Morgunblaðið - 18.11.2004, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur
ráðið sérfræðinga frá bresku örygg-
is- og ráðgjafarfyrirtæki til að taka
út hótel og borgir þar sem áhafnir
Atlanta gista á nokkrum stöðum í
heiminum. Bjarni Þór Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri öryggis- og
gæðastjórnunardeildar Atlanta, og
Einar Óskarsson, öryggisfulltrúi
Atlanta, segja að með auknum um-
ræðum og kröfum um öryggisráð-
stafanir vegna hugsanlegra hryðju-
verka hafi þótt nauðsynlegt að gera
sérstaka úttekt á nokkrum stöðum
þar sem flugliðar Atlanta gista, m.a. í
Saudi Arabíu, Indónesíu og Alsír.
Þeir segja kostnað við slíkar úttektir
vera umtalsverðan en nauðsynlegan
til að tryggja öryggi starfsfólks.
Fulltrúar frá breska ráðgjafarfyr-
irtækinu Quest hafa heimsótt nokkr-
ar borgir þar sem flugliðar Atlanta
gista. Kanna þeir aðstæður á hótel-
um og á leiðinni milli hótela og flug-
valla sem oft séu varasamar. Þá setja
þeir fram tillögur er varða öryggis-
mál, t.d. leiðaval og hafa þeir m.a.
stungið uppá að flugliðar skrái sig í
hvert skipti sem þeir fara inn og út af
hóteli. Einnig verða þeir með full-
trúa á helstu stöðunum starfsfólkinu
til halds og trausts.
Einar og Bjarni segja þetta til
komið bæði vegna óróa og óstöðug-
leika í pólitík í þessum löndum svo og
vegna aukinna krafna um varúðar-
ráðstafanir vegna hryðjuverka.
Hlutverk ráðgjafanna er einnig að
meta pólitískt ástand í þessum
heimshlutum. Segja þeir að þetta
séu fyrst og fremst fyrirbyggjandi
aðgerðir.
Auknar kröfur varðandi
flug til Bandaríkjanna
Burtséð frá öryggisráðstöfunum í
áðurnefndum borgum segja Bjarni
Þór og Einar mjög miklar og vax-
andi öryggiskröfur gerðar varðandi
allt flug til Bandaríkjanna. Fram
hefur komið að senda þarf lista yfir
farþega og áhafnir áður en flugvél
leggur af stað áleiðis til Bandaríkj-
anna og leita þarf sérstaklega í vél-
um. Hafa flugvélög keypt þá þjón-
ustu af sérhæfðum fyrirtækjum á því
sviði og er slík leit mjög nákvæm,
m.a. þreifað á öllum björgunarvest-
um undir öllum farþegasætum.
„Til marks um aukin verkefni á
þessu sviði má nefna að í deildinni
hjá okkur starfa núna 10 manns en
fyrir fáum árum voru þessi verkefni
á herðum fárra starfsmanna ásamt
ýmsu öðru,“ segir Einar að lokum.
Öryggisfyrirtæki gera
úttekt á viðkomustöðum
Tíu manns starfa nú í öryggisdeild Atlanta
Morgunblaðið/RAX
Öryggisráðstafanir Miklar ráðstafanir þarf að gera til að tryggja öryggi
flugflota og áhafna Atlanta.
TÉKKNESKA fjarskiptafyrir-
tækið Ceske Radiokommunikace
(CRa), sem er að stórum hluta í eigu
íslenskra fjárfesta, hefur gert tilboð
til yfirtöku á hlutabréfum minni-
hlutaeigenda í félaginu.
Á hluthafafundi CRa sem haldinn
var um miðjan október var ákveðið
að afskrá hlutabréf í félaginu af al-
mennum hlutabréfamarkaði bæði í
Prag og í London. Bivideon, sem
Björgólfur Thor Björgólfsson,
Landsbanki Íslands og Straumur
Fjárfestingarbanki eiga hlut að, á
94,3% hlutafjár í fjarskiptafélaginu.
Hluthafafundurinn samþykkti
ennfremur að CRa yrði heimilt að
kaupa allt að 10% hlutafjár í sjálfu
sér á sama verði og yfirtökutilboð
Bivideon hljóðaði upp á í september.
Þá jók Bivideon hlut sinn úr 72% í
rúm 94% í kjölfar yfirtökutilboðs til
annarra hluthafa sem hljóðaði upp á
jafnvirði rúmlega 1.200 íslenskra
króna á hlut.
Hið nýja yfirtökutilboð verður
samkvæmt samþykktum hluthafa-
fundarins fjármagnað af CRa sjálfu
og má félagið eiga hlutabréfin í allt
að 18 mánuði.
Ekki er gert ráð fyrir verulegum
breytingum á rekstri félagsins eða
starfsmannafjölda með yfirtökunni,
að því er segir í frétt frá Interfax.
Antenna selt fyrir mitt ár
Einkavæðingarnefnd ríkisstjórnar-
innar í Ungverjalandi hefur staðfest
að 75% eignarhlutur ungverska
ríkisins í útsendingarfyrirtækinu
Antenna Hungária verði seldur á
næstunni en CRa varð fyrst til að
lýsa áhuga sínum á Antenna sl. sum-
ar. Óskað verður eftir tilboðum í
hlutinn en áætlað söluverð var ekki
gefið upp. Stefnt er að því að salan
verði frágengin fyrir mitt næsta ár.
