Morgunblaðið - 22.11.2004, Page 22

Morgunblaðið - 22.11.2004, Page 22
22 MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ingileif Magnús-dóttir fæddist á Staðarfelli í Dölum 19. mars 1905. Hún andaðist á hjúkrun- arheimilinu Skjóli laugardaginn 13. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Karolína Júlíana Friðrika Kristjáns- dóttir, f. 16. mars 1880 í Stykkis- hólmi, d. 29. októ- ber 1909, og Magn- ús Magnússon, f. 1. október 1876 í Stykkishólmi, d 27. janúar 1946. Fósturforeldrar Ingileifar voru Jóhannes Magn- ússon Sandólm og Kristín Agnes Helgadóttir og ólst hún upp á Hellissandi ásamt fóstursystur sinni Þórhildi Biering. Bræður Ingileifar eru Sigurður, Jón og Valgeir sem allir eru látnir. Hinn 27. ágúst 1932 giftist nóvember 1939, kvæntur Hrefnu Jónsdóttur. Þeirra börn eru Jón Ragnar, kvæntur Katrínu S. Jó- hannsdóttur, Árni Ingi og Sæv- ar, kvæntur Láru F. Jónsdóttur. 5) Ólafur Brynjar, f. 27. október 1941, kvæntur Önnu G. Þor- steinsdóttur. Þeirra börn eru Kristinn, kvæntur Ceciliu B. Björgvinsdóttur, Þorsteinn, kvæntur Lise Kaspersen, Aðal- björg Íris, gift Eiríki Ingv- arssyni, og Brynjar, kvæntur Melanie West. Auk þess á Ólafur soninn Örvar. Ólafur ólst upp hjá kjörforeldrum Sigríði Sigurðar- dóttur og Kristni Kristjánssyni sem bæði eru látin. 6) Hrönn, f 27. febrúar 1945, gift Bergsteini Pálssyni. Þeirra börn eru Ing- ólfur Þór, kvæntur Judit De Voe, Arnheiður, gift Gunnari Lárus- syni, og Friðrik Ívar. Lang- ömmubörnin eru 33 og langa- langömmubörnin tvö. Ingileif og Árni áttu heimili sitt í Reykjavík. Eftir fráfall Árna stundaði hún vinnu utan heimilis, lengst af hjá kjötiðn- aðarfyrirtækinu Kjötveri. Útför Ingileifar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ingileif Árna Þ.K. Jó- hannessyni pípulagn- ingamanni, f. 23. júlí 1904, d. 28. ágúst 1956. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Rósinkransdóttir, f. 25. febrúar 1871, d. 11. febrúar 1947, og Jóhannes Kristján Sigurðsson, f. 17. janúar 1866, d. 3. október 1928. Ingi- leif og Árni eignuð- ust sex börn þau eru: 1) Jóhanna Kristín, f. 4. september 1932, maki Stefán Björnsson. Þeirra börn eru Árni Ingi, kvæntur Halldóru Húnbogadóttur, Björn, kvæntur Birnu Gunnlaugsdóttur, og Gunnar, kvæntur Guðlaugu Pálsdóttur. 2) Jón Jóhannes, f. 19. september 1934, kvæntur Ragnhildi Jónínu Sigurdórsdótt- ur. 4) Friðrik Magnús, f. 28. ágúst 1938. 3) Ríkarður, f. 11. Amma mín var yndisleg, hún var bráðskemmtileg, orðljót, forvitin, en umfram allt sú alduglegasta kona sem ég hef kynnst um ævina. Ég man fyrst eftir ömmu þegar við fluttum til hennar eftir að hafa búið á Akureyri. Í dag þegar ég hugsa til baka var ég alltaf með að minnsta kosti annan fótinn hjá ömmu. Ég er nú nokkuð viss um að ég eigi heiðurinn af nokkrum gráum hárum hjá ömmu. Þegar amma var bankandi í rúðurnar; Adda! Niðrúr trjánum! Adda! Niður af snúru- staurunum! Úff, hvað þetta barn getur étið, hún er gersamlega botnlaus. En auðvitað var þetta ömmu að kenna! Hún var frábær í eldhúsinu. Hún gerði allan venju- legan heimilismat góðan, kæfan hennar, sultan, baunirnar, lærið svo ekki sé minnst á kleinurnar. Þetta smakkaðist bara ekki eins hjá mömmu, amma var nefnilega náttúrukokkur, hafði þetta í sínum yndislegu litlu höndum. Einu sinni sem oftar fórum við skytturnar þrjár, eins og við köll- uðum okkur, ég, mamma og amma í bæinn, þá vildi svo einkennilega til að ég festi fæturna í rúllustiga. Þegar ég kom síðan gangandi til þeirra með tærnar út úr stígvél- unum öskraði mamma upp yfir sig, en amma aftur á móti datt í næsta stól og pissaði hreinlega í sig af hlátri. Ég flutti til ömmu þegar ég fór að heiman, ég hugsaði gott til glóðarinnar og ætlaði svo sann- arlega að verða eins góð í eldhús- inu og hún. Fyrst voru það sviðin, ég sauð þau eins og hún hafði sagt fyrir um og þegar hún kom til að meta gæðin, hló hún, ég hafði víst soðið ósviðin svið. Amma var hrikalega forvitin, var ekkert að hafa fyrir því að banka heldur kom bar inn til að sjá hvernig umhorfs var hjá mér. Síðan heyrði ég hana segja við mömmu. „Hún er nú ekki alltaf að taka til hún dóttir þín.