Morgunblaðið - 22.11.2004, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 9
FRÉTTIR
Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
www.ljósmynd.is
Tilboðsmyndatökur
Jólamyndatökur
Hefðbundnar myndatökur
Barnamyndatökur
Verslið við fagmenn
Kringlunni - sími 568 1822.
FLÍSPEYSUR
25% afsláttur af
flíspeysum þessa viku
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Allar
gallabuxur
30%
afsláttur
þessa viku
22.-27. nóv.
Str. 38-60
Mjódd, sími 557 5900
Toppar, buxur, draktir og skyrtur
Mikið úrval - Verið velkomnar
RÆÐA Roosevelts 11. september 1941 var
flutt vegna árásar þýska kafbátsins U-652 á
tundurspillinn USS Greer 4. september er
hann var staddur rúmlega 100 sjómílur suð-
vestur af Reykjanesi á leið til Reykjavíkur
með póst og annan smávarning til bandaríska
herliðsins sem nýkomið var til landsins. Árás-
in gaf forsetanum tilefni til að tilkynna opin-
berlega að Bandaríkjaflota yrði falið að hefja
fylgd skipalesta á vestanverðu Atlantshafi.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðs-
ins í Keflavík, segir að það hafi þá í raun þeg-
ar verið ákveðið og hafi verið ástæða þess að
Bandaríkjastjórn sendi herlið sitt til Íslands.
„Roosevelt hafði þannig farið á svig við
ákvæði svokallaðra hlutleysislaga í Bandaríkj-
unum sem bönnuðu íhlutun eða siglingar
bandarískra skipa inn á átakasvæði.
Þegar USS Greer var á siglingu sinni til Ís-
lands þennan dag flaug bresk flugvél yfir og
tilkynnti að kafbátur væri framundan. Banda-
ríkjafloti hafði skýr fyrirmæli um að skjóta
ekki að fyrra bragði en fylgjast með og til-
kynna öllum sem heyra vildu um ferðir
þýskra herskipa og kafbáta svo þau grönduðu
ekki vinveittum skipum. USS Greer fann kaf-
bátinn í kafi og hóf að fylgja honum eftir en
þá varpaði breska flugvélin djúpsprengjum að
bátnum án þess þó að hitta nærri. Við þetta
styggðist kafbátsforinginn og skaut að end-
ingu tveimur tundurskeytum að tundur-
spillinum sem svaraði í sömu mynt með djúp-
sprengjum. Hvorugt skipanna sakaði þó og
Greer lét af frekari aðgerðum og hélt rakleitt
til Íslands.
Sama dag og Bandaríkjaforseti hélt ræð-
una sökkti annar þýskur kafbátur flutn-
ingaskipinu Montana undan Suðaustur-
Grænlandi. Það var í skipalestinni SC-42 sem
undir vernd kanadíska flotans varð fyrir árás
kafbátahóps undan suðurodda Grænlands.
Skipalestin hraktist undan kafbátunum
grunnt norður með Suðaustur-Grænlandi,
norður á sömu breiddargráðu og Reykjanes
og var samtals 16 kaupskipum sökkt og
tveimur kafbátum í viðureigninni sem stóð í
nokkra daga.“
USS Greer
var á leið til
Íslands
Bandaríski tundurspillirinn USS Greer.
„ÞETTA er stórmerkilegt.
Þetta er sami dagurinn og
árásin var gerð á tvíbura-
turnana [11. september] sem
Roosevelt flytur þessa ræðu
þegar þýskur kafbátur sökkvir
bandarísku kaupfari. Þetta var
11. september 1941. Þá voru
Bandaríkjamenn búnir að vera
hér í rúma tvo mánuði. Í ræð-
unni mistalar hann sig og segir
Írland en leiðréttir sig síðan og
segir Ísland,“ segir Pétur Pét-
ursson þulur en hann fann á
dögunum upptöku með ræðu
Roosevelts þegar hann var að
gramsa í gömlum skjölum.
„Mér þótti stórfurðulegt að það var sama dag-
setning á fyrstu hernaðarátökunum við Þjóð-
verja og árásinni á tvíturnana.“
Plakatið með Roosevelt
hefur hvergi fundist
Pétur segir að þegar Bandaríkjamenn hafi
komið hingað 7. júlí 1941 hafi þeir byrjað að
hengja upp plakat eða „poster“ eins og þeir
hafi kallað það með mynd af Roosevelt og
bandaríska fánanum. „Roosevelt segir á þessu
plakati, sem hangir enn uppi 1951 þegar Kats-
atúrían kemur hingað, að hann heiti því að
bandaríski herinn fari héðan strax og núver-
andi styrjöld lýkur til þess að íslenska þjóðin
geti búið frjáls og óháð í sinu eigin landi.
