Morgunblaðið - 18.11.2004, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, sagði í gær að Rússar myndu á
næstu árum koma sér upp nýjum
kjarnorkuvopnakerfum. Forsetinn
bætti við að um væri ræða vopna-
kerfi sem önnur kjarnorkuveldi réðu
ekki yfir og væru ekki líkleg til að
þróa fram í nánustu framtíð.
Yfirlýsing forsetans þótti mjög
óljós en svo virtist sem hann væri að
vísa til nýrra burðarkerfa. „Við höf-
um ekki einvörðungu gert tilraunir
með nýjustu kjarnorkueldflauga-
kerfin,“ sagði Pútín er hann ávarpaði
herforingja úr hinum ýmsum deild-
um heraflans. „Ég er viss um að á
næstu árum munum við eignast þau
[vopnakerfin],“ sagði hann og bætti
við: „Og það sem meira er, þá ræðir
hér um hluti sem ekki eru til og
ósennilegt er að séu í vopnabúrum
annarra kjarnorkuvelda.“
Pútín gerði ekki nánari grein fyrir
þeim vopnakerfum sem hann vísaði
til. Hins vegar er vitað að Rússar
hafa leitast við að uppfæra vopnabúr
kjarnorkuheraflans frá því að stjórn-
völd í Bandaríkjunum lýstu yfir því
árið 2001 að þau hygðust koma upp
varnarkerfi gegn langdrægum eld-
flaugum sem borið geta kjarna-
hleðslur. Þeirri
ákvörðun Banda-
ríkjamanna fylgir
að þeir segja sig
einhliða frá
ákvæðum ABM-
sáttmála Banda-
ríkjanna og Sov-
étríkjanna sálugu
frá árinu 1972 um
takmarkanir
slíkra varnarkerfa. Bandaríkjamenn
halda því fram að slíku varnarkerfi
sé einkum ætlað að vernda Banda-
ríkin gagnvart eldflaugaárásum „út-
lagaríkja“ og að þess háttar „skjöld-
ur“ myndi ekki megna að tryggja
varnir gagnvart kjarnorkuherafla
Rússa.
Ef til vill Topol-M
Pútín hefur hins vegar látið að því
liggja að Rússar kunni einnig að þróa
fram slíkt varnarkerfi gegn eldflaug-
um. Og hann hefur ennfremur gefið í
skyn að Rússar hyggist þróa nýja
gerð langdrægra eldflauga sem
reynast muni þess megnugar að sigr-
ast á þeim varnarkerfum er Banda-
ríkjamenn áformi að koma upp.
AP-fréttastofan vitnaði í gær til
ummæla sem Sergei Ívanov, varnar-
málaráðherra Rússlands, lét falla
fyrr í mánuðinum þess efnis að Rúss-
ar vonuðust til að geta síðar í ár skot-
ið á loft í tilraunaskyni hreyfanlegri
eldflaug af gerðinni Topol-M. Kann
því að vera að Pútín hafi verið að vísa
til þessarar eldflaugar sem rússnesk-
ir vísindamenn hafa unnið að á und-
anliðnum árum.
Topol-M-kerfið er fyrsta nýja
langdræga eldflaugin sem Rússar
hafa unnið að frá endalokum Sovét-
ríkjanna. Rússar hafa ráðið yfir
Topol-eldflaugum á föstum skotpöll-
um frá árinu 1998 en tiltækar heim-
ildir herma að þetta vopnakerfi beri
einn kjarnaodd. Topol-eldflaug dreg-
ur um 10.000 kílómetra og stýrikerf-
ið mun þeirrar náttúru að erfitt er að
greina flugleið þeirra. AP-fréttastof-
an vísaði einnig í fregnir þess efnis að
Rússar hygðust þróa fram nýja risa-
eldflaug sem borið gæti allt að tíu
kjarnaodda og yrði þrisvar sinnum
þyngri en Topol-kerfið.
Pútín sagði að Rússar teldu
hryðjuverk mestu ógnina við öryggi
sitt. En þeir myndu bregðast við nýj-
um ógnum og þróun þyrfti að eiga
sér stað á öllum sviðum heraflans.
