Morgunblaðið - 18.11.2004, Page 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Frábært ræktunarstarf | Hjarðarfells-
búinu í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi var
veitt viðurkenning fyrir frábært rækt-
unarstarf á Sveitateiti Búnaðarsamtaka
Vesturlands sem haldið var á Hótel Borg-
arnesi.
Búið er rekið af bræðrunum Guðbjarti og
Högna Gunnarssonum og konum þeirra,
Hörpu Jónsdóttur og Báru Katrínu Finn-
bogadóttur. Þau reka blandað bú með um
það bil 20 mjólkurkýr og 460 fjár.
Í fréttabréfi til bænda á Vesturlandi
kemur fram að á undanförnum árum hafa
komið margir afgerandi kynbótagripir frá
Hjarðarfelli, jafnt úr nautgripa- sem sauð-
fjárræktinni, auk þess sem lömb þaðan hafa
verið seld vítt og breitt um landið til kyn-
bóta og endurnýjunar fjárstofna eftir nið-
urskurð.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Háhraðanet í sveitir | Sveitarstjórn
Rangárþings eystra hefur ákveðið að styrkja
uppbyggingu þráðlauss há-
hraðanets um allar sínar
sveitir. Það verða mikil við-
brigði fyrir þá sem nota
netið því fram að þessu
hefur venjuleg símalína
eða ISDN-tenging verið
það eina sem boðið hefur
verið upp á. Sveitarstjórnin
telur þetta vera nauðsynlegt til þess að
styrkja búsetu í sveitarfélaginu.
Reynt verði til þrautar | Skólanefnd
Garðs skorar á samninganefndir kennara
og sveitarfélaga að reyna til þrautar að
gera kjarasamning fyrir 20. nóvember
næstkomandi.
Skólanefndin leggur áherslu á að
skólastarf geti orðið eðlilegt sem fyrst en
telur hættu á að það gerist ekki nema
aðilar nái samkomulagi um nýjan kjara-
samning.
Vetrarstarfið er kom-ið í fullan gang hjáfélögum í Karla-
kórnum Drífanda á Fljóts-
dalshéraði. Undanfarnar
vikur hafa staðið yfir æf-
ingar fyrir tvenna tónleika
á næstunni. Fyrri tónleik-
arnir verða í Miklagarði á
Vopnafirði, föstudaginn
19. nóvember og hefjast
kl. 21. Síðan syngur kór-
inn í Egilsstaðakirkju viku
síðar, föstudaginn 26. nóv-
ember, kl. 20.30.
Félagar í Karlakórnum
Drífanda koma vítt og
breitt af Fljótsdalshéraði.
Nýir söngmenn gengu til
liðs við kórinn í haust
ásamt Sigrúnu Önnu Páls-
dóttur, undirleikara. Drífa
Sigurðardóttir er stjórn-
andi. Frá þessu segir á
vefnum egilsstadir.is.
Drífandi
Vinnu við endur-byggingu á Sam-komuhúsi Sand-
gerðis er að ljúka. Af því
tilefni verður húsið til
sýnis fyrir íbúana í dag,
milli kl. 16 og 19.
Húsið hefur verið end-
urnýjað mikið, jafnt að
utan sem innan og um-
hverfið þess og aðkoma
fært í betra lag. Þá er all-
ur húsbúnaður nýr og
sett upp nýtt öryggis- og
eldvarnarkerfi.
Þá var húsið stækkað
með 140 fermetra við-
byggingu austan við Sam-
komuhúsið. Þar er auka
salur, eldhús, anddyri og
snyrtingar. Hægt er að
opna á milli salanna og
komast þá um 200 manns
í sæti.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Samkomuhús til sýnis
Rúnar Kristjánssonfylgist með þjóð-málunum að norð-
an frá Skagaströnd og
undrast stórum.
Undrast ég sem Íslendingur
ástand mála nú í dag.
Hvernig landsins lengstu fingur
leikið hafa þjóðarhag!
Afsökun ef ein skal duga
óþjóðlegum svikahring,
eftir ránskap áratuga,
er það skömm og svívirðing!
Einu sinni fyrir margt
löngu kom Björn Ingólfs-
son í Sparisjóð Höfð-
hverfinga til að biðja um
lán fyrir salti í grautinn.
