Morgunblaðið - 06.12.2004, Qupperneq 13
FASTEIGNIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 F 13
UPPSELDIR - VANTAR Vegna gríðar-
legrar mikillar sölu á sérbýli eru þau upp-
seld í bili. Af einbýlishúsum sem við höfum
verið að selja má nefna Bjarkargötu 2, Ás-
vallagötu 22, Aflagranda 39, Fagrabæ 10,
Aratún 40 o.fl. eignir. Nýju íbúðalánin hafa
gert fleirum kost á að fjárfesta í stórum eign-
um og er markaðurinn mjög líflegur. Ef þú ert
í söluhugleiðingum eða ert með óselda eign
hafðu þá samband. Virk kaupendaskrá.
ALLT AÐ SELJAST Gríðarleg eftirspurn
er eftir rað- og parhúsum, hæðum og stærri
blokkaríbúðum á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Uppselt í bili. Ef þú ert í söluhugleiðingum
hafðu þá sambandi við sölumenn okkar. Virk
kaupendaskrá.
VANTAR - VANTAR Mikil og góð sala
á 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðum undanfarnar
vikur og allt að verða uppselt. Skráðu eign-
ina þína hjá okkur og við lofum árangri. Skrá
eign er seld eign, flóknara er það ekki.
Kristnibraut - Ein eftir
Mjög rúmgóð og falleg 3ja herbergja íbúð á
1. hæð í litlu fjöleignahúsi. Glæsilega innrétt-
uð íbúð á frábærum stað. Afh. fullbúnar án
gólfefna í febrúar nk. Verð 18, 5 millj.
OPIÐ FRÁ KL. 9:00-17:30
AFLAGRANDI - SÉRINNGANGUR
Mjög góð og vel innréttuð 122 m² 4ra herb.
íbúð á 2. hæð á þessum eftirsótta stað í
vesturbænum. Þrjú svefnherb. Björt og
rúmgóð stofa. Fallegt eldhús og baðher-
bergi. Parket og flísar. Sérinngangur af
svölum. Þetta er björt og góð eign á frá-
bærum stað í miðju KR-hverfinu. Stutt í
skóla og alla aðra þjónustu. Ekki láta
þessa íbúð seljast án þess að skoða hana.
Verð 24,4 millj.
SAMTENGD SÖLUSKRÁ FIMM FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MARGFALDUR ÁRANGUR - HUS.IS
SJÁLAND Í GARÐABÆ
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. hefur
hafið sölu á rúmgóðum og fallegum 2ja, 3ja
og 4ra herbergja íbúðum við Strandveg og
Norðurbrú í nýja Bryggjuhverfinu í Garðabæ.
Hverfið snýr vel við sólu. Stærðir íbúða eru
frá 65 m² og uppí 125 m². Mjög fallega inn-
réttaðar íbúðir og frábært útsýni. Stæði í
bílageymslu fylgja flestum íbúðum. Íbúðun-
um verður skilað fullbúnum en án gólfefna
fyrir áramót, í byrjun næsta árs og fram á
vor. Frábær staðsetning í glæsilegu hverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar eða á
fasteignasala.is.
KATRÍNARLIND 6-8 - 2ja-4ra herb.
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. hefur
hafið sölu á 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúð-
um í þessu glæsilega fjöleignahúsi. Sérinn-
gangur af svölum. 2ja herb. íbúðirnar eru
84 m², 3ja herb. um 100 m² og 4ra um 128
m² og eru þær til afhendingar fullbúnar án
gólfefna (flísar á baði og þvottahúsi) í júní
2005. Stæði í bílageymslu fylgir 3ja og 4ra
herb. íbúðunum. Verð frá 14,5 millj.
OPIÐ FRÁ
KL. 9.00-17.30
Mikil sala - Uppselt Gríðarleg sala
hefur verið á 2ja herb. íbúðum í haust og eru
þær uppseldar. Hafðu samband við sölu-
menn og þeir gera þér tilboð.
