Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 10

Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 10
10 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HALLDÓR Ásgrímsson, forsætis- ráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, sagði í ræðu sinni á mið- stjórnarfundi flokksins síðastliðinn laugardag, að ekki væri ástæða til að óttast að stöðugleikanum væri ógnað með þeim skattalækkunum sem rík- isstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir á næstu árum. 55% aukning kaupmáttar frá 1995 til loka kjörtímabilsins Halldór rakti árangur af stjórnar- þátttöku Framsóknarflokksins frá 1995 og vakti hann m.a. máls á því að kaupmáttur ráðstöfunartekna hefði aukist um u.þ.b. 40% á þessum tíma. „Og við sjáum fram á það, að í lok þessa kjörtímabils, þegar við höfum verið tólf ár í ríkisstjórn, hafi kaup- máttur ráðstöfunartekna almenn- ings aukist um 55%. Þetta hefur hvergi gerst annars staðar í heim- inum, í löndum sem geta borið sig saman við okkur. Hér hafa orðið meiri og stórstígari framfarir en nokkurs staðar annars staðar,“ sagði Halldór. Hann vísaði harðlega á bug gagn- rýni formanna stjórnarandstöðu- flokkanna á ákvarðanir ríkisstjórn- arinnar um skattalækkanir og að þær gætu leitt til þess að efnahags- lífið færi úr böndum. Halldór sagði að með aðgerðum ríkisstjórnarinnar á undanförnum árum m.a. í atvinnumálum og með uppbyggingu stóriðju hefði verið lagður grunnur að þeim skattalækk- unum sem ríkisstjórnin hefur nú náð samkomulagi um. Hann sagði að það væri alveg rétt að það reyndi mikið á efnahagslífið um þessar mundir. Reynir mikið á efnahagskerfið „Við vissum að þessi mikla upp- bygging myndi reyna mikið á okkar efnahagskerfi, en það er engin ástæða að mínu mati til að örvænta um stöðugleikann. Hver er megin- forsenda stöðugleika? Meginfor- senda stöðugleika er stjórnmálaleg- ur stöðugleiki, að fólk viti að landið búi við trausta stjórn og trausta efnahagsstöðu. Að landið búi við traustan fjárhag ríkisins og hér sé öflugt fjármálakerfi, sem getur stað- ið undir öllu því sem við erum að gera. Þessi grunnur er traustur en auðvitað þurfum við að gæta að okk- ur. Ég fullyrði að þessar skattalækk- anir eru gerðar á traustum grunni. Þær leggja línur um hvers megi vænta hér á næstu árum. Þær gera það kleift fyrir launþega að taka mið af þessu og samþykkja hógværari launabreytingar en annars hefði orð- ið. Þetta er einfaldlega besta leiðin til að koma þeim fjármunum sem úr er að spila í þjóðfélaginu til almennings með réttlátum hætti. Þá á ég sér- staklega við þá sem hafa lægri laun og millitekjufólkið,“ sagði Halldór. Hann sagði aðgerðirnar ekki síst beinast að því að létta greiðslubyrði millitekjufólksins. Þar væri aðallega um ungt fólk að ræða. „Meðaltekjur hjóna í landinu eru einhvers staðar í kringum 450 og jafn vel upp í 500 þúsund. Þetta fólk er að borga 10 til 20% af sínum tekjum í afborganir af húsnæðislánum. Þetta fólk er að greiða af námslánum sínum í stórum stíl. Þetta fólk er að greiða fyrir börnin sín í dagvist og þess vegna höfum við í þessum skattabreyting- um sérstaklega tekið mið af þessu fólki, sem samrýmist algerlega kosn- ingastefnuskrá Framsóknarflokks- ins, þar sem við lögðum langmesta áherslu á hag unga fólksins í land- inu,“ sagði Halldór. Meiri verðbólga ef allir fengju sömu hækkanir og kennarar Halldór vék einnig að kennara- samningunum og sagði ljóst að kenn- arar hefðu fengið umtalsverðar kjarabætur. „Það er jafnframt ljóst og því verða kennarar að gera sér grein fyrir, að ef allir ættu að fá sömu hækkanir, gæti þjóðfélagið ekki þolað það. Það myndi einfald- lega leiða til verðbólgu, sem verður til þess að rýra kjör okkar allra. Þeir kjarasamningar sem voru gerðir á almennum vinnumarkaði, tóku mið af því. Það voru ábyrgir og skynsam- ir kjarasamningar sem hljóta að verða leiðandi fyrir aðra kjarasamn- inga í landinu, enda er ákvæði í þeim kjarasamningi, að ef aðrir fara þar langt fram úr, eru þeir kjarasamn- ingar ekki lengur í gildi. Ég tel að þær skattalækkanir sem nú hafa komið fram, ættu ekki síst að gera mönnum kleift að ná skynsamlegri