Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ég veit að þetta er synd á svona sætan bossa, Steinunn mín, en R-listinn býður bara ekki upp á annað. Tæplega 27% starfandi Ís-lendinga í fullu starfi seg-ist nokkrum sinnum í viku hafa komið of þreytt heim úr vinnunni til að geta sinnt þeim verkefnum sem vinna þarf heima fyrir, tæp 27% sögðu það hafa gerst nokkrum sinnum í mánuði, en 30% að það hefði aldrei gerst. Þegar dæminu var snúið við sögð- ust aðeins tæplega 2% aðspurðra nokkrum sinnum í viku of þreytt í vinnu til að geta unnið starfið vel vegna þeirra verkefna sem vinna þurfti heima fyrir, tæp 7% sögðu það hafa gerst nokkrum sinnum í mánuði, en 75% að það hafi aldrei gerst. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem IMG Gallup gerði meðal Íslendinga í ágúst sl. Spurt var fjögurra spurninga um jafnvægi vinnu og einkalífs og af svörum svarenda að dæma má sjá að neikvætt flæði frá vinnu yfir í fjölskyldulífið er mun algengara en neikvætt flæði frá fjölskyldu yfir í vinnuna. Á vef Hins gullna jafnvægis á slóðinni: www.hgj.is er að finna grein Tómasar Bjarnasonar hjá IMG Gallup þar sem hann ber saman jafnvægi vinnu og einkalífs fólks í fullu starfi annars vegar á Íslandi og hins vegar í nokkrum Evrópulöndum. Að mati greinar- höfundar bendir samanburður við aðrar þjóðir til þess að Íslending- ar standi vel að vígi hvað varðar jafnvægi vinnu og einkalífs. Að mati greinarhöfundar er vaxandi framboð af dagvistar- rými, fæðingarorlof feðra og mæðra meðal atriða sem geta stuðlað að meira jafnvægi vinnu og einkalífs hér á landi en í ná- grannalöndum okkar. Einnig hef- ur verið bent á atriði s.s. meiri samhjálp og aukinn sveigjanleika í vinnu sem atriði sem geta haft jákvæð áhrif á jafnvægið. Aftur á móti eru meiri frjósemi og langur vinnutími Íslendinga atriði sem líkleg eru til að stuðla að aukinni togstreitu vinnu og einkalífs. Einnig má nefna að togstreitan virðist meiri á þeim heimilum þar sem börn eru yngri en 7 ára og að marktækur munur kemur fram á jafnvægið eftir starfsstéttum þar sem jafnvægið er minnst meðal stjórnenda, atvinnurekenda og sérfræðinga. Jafnvægi vinnu og einkalífs tengist einnig sterkt aldri og eykst jafnvægið með hækkandi aldri, hins vegar kom ekki fram marktækur munur á jafnvægi karla og kvenna. Í fjöl- breytigreiningu, þegar tekið er tillit til margra þátta samtímis, kemur í ljós að konur upplifa meiri togstreitu milli vinnu og einkalífs en karlar. Vinnutíminn mikilvægur Aðspurður segir Halldór Grön- vold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, niðurstöður könnunarinnar enn og aftur staðfesta hvað vinnu- tíminn skipti miklu máli. „Við eig- um illræmt Evrópumet í vinnu- tíma og gildir það bæði um karla og konur. Þannig er meðalvinnu- tími kvenna á Íslandi tæpar 38 stundir á viku og 49 hjá körlum. Lengstur er vinnutíminn á aldurs- skeiðinu 25–54 ára, sem er vænt- anlega það aldursskeið þar sem er líklegast að fólk hafi líka ríka fjöl- skylduábyrgð með börn inni á heimili.“ Halldór bendir á að Ís- lendingar eiga met í atvinnuþátt- töku meðal ESB-landa og telur að það hljóti einnig að hafa áhrif á möguleika fólks til að samræma atvinnuþátttöku og einkalíf. Ingólfur V. Gíslason, sérfræð- ingur á Jafnréttisstofu, segir nið- urstöður könnunarinnar ekki koma á óvart. Þó segist hann fyr- irfram hafa átt von á því að konum fyndist erfiðara að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs en raunin er samkvæmt könnuninni, ekki síst í ljósi stóraukinnar atvinnu- þátttöku kvenna og langrar vinnu- viku. Ingólfur bendir á að sam- kvæmt nýlegum könnunum standi