Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 33

Morgunblaðið - 22.11.2004, Side 33
Listamenn sem unnu að verkinu: Dorette Egilsson ljóðskáld, Árni Egilsson tónskáld, Auður Bjarnadóttir, höfundur og leikstjóri, Hákon Leifsson, stjórnandi strengjasextetts, og Elísabet Jökulsdóttir skáld. Morgunblaðið/Golli DANSLEIKHÚSVERKIÐ Ern eft- ir aldri var frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins á miðvikudag. Segja má að um sé að ræða sýningu þar sem möguleikar leiksviðsins eru nýttir til hins ýtrasta því við sögu kemur fjöldi listamanna; leikarar, dansarar bæði fullorðnir og á barns- aldri, tónlistarfólk og textahöfundar. Kvöldið skiptist raunar í tvö verk, annars vegar verkið „Ef ég væri fugl“ sem samið er við tónverkið „From the Rainbow“ eftir Árna Eg- ilsson kontrabassaleikara, og hins vegar verkið „Ern eftir aldri“ sem innblásið er af samnefndri heimild- armynd Magnúsar Jónssonar. Þess má geta að gagnrýnandi Morgunblaðsins, Soffía Auður Birg- isdóttir, gaf verkinu afar góðan vitn- isburð og segir höfund og leikstjóra verksins, Auði Bjarnadóttur, hafa „skapað frábæra sýningu þar sem margir ólíkir þættir leikhússins koma saman á eftirminnilegan hátt“. Í viðtali við Morgunblaðið hefur Auður áður sagt að það sem hún sjálf þrái í leikhúsi sé „að það hreyfi við manni“ og að sýningin sé pólitísk þótt hún eigi líka að vera skemmti- leg. Umfjöllunarefnið sé m.a. það of- beldi sem þjóðin beiti sjálfa sig og eigið land. Telur Soffía að henni hafi tvímælalaust tekist að hreyfa við áhorfendum sínum. Vert er að geta þess að aðeins eru fyrirhugaðar tvær sýningar í viðbót. Önnur á morgun, þriðjudaginn 23. nóvember og hin miðvikudaginn 1. desember. Dansleikhús | Ern eftir aldri frumsýnt Hreyfingar á sviði til að hreyfa við áhorfendum Morgunblaðið/Sverrir Leikkonurnar Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir ásamt Sveini Einarssyni, fyrrverandi þjóðleikhússtjóra. Morgunblaðið/Sverrir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 2004 33 Kvikmyndir.is H.J.Mbl.  ÁLFABAKKI 3.45 og 6.15. Ísl tal. H.L.Mbl.  KRINGLAN Sýnd kl. 5.50. Búið ykkur undir að öskra. Stærsta opnun á hryllingsmynd frá upphafi í USA. AKUREYRI Sýnd kl. 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 6. Enskt tal. KRINGLAN kl. 5.50, 8 og 10.10. Stanglega bönnuð innan 16 ára Stanglega bönnuð innan 16 ára Frá spennumyndaleikstjóranum, Renny Harlin kemur þessi magnaði spennutryllir sem kemur stöðugt á óvart. l i tj , li i i t lli t t t. Funheit og spennandi með John Travolta og Joaquin Phoenix í aðalhlutverki! ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20. Sama Bridget. Glæný dagbók. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 . Ísl tal. ÁLFABAKKI kl. 4, 6, 8 og 10.10. Sagan af Öskubusku í nýjum búningi ÁLFABAKKI kl. 5.50, 8 og 10.10. RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10.. Sama Bridget. Glæný dagbók. RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.10..                  ! "#$ %& &'&( ) & *  OFURFYRIRSÆTAN Naomi Campbell og R&B-stjarnan Usher hafa nú gert ástarsamband sitt opinbert. Parið sýndi sig í fyrsta sinn opinberlega þegar þau komu hönd í hönd til afhendingar evrópsku MTV-verðlaunanna í Róm á fimmtudag. Að sögn sást parið varla utan hótelsvítu sinnar eftir að þau komu til borgarinnar síðastliðinn mánudag. Campbell sagðist þó skemmta sér konunglega á Ítalíu enda væri hún afar hrifin af landinu. Hún reyndi þó að borða ekki of mikið því þá yrði hún syfjuð, sagði hún blaðamanni breska dagblaðsins Daily Mirror. Líklega hefur Naomi verið ánægð með kallinn, því hann hampaði bæði verðlaunum sem besti karlkyns listamaðurinn og fyrir bestu plötuna. Fríða og dýrið? UsherNaomi Campbell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.