Katrínarlind - Sérinngangur
Mjög rúmgóð 83 m² 2ja herb. íbúð með sér-
inngangi af svölum. Íbúðin er til afh. fullbúin
án gólfefna í júní nk. Verð 14,8 millj.
Kaplaskjólsvegur - Laus
Góð 2ja herb. íbúð á 3. hæð á þessum eftir-
sótta stað í hjarta vesturbæjarins. Íbúðin er
laus. Parket og flísar. Verð 11,9 millj.
Hamraborg - Fjárfestar Gott 192
m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð sem að
mestu er í útleigu. Húsnæðið býður upp á
gríðarlega mikla möguleika, t.d. gæti þarna
verið tannlæknastofur, útleigðar skrifstofur
eða frábær aðstaða fyrir eitt fyrirtæki. Verð
19,9 millj.
MJÖG MIKIL SALA – VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ – SKRÁÐ EIGN ER SELD EIGN
Garðatorg - Leigusamningur
Mjög gott 137 m² verslunar- og skrifstofu-
húsnæði við Garðatorg í Garðabæ. Húsnæð-
ið er í leigu og er með 5 ára leigusamning.
Kjörið fyrir fjárfesta. Verð 16,2 millj. Nánari
uppl. gefur Pálmi.
Vegmúli - Til leigu
Til leigu tvö um 150 m² á 3. hæð (2. hæð frá
götu) sem verður innréttuð eftir þínu höfði.
Lyfta er í húsinu. Til afhendingar strax.
Starfsmenn fasteignasölunnar eru á staðn-
um og sýna húsnæðið þegar þér hentar.
Síðumúli - Til leigu
Í mjög áberandi húsi við Síðumúla eru til
leigu 250-500 m² á 2. og 3. hæð. Húsnæðið
er til afhendingar nú þegar, tilbúið til innrétt-
inga eða lengra komið.
Seðlabankinn hækkar vexti
BANKASTJÓRN Seðlabankans
hefur ákveðið að hækka stýrivexti
bankans um 1 prósentustig í 8,25%
frá morgundeginum, hinn 7. desem-
ber nk. Þetta er mun meiri hækkun
en greiningardeildir viðskiptabank-
anna höfðu spáð, en þær gerðu ráð
fyrir að hækkunin yrði á bilinu 0,5-
0,75 prósentustig. Með þessari
hækkun á stýrivöxtum Seðlabankans
hefur bankinn hækkað vextina alls
sex sinnum frá því í maí síðast-
liðnum, samtals um 2,95 prósentu-
stig.
Auk hækkunar á stýrivöxtum hefur
verið ákveðið að í lok þessa árs verði
gjaldeyriskaupum til styrkingar á
gjaldeyrisforða bankans hætt.
Í Peningamálum, ársfjórðungsriti
Seðlabankans segir m.a.: „Sam-
keppni á milli lánastofnana á sviði
fasteignaveðlána hefur magnast eft-
ir að bankarnir brugðust við auknum
umsvifum Íbúðalánasjóðs með því
að bjóða einstaklingum fasteigna-
veðlán og endurfjármögnun eldri lána
á lægri vöxtum en áður.“
Miklar verðbólguvæntingar
Í Peningamálum segir m.a. að
verðbólguvæntingar hafi verið meiri
en æskilegt er og dregið úr áhrifa-
mætti vaxtahækkana Seðlabankans.
Það kann svo aftur að hafa átt þátt í
því að halda verðbólguvæntingum
háum.
