Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 2
2 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„VEL HEPPNUÐ
HROLLVEKJA“
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„... MÆL[I] MEÐ ÞVÍ AÐ SEM FLESTIR HVOLFI
SÉR YFIR BÓKINA Í SKAMMDEGINU, EFTIR
AÐ HAFA NEGLT AFTUR SKÁPANA ...“
– Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„SKYLDUEIGN HROLLVEKJUAÐDÁANDANS“
– Þorsteinn Mar, kistan.is
„(BÓKIN HEFUR) ÖLL ELEMENT SEM
GÓÐ HRYLLINGSSAGA ÞARF AÐ
HAFA TIL AÐ BERA.
ÓGEÐIÐ, SPENNUNA
OG MEININGUNA.“
– Melkorka Óskarsdóttir, Fréttablaðið
JÚSTSJENKO SPÁÐ SIGRI
Útgöngukannanir bentu til þess
að forsetaefni stjórnarandstöðunnar
í Úkraínu, Viktor Jústsjenko, hefði
sigrað í forsetakosningum í gær.
Stuðningsmenn beggja frambjóð-
endanna kvörtuðu yfir kosn-
ingasvikum og mikil spenna var í
landinu. Óttast var að óeirðir bloss-
uðu upp.
Lægri vaxtabótagreiðslur
Hlutfall vaxtagjalda af skuldum
sem lagt verður til grundvallar við
útreikning á vaxtabótum verði lækk-
að úr 5,5% í 5% árið 2006 verði
skattalagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar að lögum. Þá er lagt til að
greiddar vaxtabætur verði 95% af
útreiknuðum vaxtabótum við álagn-
ingu á árinu 2005. Talið er að
greiðslur ríkissjóðs lækki um nálægt
300 milljónir við þá breytingu.
55 milljarðar í húsnæðislán
Alls hafa um það bil 55 milljarðar
króna farið úr bankakerfinu í ný hús-
næðislán á síðustu tæpum þremur
mánuðum. Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, greindi frá þessu á
flokksráðsfundi VG um helgina.
Steingrímur sagði að komið væri í
ljós að af þessum 55 milljörðum
væru 15 til 20 milljarðar hreint við-
bótarlánsfé. Steingrímur gagnrýndi
bankana harðlega fyrir að kynda
undir þenslu með húsnæðislánum.
Hreppar sameinast
Sameining hreppanna fjögurra
sunnan Skarðsheiðar; Hvalfjarð-
arstrandarhrepps, Innri-Akranes-
hrepps, Leirár- og Melahrepps og
Skilmannahrepps, var samþykkt í
kosningum sem fram fóru sl. laug-
ardag. Þá var sameining fjögurra
hreppa í Austur-Húnavatnssýslu;
Bólstaðarhlíðarhrepps, Svínavatns-
hrepps, Sveinsstaðahrepps og Torfa-
lækjarhrepps samþykkt í kosningum
sem einnig fóru fram á laugardag-
inn. Íbúar allra hreppanna sam-
þykktu sameininguna.
Kosið í Írak 30. janúar
Hlutfall alvarlega vannærðra
barna í Írak hefur nær tvöfaldast frá
innrásinni í landið fyrir 20 mán-
uðum, samkvæmt könnunum Sam-
einuðu þjóðanna. Lánardrottnar í
Parísarklúbbnum svokallaða náðu í
gær samkomulagi um að afskrifa
80% af skuldum Íraks við þá. Til-
kynnt var í gær að þingkosningar
ættu að fara fram í öllu landinu 30.
janúar.
Y f i r l i t
Í dag
Vesturland 12 Dagbók 26
Viðskipti 13 Víkverji 26
Erlent 14 Velvakandi 27
Daglegt líf 15 Staður og stund 27
Listir 16 Menning 29/33
Umræðan 17/21 Ljósvakamiðlar 34
Forystugrein 18 Veður 35
Minningar 22/23 Staksteinar 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
STRAX eftir áramótin verður þjón-
usta á Vogi dregin saman, starfsfólki
verður fækkað um sjö og umfang
starfseminnar minnkað. Ráðgjafa-
vakt og sú bráðaþjónusta sem veitt
hefur verið við göngudeild Sjúkra-
hússins Vogs verður lögð af og inn-
lögnum verður fækkað úr 2.350 í
2.100 eða um 10% en við það mun
svigrúm til bráða- og flýtiinnlagna
minka til muna.