“ Oft þegar amma leit á fjölskyld- una sína hafði hún á orði: „Að hugsa sér að allt þetta fólk skuli vera komið undan einni lítilli kart- öflu.“ Ég er sannarlega stolt yfir að vera kartafla undan þér og vona að eitthvað af þeim dugnaði og krafti sem þú bjóst yfir eigi eftir að koma fram í mér og börnum mínum. Arnheiður. Langri og viðburðaríkri ævi lauk þegar móðir mín lést 99 ára að aldri hinn 13. nóvember síðastlið- inn. Hún var fædd 13. mars 1905 og fylgdi því öldinni og lifði þær miklu breytingar sem einkenndu íslenskt þjóðfélag á síðustu öld. Hún fór ekki varhluta af þeim erf- iðleikum sem oft einkenndu kjör þeirra sem ekki bjuggu við það þjóðfélagslega öryggi sem við þekkjum í dag. Hún missti móður sína þegar hún var á fimmta ári og fór í fóstur til föðurbróður síns Jó- hannesar Sandhólm Magnússonar og konu hans Kristínar Helgadótt- ur. Þau bjuggu á Hellissandi þar sem Jóhannes stundaði verslunar- rekstur og ólst hún þar upp ásamt fóstursystur sinni Þórhildi Biering eða Bíbí eins og hún var kölluð. Bíbí og fjölskylda hennar var móð- ur minni alla tíð afskaplega kær. Hún kynntist Árna, föður mín- um, þegar hann var við sjósókn vestur á Snæfellsnesi um 1930 og hófu þau búskap í Reykjavík þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Þau bjuggu oft við erfið kjör og harða baráttu þurfti til að sjá far- borða sístækkandi fjölskyldu þeg- ar atvinna var stopul. Sem dæmi um það var að einhverju sinni á fyrstu búskaparárum þeirra var svo hart í búi þegar kom að jólum að móðir mín tók þann kost að selja giftingarhringinn sinn til þess að eiga fyrir nauðsynjum fjöl- skyldunnar. Erfiðleikar buguðu hana ekki heldur hertu eins og glögglega kom í ljós þegar hún af miklum dugnaði lauk við byggingu húss sem þau hjónin höfðu verið að reisa síðustu árin sem faðir minn lifði. Hann féll frá á besta aldri að- eins fimmtíu og tveggja ára. Ég kynntist móður minni ekki fyrr en ég var kominn undir tví- tugt þar sem aðstæður í fjölskyld- unni urðu til þess að ég var alinn upp hjá kjörforeldrum. Sú mynd sem kemur fram í hug- ann þegar horft er um öxl er dásamleg minning um kjarkmikla konu sem laðaði alla að sér með glaðlyndi sínu. Það eru minnis- stæðar ferðir sem við fórum með henni og fjölskylduvininum Sigurði Guðgeirssyni á heimaslóðir hennar á Hellissandi. Hún hafði einstakt lag á því að koma með hnyttnar athugasemdir um flest sem fyrir bar á leiðinni og smitandi hlátur hennar lifir enn í huga okkar. Við Anna og fjölskyldan okkar þökkum innilega fyrir allar fallegu minningarnar sem hún gaf okkur. Við þökkum einnig þann hlýhug sem hún naut af hendi starfsfólks- ins á Skjóli og ekki síst fyrir um- hyggju yngri dóttur hennar Hrannar sem öðrum fremur lagði sig fram um að hlúa að móður okk- ar á síðustu árum hennar. Það er gott að fá svefn eftir langan ævidag og við felum Guði hana á hendur. Guð blessi minn- ingu hennar. Ólafur Kristinsson og fjölskylda. Elsku Inga amma. Nú hefur þú kvatt þetta lífshlaup í hárri elli, ár- in hafa verið mörg og góð. Undan þessari litlu kartöflu er halinn orð- inn