Morgunblaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 27
DAGBÓK
HREINLÆTISVÖRURNAR FRÁ
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
64
93
1
1/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
64
93
1
1/
20
04
Landsbanki Íslands hf.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands,
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunni er hægt að
nálgast hjá Landsbanka Íslands.
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Sveitarfélagið Árborg.
330.000.000 kr.
1. flokkur 2004
Nafnver› útgáfu: Heildarnafnverð flokksins er 330.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa: Skuldabréf 1. flokks 2004 eru gefin út til 15 ára og greiðast með 15
jöfnum afborgunum á 12 mánaða fresti, í fyrsta skipti 15. mars 2005.
Vextir greiðast á sömu dögum og afborganir. Lokagjalddagi afborgana
og vaxta er 15. mars 2019. Útgáfudagur bréfsins er 13. maí 2004.
Skuldabréfið ber 4,30% fasta ársvexti. Auðkenni flokksins í Kauphöll
Íslands verður ARBO 04 1
Skráningardagur: Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 26. nóvember 2004.
Bingó hækkar
blóðþrýstinginn
KUNNINGJAR okkar hjónanna
sögðu okkur að á sunnudagskvöldum
væri mjög skemmtilegur þáttur Á
skjá einum þar sem þátttakendur í
sjónvarpssal spiluðu bingó og að þeir
sem horfa á þessa stöð heima hjá sér
gætu líka tekið þátt.
Við ákváðum því að prófa þetta á
sunnudaginn þar sem ekkert
skemmtilegt var í boði á þessum
tíma, hvorki hjá Ríkissjónvarpinu né
Stöð 2. En mikil urðu vonbrigði okk-
ar. Ungi maðurinn sem stjórnaði
þessum bingó-þætti talaði svo hratt
og var svo hræðilega upptrekktur,
sveiflaði höndunum í allar áttir og
hristi blýantinn, sem hann hélt á, ótt
og títt og af miklum krafti. Ógern-
ingur var að skilja hvað hann sagði.
Þegar þátturinn var hálfnaður
vorum við hjónakornin orðin svo dös-
uð enda hugurinn kominn á fleygi-
ferð. Við slökktum á sjónvarpinu og
ákváðum að mæla blóðþrýstinginn
hjá okkur. Hann var kominn upp úr
öllu valdi, nálægt 180. Við lögðumst
því strax á gólfið og gerðum slök-
unaræfingar. Við mælum ekki með
því að þeir sem hafa of háan blóð-
þrýsting horfi á þennan þátt.
Öldruð skötuhjú.
Áekkert skylt við rasisma
NÚ sprettur fólk upp til handa og
fóta og kallar þá rasista sem telja
óráðlegt að hingað flytjist til búsetu
ótakmarkaður fjöldi útlendinga.
Mörgum finnst það öfugþróun þegar
útlendingar eru teknir í vinnu hérna
fram yfir Íslendinga og einnig að
þeir fyrrnefndu séu í sumum til-
fellum látnir sitja fyrir í húsnæðis-
málum. Það á ekkert skylt við ras-
isma þó okkar fámenna þjóð hafi
nokkrar áhyggjur af því að við get-
um orðið í minnihluta í framtíðinni
með þeim vandamálum sem því gætu
fylgt.
Guðrún Magnúsdóttir.
Stór gullkross týndist
STÓR gullkross, breiður og þunnur,
týndist líklega í nágrenni við Ask á
Suðurlandsbraut. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 557 4138 eða
462 2529.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna (LSS) hófstnú á laugardaginn með útgáfu for-varnablaðsins Slökkviliðsmaðurinn.
Blaðinu hefur verið dreift í 70 þúsund eintökum um
land allt en í því eru meðal annars ítarlegar leið-
beiningar um eldvarnir heimilanna. Í dag hefja
slökkviliðsmenn heimsóknir sínar í þriðju bekki
grunnskólanna, fræða börnin um eldvarnir og
bjóða þeim að taka þátt í Eldvarnagetrauninni.
