Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna hóf um helgina ferð um svæði í Mið-Afríku, sem kennt er við Vötnin miklu, í von um að finna leiðir til að binda enda á stríðsátök sem hafa kostað að minnsta kosti 4,5 milljónir manna lífið á síðustu tíu árum. Öryggisráðið hyggst heimsækja fjögur stríðshrjáð ríki: Rúanda, Lýð- veldið Kongó, Búrúndí og Úganda. Forsetar fimmtán Afríkuríkja undirrituðu á laugardag yfirlýsingu þar sem þeir hétu því að beita sér fyrir friði, stöðugleika, lýðræði og efnahagslegum framförum á svæð- inu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði yfir- lýsingunni og lýsti henni sem „mik- ilvægu skrefi í rétta átt“. „Því fer fjarri að verkinu sé lokið,“ bætti hann þó við og sagði að það hefði tekið tíu ár að fá leiðtoga allra ríkjanna á svæðinu að samninga- borðinu. Gert er ráð fyrir því að forsetarnir komi aftur saman í júní á næsta ári til að ræða leiðir til að koma frið- arsamkomulagi í framkvæmd. Fjöldamorð, borgara- stríð og innrásir Átök hafa geisað á svæðinu við Vötnin miklu frá fjöldamorðunum í Rúanda árið 1994. Öfgamenn úr röð- um Hútúa, sem eru í meirihluta í Rú- anda, myrtu þá um 800.000 manns. Flest fórnarlambanna voru Tútsar sem eru í minnihluta í landinu. Eftir að uppreisnarmenn úr röð- um Tútsa stöðvuðu fjöldamorðin flúðu öfgamennirnir yfir landamær- in til Lýðveldisins Kongó. Þaðan gerðu þeir árásir á Rúanda og þær urðu til þess að þarlend stjórnvöld fyrirskipuðu hernum að ráðast inn í Lýðveldið Kongó árið 1996. Her Rúanda réðst aftur inn í land- ið árið 1998 ásamt hersveitum frá Úganda og Búrúndí til að styðja kongólska uppreisnarmenn. Inn- rásin leiddi til stríðs sem stóð í fimm ár og kostaði 3,3 milljónir manna líf- ið. Alls tóku sex ríki þátt í stríðinu í Lýðveldinu Kongó. Samkomulag náðist um vopnahlé í júní í fyrra en átök blossa þar enn upp endrum og eins. Stríðið í Lýðveldinu Kongó varð til þess að borgarastríð í Búrúndí magnaðist. Stjórnarherinn, sem er aðallega skipaður Tútsum, berst þar við uppreisnarhreyfingar Hútúa. Stríðið hefur staðið í ellefu ár og kostað rúmlega 260.000 manns lífið, aðallega óbreytta borgara. Reynt að koma á friði og lýðræði í Mið-Afríkulöndum eftir tíu ára stríðshörmungar Minnst 4,5 milljónir manna hafa látið lífið '()*+&+,-./0,/012-.3+ ' (  & ) *  )(           &&   +    & , +      -    . % ' / *  "33 " 23   3 3" 3 3<3&%3< 3 $ , + /  53  3< 2 23 = 23"3 <  " 3$32 3&..' 0/  ')> 3" 3" 2" 33 23 ?3$3$3$33" $ 3 23  "3'@'32" 323$" 1$ 3  3"  3$3%,3<32""    " 33 " 2 2 53 32""3A  "3 2 "3%--( 3  "3 2 "3" 3" 3A   23 "  " 23<" 3&..& ') B" 23$3    2 2A 3"  2"3$32 3$3 )&)3<3 $ "3 32 "  2""3<" 3&..&     3   4    5  Dar Es Salaam. AP, AFP. SÍÐARI umferð forsetakosninganna í Úkr- aínu fór fram í gær og kosið var þá á milli stjórnarandstæðings, sem aðhyllist umbætur að vestrænni fyrirmynd, og forsætisráðherra sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Rússlandi. Óttast er að óeirðir blossi upp í landinu eftir kosningarnar. Stuðningsmenn beggja frambjóðenda – Viktors Janúkovytsj forsætisráðherra og stjórnarandstöðuleiðtogans Viktors Jústsjenk- os – byrjuðu strax að kvarta yfir kosninga- svikum nokkrum klukkustundum eftir að kjör- staðir voru opnaðir. Spennan magnaðist í gærmorgun þegar skýrt var frá því að lög- reglumaður sem var á verði við einn af kjör- stöðunum hefði fundist látinn með sár á höfði, að því er virtist eftir að hafa orðið fyrir árás. Leoníd Kútsjma, fráfarandi forseti, flutti sjónvarpsávarp á laugardag og lýsti yfir því að „engin bylting“ yrði látin viðgangast í landinu. Voru orð hans túlkuð sem viðvörun til Jústsj- enkos og stuðningsmanna hans. Jústsjenko hvatti til fjöldagöngu í miðborg Kíev í gær til að efna þar til „atkvæðataln- ingar“ vegna grunsemda um að yfirvöld myndu hagræða úrslitum kosninganna. And- stæðingar hans segja að markmið hans sé að æsa til óeirða í því skyni að komast til valda. Sagðir kjósa tvisvar Aðstoðarmenn Jústsjenkos kvörðuðu yfir því í gær að stuðningsmenn Janúkovytsj for- sætisráðherra hefðu fengið kjörseðla til að greiða