Pass Pass * Bergen-hækkun: fjórlitur í spaða og 9–12 HP. „Þá er það ferðalag í ljósaskipt- unum,“ hefur Horton frásögnina: „Það virðist ekki vera erfiðleikum bundið að ná þessu tvo niður – hjarta, hjarta, hjarta, trompað og tígull, og svo meira hjarta. En eitthvað undarlegt gerðist. Vestur kom út með einspilið í hjarta, sem austur tók og sagnhafi lét gosann undir. Nú lagði austur niður tígulkóng og ás. Þessi dularfulla vörn var full- komnuð með því að austur spilaði und- an hjartaásnum, sem vestur trompaði og spilaði tígli í tvöfalda eyðu. Duboin trompaði í borði og henti hjarta heima, svínaði laufgosa og henti síðar síðasta hjartanu niður í laufás: 140 í NS.“ Vestur Norður Austur Suður Versace Verhees Lauria Jansma – – – 1 spaði Pass 2 grönd * Dobl Pass 3 lauf 3 spaðar Pass Pass 3 grönd ! Pass 5 tíglar Allir pass „Það er ljóst að Versace gefst ekki upp baráttulaust,“ segir Horton, „en hitt var verra að Lauria skyldi taka hann alvarlega og reyna við geimbón- usinn. Enginn sá þó ástæðu til að dobla og spilið fór hægt og rólega tvo niður: 100 í NS og einn IMPi til Ítala.“ BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. Rge2 Rf6 5. e5 Rfd7 6. f4 f5 7. a3 Be7 8. g4 fxg4 9. Rg3 h5 10. h3 Bh4 11. Dd3 Rf8 12. Bd2 gxh3 13. 0-0-0 Rc6 14. Hxh3 g6 15. Be1 Be7 16. Be2 Dd7 17. Bf3 Kd8 18. Kb1 b6 19. f5 gxf5 20. Rxf5 exf5 21. Rxd5 Bg5 22. Hg3 Re6 Staðan kom upp á Ólympíuskákmót- inu sem lauk fyrir skömmu í Calviu á Mallorca. Igor-Alexandre Nataf (2.565) hafði hvítt gegn Berge Østen- stad (2.506). 23. Hxg5! Rxg5 24. Rf6 Rxf3 25. Dxf3 Df7 26. Dxc6 Hb8 27. Bh4 Bb7 28. Re4+ Kc8 29. Rd6#. Afar óvenjulegt mát eftir aðeins 29 leiki. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. ERNA gull- og silfursmiðja Erna gull- og silfursmiðja, Skipholti 3, sími 552 0775. Opnunartími alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-14 Njáluarmband hannað af Ríkharði Jónssyni og Karli Guðmundssyni myndskera frá Þinganesi. Sterling silfur 44.900 - fáanlegt í 14 kt. gulli og 14 kt. hvítagulli. 1924 2004 NORRÆNN skjaladagur er hald- inn hátíðlegur í dag, en tilgangur hans er að vekja athygli á safnkosti og þjónustu skjalasafna á landinu. Á skjalasöfnum er hægt að finna mjög fjölbreyttar heimildir um liðna tíð, bæði hvað varðar lífshætti, ákvarðanir sem teknar hafa verið í opinberri stjórnsýslu og ýmsa þætti hversdagslífsins. Í tilefni dagsins hefur verið opn- uð vefsíðan www.skjaladagur.is, þar sem almenningur getur nálgast fróðleik um söfn auk þess sem þar er að finna netsýningu sem haldin er á íslensku safni. Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður seg- ir margt fróðlegt mega finna á þess- ari nýstárlegu sýningu, sem fjallar um minnisverða atburði árið 1974. „Meðal annars er þar að finna ljós- myndir frá þessu ári og athyglis- verð skjöl um ýmis umfjöllunar- efni,“ segir Svanhildur. „Til dæmis eru þarna skjöl um vígslu Skeiðar- árbrúarinnar, þjóðhátíðarhöldin, komu Noregskonungs og borgar- stjórnarkosningarnar. Borgarskjalasafnið ákvað einnig að koma með sýningu út til fólksins og verður með sýningu í Kringlunni af þessu tilefni. Hún opnar samhliða Kringlunni kl. 10 og stendur út nóv- ember. Þar er annars vegar að finna jólakort og skjöl tengd jól- unum, t.d. bréf til jólasveinsins og einnig önnur skjöl tengd árinu 1974.“ Einkaaðilar, einstaklingar, fyrir- tæki og félög eru hvött til að hug- leiða hvort skjöl þeirra eigi erindi inn á opinbert skjalasafn þar sem þau verða tryggilega varðveitt og aðgengileg um alla framtíð. Þjóðskjalasafnið verður einnig með sýningu í lestrarsal sínum að Laugavegi 162, en hún er opin í dag frá 11-15. Þar verða einnig sýnd skjöl tengd árinu 1974, m.a. um landhelgisdeiluna og opnun hring- vegarins. Þá munu héraðsskjalasöfn um land allt taka þátt í deginum. Græna byltingin – hugmynd sjálfstæðismanna um þá áætlun að láta græn svæði njóta sín í borginni í stað steinsteypu og stuðla þannig að útivist. Skjaladagurinn um allt land„ÞÚ veist hvernig þetta er“ er titill spunaverks sem Stúdentaleikhúsið, leikfélag Háskóla Íslands, hefur nú í sýningum í Tónlistarþróunar- miðstöðinni á Hólmaslóð. Fjallar sýningin, sem samin er í sameiningu af leikhópnum, á óvenjulegan hátt um íslenskt samfélag í hnotskurn. „Hún fjallar um það sem okkur finnst að í þjóðfélaginu, það sem ekki er sagt en ætti að segja,“ segir Ástbjörg Rut Jónsdóttir, fram- kvæmdastýra Stúdentaleikhússins. „Við leggjum þó áherslu á að við er- um ekki að predika, heldur benda á það sem betur mætti fara. Við sjálf erum nefnilega ekki saklaus, við tök- um þátt í þessu öllu saman eins og allir hinir í þjóðfélaginu og segjum bara: Þú veist hvernig þetta er!“ Verkið er sýnt í kvöld, en nokkrar sýningar eru enn eftir. Spunaverk um kvisti samfélagsins Allar sýningar hefjast kl. 20. Aðeins kom- ast fyrir um 50 áhorfend- ur á hverja sýningu og því þarf að panta miða sem fyrst. Miða- sölusími er 659-3483 og einnig er hægt að panta miða á Netinu, á studentaleik- husid@hot- mail.com. Sýningin er alls ekki við hæfi barna. MSK útgáfan efnir til útgáfutónleika í kvöld kl. 23 á Grand rokk, þar sem troða upp hljómsveitirnar Manhattan og Solid iv, en þær sendu báðar frá sér frumraunir sínar í síðasta mánuði. Sveitirnar leika kraftmikið og fram- úrstefnukennt rokk og gera tilraunir með ýmiss konar hljóð, kraft og form. Miðaverði er stillt í hóf og kostar aðeins 1000 kr. inn, en það sem merkilegt má teljast við þessa útgáfutónleika er að allir tónleikagestir fá að taka heim með sér geisladisk frá annarri hvorri sveitinni. Kraftmikið tilraunarokk á Grand rokk Hljómsveitin Manhattan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.