Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SÍÐUMÚLA 37
SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
STAFRÆNT
SJÓNVARP
Engin áskrift - yfir 90 fríar rásir!
tækni
Eða 1666 kr. vaxtalaust á mánuði í 12. mán. Við bætist lántöku- og stimpilgjald.
19.990,-
Jól 2004
nammi, namm…
á laugardaginn
Egglist
Hildar
á morgun
Hvalfjarðarstrandarhreppur | Alls
staðar í kringum Hallgrímskirkju í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eru
staðir sem tengjast sögu sr. Hall-
gríms Péturssonar og konu hans
Guðríðar Símonardóttur sem þar
bjuggu. Þessir staðir hafa þó ekki
verið merktir og voru sumir við það
að týnast. Margir hafa haft áhuga á
að gera eitthvað í málunum og fljót-
lega eftir síðustu sveitarstjórn-
arkosningar hófst undirbúningur fyr-
ir svokallað Saurbæjarverkefni.
„Þetta er ekki venjuleg sókn-
arkirkja,“ segir Arnheiður Hjörleifs-
dóttir formaður sóknarnefndar.
„Þegar þjóðvegurinn lá um Hval-
fjörðinn blasti þessi stóra og fallega
kirkja við vegfarendum. Ferðafólk
lagði margt leið sína til að skoða
kirkjuna en þar var lítið annað á þess-
um stað sem tengist magnaðri sögu
þeirra sr. Hallgríms og Guðríðar.
Hún var hvergi sýnileg. Ferðamenn
þurftu því sjálfir að afla sér þekk-
ingar um hana eða heyra hana frá
leiðsögumönnum. Það hefur því lengi
verið draumur að gera þessa sögu
sýnilega.“
Arnheiður segir að eftir síðustu
sveitarstjórnarkosningar hafi boltinn
farið að rúlla. Þá hafi verið skipuð
sameiginleg ferða- og atvinnu-
málanefnd Hvalfjarðarstrandar-
hrepps sem varð strax virk. Hún
ákvað að einbeita sér að Saurbæ og
Saurbæjarverkefninu var hrundið af
stað í samstarfi við sóknarnefnd og
sóknarprest. Verkefnið var hugsað í
nokkrum áföngum og er fyrsta
áfanga nú lokið. Hann fólst í að hanna
og leggja göngustíga um merkilega
staði í landi Saurbæjar. Einnig voru
hönnuð skilti og saminn texti á þau og
þeim komið fyrir á þremur stöðum.
Loksins hægt að ganga
að leiði sr. Hallgríms vísu
„Mikill undirbúningur og vinna
hafa staðið yfir í 2–3 ár og nú eru
göngustígarnir og skiltin tilbúin auk
þess að búið er að brúa Saurbæj-
arána og gera tröppur á erfiðum stöð-
um,“ segir Arnheiður. „Þá hafa skilt-
in verið sett á sinn stað. Áður var ekki
hægt að ganga að leiði sr. Hallgríms
vísu í kirkjugarðinum og var það for-
gangsverkefni að setja upp skilti við
það. Á skiltinu er að finna ýmsan
fróðleik um Hallgrím. Annað skilti
var sett við Hallgrímsstein, en hann
er merkilegur vegna þess að við hann
er hægt að finna skjól úr hverri vind-
átt. Sagan segir að þar hafi sr. Hall-
grímur gjarnan setið og ort.
Þriðja skiltið er við Hallgrímslind.
Talið er að vatnið sem sprettur úr
lindinni búi yfir miklum lækn-
ingamætti. Hallgrímur mun hafa
blessað lindina og þvegið sár sín úr
vatninu þegar hann var orðinn holds-
veikur. Útlendingar sem sótt hafa
Saurbæ heim hafa margir hverjir
tekið með sér vatn úr lindinni á
flösku. Þessir staðir voru við það að
týnast, en eru nú vel merktir og að-
gengilegir.“
Nú þegar er byrjað að vinna að
næsta áfanga í Saurbæjaráætluninni.
Bæklingur verður gefinn út fyrir vor-
ið á nokkrum tungumálum.
Tíu þúsund gestir á ári
„Í framhaldi af framleiðslu bæk-
lingsins er draumurinn að gera enn
meira. Talað hefur verið um að gera
móttökutorg við kirkjuna með skilt-
um með upplýsingum og myndum
svo ferðamenn geti strax og þeir
koma á staðinn gengið að nauðsyn-
legum upplýsingum. Einnig er verið
að hugsa um að setja þar upp bekki
og borð.“
Nýlega var tekið saman hversu
margir ferðamenn kæmu í Saurbæj-
arkirkju á ári hverju. Niðurstaðan er
sú að vitað er með vissu að þangað
leggja leið sína um 10.000 á ári þrátt
fyrir að staðurinn er nú meira úr al-
faraleið en þegar þjóðvegurinn lá um
Hvalfjörðinn. Heimsóknir ferða-
manna tengjast mjög annarri ferða-
þjónustu í Hvalfirði. Margir gestir á
Hótel Glymi koma í kirkjuna og einn-
ig ferðafólk sem heimsækir Bjarteyj-
arsand. Sóknarpresturinn fer með
marga hópa fólks í kirkjuna því
margir leita til hans eftir leiðsögn.