Í tilkynningu spítalans segir að
dregið verði úr viðhaldsmeðferð fyrir
ópíumfíkla frá því sem nú er og nýir
sjúklingar muni ekki fá þessa með-
ferð. Þá muni sjúklingar sem eru
yngri en 16 ára ekki verða innritaðir á
Vog og þjónusta við vímuefnafíkla
sem jafnframt eru með geðsjúkdóma
mun minnka.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, segir að með þessum aðgerðum
náist 45 milljóna króna sparnaður á
380 milljóna króna árlegum rekstr-
arkostnaði á Vogi. Hann tekur hins
vegar fram að áfram verði staðið við
þjónustusamning sem í gildi er milli
heilbrigðisráðuneytisins og SÁÁ.
Tilfærslur á þjónustu
„Á undanförnum árum hefur þjón-
ustan aukist hjá okkur og það er
vegna þess að hinir hafa, m.a. Land-
spítalinn, dregið úr sinni bráðaþjón-
ustu. Síðan er það hitt að það hafa
komið til ný lyf og ný vandamál,
þ.e.a.s. þessi morfínfíkn og ný lyf hafa
komið fram við henni. Það að þjón-
usta þetta fólk hefur kostað fólk og
fjármuni. Við höfum mætt þessu
aukna álagi með því að setja upp
bráðavakt á Sjúkrahúsinu Vogi og
aukið bráðainnlagnir og umfang okk-
ar til þess að mæta þessum brýnu
þörfum. Þetta eru bara tilfærslur í
heilbrigðiskerfinu sem hljóta alltaf að
eiga sér stað.“
Þórarinn segir að við þessa til-
færslu heilbrigðisþjónustunnar hafi
forsendur þjónustusamnings sem í
gildi er milli SÁÁ og heilbrigðisráðu-
neytisins breyst í veigamiklum atrið-
um. „SÁÁ hefur á undanförnum ár-
um ítrekað gert grein fyrir þessum
breytingum og kostnaðarauka á
rekstri Sjúkrahússins Vogs og óskað
eftir leiðréttingum. Málið hefur verið
kynnt í heilbrigðisráðuneytinu, fjár-
laganefnd Alþingis og hjá Landlækn-
isembættinu, án þess að nokkrar
breytingar hafi verið gerðar á þjón-
ustusamningnum og rekstrargrunni
hans,“ segir Þórarinn.
Sjúkrahúsið Vogur ætlar að spara 45 milljónir í rekstri
Dregið verður úr þjón-
ustu strax á næsta ári
Sjö starfs-
mönnum sagt
upp störfum
HARRY Belafonte, söngvari og vel-
gjörðarsendiherra UNICEF, opn-
aði ljósmyndasýningu í Smáralind
um helgina og heilsaði upp á fólk
þar. Belafonte fékk aðstoð frá
ungri stúlku þegar klippt var á
borðann.
Á sýningunni eru afar áhrifa-
miklar ljósmyndir frá ýmsum lönd-
um sem sýna aðstæður barna. Þá
var í Smáralindinni ungt fólk sem
dreifði nýjum bæklingi um Barna-
sáttmálann fyrir íslensk börn. UNI-
CEF hvetur fólk til að skrá sig sem
heimsforeldra.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Belafonte opnaði sýninguna
ATVINNULEYSI meðal fé-
lagsmanna Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur minnkaði verulega á
milli áranna 2003 og 2004 og á sama
tíma fjölgaði félagsmönnum umtals-
vert. Að mati VR er þetta merki um
að þenslan sé farin að skila sér til
höfuðborgarinnar.
Atvinnuleysi meðal félagsmanna
VR minnkaði um 7% á milli október-
mánaðar árið 2003 og sama tíma í ár.