Pútín boðar nýja
tegund kjarnavopna
Moskvu. AFP. AP.
Vladímír Pútín
BÚIÐ er að reisa geysimikið svið við Colosseum, hið
forna hringleikahús í Róm.
Er ætlunin að nota mannvirkið sem svið vegna út-
sendingar á vegum MTV-sjónvarpsstöðvarinnar. Tón-
listarverðlaunum stöðvarinnar fyrir Evrópu verður út-
hlutað í dag.
AP
Gamalt og nýtt í Róm
KIM Jong-Il, leiðtogi Norður-Kór-
eu, hefur fyrirskipað að allar myndir
af þjóðarleiðtoganum á opinberum
stöðum og á heimilum í landinu skuli
teknar niður. Fréttaskýrendur segja
þetta benda til að hann vilji draga úr
persónudýrkun á sér, að sögn suður-
kóresku fréttastofunnar Yonhap.
Kim Jong-Il er nú 63 ára gamall og á
tvo syni á lífi, annar er 23 ára og hinn
18. Ekki er vitað hvort hann ætlar
þeim að taka við af sér.
Talið er að hvergi í heiminum hafi
á undanförnum áratugum tíðkast
jafn mikil persónudýrkun á leiðtoga í
kommúnistaríki Kims og þar áður
föður hans, Kim Il-Sungs. Hefur
Kim að sögn áhyggjur af því að hann
sé „orðinn of upphafinn“, að því er
fréttastofan hefur eftir heimildar-
manni er hafi „góð sambönd“ í
Pyongyang, höfuðborg N-Kóreu.
Kveðst heimildarmaðurinn hafa
rætt við n-kóreskan embættismann
er hafi sagt að nú séu einungis hafð-
ar uppi myndir af Kim Il-Sung.
Heimildarmaðurinn lagði áherslu
á að þetta væri á engan hátt til
marks um „einhver vandamál“ í
N-Kóreuleiðtoginn Kim Jong-Il
Myndir af leiðtog-
anum fjarlægðar
Seoul. AFP.
Reuters
Norður-kóreskur háskólanemi, í
baksýn eru myndir af Kim Jong-Il
(t.h.) og föður hans, Kim Il-Sung.
tengslum við Kim og s-kóreskir
embættismenn segjast ekki hafa
greint nein merki um breytingar á
stjórnarfarinu í N-Kóreu.
TALIÐ er nú nær öruggt að ræn-
ingjar Margaret Hassan, hjálpar-
starfsmanns í Bagdad af írskum
uppruna, hafi
myrt hana en ar-
abíska sjónvarps-
stöðin Al-jazeera
hefur undir hönd-
um myndband er
sýnir karlmann
skjóta hana í höf-
uðið. Breskir
embættismenn
telja að mynd-
bandið sé ófalsað. Hassan hafði búið
í Írak í þrjá áratugi og veitti forstöðu
deild mannúðarsamtakanna CARE í
Ástralíu sem fjármagnaði starfið í
Írak.
Eiginmaður Hassan, Tahseen
Hassan, sem er Íraki, grátbað í gær
mannræningjana um að segja sér
hvar líkið væri og ættingjar Hassan
sendu frá sér yfirlýsingu. „Við erum
harmi lostin. Við reyndum að halda í
vonina eins lengi og unnt var en nú
verðum við að horfast í augu við að
Margaret sé sennilega látin og þján-
ingar hennar loks á enda,“ sagði í yf-
irlýsingunni. Margir Bretar létu í
ljós reiði í garð morðingjanna en
þetta er í fyrsta sinn sem íraskir
mannræningjar myrða kvenkyns
gísl svo vitað sé.
Beitti sér gegn innrásinni
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands og Tony Blair, forsætis-
ráðherra, lýstu báðir mikilli hryggð
sinni yfir örlögum Margaret Hassan
sem var rænt 19. október þegar hún
var á leið til vinnu í Bagdad. Ekki er
vitað hvaða ræningjahópur var að
verki.