ótrúlega langur eins og þú sjálf orðaðir það. Ég kynntist þér fyrst af einhverri alvöru þegar ég fluttist í Háagerðið upp á loft hjá þér 1983 til þess að hefja búskap, ung og nýgift. Kynnin urðu alveg mögnuð, aldrei fyrr hafði ég kynnst öðrum eins lífskrafti, en hann einkenndi þig alla tíð. Það var þér afar dýrmætt að geta unn- ið til áttræðs, og oftar en ekki gekkst þú aðra eða báðar leiðir til vinnu niður í Dugguvog í öllum veðrum. Þú hjálpaðir gjarnan aumingja gömlu konunum við pokaburð úr búðinni, konum sem oftar en ekki voru 10–15 árum yngri en þú sjálf. Hjá þér var alla tíð opið hús og af- komendur og vinir duglegir að heimsækja þig, enda einkenndu þig hlýja og gleði, en við fengum líka óspart að heyra það ef langt leið á milli koma, þú vildir hafa þitt fólk umhverfis þig. Heimsókn þín til okkar í Banda- ríkjunum er með öllu ógleymanleg, mér tókst að leggja þig í rúmið með því að gefa þér koffeinfrítt kaffi í tvo daga, höfuðverkurinn varð óbærilegur. Þú skildir ekki hvaðan á þig stóð veðrið, ekki hafðir þú fengið aðrar eins höf- uðkvalir í áraraðir. Það var elsku- leg tengdamóðir mín og tengadótt- ir þín sem kveikti, þig vantaði alvöru koffeinkaffi, þá rokið út í búð hellt upp á og viti menn sú gamla reis úr rekkju. Í þessari ferð fórum við í leiðangur til að kaupa aftur giftingarhring eins og þú hafðir lofað Árna heitnum. Ekki hættum við fyrr en þú varst sátt og mikið varstu glöð þegar þú renndir gljáandi einbaugnum á fingur þér. Í þessari sömu ferð hófust einnig kynni þín og Ciss-ömmu en með ykkur tókst yndislegur vinskapur. Að kistu- lagningu lokinni hittumst við nokkur af hreinni tilviljun í kaffi í Perlunni. Margs var að minnast, hláturinn var ekki langt undan enda einkenndi þig alla tíð létt lund og glaðværð. Það er með virðingu og þökk fyrir frábær kynni sem ég kveð nú. Þín Cecilie. INGILEIF MAGNÚSDÓTTIR ✝ Jóhannes Sigur-björn Guðfinns- son lögfræðingur fæddist 11. janúar 1913. Hann lést 15. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Marsibil Hólm- fríður Andrésdóttir og Guðfinnur Ágúst Gíslason. Þau bjuggu á Fossi í Vestur-Hópi. Systkini Jóhannesar voru: Pétur Guð- finnsson, f. 13.2. 1899, d. 1985; Una Aðalheiður Guð- finnsdóttir, f. 9.6. 1901, d. 1924; Karl Georg Guðfinnsson, f. 17.5. 1904, d. 1990; Ólafur Ingvar Guð- finnsson, f. 4.11. 1908, d. 1993. Eiginkona Jó- hannesar var Þóra Laufey Finnboga- dóttir, f. 3.10. 1919, d. 14.7. 1957. Dóttir þeirra er Aðalheiður Una Jóhannesdóttir, 8.1. 1942. Makar: Pétur H. Snæland viðskiptafræðingur. Þau skildu. Kristján Pálsson, fv. alþingis- maður. Þau skildu. Barnabörn: Þóra Laufey Pétursdóttir, f. 1963; Arndís Krist- jánsdóttir, f. 1969; Ólöf Kristjánsdóttir, f. 1970. Jóhannes verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég kynntist Jóhannesi upp úr 1970. Hann var þá lögfræðingur og deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu, sá m.a. um skráningu vörumerkja og einkaleyfa og bar sem slíkur starfsheitið vörumerkjaskrárritari; hafði nýlega tekið við því starfi af Brynjólfi Ingólfssyni. Einnig sá Jó- hannes um fjármál ráðuneytisins. Á þessum tíma var starfsfólkið ekki fleira en svo að það rúmaðist við tvö fjögurra manna borð í kaffistofu stjórnarráðsins. Það var mér sem nýliða á þessum vinnustað dálítil ráðgáta í fyrstu, hvers vegna ýmsir starfsmenn annarra ráðuneyta vildu endilega krækja sér í sæti hjá Jóhannesi. En málið skýrðist fljót- lega, maðurinn hafði greinilega mikið aðdráttarafl, húmorinn var í góðu lagi og hann var hafsjór fróð- leiks um marga hluti. Það voru for- réttindi að fá öðru hverju að sitja við „hornborð Jóhannesar“ (eins og við kölluðum það gjarnan) með mönnum eins og Bergi Pálssyni, Jóni Bjarman og fleiri sómamönn- um og spjalla við Jóhannes um hvað eina sem efst var á baugi. Magnús Kjartansson var á þess- um tíma ráðherra iðnaðar- og heil- brigðismála. Hann boðaði nauðsyn iðnbyltingar á Íslandi og beitti sér í því samhengi fyrir úttekt á stöðu ýmissa iðngreina og hleypti af stað námskeiðum fyrir starfsfólk í iðn- aði, einkum ófaglært fólk. Um þetta leyti var líka unnið að Norðurlínu og Kröfluvirkjun, og eftir heitu vatni „var borað eins langt niður og fjárveitingar dugðu“, eins og einn vinnufélagi okkar Jóhannesar orð- aði það í mín eyru. Magnús var dug- legur við að kría út peninga í þessi verkefni og það var í verkahring Jóhannesar sem umsýslumanns fjármála að sjá til þess að laus- ráðnir sérfræðingar Magnúsar fengju greitt fyrir vinnu sína og ferðalög innanlands sem utan. Þetta jók til muna vinnuálag Jó- hannesar. Það má segja að starf hans sem vörumerkjaskrárritara hafi að nokkru leyti flust frá virkum dögum yfir á helgarnar. Þær tók hann oft í að ganga frá birtingu vörumerkja og einkaleyfa í Lög- birtingablaðið. Létt lund og lipurð Jóhannesar gerði það að verkum að hann átti auðvelt með að komast af við við- skiptavini sína á sviði vörumerkja og einkaleyfa. Þó höfðum við vinnu- félagar hans skemmtun af einni undantekningu. Það var þegar Páll Pálmason lögfræðingur, umboðs- maður og fyrrum vörumerkjaskrár- ritari (gegndi starfinu á undan Brynjólfi) heimsótti hann í við- skiptaerindum. Þá áttu þeir koll- egarnir það til að taka kröftugar „brýnur“. Hver deiluefnin voru vissi samstarfsfólkið aldrei og leit bara á orðaskiptin sem æfingar í mælskulist. Jóhannes hafði góða skipulags- hæfileika, vannst allt létt sem hann gerði, að mér fannst. Liðlega tíu ár- um eftir að hann lét af störfum hjá ráðuneytinu (1976) kom hann við á einkaleyfa- og vörumerkjadeild sem þá var flutt úr húsakynnum iðnaðarráðuneytisins yfir á Lindar- götu 9 og hafði tvær hæðir til um- ráða. Tölvuöld var þá gengin í garð og Jóhannes undraðist umsvifin og fjölgun starfsfólks. Þá var þetta kveðið: Hér stendur þú vinur í bakinu beinn og brosir við tækninni nýju. Við kontórstörf sem þú kláraðir einn nú kljást ekki færri en tíu. Margir þekktu Jóhannes sem góðan skrifstofumann. Hitt munu kannski færri hafa vitað að hann var líka góður handverksmaður. Um það bar m.a. vitni vönduð inn- rétting hans í risinu á Stýri- mannastíg sem hann sýndi mér einhvern tíma þegar ég leit inn. Þá hafði ég skömmu áður rekist á hann í hjólreiðatúr í Vesturbænum. Pípan var enn á sínum stað og ilmurinn af Dunhill-tóbakinu samur og minnti á gamla tíma þegar þessi öðlingur kom léttstígur upp í ráðuneyti eftir að hafa fengið sér morgunkaffi á kaffistofunni Prikinu á horni Ingólfsstrætis og Laugavegar. Ég þakka Jóhannesi vináttu og tryggð á þessum liðnu dögum. Gunnar Guttormsson, vélfræðingur og fyrrv. for- stjóri Einkaleyfastofunnar. JÓHANNES SIGURBJÖRN GUÐFINNSSON Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma JÓHANNA SÍMONARDÓTTIR Snorrabraut 56 b, Reykjavík, lést 20. nóvember síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Páll Þorsteinsson, Vigdís Pálsdóttir, Vilhjálmur Grímsson, Þuríður Vilhjálmsdóttir, Áslaug K. Pálsdóttir, Þorsteinn Pálsson, Kristín Árnadóttir, Páll Ásgeir Pálsson, Sigríður H. Þorsteinsdóttir, Gylfi Þór Pálsson, Griselle Cabero Pálsson, barnabörn og langömmubörn. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Legsteinar Englasteinar www.englasteinar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.