íslensk fyrirtæki framarlega í því að nýta sér upplýsingatæknina og skapa starfsmönnum sínum tæki- færi til að vinna heima, auk þess sem mörgum býðst að vinna sveigjanlegan vinnutíma, sem ætti að stuðla að meira jafnvægi. Hann veltir því upp hvort slík fjarvinna sé endilega bara til góðs, því græðgi atvinnulífsins á tíma fólks virðist sífellt vera að aukast. „Með tölvuvæðingunni og út- breiðslu farsíma þá er klárlega orðið meira um það að fólk sé ekki hætt að vinna þó það sé komið heim til sín. Það er reiðubúið að taka símann og svara fyrirspurn- um eða kíkja á vinnutengdan tölvupóst sinn. Heldur sem sagt áfram að vinna þó það sé komið heim til sín. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að þetta hefur slæm áhrif á fjölskyldulífið og kannski sérstaklega á sambandið við börn- in. Þannig sýndi rannsókn þar sem börn voru spurð álits að þau kysu heldur að foreldrarnir væru aðeins lengur í vinnunni ef þau væru þá örugglega hætt að vinna þegar þau kæmu heim og einvörð- ungu til staðar fyrir börnin.“ Fréttaskýring | Jafnvægi vinnu og einkalífs Evrópumet í vinnutíma Meiri frjósemi og langur vinnutími lík- legt til að stuðla að aukinni togstreitu                  !           " "#$  %                                               !  ! ""!  ! ! #! $ &  % $ Mikill munur er á jafnvægi milli aldurshópa  Nýleg könnun IMG Gallup sýn- ir að neikvætt flæði frá vinnu yf- ir í fjölskyldulífið er mun algeng- ara en neikvætt flæði frá fjölskyldu yfir í vinnuna. Sam- anburður á jafnvægi vinnu og einkalífs hér á landi og í ná- grannalöndum okkar bendir til að Íslendingar standi ágætlega að vígi hvað varðar jafnvægi vinnu og einkalífs. Þannig er jafnvægi hér meira en í Bret- landi og Portúgal en minna en hjá Finnum og Norðmönnum. silja@mbl.is LÖGREGLUYFIRVÖLD á Norð- urlöndunum, þar á meðal á Íslandi, ætla sameiginlega að berjast gegn nígerísku mafíunni. Í frétt í danska útvarpinu segir að mafían smygli konum frá V-Afríku til Norður- landanna og einnig eiturlyfjum. Í frétt í Berlingske Tidende segir að mafían í Nígeríu standi fyrir um- fangsmikilli kókaínverslun á Norð- urlöndum. Átak norrænu lögregl- unnar gegn mafíunni nefnist Sólarupprás, Projekt Sunrise. Deild innan dönsku lögreglunnar sem vinnur gegn skipulagðri glæpastarf- semi á frumkvæði að átakinu. Fram kemur í frétt Berlingske Tidende að þrælasalar frá Nígeríu séu nýlega teknir til starfa á Norðurlöndunum. Ætlunin er að hlera síma nígerískra glæpamanna í eiturlyfja- og þræla- sölu og að fylgst verði með sérhverri hreyfingu þeirra frá Íslandi austur til Finnlands. Berjast gegn níg- erísku mafíunni LOKIÐ er vettvangsrannsókn á flugslysinu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þegar Boeing 747- 200-fraktþota Flugfélagsins Atl- anta, TF-ARR, rann fram af braut í flugtaki á flugvellinum í Sharjah. Samkvæmt upplýsingum frá Rann- sóknanefnd flugslysa beinist áfram- haldandi rannsókn að hægri að- alhjólabúnaði flugvélarinnar. Hlutir úr hjólabúnaðinum svo sem dekk, felgur og bremsur verða fluttir til frekari rannsókna og lesið verður úr flugritunum í næstu viku hjá rannsóknarnefnd flugslysa í Englandi. Vettvangs- rannsókn lokið ÞEIR viðskiptavinir Orkuveitu Reykjavíkur sem láta skuldfæra orkureikninga í bönkum með bein- greiðslum, þar sem færslurnar hafa verið sundurliðaðar í rafmagn og heitt vatn, munu framvegis fá reikninga með einni tölu. Hér eftir sem hingað til verða reikningarnir skuldfærðir mánaðarlega. Áfram munu viðskiptavinir Orkuveitunnar fá uppgjör sent árlega í pósti. Skuldfært í einni tölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.