niðurstöðu. Þar er mikið í húfi,“ sagði Halldór. Siglum nokkuð hratt Hann sagði stöðu Framsóknar- flokksins um þessar mundir og rík- isstjórnarinnar í heild sinni, sterka. Engin önnur ríkisstjórn eða annars konar ríkisstjórn hefði getað náð þeim árangri sem ríkisstjórnin hefði náð á undanförnum árum m.a. þegar litið væri á atvinnuuppbyggingu og þá kaupmáttaraukningu sem orðið hefði. „Það má vel vera að við siglum nokkuð hratt og mættum sigla að- eins hægar. En ég vil frekar sigla að- eins hraðar og ná því að skapa fleiri störf þannig að færri séu atvinnu- lausir. Ég vil taka nokkra áhættu í þágu þeirra sem engin störf hafa. Ég tel að með því sé Framsóknarflokk- urinn að lifa eftir meginhugsjón flokksins í gegnum tíðina. Við skul- um því halda áfram þessari siglingu, sem hefur gengið vel,“ sagði Halldór undir lok ræðu sinnar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á miðstjórnarfundi að árangurinn í efnahagsmálum væri einstakur í heiminum Engin ástæða til að ör- vænta um stöðugleikann Morgunblaðið/Kristinn Halldór Ásgrímsson ræðir við Steingrím Hermannsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins. ÞAÐ ERU ekki kjarabætur til kennara sem stefna efnahagsmálunum í voða heldur fyrst og fremst efnahags- og stóriðjustefna ríkisstjórn- arinnar. Það er hún sem hefur mest áhrif á þá þenslu, verðbólgu, gengi og vaxtasig sem nú er í landinu. Það eru mjög viðsjárverðar aðstæður uppi núna í efnahagsmálunum og mönnum má takast mjög vel til á næstu misserum ef það á ekki að fara illa. Skattalækkanir ríkisstjórnarinnar eru glórulausar við þessar aðstæður. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Steingríms J. Sigfús- sonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á haustfundi flokksráðs VG. Fyrst og fremst neyslulán Steingrímur tók fram að bankarnir væru dug- legir að hjálpa til við að kynda undir þenslunni með 90% og síðan 100% svokölluðum húsnæð- islánum sem væru þó fyrst og fremst neyslulán með veði í íbúðarhúsnæði. „55 milljarðar króna eru farnir út úr bankakerfinu í þessi svokölluðu húsnæðislán núna á tæpum þremur mánuðum. [–] Á móti koma auðvitað uppgreiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði en þar er munur á sem nemur sjálfsagt 15–20 milljörðum sem er nýtt viðbótar- lánsfé sem hefur farið út í þessum tilboðum bank- anna. Þetta eru nýeinkavæddu ábyrgu bank- arnir,“ sagði Steingrímur. Hann gerði kjaradeilu kennara að sérstöku um- talsefni og sagði tilraunir til að kenna grunn- skólakennurum og kjarasamningi þeirra fyr- irfram um það ef allt fari úr böndunum í efnahagsmálunum vera ósmekklegar og ummæli varaformanns fjárlaganefndar þessa efnis sömu- leiðis. Steingrímur sagðist sannarlega vonast til þess að barátta kennara yrði öðrum hvatning – ekki síst lægra og lægst launaða fólkinu, sem hefði meiri þörf en nokkrir aðrir fyrir raunveru- legar kjarabætur – til þess að sækja fram. Sýnd veiði en ekki gefin Steingrímur sagði það fagnaðarefni ef hópar á borð við kennara næðu að brjótast fram, hópur sem hefði verið orðinn láglaunastétt. Það væri þó sýnd veiði en ekki gefin því engan veginn væri víst að prósentuhækkanir á komandi árum skil- uðu sér raunveruleg kaupmáttaraukning. „Kennarar eru auðvitað að semja til fjögurra ára, eru að gera mjög langan samning í verðbólgu sem er af stærðargráðunni 4%–6% og verðbólgu- spám á þeim nótum. [–] Svo er reynt að tala eins og ríkisstjórnin og hennar stefna skipti hér engu máli og það séu engin áhrif á ástandinu eða því sem framundan sé í landinu á herðum eins eða neins nema grunnskólakennara.“ Steingrímur sagði ríkisstjórnina bera höf- uðábyrgð á þeim aðstæðum sem menn stæðu frammi fyrir í efnahagsmálunum og í kjaraum- hverfinu. „Auðvitað er það stóriðjustefnan með þeim ruðningsáhrifum í atvinnu- og efnahagslíf- inu, sem núna eru að koma fram og ganga ná- kvæmlega eftir, eins og við þeim var varað, sem hefur mest áhrif. Það er stærsti einstaki þátt- urinn sem skýrir þá þenslu, þá verðbólgu, það gengisstig og það vaxtastig sem nú er í landinu.