Vernharð Guðnason, formaður LSS, segir mark-
mið átaksins að hvetja almenning til aðgerða í eld-
vörnum heimilanna til að draga úr líkum á tjóni á
lífi og eignum vegna eldsvoða. Hann segir reyk-
skynjara vera mikilvægustu forvörnina og eigi þeir
undantekningarlaust að vera á hverju heimili í
landinu, enda séu þeir einfaldasta og öruggasta for-
vörnin þegar kemur að brunavörnum.
Hver eru helstu áhersluatriðin í eldvörnum?
„Eldvarnir ganga út á að vernda líf, heilsu og
eignir í þessari forgangsröð. Okkar markmið er að
leiðbeina almenningi og hvetja hann til að tryggja
öryggi sitt með aðgerðum í eldvörnum. Um er að
ræða einfaldar, ódýrar og áhrifaríkar aðgerðir sem
eru engum ofviða. Við slökkviliðsmenn vitum hvað
jafnvel lítill eldur getur haft skelfilegar afleiðingar
inni á heimilum fólks. Forvarnablaði LSS var dreift
um allt land um helgina og ég hvet fólk til að kynna
sér efni þess.“
Hvað er hægt að gera til að bæta eldvarnir heim-
ilisins?
„Við leggjum megináherslu á að á hverju heimili
séu virkir reykskynjarar til að tryggja að viðvörun
berist tímanlega, fólk nái að forða sér út úr brenn-
andi húsi og hringja í 112. Einn eða fleiri reyk-
skynjarar eiga að vera í hverri íbúð og við biðjum
fólk að muna að reykskynjara þarf að prófa mán-
aðarlega, skipta þarf um rafhlöðu árlega og reyk-
skynjarann sjálfan ekki sjaldnar en á tíu ára fresti.
Við höfum því miður dæmi um að reykskynjarar
hafi ekki komið að gagni vegna þess að þetta var
vanrækt.
Ennfremur verða flóttaleiðir að vera greiðar,
gera þarf og æfa áætlun um hvernig fólk hyggst yf-
irgefa brennandi hús og koma þarf upp lágmarks-
búnaði, það er handslökkvitækjum og eldvarna-
teppum. Síðast en ekki síst stuðlum við að því að
fólk þekki hætturnar og læri að varast þær.
Við hvetjum fólk einnig eindregið til að tryggja
eigur sínar.
Þegar allt kemur til alls eru eldvarnir á ábyrgð
hvers og eins. Það veltur því á okkur sjálfum að
tryggja öryggi fjölskyldna okkar.“
Forvarnir | Eldvarnaátak LSS um allt land er komið í fullan gang
Reykskynjarar eru lykilatriði
Vernharð Guðnason
fæddist í Hnífsdal
1962. Hann útskrif-
aðist sem húsasmiður
frá Iðnskólanum á Ísa-
firði 1982 og lauk
Meistaraskólanum í
Reykjavík 1987.
Vernharð starfaði við
húsasmíðar uns hann
varð slökkviliðs- og
sjúkraflutningamaður
hjá Slökkviliði Reykjavíkur (nú SHS) 1988.
Hann útskrifaðist sem bráðatæknir frá Center
for Emergency Medicine í Pittsburgh árið
2000. Hann varð formaður LSS 2002.
Eiginkona Vernharðs er Ester Martinsdóttir
flugumferðarstjóri og eiga þau þrjú börn.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14 leik-
fimi og vinnustofa kl. 9, boccia kl. 10
frjáls spilamennska alla daga, bókabíllinn
kl. 13.30 til 14 alla mánudaga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, smíði
og útskurður kl. 13–16.30, félagsvist kl.
13.30, myndlist kl. 16.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist
sunnudaginn 28. nóvember, kl. 14. Kaffi-
veitingar, allir velkomnir.
FEBÁ Álftanesi | Opið hús í Hauks-
húsum, spilað, teflt, spjallað. Kaffiveit-
ingar að hætti hússins.
Félag eldri borgara Reykjavík |
Brids í dag kl. 13.00. Kaffitár með ívafi
kl. 13.30. Línudanskennsla, byrjendur kl.
18. Samkvæmisdans, framhald kl. 19 og
byrjendur kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK spilar tvímenning alla
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK Gullsmára: Spilað
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi. Eldri borgarar velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11.00.