Þá segir einnig í Peningamálum að
með því að hækka vexti meira í einu
skrefi nú en venja hafi verið leitist
Seðlabankinn við að tryggja að vænt-
ir raunvextir bankans hækki, bæði
fyrir tilstilli hærri nafnvaxta og lægri
verðbólguvæntinga. „Það end-
urspeglar þann ásetning bankans að
peningastefnan veiti nægilegt að-
hald til þess að halda verðbólgu í
skefjum þegar framkvæmdaþunginn
kemst á enn hærra stig.“
Varðandi áform stjórnvalda um
skattalækkanir segir Seðlabankinn í
Peningamálum að þær muni auka
enn á ráðstöfunartekjur almennings
og hvetja til aukinnar einkaneyslu.
Aðhald í útgjöldum hins opinbera sé
því brýnt.
Ólík viðbrögð bankanna
VIÐBRÖGÐ greiningardeilda
Landsbankans og KB banka við
ákvörðun bankastjórnar Seðlabank-
ans um hækkun stýrivaxta voru með
ólíkum hætti.
Greiningardeild KB banka segir að
ákvörðun bankastjórnar Seðlabank-
ans muni þrýsta gengi krónunnar upp
í nýjar hæðir. Gengishækkunin sé í
raun frestun á verðbólgu sem muni
koma fram þegar gengið leiðréttist.
Þá segir deildin að aðeins um 20–
30% af skuldum heimila og fyrirtækja
séu í íslenskum breytilegum vöxtum.
Meiri vaxtamunur muni gefa enn frek-
ari hvata til erlendrar lántöku sem
aftur auki hættu á fjármálaóstöð-
ugleika. „Í þriðja lagi er þrengt veru-
lega að útflutningsatvinnuvegunum
sem gæti tafið vöxt útflutnings þeg-
ar til framtíðar er litið.“
Greiningardeild Landsbankans
segir að fyrir vaxtahækkunina hafi
skammtímavextir verið lægri en vext-
ir skuldabréfa á markaði. Með 1%
hækkun stýrivaxta hafi þetta snúist
við og því hafi þessi leiðrétting verið
nauðsynleg til að stýrivextir Seðla-
bankans virki eins og til er ætlast.
Hámarkslán Íbúðalánasjóðs
14,9 milljónir
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra lýsti því yfir á Alþingi sl. fimmtu-
dag, að hámarksfjárhæð lána Íbúða-
lánasjóðs verði
14,9 milljónir um
leið og ný lög um
húsnæðismál
taka gildi um ára-
mót. Þá var einnig
samþykkt frum-
varp um hækkun
lánshlutfalls hús-
næðislána í 90%
sem lög frá Alþingi
með 45 samhljóða atkvæðum.
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð
fyrir að Íbúðalánasjóður geti gefið út
veðbréf fyrir allt að 90% af matsverði
íbúðar.
Árni Magnússon sagði að gripið verði
til aðgerða til að draga úr upp-
greiðslum lána hjá Íbúðalánasjóði.
Þannig verði gefin út reglugerð þar
sem sjóðnum verði heimilt að fallast
á veðsetningu á undan öðrum áhvíl-
andi lánum sjóðsins en ÍLS-
veðbréfum, svo fremi sem sameig-
inleg uppreiknuð fjárhæð eftirstöðva
lánsins og nýs láns sé ekki hærri en
hámarkslán Íbúðalánasjóðs á hverj-
um tíma, hún rúmist innan mats-
verðs eignarinnar og fari ekki yfir 90%
af markaðsvirði hennar. Sagði Árni,
að þessi heimild muni væntanlega
einkum nýtast þeim sem hafa greitt
verulegan hluta láns síns en þurfa
að skuldbreyta öðrum áhvílandi lán-
um.
Landsbankinn hækkar vexti
LANDSBANKINN hefur ákveðið að
hækka vexti á óverðtryggðum inn-
lánum og útlánum hinn 11. desem-
ber nk. Með hækkun skamm-
tímavaxta sé Landsbankinn að
bregðast við vaxtahækkun Seðla-
bankans. Bankinn muni styðja
Seðlabankann í aðgerðum sem hafi
þann tilgang að halda verðbólgu í
skefjum og viðhalda stöðugleika.
ÞETTA HELST…