Margaret Hassan fæddist í Dublin
og var með ríkisfang á Írlandi, í
Bretlandi og Írak. Hafði hún unnið
að mannúðarstörfum í Írak í 25 ár,
talaði reiprennandi arabísku og
snerist til íslamstrúar. Hún var 59
ára gömul, smávaxin en þótti að sögn
breskra blaða afar ákveðin og lét
ekki hlut sinn fyrir neinum þegar
hún sinnti störfum sínum. Hún var
eindreginn andstæðingur efnahags-
legra þvingana sem Írakar voru
beittir í tíð Saddams Husseins og
mótmælti einnig kröftuglega innrás-
inni í fyrra. Fór hún á fund örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna í janúar
2003 og varaði þá við því að innrás í
Írak gæti haft hörmulegar afleiðing-
ar fyrir almenning þar.
Er henni var rænt brugðust marg-
ir Írakar hart við og fordæmdu ræn-
ingjana. Var efnt til útifunda í
Bagdad og á spjöldum fundarmanna
var hún kölluð „Margaret mamma“.
Morðið á Margaret
Hassan fordæmt
Margaret Hassan
London, Bagdad, Genf. AP, AFP.
LÆKNAR, sem stunduðu Yasser Arafat Pal-
estínuleiðtoga á dánarbeðinum í París, telja að
banamein hans hafi verið blóðsjúkdómur sem
kallast DIC. Engin merki fundust um að Ara-
fat hafi verið byrlað eitur, að sögn franska
blaðsins Le Monde í gær. Misvísandi fregnir
hafa hins vegar borist um banameinið og
Ahmed Qurei, forsætisráðherra Palestínu-
stjórnar, skipaði í gær nefnd sem á að rann-
saka málið.
Embættismenn Qureis héldu til Parísar í
gær til að leita upplýsinga hjá stjórnvöldum
þar í borg. Verða þau m.a. beðin um að afhenda
Palestínustjórn sjúkraskýrsluna. Arafat lést á
Percy-herspítalanum við París sl. fimmtudag,
75 ára að aldri.
Frönsk læknalög kveða á um að læknar geti
aðeins veitt nánustu ættingjum látins sjúklings
upplýsingar um sjúkdómsgreiningu. Mun
Suha Arafat, ekkja leiðtogans, þegar hafa
fengið að sjá skýrsluna ekki aðrir. Hefur þetta
leitt til þess að hávær orðrómur er um það í
arabalöndum að Arafat hafi verið byrlað eitur
og segja sumir samsærimenn að Ísraelar hafi
verið þar að verki. Ísraelskir leiðtogar gáfu á
sínum tíma í skyn að rétt væri að drepa Arafat.
Að sögn Le Monde eru afleiðingar DIC að
blóðið storknar ekki eðlilega og getur það leitt
til mikilla innvortis blæðinga og hugsanlega
dauða.
Blaðið hefur eftir læknum, að DIC sé ekki
eiginlegur sjúkdómur heldur ástand sem geti
skapast af völdum sýkingar eða krabbameins í
öldruðu fólki. Engin merki um slíka sjúkdóma
hafi hins vegar fundist hjá Arafat.
Var skorpulifur orsökin?
Franska skoptímaritið Le Canard Enchaine
sagði í gær að Arafat hefði ef til vill dáið úr
skorpulifur. Ritið, sem er þekkt fyrir að hafa
góðar heimildir fyrir fréttum af alvarlegum
toga, segir hins vegar að sjúkdómurinn hafi
ekki stafað af áfengisneyslu eins og oft er þeg-
ar um skorpulifur er að ræða. Segist ritið hafa
rætt við lækna sem höfðu aðgang að sjúkra-
skýrslum Arafats.
Le Canard Enchaine segir að dvöl Arafats í
stofufangelsi í Ramallah síðustu árin hafi ekki
bætt heilsu hans og hann hafi ekki fengið þá
meðhöndlun sem þörf hafi verið á. „Líklegast
er að margt í senn hafi dregið hann til dauða,“
segir ritið.
Óljóst hvert bana-
mein Arafats var
Palestínustjórn lætur nefnd rannsaka málið
París. AFP.
Reuters
Ahmed Qurei, forsætisráðherra Palest-
ínumanna, ræðir við fréttamenn áður en
fundur hófst í hinum gömlu aðalstöðvum
Yassers Arafats í Ramallah í gær.