Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 6

Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 6
Morgunblaðið/Jón Sig. Formaður kjörstjórnar Torfalækjarhrepps, Stefán Á. Jónsson, afhendir Reyni Hallgrímsyndi, bónda á Kringlu í Torfalækjarhreppi, kjörseðil.                                               !  "  #$  % &  '      (       !      " #$                 #$  SAMEINING fjögurra sveitar- hreppa í sunnanverðum Borgarfirði og austanverðri Húnavatnssýslu var samþykkt í tvennum sameiningar- kosningum sem fram fóru um helgina. Með þessum sameiningum hefur sveitarfélögum á landinu fækkað niður fyrir hundraðið. Þeim hefur fækkað um níu á þessu ári og verða eftir þessar kosningar 95 tals- ins. Greidd voru atkvæði í fjórum hreppum sunnan Skarðsheiðar á laugardag og var sameining sam- þykkt með yfirgnæfandi meirihluta í þremur þeirra og með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða í einu þeirra, Skilmannahreppi. Sam- tals voru 382 á kjörskrá í hrepp- unum fjórum og greiddu 295 at- kvæði eða 77%. 250 eða 85% sögðu já og 43 eða 14,6% nei, en einn seðill var auður og einn ógildur. Í Hvalfjarðarstrandarhreppi var þátttakan 73% og sögðu 66 eða 90% já og 5 eða 7% nei, en einn seðill var auður og annar ógildur. Í Innri-Akraneshreppi var þátt- takan 77% og samþykktu allir sem greiddu atkvæði 66 talsins samein- inguna. Í Leirár- og Melahreppi greiddu 66% atkvæðisbærra kjós- enda atkvæði og sögðu 53 eða 93% já og 4 eða 7% nei. Þátttakan í kosningunum var mest í Skilmannahreppi þar sem 88% kjósenda tóku þátt. Rúm 65% samþykktu sameininguna og 34 eða rúm 34% höfnuðu henni. Andstaðan mest í Svínavatnshreppi Sameining fjögurra hreppa í Austur-Húnavatnssýslu var einnig samþykkt með afgerandi hætti. Af tæplega 300 manns sem voru á kjör- skrá greiddu tæplega 80% atkvæði. 165 samþykktu sameininguna en 63 voru á móti samanlagt í hreppunum öllum. Niðurstöður kosninganna í hverj- um hreppi fyrir sig voru þær að í Svínavatnshreppi samþykktu 38 sameiningu en 29 voru á móti, en þar var mest andstaða við samein- inguna. Í Bólstaðarhlíðarhreppi samþykktu: 44 sameiningu og 13 voru á móti. Í Torfalækjarhreppi samþykktu 38 sameiningu og 15 voru á móti og í Sveinsstaðahreppi samþykktu 45 sameiningu og 6 voru á móti. Samþykktu sameiningu Sveitarfélögum fækkar niður fyrir hundraðið Gæ astö lu vara _ Besta ver i _ Besta jónustan _ Besta málningin Fagmenn a sto a vi efnisval Velferðarsjóður barna hlýtur viðurkenningu Barnaheilla fyrir framlag í þágu barna Morgunblaðið/Kristinn Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, veitti styrkinum viðtöku fyrir hönd Vel- ferðarsjóðsins. Ingibjörg Pálmadóttir (l.t.h.), framkvæmdastjóri sjóðsins, fylgist með. VELFERÐARSJÓÐUR barna á Íslandi hefur hlotið viðurkenningu Barnaheilla fyrir sér- stakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra, en viðurkenningin var veitt í Þjóð- menningarhúsinu á afmælisdegi Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna.Barnaheilla, sem var fyrst veitt árið 2002. Í ávarpi sínu sagði Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Barnaheilla, fjölbreytni verkefna Velferðarsjóðsins verulega og starfsemi hans stuðlaði að margs konar réttindum barna, en sjóðurinn hefur bráðum starfað í fimm ár. Meðal þeirra verkefna má nefna uppbygg- ingu Rjóðurs, hjúkrunarheimilis fyrir lang- veik börn, en þar er rými fyrir tíu langveik börn í einu í endurhæfingu og aðhlynningu, en alls eru um 30–40 börn hér á landi, sem talin eru þurfa á slíkri þjónustu að halda. Þá hefur sjóðurinn styrkt börn sem búa við erfið kjör með því að styrkja þau til þátttöku í sum- arnámskeiðum og fleira. Einnig setti Velferð- arsjóðurinn af stað mentorverkefnið Vináttu árið 2001, en um 100 börn eru nú þátttak- endur í því verkefni, sem er í því fólgið að há- skóla- og framhaldsskólanemendur veita grunnskólabörnum stuðning og hvatningu. Sagði Guðbjörg það vekja athygli að fyr- irtæki kysu í vaxandi mæli að axla hluta af sinni samfélagsábyrgð með því að styðja við starfsemi sem bætir aðstæður barna. Afar fjölbreytt verkefni í þágu barna 6 