Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 23 MINNINGAR Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi SVERRIR ÖRN VALDIMARSSON prentari, Langeyrarvegi 20, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 21. nóvember. Guðmundur Ingvi Sverrisson, Kristín Karlsdóttir, Valdimar Örn Sverrisson, Ingunn Hauksdóttir, Þórður Sverrisson, Lilja Héðinsdóttir, Lára B. Sverrisdóttir Borthne, Roald Borthne, Vilborg Sverrisdóttir, Guðmundur Rúnar Guðmundsson, Aðalsteinn Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn „Mamma núna veistu að honum líður vel“… þetta voru orð litla sonar míns þegar ég sagði honum að langafi hans væri dáinn, og eru það svo sannarlega orð að sönnu. Eng- um er greiði gerður með því að vera hér áfram ef heilsan er þrotin. Tryggvi afi var virkilega sér- stakur persónuleiki, ákveðinn, ein- beittur, þrjóskur, einstaklega hreinskilinn og orðheppinn. Það var svo skemmtilegt að heyra hann segja frá því hann dró ekkert und- an. Hann var fróður um alla skap- aða hluti og víðlesinn. Bækur hans skiptu hundruðum og hann las þær allar minnst tvisvar sinnum. Hann var mikill íþróttaunnandi og fylgd- ist með íþróttum, og þá sérstak- SIGTRYGGUR ÓLAFSSON ✝ SigtryggurÓlafsson fæddist í Brekku í Glerár- þorpi 14. nóvember 1922. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 2. nóvember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Glerár- kirkju 12. nóvember. lega knattspyrnunni, þar sem hann var nú eitt sinn í knatt- spyrnuliði Þórs á Ak- ureyri. Það hefur ver- ið honum mikils virði og var hann mjög stoltur af því, allt til hinsta dags. Sú mynd sem birtist mér fyrst af afa er þegar hann var á gamla hjólinu sínu að „rúnta“ út um allan bæ með póstinn. Hann átti aldrei bíl svo þetta var hans fákur. Gamla pósthúfan átti sinn stað á fatahenginu og okkur systkinunum þótti hún merkileg. Já þær eru margar stundirnar sem við Siggi bróðir áttum hjá þeim. Það er okk- ur sérstaklega minnisstætt þegar við vorum í gamnislag á stofugólf- inu og brutum glerskápinn með bókunum. Við skömmuðumst okkar ekkert lítið og létum okkur það að kenningu verða. Þegar ég var í framhaldsskóla bjó ég hjá ömmu og afa einn vetur og það var ynd- islegur tími og á ég þeim mikið að þakka. Afi lagði mikið upp úr menntun og hvatti mig mikið áfram. Ennfremur kenndi hann manni að vera ekki að spreða með peningana, heldur að eiga alltaf fyrir öllu. Fyrir nokkrum mánuðum byrj- aði heilsu hans að hraka þannig að öll vissum við hvert stefndi. Ég náði að kveðja hann nokkrum vik- um áður en hann fór og fyrir það er ég mjög þakklát. Núna veit ég að hann er í góðum höndum og kannski hann sé kominn í gamla fótboltaliðið sitt aftur. Ég kveð með söknuð í hjarta elsku afa minn og bið algóðan guð að vaka yfir honum og styrkja elsku ömmu. Kristín H. Elsku afi minn, ég veit að núna líður þér vel og ég er fegin því en samt væri ég alveg til í að hafa þig ennþá hér hjá okkur, en ég fæ nú víst engu um það ráðið. Það er ekki eins að koma heim til ömmu og afa núna, svo eru blómin þín á svöl- unum að deyja. En ég reyni bara að hugsa um allar stundirnar sem við áttum saman og þakka guði fyrir þær. Til dæmis þegar við fórum saman á hestbak og þú varst að HILMAR ÓLAFSSON ✝ Jón HilmarÓlafsson fæddist á Ísafirði 2. nóvem- ber 1927. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. októ- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogs- kirkju 27. október. segja manni frá öllum fuglategundum og öll- um gróðri sem við fór- um framhjá. Svo varstu að kenna mér að dansa á ættarmótinu núna í júní, þið amma voruð alltaf svo klár að dansa. Það fór nú aldr- ei mikið fyrir þér, þú varst alltaf að dunda þér við að leggja kapal, leysa krossgátu eða eitthvað svoleiðis en samt vissi maður að þú varst þarna og það var nóg. Ég veit samt að þú ert ekkert alfarinn frá okkur, ég er alveg viss um að þú sért ennþá hjá ömmu og okkur öllum. En þín er samt sárt saknað og maður verður bara að reyna að venjast þessu og hugsa fallega til þín. Mér þykir vænt um þig. Hvíl í friði. Ólöf Ragnarsdóttir. SVERRIR ÖRN VALDIMARSSON prentari, Langeyrarvegi 20, Hafnarfirði, Við kveðjum með söknuði Steindór Sig- urðsson, samstarfs- mann okkar hjá SBK. Það er heiður að geta sagt frá því að hafa unnið með Steindóri þó ekki hafi verið nema tæpar fjórar síðustu vik- urnar í lífi hans. Steindór kom aftur STEINDÓR SIGURÐSSON ✝ Steindór Sig-urðsson fæddist á Siglufirði 13. mars 1943. Hann lést 12. nóvember síðastlið- inn og var hann jarð- sunginn frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 19. nóvember. til starfa hjá SBK í október 2004, en eins og allir vita sem hann þekktu þá rak Stein- dór SBK til fjölda ára. Óhætt er að segja að Steindór hafi verið hörkukarl sem bar harm sinn í hljóði. Steindór var nýbúinn að drekka morgun- kaffið og spjalla við starfsfólkið þegar kall- ið kom. Það var vart hægt að sjá á honum að hann væri kvalinn eða veikur, svo vel bar hann veik- indi sín. Með þessum fátæklegu orð- um langar okkur starfsfólk SBK að votta eiginkonu Steindórs og fjöl- skyldu hans okkar innilegustu sam- úð. Góður Guð styrki ykkur og varð- veiti í sorg ykkar. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta, vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höfundur ók.) Kveðja. Starfsfólk SBK. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Elsku besta vinkona mín, hún Tóta á Akri, eins og ég sagði alltaf, og hlógum við þá báð- ar, því alltaf var gleði að hitta þig. Ég skrifa til þín fáeinar línur, því ég gat ekki fylgt þér síðasta spölinn á föstudag- inn af eintómum vandræðagangi. Ég kom til þín á saumastofuna á Akri 1940. Vorum við átta stelpur saman komnar alls staðar að – að austan, norðan, sunnan og vestan. Mikið var þá gaman að lifa og alltaf varst þú léttust í lund. Ég veit að enginn hefur verið eins fær með skærin að sníða og nálina við að sauma eins og þú. Oft var efnið sem átti að fara í flíkina svo lítið, að okk- ur sýndist að þú myndir aldrei fá það í flík. Ó, jú, þú snerir og snerir og áð- ÞÓRUNN ODDSDÓTTIR ✝ Þórunn Odds-dóttir fæddist á Akri á Akranesi 11. janúar 1908. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 22. októ- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akranes- kirkju 29. október. ur en yfir lauk varð úr því frábær flík, og allt var gert með bros á vör. Skapið alltaf jafn- gott. Mikið var hlegið þegar ein okkar var bú- in að sauma ermina við hálsmálið og ekki hlóst þú minnst, því alltaf vorum við að gera vit- leysu. Ég var hjá þér síð- asta vorið sem þú saumaðir alla ferming- arkjólana á Akranesi. Þvílíkt nostur, allir þeir hnappar, rósir og krús- indúllur. Svo fórst þú að sauma fleiri og fleiri dýrðlega upphluti, allt til áttræðisaldurs. Þú varst svo sann- arlega kjarnakona. Síðustu árin prjónaðir þú svo átta blaða dúllur úr hárfínu heklugarni og gafst þær frá þér í allar áttir. Ég á þær margar, því alltaf varstu að gefa og hjálpa. Puttarnir þínir voru fimir, kollurinn skýr og hjartað heitt. Oft spjölluðum við mikið, en aldrei lagðir þú illt orð til nokkurs manns. Nú kveð ég þig, mín kæra vina. Þakka þér allt. Guð geymi þig. Guðborg Elíasdóttir. Nokkur kveðjuorð frá skólasystrum Húsmæðraskóli Suð- urlands á Laugarvatni haustið 1948. Saman eru komnar 32 lífsglaðar og eftirvæntingarfullar stúlkur ásamt hópi góðra kennara til að takast á við verkefni vetrarins, að stunda nám í Húsmæðraskólanum og auka þannig við þekkingu og færni við húshald og heimilisrekstur. Forvitnum augum horfðum við hver á aðra, því fæstar höfðum við sést áður. Miklu máli skipti að vel tækist til um herbergisfélaga og ekki síður val í starfshópa í svo nánu sam- félagi sem í húsmæðraskólanum GUÐRÚN SUMARLIÐADÓTTIR ✝ Guðrún Sumar-liðadóttir fædd- ist í Viðvík á Hellis- sandi 5. mars 1930. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 4. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Háteigs- kirkju 12. nóvember. hlaut að verða. Skemmst er frá því að segja að við nöfnur lentum saman í holli og ljúft er að minnast þess að betri samstarfskonu var vart hægt að hugsa sér. Gunna var alltaf glöð og létt í skapi og sér- lega viljug og ósérhlíf- in. Hún hafði ekki mörg orð um hlutina en gekk í að leysa þau verk af hendi sem henni voru falin og gerði það vel. Ég minnist með gleði og þakklæti þessara löngu liðnu daga, bæði til kennara og nemenda, sem deildu kjörum í Lindinni veturinn 1948–49. Guðrúnu Sumarliðadóttur, sem nú hefur horfið úr hópi hinna glöðu Lindarmeyja, eru færðar þakkir okkar skólasystra og kennara henn- ar fyrir ljúfa viðkynningu. Börnum hennar og ástvinum öðr- um sendum við innilegar samúðar- kveðjur. F.h. skólasystra og kennara, Guðrún Sigurðardóttir. Okkur langar til að minnast okkar elskulegu tengdamóður og ömmu í fáum orðum. Nú er baráttu hennar lokið við illvígan sjúkdóm. Við munum minnast hennar með hlýhug og söknuði. Við erum þakklát fyrir þær stundir sem við áttum með henni. Með þessum orðum kveðjum við hana. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið þig að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu og hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Takk fyrir allt, elsku tengdamóðir og amma. Sofðu rótt, blessuð sé minning þín. Rakel Jónsdóttir, Sif, Dóra, Birkir Ívar og Birta Íva. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.