Meðan hann beið eftir
viðtali við sparisjóðsstjór-
ann orti hann í bjartsýnis-
leysi:
Ég hef aldeilis ekkert á prjónunum
en illa þó helst mér á krónunum.
Svona það gengur,
skal ég segja þér drengur
hjá ræflunum, mér og rónunum.
Af þjóðmálum
pebl@mbl.is
Reykjavík | Snjór er yfir öllu í Reykjavík eftir
að snjó kyngdi niður í borginni í fyrradag.
Trén eru skrýdd hvítu og barrtrén óneitanlega
jólaleg að sjá. Vetrarveðrið hafði sín áhrif á
bílaumferð en börnin tóku í staðinn fram vetr-
artækin og renna sér á þeim hvar sem brekku
er að finna. Útlit er fyrir ágætis sleðaveður
næstu daga þótt kalt verði í veðri því það verð-
ur bjart syðra en éljaangur norðanlands og
austan.
Morgunblaðið/Golli
Borgin skrýðist hvítu
Vetur
Hvalfjörður | Almenn atkvæðagreiðsla um
sameiningu fjögurra sveitahreppa sunnan
Skarðsheiðar í Borgarfirði fara fram næst-
komandi laugardag.
Innri-Akraneshreppur, Hvalfjarðar-
strandarhreppur, Leirár- og Melahreppur
og Skilmannahreppur hafa með sér mikið
samstarf, meðal annars um skólamál en
þeir reka saman grunnskólann Heiðar-
skóla. Verði sameiningin samþykkt verður
til 560 íbúa sveitarfélag með öflugt at-
vinnulíf sem byggist meðal annars á verk-
smiðjunum á Grundartanga.
Að mati Samstarfsnefndar heimamanna
um sameiningu er það margt sem styður
sameiningu þessara fjögurra sveitarfélaga,
s.s. landfræðilegar aðstæður, auk mikilla
samskipta í gegnum tíðina og samstarf á
fjölmörgum sviðum.
Kjörfundir verða frá klukkan 10–18
laugardaginn 20. nóvember, og fer kosning
fram í félagsheimilunum Miðgarði, Heið-
arborg, Hlöðum og Fannahlíð. Utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla stendur yfir hjá
öllum sýslumönnum.
Atkvæða-
greiðsla um
sameiningu
Vestmannaeyjar | Guðrún Erlingsdóttir,
bæjarfulltrúi Vestmannaeyjalistans, verð-
ur áfram forseti bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja. Arnar Sigurmundsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokks, tekur hins vegar við for-
mennsku í bæjarráði af Andrési Sigmunds-
syni fulltrúa Framsóknarflokks og óháðra,
í samræmi við málefnasamning Sjálfstæð-
isflokks og Vestmannaeyjalista sem kynnt-
ur var á fundi bæjarstjórnar í fyrrakvöld.
Elliði Vignisson (D) kemur inn í bæj-
arráð í stað Andrésar, að því er fram kem-
ur í frétt á vef Frétta í Eyjum, og þriðji
maðurinn í bæjarráði er Lúðvík Berg-
vinsson, oddviti Vestmannaeyjalistans.
Stefán Jónasson (V) verður formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, Elliði Vignisson
formaður menningar- og tómstundaráðs,
Guðrún Erlingsdóttir formaður fjölskyldu-
ráðs og Elsa Valgeirsdóttir (D) formaður
skólamálaráðs.
Andrés Sigmundsson hefur óskað eftir
að fá sæti í bæjarráði sem áheyrnarfulltrúi
en hann er einnig fulltrúi í öllum sjö manna
nefndum bæjarins.
Arnar tekur
við for-
mennsku í
bæjarráði
♦♦♦
Hversu há verður þín ávísun?
e-KORTSHAFAR
FÁ ÁVÍSUN
Í DESEMBER
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Ný störf í nýju sveitarfélagi | Fljóts-
dalshérað hefur auglýst sex ný störf hjá
sveitarfélaginu laus til umsóknar. Um er að
ræða störf stjórnenda samkvæmt nýju
skipuriti og er um að ræða störf fjár-
málastjóra, fræðslufulltrúa, héraðsfulltrúa,
menningar- og frístundafulltrúa, skipulags-
fulltrúa, umhverfisfulltrúa og verkefnis- og
þróunarstjóra.