Ungverska ríkið á um 83% hlut í
Antenna, að því er segir í frétt Buda-
pest Business Journal. Reynt var að
selja 50% árið 2000 en óhagstæð skil-
yrði á markaði urðu m.a. til þess að
sölunni var slegið á frest.
Aðrir en CRa sem taldir eru
áhugasamir um kaupin eru Télé-
diffusion í Frakklandi, landssíminn í
Portúgal, Retevisión á Spáni og
Telespazio á Ítalíu. Þá mun fjárfest-
ingasjóðurinn Advent International
hafa áhuga, en sem kunnugt er fjár-
festi Advent í búlgarska símafélag-
inu BTC með Björgólfi Thor og fleiri
íslenskum fjárfestum.
Nýtt yfirtökutilboð í CRa í Tékklandi
ÍSLENSKA tæknifyrirtækið
Hex Software er komið í undan-
úrslit í vali bandaríska tæknitíma-
ritsins Red Herring á þeim100 fyr-
irtækjum sem blaðið telur standa
fremst á sviði nýsköpunar á tækni-
sviðinu. 200 fyrirtæki ná í undan-
úrslitin.
Hex er þriggja ára gamalt fyrir-
tæki sem hefur þróað aðferðir til
að koma hljóðum, lifandi myndum,
tali og texta úr farsímum á Netið
eða af Netinu í farsíma.
Þórarinn Stefánsson fram-
kvæmdastjóri félagsins segir að
Hex sé í góðum hópi á listanum, en
meðal annarra í undanúrslitunum
eru Google, Amazon og Cisco. Eitt
íslenskt fyrirtæki, Oz, hefur áður
komist í undanúrslit.
Spurður um mikilvægi þess að
komast á listann segir Þórarinn að
listi Red Herring sé eins konar
biblía fjárfesta. „Í ljósi þess að það
er veruleg uppsveifla í tæknigeir-
anum vestanhafs eru fjárfestar
farnir að líta aftur á geirann með
fjárfestingu í huga, en botninn datt
úr fjárfestingu í geiranum eftir að
tæknibólan sprakk í kringum síð-
ustu aldamót. Aldrei hefur jafn-
mikið fé verið sett í fjárfesting-
arsjóði í Bandaríkjunum og á
þriðja fjórðungi þessa árs og það fé
bíður fjárfestingar,“ segir Þórar-
inn.
Hann segir að tilnefninguna
muni Hex nýta sér til kynningar,
bæði gagnvart viðskiptavinum sín-
um og síðan til að vekja athygli
fjárfesta. „Við erum að horfa til
þess að taka næstu skref á alþjóða-
markað og það kallar á fleira fólk
og þar með meira fjármagn.“
Spurður að því hvernig fyrirtæk-
ið náði athygli Red Herring segir
Þórarinn að meðal annars hafi
blaðamenn kynnst Hex á fjárfesta-
þingi í Danmörku í haust, og al-
mennt noti Hex öll tækifæri til að
koma sér á framfæri.
Starfsmenn Hex eru sex talsins
en stefnt er að fjölgun á næstu vik-
um og mánuðum. Eigendur félags-
ins eru starfsmenn Hex, en
stærstu eigendur eru Þórarinn
sjálfur og Helga Waage tækni-
stjóri.
Þórarinn segir að vörur Hex hafi
selst vel, en þær eru allar í sölu hjá
Og Vodafone. Dæmi um þær vörur
eru hringitónar, skjámyndir,
bloggþjónusta og sending lifandi
mynda í farsíma.
„Þó að þær tekjur sem við erum
að skapa séu til þess að gera litlar
hér heima þá margfaldast tekjurn-
ar í samræmi við höfðatölu. Ef við
semjum við farsímafyrirtæki sem
er 10 sinnum stærra en Og Voda-
fone ætti það að geta skilað 10
sinnum meiri tekjum.“
Þórarinn segir að Hex sé í við-
ræðum við farsímafyrirtæki bæði í
Danmörku og í Svíþjóð um að þau
taki lausnir Hex til dreifingar og
sölu.
Velta Hex er áætluð 50–60 millj-
ónir króna á þessu ári miðað við
tímabilið sem hófst 12. maí sl. Á
almanaksárinu segir Þórarinn að
búist sé við að reksturinn verði á
núllinu sem félaginu þyki ágætisár-
angur.
100 fyrirtækja listi Red Herring
verður kynntur í desember. Spurð-
ur að því hvort að Hex geri sér
vonir um að ná inn á þann lista,
segist Þórarinn ekki búast við því.
„Það yrði eins og að vinna í Vík-
ingalottóinu, sem menn gera þó
stundum,“ segir Þórarinn að lok-
um.
Hex á topp 200
Komið á blað í „biblíu fjárfesta“ hjá Red Herring
Morgunblaðið/Golli
Gott fyrir útrásina Sara Kolka, Þórarinn Stefánsson, Helga Waage, Björn
Kristinsson og Björn Ingimundarson hjá Hex.
Vönduð ryðfrí húsaskilti
Fjölbreytt myndaval
HÚSASKILTI
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
18. nóvember er
síðasti pöntunar-
dagur fyrir jól
4
Síðasti
pöntunardagur
fyrir jól
13. nóvember