Morgunblaðið - 22.11.2004, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.11.2004, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN Technology so advanced, it´s TURN-FREE Amerískar lúxus heilsudýnur á tilboði TURN-FREE Queen 153x203 cm Verð frá 89.900.- Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is Heitir & fallegir www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is Háteigsvegi 7 Sími: 511 1100 Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir afsláttur af öllum ofnum til jóla 25% Skipholti 33 • 105 Reykjavík • Sími 553 5600 • www.rafsol.is • rafsol@rafsol.is Þekki ég þennan? Nú getur þú séð hver hringir dyrabjöllunni. Dyrasímarnir fást bæði með lita- eða sv/hv skjám. Aukatól fylgir. Upplýsingar í síma 553 5600 E IN N , T V E IR O G Þ R ÍR 2 66 .0 05 HÚS & HEIMILI BANDARÍSKA stórfyrirtækið General Electrics, GE, er virtasta fyrirtæki í heimi samkvæmt könn- un sem ráðgjafarfyrirtækið Price- waterhouseCoopers International gerði í samstarfi við dagblaðið Financial Times. Þetta er sjöunda árið í röð sem GE hlýtur þennan titil. Tölvufyrirtækið Microsoft er í öðru sæti eins og síðustu ár, og bílaframleiðandinn Toyota er í þriðja sæti. Af þeim einstaklingum í við- skiptalífinu sem mest er litið upp til er Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, í fyrsta sæti þriðja árið í röð. Í öðru sæti er fyrrverandi forstjóri General Electrics, Jack Welch, þó að töluvert sé síðan hann fór á eftirlaun, og í þriðja sæti er Carlos Ghosn, forstjóri Nissan bílaframleiðandans. Í tilkynningu frá PWC og FT segir að fyrirtæki í Bandaríkj- unum séu aftur farin að láta að sér kveða á listanum eftir ýmis hneykslismál sem skekið hafa bandarískt viðskiptalíf á síðustu árum. Bandarísk fyrirtæki eru helmingur fyrirtækja á topp 50 og er það í fyrsta skipti síðan árið 2001 sem bandarísk fyrirtæki eru svo mörg í þeim hópi. Af löndum utan Bandaríkjanna sem eiga fyr- irtæki á topp 50 listanum eru Þýskaland og Bretland en hvort land á sex fyrirtæki á listanum. Fimm fyrirtæki eru frá Japan og tvö frönsk, tvö hollensk og tvö sænsk fyrirtæki eru á lista virt- ustu fyrirtækja í heimi. Í ár var þeim sem velja listann í fyrsta skipti gefinn kostur á að velja sér óska stjórnarmann óháð því hvort hann væri lífs eða liðinn. Á meðal þeirra helstu sem nefndir voru þar voru Winston Churchill, Jesús Kristur, Napóleon Bona- parte, Albert Einstein, Júlíus Ses- ar, Leonardo da Vinci og John F. Kennedy. Auk framantaldra voru einnig samtíðarmenn eins og fyrr- nefndur Jack Welch á þessum lista og Michael Dell, forstjóri Dell- tölvufyrirtækisins. Einnig var í könnuninni í fyrsta skipti spurt um hvaða fyrirtæki væri mest skapandi. Þar lenti Microsoft í fyrsta sæti, en auk þess nefndu menn Dell, Nokia, Apple, Sony Ericsson, General Electric og IBM. Við gerð könnunarinnar var leitað til 1.000 forstjóra í 25 lönd- um, auk sjóðstjóra, og sjálfstæðra stofnana. GE og Gates virtust %      & %   &  % & ' ( ) * + , - %. % & ' ( ) * + , - %. ) * + '+  $ (' ,+ , - . ' ,   / +  0) 1  2  / + 3  ) 4 +. + , )  .   '+  -   5 3 4 $( , $6   41 6 '  /"0  1 23  "345 6"  "3  8 9 4350"0 7: ! ; Jesús og Kennedy óskastjórnarmenn einfaldlega vegna þess að olíufélögin kaupa inn bensín mánaðarlega. Keypt er inn á meðal- verði, þ.e. ef við kaupum inn í október kaupum ÍSLENSKU olíufélögin virðast ekki bregðast eins skjótt við verðsveiflum og félög í ná- grannalöndunum, samkvæmt fréttum Morgun- blaðsins í liðinni viku. Morgunblaðið hafði sam- band við talsmenn Olíufélagsins, Skeljungs og OLÍS og spurði hvernig á þessu stæði. Í Við- skiptablaði Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag var haft eftir innkaupastjóra Skelj- ungs að bensínverð hefði ekki hækkað í október þrátt fyrir miklar hækkanir á heimsmarkaðs- verði. En er réttlætanlegt gagnvart neytendum að lækka ekki verðið núna, þótt verð hafi ekki verið hækkað í október? „Þetta má réttlæta með því að verð okkar á bensíni í dag er fyllilega samkeppnishæft við það sem er á sjálfsafgreiðslustöðvum erlendis,“ segir Margrét Guðmundsdóttir framkvæmda- stjóri neytendasviðs hjá Skeljungi hf. Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga og áhættustýringasviðs hjá OLÍS, tekur í sama streng og segir: „Við munum alltaf bjóða við- skiptavinum okkar samkeppnishæf kjör.“ Rjúfa hefðir til að auka gegnsæi Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Olíufélags Ís- lands, boðar ný vinnubrögð hjá fyrirtækinu: „Á íslenska markaðnum hefur sú hefð verið ríkjandi að breyta bensínverði mánaðarlega, við inn á meðalverði októbermánaðar og ef við kaupum inn í nóvember kaupum við inn á með- alverði nóvembermánaðar. Þegar við endur- skoðum svo verð 1. desember tökum við þá verðbreytingu sem orðið hefur á milli október og nóvember með í reikninginn. Þar af leiðandi verður tímaseinkun í kerfinu. Þessi seinkun gerir það að verkum að verðsveiflurnar jafnast út. Íslensku olíufélögin eru einfaldlega ekki eins verðnæm og félög í nágrannalöndum okkar sem kaupa inn oftar,“ segir Hjörleifur. „Til þess að verðsveiflur skili sér til viðskiptavina ætlum við hjá Olíufélaginu nú að endurskoða verð okkar einu sinni í viku. Við vonumst til þess að þetta muni auka gegnsæi í verðlagn- ingu okkar gagnvart almenningi,“ heldur hann áfram. Birgðarökin heyra fortíðinni til Oft hafa olíufélögin beitt því fyrir sig að til séu miklar birgðir og því sé ekki hægt að lækka verð. Mörgum hefur í gegnum tíðina þótt það undarlegt að aldrei séu birgðir til þegar hækka á verð. Aðspurður segir Hjörleifur að þessi röksemdafærsla heyri fortíðinni til og verði ekki framar notuð af hans fyrirtæki. „Svoleiðis vinnubrögð eru ekki trúverðug auk þess sem þau draga úr gegnsæi,“ segir hann. Forstjóri Olíufélagsins segir birgðaröksemdir heyra sögunni til Boðar aukið gegnsæi Morgunblaðið/Þorkell ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● VERG landsframleiðsla í Frakk- landi jókst um 2% á þriðja fjórðungi ársins miðað við þriðja ársfjórðung í fyrra. Var þetta undir væntingum hag- fræðinga sem spáð höfðu meiri hag- vexti á milli ára. Í kjölfar þessa hefur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Frakkland úr 2,5% í 2,2%. Hægt hefur á hagvexti í helstu við- skiptalöndum Frakklands sem eru Bretland, Þýskaland og Japan en sterkt gengi evrunnar er áhyggjuefni þar sem það bitnar á utanríkis- viðskiptum ríkjanna. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Hagvöxtur undir væntingum ● FERJUFYRIRTÆKIN P/F Smyril Line og Fjord Line AS hafa ákveðið að stofna nýtt félag, North Atlantic Lin- es AS, sem mun sjá um og reka skip- in. Fyrirtækin munu eftir sem áður starfa undir sínum nöfnum. Nýja fé- lagið North Atlantic Lines mun leigja skipin af Smyril Line, Fjord Line og eins af öðrum skipafélögum ef þörf krefur. Stjórn North Atlantic Lines mun verða skipuð átta mönnum, fjórum frá Smyril Line og fjórum frá Fjord Line. Markmið nýja félagsins er að nýta sem best ferjuflota fyrirtækjanna. Smyril Line rekur ferjuna Norrænu sem siglir milli Noregs, Danmerkur, Hjaltlandseyja, Færeyja og Íslands en Fjord Line er með ferjusiglingar milli Danmerkur og vesturhluta Noregs og milli Noregs og Newcastle. Ekki er áformað að breyta sigl- ingaleiðum félaganna en öll skip verða skráð í Færeyjum. Saman reka fyrirtækin tvö 5 skip og um 800 manns vinna hjá þeim. Sam- eiginlegar sölutekjur fyrirtækjanna á ári eru um 10 milljarðar íslenskra króna. Smyril Line og Fjord Line stofna nýtt félag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.