Þá var atvinnuleysi meðal fé-
lagsmanna í október sl. 27% minna
en í mánuðinum þar á undan.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, sagði í samtali við Morgunblaðið
að jafnhliða því að atvinnuleysi hefði
minnkað hefði einnig orðið aukning í
innborguðum félagsgjöldum, þannig
að það væri útlit fyrir að það væri að
fjölga störfum í höfuðborginni. Lík-
lega væri mikill hagvöxtur að skila
sér í auknum umsvifum í verslun og
viðskiptum.
Gunnar Páll bætti því við að árs-
sveifla atvinnuleysisins væri önnur
hjá verslunarmönnum en mörgum
öðrum stéttum. Þannig væri hefð-
bundið að atvinnuleysi minnkaði hjá
verslunarmönnum á veturna eftir
því sem nær drægi jólum þegar það
yfirleitt ykist hjá öðrum stéttum.
„Það dregur hraðar úr atvinnu-
leysinu heldur en í fyrra og eins
sjáum við að það er að fjölga fé-
lagsmönnum og það eru jákvæð
teikn,“ sagði Gunnar Páll.
Hann bætti því við að lengd at-
vinnuleysisins hefði einnig styst
mjög mikið frá því sem verið hefði
samkvæmt tölum sem Hagfræði-
stofnun hefði unnið fyrir VR. Fólk
væri þannig styttra á atvinnuleysis-
skrá en verið hefði.
Atvinnuleysi hjá
VR minnkar
MEIRIHLUTASAMSTARFI Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks í
bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur
formlega verið slitið. Ástæða sam-
starfsslitanna er mismunandi
áherslur flokkanna um framtíð
Húsabakkaskóla. Sjálfstæðismenn
hafa staðið fast á því að taka bæri
ákvörðun strax um að sameina
Húsabakkaskóla og Dalvíkurskóla
en framsóknarmenn hafa viljað fara
hægar í sakirnar en útiloka þó ekki
breytingar.
Framsóknarflokkurinn á fjóra
fulltrúa í bæjarstjórn, Sjálfstæðis-
flokkur þrjá og listi Sameiningar
tvo fulltrúa en Sameining vill að
Húsabakkaskóli verði rekinn
óbreyttur út kjörtímabilið.
Nýr meirihluti hefur ekki enn
verið myndaður en Sameining
fundaði seint í gærkvöldi og var
stefnt að því að ákveða á þeim fundi
við hvorn aðilann ætti að taka upp
formlegar viðræður.
Sex kílómetrar
á milli skólanna
Svanhildur Árnadóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks, segir afstöðu
flokksins mótast af því að gat sé í
fjárhagsáætlun sveitarfélagsins upp
á 135 milljónir. „Það gat viljum við
reyna að minnka án þess að byrja á
því að skerða þjónustu. Við sjáum
fram á hagræðingu upp á 20–30
milljónir með því að sameina þessa
tvo skóla og flytja gæði skólastarfs-
ins á Húsabakka yfir í metnaðarfullt
og gott skólastarf sem fer fram hér
í Dalvíkurskóla,“ segir Svanhildur
og minnir á að sex kílómetrar séu á
milli skólanna tveggja.
Valdimar Bragason, oddviti
Framsóknarflokksins, segir flokk-
inn hafa viljað setja í gang samráðs-
nefnd til þess að undirbyggja
ákvörðun um framtíð Húsabakka-
skóla. Valdimar segir áherslumun á
stefnu Framsóknar og lista Samein-
ingar varðandi Húsabakkaskóla.
„Við viljum ekki útiloka að það komi
til breytinga á þessu skólahaldi,“
segir Valdimar.
Aðspurður segir oddviti Samein-
ingar, Óskar Gunnarsson, að það líti
út fyrir að listinn eigi meiri samleið
með Framsókn en sjálfstæðismönn-
um að því er varðar skólamálin.
„Við höfum verið afdráttarlausari
um það að þessi skóli [Húsabakka-
skóli] fái að vera út kjörtímabilið og
að mönnum verði gefið ráðrúm til
þess að fara yfir málin,“ segir Ósk-
ar.
Enginn
meirihluti
í Dalvíkur-
byggð