Þarna kemur fram viðurkenning forseta öfl-
ugasta ríkis í heimi á því að þjóð sé ekki frjáls
ef hún er hersetin.“
Pétur segir þetta plakat hvergi finnast þótt
hann hafi víða leitað. Það hafi þó hangið uppi
víða um land og vonast Pétur til að þeir sem
eiga eintak af því gefi sig fram. „Ég hef verið
að spauga með það, ætli Bush forseti leiti það
ekki uppi og afhendi Davíð það og segi nú ætl-
um við að standa við fyrirheitið um að fara.“
Sama dagsetning og
á árásinni á tvíturnana
Morgunblaðið/Árni Torfason
Pétur segir merkilegt að Roosevelt skuli hafa haldið ræðuna
11. september, réttum 60 árum á undan árásinni á Bandaríkin.
LÍFEYRISSJÓÐUR verslunar-
manna er með í undirbúningi endur-
skoðun á lífeyrisréttindum sem gera
það að verkum að 1 prósentustigs
hækkun á iðgjöldum til sjóðsins úr
10% í 11% um næstu áramót kemur
ekki til með að skapa félögum hærri
mánaðarlegar greiðslur í hlutfalli
við það þegar lífeyristaka hefst.
Tillögur hér að lútandi eru til
meðhöndlunar í stjórn sjóðsins, en
aukin meðalævilengd Íslendinga
hefur gert það að verkum að endur-
skoðun af þessu tagi er nauðsynleg.
Hefur meðalævi 65 ára Íslendings
aukist jafnmikið á síðustu átta árum
og hún hafði gert á 25 árum þar á
undan, en 65 ára gamall karlmaður
á að meðaltali ólifuð 17,7 ár að því
er fram kemur á heimasíðu Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur.
Tillögurnar gera ráð fyrir því að
margföldunarstuðull lífeyrisréttinda
verði lækkaður úr 1,65 í 1,50, en
flestir lífeyrissjóðir miða við marg-
földunarstuðul sem er 1,4 til 1,5.
Gert er ráð fyrir samskonar lækkun
á margföldunarstuðli vegna örorku-
lífeyris, auk þess sem gert er ráð
fyrir að framreikningstími til ör-
orku verði færður niður í 65 ára ald-
ur úr 67 ára aldri sem er í dag. Þá
lækkar margföldunarstuðull maka-
lífeyris úr 1 í 0,9, en reiknað er með
að réttindi lífeyrisþega við gildis-
töku breytinganna muni haldast
óbreytt.
Fram kemur einnig á vef VR að
komi þessar breytingar til fram-
kvæmda þýði þær að „hinn dæmi-
gerði félagsmaður í VR vinnur sér
inn sömu réttindi í lífeyrissjóðnum
fyrir 11% iðgjald og hann vinnur sér
inn í dag fyrir 10% iðgjald. Með öðr-
um orðum margföldunarstuðull
hans verður því í raun 1,65% miðað
við 11% iðgjald.“
Áunnin stig hækkuð um 7%
Fram kemur einnig að tillögurnar
fela það í sér að áunnin stig sjóð-
félaga verði hækkuð um 7% til að
vega að hluta til upp á móti lækkun
margföldunarstuðulsins. Þau rétt-
indi sem sjóðfélagar hafi þegar
áunnið sér fram að gildistöku breyt-
inganna lækki því um 2,7%. Lífeyr-
isgreiðslur til fimmtugs félags-
manns miðað við 200 þús. kr. mán-
aðarlaun lækki þannig um 1,7%, um
0,8% hjá þeim sem er 35 ára og um
0,2% hjá þeim sem er 25 ára. Þetta
stafi af því að áunnin stig vegi
þyngst hjá þeim sem borgað hefur
lengst í sjóðinn, en þess ber að geta
að sá sem er yngstur greiðir mun
lengur 11% iðgjald en sá sem nú er
fimmtugur.
Tillögur Lífeyrissjóðs verslunarmanna
Sömu réttindi
fyrir 11% iðgjald
Úrslitin úr
ítalska boltanum
beint í
símann þinn