Kirkjan er einnig orðin mjög vin-
sæl fyrir ýmsar athafnir, svo sem
brúðkaup og skírnir.“
Saurbæjarverkefnið hefur notið
styrkja frá hreppsnefnd Hvalfjarð-
arstrandarhrepps og sóknarnefnd
Saurbæjarkirkju, Eignarhaldsfélagi
Brunabótafélags Íslands og Byggða-
stofnun. Auk þess hefur margt fólk úr
sveitinni lagt hönd á plóginn. Sókn-
arprestur Kristinn Jens Sigþórsson,
formaður atvinnu og ferðamála-
nefndar er Jón Haukur Hauksson og
formaður sóknarnefndar Saurbæj-
arkirkju er Arnheiður Hjörleifs-
dóttir.
Saga sr. Hallgríms sýnileg
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Við leiði sr. Hallgríms Péturssonar. Arnheiður Hjörleifsdóttir, formaður
sóknarnefndar og fulltrúi í ferða- og atvinnumálanefnd Hvalfjarðarstrand-
arhrepps, Guðmundur Gíslason í ferða- og atvinnumálanefnd, Björg Thom-
assen í sóknarnefnd og Þorvaldur Valgarðsson í sóknarnefnd.
asdish@mbl.is
VESTURLAND
Snæfellsnes | Úttekt og vottun á
Snæfellsnesi sem umhverfisvænum
áfangastað undir merkjum Green
Globe 21 er vel á veg komin en for-
svarsmenn verkefnisins kynntu það
nýverið á ráðstefnu Alþjóðaferða-
málaráðsins í Tékklandi.
Green Globe eru alþjóðleg samtök
sem votta tuttugu og sex greinar
ferðaþjónustu um allan heim, auk
samfélaga sem stunda sjálfbæran
rekstur. Fimm sveitarfélög á Snæ-
fellsnesi ásamt Þjóðgarðinum Snæ-
fellsjökli hafa undanfarið ár unnið að
því að fá slíka vottun og náðu nýverið
þeim áfanga að mæta viðmiðum sem
gerð eru til aðila sem sækjast eftir
vottuninni. Stefnt er að því að vott-
unin sjálf fáist á næsta ári.
Að sögn Guðrúnar Bergmann, sem
á og rekur Leiðarljós ehf. – ráðgjaf-
arþjónustu í umhverfismálum, sem
unnið hefur að
Green Globe 21
verkefninu ásamt
Umís ehf., kom
fram á ráðstefn-
unni að Ísland er
framarlega á sviði
stefnumótunar
um sjálfbæra þró-
un miðað við aðr-
ar Evrópuþjóðir.
Mikill heiður sé að fá að kynna verk-
efnið ytra enda sé Ísland ekki aðili að
Alþjóðaferðamálaráðinu, sem stóð að
ráðstefnunni.
Sparar fjármuni
Að sögn Guðrúnar byggist vottun
frá Green Globe 21 á þríþættu ferli.
Fyrsta skrefið sé að skrá sig í
verkefnið og fá leiðbeiningar um
vöruþróun, stefnumótun, o.s.frv.
Næst er leitast við að ná viðmiðum
og kröfum sem gerðar eru til aðila
sem sækjast eftir vottuninni og að
lokum tekur viðurkenndur aðili út
starfsemina og kannar hvort staðlar
Green Globe 21 eru uppfylltir. Stefnt
er að því að fá slíkan aðila hingað til
lands á næsta ári sem gera mun út-
tekt á sveitarfélögunum. Að sögn
Guðrúnar er ferlið endurmetið á
hverju ári og er gerð krafa um að
sérstakt framkvæmdaráð sjái til
þess að viðmiðum staðalsins sé fylgt
eftir en Guðrún á, ásamt átta öðrum,
sæti í framkvæmdaráði Snæfells-
ness.
„Það sem kannski hefur mesta
þýðingu fyrir okkur er að það eru all-
ar líkur á að sveitarfélögin geti spar-
að fjárhagslega í rekstrinum með því
að taka upp sjálbærnistefnu,“ segir
Guðrún.
Líkur á að Snæfellsnes fái sjálfbæra vottun á næsta ári
Sterkt markaðstæki
fyrir ferðaþjónustuna
Guðrún Bergmann