Bókband kl. 10.00, ullarþæfing kl. 13.00,
spænska kl. 14.00. Í Garðabergi er pílu-
kast kl. 13.00 bridge. Í Garðaskóla eru
tölvur kl. 17.00.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl. 10.30 sund og leik-
fimisæfingar í Breiðholtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Kl. 13.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðnum. Kl. 14.30 kór-
æfing. Sími 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
keramik, perlusaumur og kortagerð, kl.
10 fótaaðgerð og bænastund, kl. 12 há-
degismatur, kl. 13 skrautskrift, kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl.9–16, jóga kl. 9–11, frjáls spilamennska
kl. 13–16, böðun virka daga fyrir hádegi,
fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf.
Listasmiðja handavinna / frjálst 9–16.
Bað 9–12. Framsögn og upplestur, kl. 10
– Soffía Jakobsdóttir. Félagsvist kl.
13.30. Hárgreiðslustofa 568–3139. Miðar
á Vínarhljómleika 7. jan. 2005 komnir í
hús. Verð kr. 3.150. Ósóttar pantanir
seldar 6. desember. Rúta. Sími 568–
3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun
þriðjudag sundleikfimi í Grafarvogslaug
kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði.
SÁÁ félagsstarf | Tveggja kvöld dans-
námskeið verður dagana 22. og 23. nóv-
ember í sal I.O.G.T að Stangarhyl 4.
Námskeiðið hefs til 20 báða dagana.
Sjálfsbjörg | Félagsheimilið Hátúni 12:
Brids í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna,
kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl.
11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kór-
æfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, myndlist og hárgreiðsla
kl. 9, morgunstund og fótaaðgerð kl.
9.30, boccia kl. 10 handmennt, gler-
bræðsla og frjáls spil kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Video kl. 13.30.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn kl. 12 í dag.
Allir velkomnir.
Breiðholtskirkja | Barnakórarnir æfa
á mánudögum. Yngri deildin 7–9 ára æf-
ir kl. 15.30 og eldri deildin 10–12 ára kl.
16.30.
Laugarneskirkja | Kl. 18 Opinn 12
sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í
bata. Tilvalið að koma og kynna sér
þetta merka mannræktarstarf. (Nýir
tólfsporahópar hefjast strax á nýju ári.)
Sjá: laugarneskirkja.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Hjörtur Marteinsson opnaði um helgina
sjöttu einkasýningu sína á lágmyndum
og þrívíðum verkum í Galleríi Sævars
Karls í Reykjavík undir yfirskriftinni
„Ókyrrar kyrralífsmyndir“.
Hjörtur notast við brot úr sænskri
dagblaðsfrétt til að varpa ljósi á við-
fangsefni sitt. Í fréttinni sagði frá
manni sem stöðvaði hraðlest í Svíþjóð
og hellti sér yfir samferðamenn sína,
sagði þá þræla streitunnar og hávaðans
og að þeir væru búnir að missa öll
tengsl við hin raunverulegu lífsgæði.
Þess í stað hefðu þeir farsíma og far-
tölvur.
„Eins og heiti sýningarinnar ber með
sér þá kallast hún á við hugtakið kyrra-
lífsmynd og hvernig við skynjum það og
skiljum með mismunandi hætti í nútím-
anum,“ segir Hjörtur. Flest kyrralífs-
verk kallast að sögn Hjartar á við þrá
mannsins eftir hæglátu lífi og öryggi og
eiga verkin á sýningunni hjá Sævari
Karli að endurspegla þessa þversagna-
kenndu þrá að hluta til. „En aflvaki
flestra verkanna og hugmyndalegur
rammi sýningarinnar snýst um hug-
takið þögn og andstæðu þess, hávað-
ann, sem alls staðar skellur á eyrum
manna hvar sem þeir eru staddir.“
Hjörtur segir verkin á sýningunni
unnin með hinn ókunna en ofurnæma
lestarfarþega sem tók í neyðarhemilinn
í huga. Jafnframt eiga þau að vera
framhald af þeirri ókyrru þögn sem hver
og einn geymir innra með sér.
Ókyrrar kyrralífsmyndir í Galleríi Sævars Karls
Sýningin stendur til sunnudagsins
12. desember og er opin á
verslunartíma Sævars Karls.