atkvæði utan kjörstaðar og síðan verið fluttir í rútum til að kjósa í öðru kjördæmi. Þeir hafi síðan verið fluttir aftur til heimabæja sinna til að greiða aftur atkvæði áður en kjör- stöðum var lokað. Stjórnarandstæðingarnir kvörtuðu einnig yfir því að eftirlitsmenn þeirra hefðu ekki fengið að fara á nokkra kjörstaði. Aðstoðarmenn Janúkovytsj forsætisráð- herra kvörtuðu á hinn bóginn yfir vanda- málum í tengslum við kjörskrár og sögðu að starfsmenn nokkurra kjörstaða hefðu brotið lög með því að neita að afhenda kjörseðla til að greiða atkvæði utan kjörstaðar. Búist er við að utankjörstaðaratkvæðin ráði miklu um úrslit kosninganna. Þingmenn sam- þykktu frumvarp um að takmarka réttinn til að greiða atkvæði utankjörstaðar en Kútsjma forseti neitaði á föstudag að staðfesta frum- varpið. Fréttastofan Interfax skýrði ennfremur frá því að kjörskrá og atkvæðaseðlum hefði verið stolið á kjörstað í Volynsk-héraði. Kvartað var einnig yfir kosningasvikum í fyrri umferð kosninganna 31. október þegar frambjóðendurnir tveir fengu báðir rúm 39% atkvæðanna. Jústsjenko fékk flest atkvæði í höfuðborg- inni og vestanverðu landinu þar sem flestir íbúanna tala úkraínsku. Janukovytsj fékk hins vegar mest fylgi í austurhlutanum þar sem flestir tala rússnesku. Óttast óeirðir eftir forsetakjör í Úkraínu Kíev. AP. Viktor JanúkovytsjViktor Jústsjenko SÖLUMENN fylgjast harmi slegnir með eldi sem kviknaði á mark- aðstorgi í miðborg Dhaka í Bangladesh í gærmorgun. Að minnsta kosti einn lét lífið og fimmtán, flestir slökkviliðsmenn, voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun. Minnst 1.800 sölubásar og tjöld brunnu. Eldurinn breiddist fljótt út, enda mikill eldmatur á torginu. Að sögn vitna kom eldurinn upp í skóbúð á torginu þar sem skamm- hlaup varð í rafmagni. Um fjórar klukkustundir tók að slökkva eld- inn. Reuters Um 1.800 sölubásar urðu eldi að bráð ALLT að 55 manns fórust í flugslysi í norð- urhluta Kína í gærmorgun. Flugvél frá kín- verska flugfélaginu China Eastern Airlines hrapaði í ísilagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak frá flugvellinum í bænum Baotou sem er í Innri-Mongólíu. All- ir í vélinni fórust, 47 farþegar og sex manna áhöfn. Hermt var að tveir á jörðu niðri hefðu einnig látið lífið þegar vélin hrapaði. Flugvélin var af gerðinni Bombardier CRJ-200 og var á leið til Sjanghæ. Björgunarstarfið gekk mjög erfiðlega og þurfti að brjóta ísinn á vatninu til að leita þeirra sem voru í vélinni. Þá leituðu um 20 kafarar að líkum í vatninu. Vitni segja að mikil sprenging hafi orðið í vélinni þegar hún var í um 100 metra hæð. Ekki er vitað um orsök slyssins, en veður var mjög gott þegar vélin hrapaði. Er þetta fyrsta flugslysið í Kína frá maí 2002 þegar 112 manns fórust í vél sem hrapaði í sjóinn nálægt hafnarborginni Dalian. Á þessum tíma flugu kínverskar far- þegavélar samtals í rúmar fimm milljónir klukkustunda án þess að mannskætt slys yrði. Var það lengsta slysalausa tímabilið í sögu kínverskra flugfélaga, að sögn fjöl- miðla í Kína. Reuters Björgunarmenn leita í flaki flugvélar sem hrapaði í stöðuvatn í Innri-Mongólíu í gær. Yfir 50 fórust í flugslysi í Kína Peking. AFP. ÍRASKA bráðabirgðastjórnin í Bagdad stað- festi í gær að mannræningjar hefðu sleppt frænda Ayads Allawis forsætisráðherra. Frændanum, Ghazi Allawi, sem er 75 ára, eiginkonu hans og tengdadóttur var rænt í Bagdad 9. nóvember. Konurnar voru leystar úr haldi sex dögum síðar. Þá var skýrt frá því á laugardag að upp- reisnarhópur í Írak hefði sleppt pólskri konu, Teresu Khalifa, sem var rænt í Bagdad 28. október, haldið í gíslingu og hótað lífláti. Khal- ifa hefur búið í Írak í 30 ár og er gift íröskum manni. Tilgangurinn með ráni hennar var að krefj- ast þess að pólskir hermenn í Írak yrðu kall- aðir heim. Teresa Khalifa segir að vel hafi ver- ið farið með sig í gíslingunni. Pólskir fjölmiðlar leiddu í gær getur að því að mannræningjunum hefði verið greitt lausn- argjald. Frænda Allawis sleppt úr gíslingu Bagdad. AP. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.