“ Hræsni og tvískinningur af hæstu gráðu Steingrímur sagði að nú líti út fyrir að Kyoto- samningurinn öðlist gildi í febrúar á næsta ári. „Það er auðvitað fagnaðarefni. En það er að sama skapi dapurlegt að einmitt við þau tímamót sest iðnaðarráðherrann á Íslandi niður og reiknar það út hvað við getum mengað mikið í viðbót og er að vonast til þess að það sé pláss fyrir eins og eitt 300 þúsund tonna álver í viðbót við allt sem í vændum er. [–] Það er ekki bara það að þetta sé gert sömu dagana og hillir undir gildir töku Kyoto-bókunarinnar heldur er akkúrat sömu daga í gangi í Reykjavík ráðstefna um heim- skautamálefni þar sem verið er að draga ískyggi- legar upplýsingar um áhrif loftslagbreytinganna á skilyrði hér á norðurslóðum. [–] Iðnaðarráð- herra Framsóknarflokksins, Valgerður Sverr- isdóttir, notaði að sjálfsögðu tækifærið og kom því í fjölmiðla að sennilega gætum við bætt við einni 300 þúsund tonna álverksmiðju í viðbót og mengun hennar yrði innan undanþágunnar sem við fengjum frá Kyoto. Sé til hræsni og tvískinn- ungur af hæstu gráðu þá er það þetta,“ sagði Steingrímur. Viðsjárverðar aðstæður í efnahagslífinu Morgunblaðið/Kristinn Steingrímur J. Sigfússon gagnrýndi efnahags- stefnu ríkisstjórnarinnar harðlega. 15–20 milljarðar af við- bótarlánsfé hafa komið úr bankakerfinu ARI Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir skattalækkanirnar sem rík- isstjórnin hefur ákveðið að komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2005 til 2007, eðli- legar breytingar og í samræmi við þau fyrirheit sem gefin hafi verið. Spurður álits á þeirri gagnrýni sem fram hefur komið af hálfu stjórnarandstöðunnar að skatta- lækkanirnar muni ýta undir þenslu í þjóðfélaginu, segir Ari að Samtök atvinnulífsins hafi lagt á það áherslu að ekki megi líta á þessar skattakerfisbreytingar einangrað og án samhengis við annað í hag- kerfinu. „Manni kemur það nokkuð spánskt fyrir sjónir að sumir telji það vera mjög glannalegt að auka almennan kaupmátt á næstu árum um fjögur og hálft prósent með skattalækkunum. En sömu aðilar telja eðlilegt að það verði tuga pró- senta launahækkanir á vinnumark- aðinum. Ég held að það sé alveg augljóst að sá kaupmáttur sem fólk fær með skattabreytingum veldur ekki meiri þenslu heldur en sá kaup- máttur sem fólk fær út úr kaup- hækkunum. Með sama hætti má fjalla um skattheimtu og ríkisútgjöld. Menn tala um að það sé mikill þensluvald- ur ef fleiri krónur eru skildar eftir hjá fólkinu sem vinnur fyrir þeim en að þessar krónur muni ekki valda þenslu ef þær verða teknar í skatta og nýttar af ríkinu í gælu- verkefni og áhugamál sem þessir sömu menn hafa sem gagnrýna þetta. Mér finnst það vera pólitískt sjónarmið en ekki hagfræðilegt að gefa sér slíkt. Það er ekkert hægt að útiloka að fólkið fari skyn- samlegar með féð en ríkið. Það gæti t.d. tekið upp á því að spara meira eða greiða niður skuldir,“ segir Ari. Mikil hætta á ofþenslu Hann segir alveg ljóst að mikil hætta sé á ofþenslu í íslensku efna- hagslífi um þessar mundir. „Af því höfum við áhyggjur. En það er eng- an veginn hægt að afgreiða skatta- lækkanirnar einar og sér með þeim rökum. Það verður að horfa á heild- armyndina, hvað eru stjórnvöld að aðhafast í ríkisfjármálunum og hver er þróunin á vinnumark- aðinum. Við hjá Samtökum atvinnulífsins bindum vonir við að þar sem fólk veit fyrirfram af þessari stefnu- mörkun og væntanlegum kaup- máttarauka vegna þessara breyt- inga, þá spili þetta inn í þær niðurstöður sem eiga eftir að verða á vinnumarkaðinum með jákvæðum hætti, bæði vegna þeirra samninga sem eru framundan og við skoðun á forsendum kjarasamninga þegar þar að kemur.“ Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri SA Eðlilegar breytingar á skattkerfinu Ari Edwald ALÞÝÐUSAMBAND Íslands ætlar að fara nákvæmlega yfir útfærslu þeirra skattalækkana sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd á ár- unum 2005 til 2007. Talsmenn ASÍ eru því ekki reiðubúnir að tjá sig um breytingarnar fyrr en að þeirri skoðun lokinni en vænta má viðbragða sambands- ins fljótlega upp úr helginni. ASÍ fer í saum- ana á skatta- breytingunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.