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SAMTÖK verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsins leggja til sameiginlega að virðisaukaskattur á öll matvæli verði 12% og að vöru- gjöld af matvælum verði lögð niður í sameiginlegri umsögn um frum- varp til breytinga á lögum um virð- isaukaskatt, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Virðisaukaskattur á matvæli er nú 14% eða 24,5% eftir matvöru- tegundum og er í frumvarpinu gert ráð fyrir að lægra þrepið lækki í 7%. Talið er að það muni kosta rík- issjóð 5,3 milljarða króna en á vef SVÞ kemur fram að afnám vöru- gjaldanna og lækkun þrepsins í 12% myndi hafa sömu áhrif á tekjur ríkissjóðs. 1,4 milljarðar vegna vörugjalda Fram kemur að rök samtakanna fyrir þessum breytingum eru þau að með þeim yrðu agnúar sniðnir af skattkerfinu og það fært nær því sem tíðkist í nágrannalöndunum. Þá kæmi slík breyting sér líklega betur fyrir tekjulægri hópa en að lækka einungis vörur í lægra þrep- inu, auk þess sem aukið bil á milli skattþrepanna eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu sé líklegt til að stuðla að auknum undanskotum. Í umsögn samtakanna kemur fram að ávaxtasafar, kolsýrt vatn, maltöl, gosdrykkir, súkkulaði, kök- ur, sætt kex, kakóduft og ídýfur eru dæmi um matvæli sem beri 24,5% virðisaukaskatt samkvæmt núgildandi reglum. Þá kemur fram að nákvæmar upplýsingar um vörugjöldin liggi ekki fyrir en sam- kvæmt lauslegri áætlun fjármála- ráðuneytisins hafi tekjur ríkissjóðs af þeim numið um 1,4 milljörðum króna árið 2002 og skipst nokkurn veginn til helminga milli innfluttra og innlendra vara. Vörugjöld af innfluttum sykri, sykurvörum og sælgæti hafi numið 640 m.kr. og af innfluttum drykkjarvörum að með- töldu kaffi um 140 milljónum. Vörugjöld af innlendum vörum eins og sælgæti og kexi hafi numið 160 milljónum og af innlendum drykkjarvörum 495 milljónum. Lækka ætti óbeina skatta Í ljósi þess að heildarneysla mat- væla hafi numið um 70 milljörðum króna, án virðisaukaskatts árið 2002, að meðtalinni neyslu á veit- ingahúsum, láti nærri að vörugjöld á matvæli hafi numið 2% af vöru- verðinu. „Að mati samtakanna væri æski- legt að fara þá leið í lækkun óbeinna skatta að ná árangri á öll- um þeim þremur sviðum sem hér eru gerð að umtalsefni, þ.e. að af- nema vörugjöld af matvælum, skattleggja öll matvæli í sama þrepi og lækka lægra þrep virð- isaukaskatts úr 14% í 12%. Slíkar breytingar myndu leiða til 5,3 milljarða króna tekjulækkunar fyr- ir ríkissjóð m.v. forsendur ársins 2002, þ.e. þær myndu leiða til jafn mikillar tekjulækkunar fyrir rík- issjóð og að lækka skattlagningu á þá vöruliði sem nú eru í lægra þrepinu úr 14% í 7%. Rökin fyrir leið atvinnuvegasamtakanna eru einkum þau að með slíkum breyt- ingum yrðu alvarlegir agnúar sniðnir af skattkerfinu og það fært nær því sem tíðkast hjá þjóðum sem við berum okkur saman við. Þá er líklegt að slík útfærsla kæmi sér betur fyrir tekjulægri hópa en að lækka einungis vörurnar sem nú eru í lægra þrepinu. Loks má benda á að sú breikkun bils milli skattþrepanna sem frumvarpið gerir ráð fyrir myndi að öllum lík- indum stuðla að auknum undan- skotum,“ segir enn fremur í um- sögninni. Umsögn SVÞ og SA vegna breytinga á virðisaukaskatti Öll matvara með 12% vsk. A-sveit TR með 4 vinninga forskot A-SVEIT Taflfélags Reykja- víkur er með fjögurra vinn- inga forskot á næstu sveit í fyrstu deild þegar fyrrihluta deildarkeppni Íslandsmóts skákfélaga er lokið. Sveitin hefur 28,5 vinninga en í öðru sæti er A-sveit Hellis með 24,5 vinninga. Efstu sveitir mætast í síðara hluta mótsins Úrslit fjórðu umferðarinnar urðu þau að A-sveit TR vann B-sveit Skákfélags Akureyrar með 7 vinningum gegn 1, Hellir A-sveit vann A-sveit Taflfélags Vestmannaeyja með 5,5 vinningum gegn 2,5 vinningum, Skákfélag Akur- eyrar A vann Helli B með 5,5 vinningum gegn 2,5 vinning- um og Taflfélag Reykjavíkur B-sveit vann A-sveit Tafl- félags Garðabæjar með 4,5 vinningum gegn 3,5 vinning- um. Tvær efstu sveitirnar eiga eftir að mætast í síðari hluta Íslandsmótsins sem fram fer 4. og 5. mars á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.