Morgunblaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 F 33 Ekki semja um kaup eða sölu á fasteign... fyrr en þú hefur kynnt þér staðalinn ÍST 51 Byggingarstig húsa www.stadlar.is Staðlaráð Íslands sími 520 7150 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina. Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Hákon Svavarsson, lögg. fasteignasali, sími 898 9396. G arðabær leitar nú eftir til- boðum í byggingarrétt fyrir fjölbýlishús á tveim- ur lóðum með samtals 30 íbúðum við Bjarkarás 1–15 og 17–29 þar í bæ. Lóðirnar eru byggingar- hæfar og skal kauptilboð gert í báð- ar lóðirnr, en samkvæmt deiliskipu- lagsskilmálum skal byggingarrétti ráðstafað til sama aðila vegna beggja lóðanna. Hönnun mann- virkja skal einnig vera á hendi sama aðila. Lágmarksverð fyrir lóðina við Bjarkarás 1–15 er 24,2 millj. kr. en þar er gert ráð fyrir átján íbúðum og lágmarksverð fyrir lóð við Bjark- arás 17–29 er 17,8 millj. kr., en þar er gert ráð fyrir tólf íbúðum. Garðabær samþykkti fyrr í haust breytingu á deiliskipulagi við Bjark- arás og Brekkuás, sem fól í sér að byggðar verða á svæðinu 30 íbúðir í tveggja hæða fjölbýli. Í greinargerð segir, að þessi breyting byggist á vilja til þess að nýta land betur og gatnakerfi, sem er bæjarfélaginu í heild í hag og í samræmi við stefnu allra bæjar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu um að þétta byggð. Sérinngangur í allar íbúðir Byggðin er skipulögð þannig, að hún líkist sem mest sérbýli, m.a. er hún brotin niður í litlar einingar og sérinngangur er inn í allar íbúðir. Bílastæðum er komið þannig fyrir, að þau séu sem minnst sýnileg frá nágrannahúsum og meira en þriðj- ungur þeirra er á neðri hæðum húsa undir íbúðum. Svæðið er á hæsta hluta Hrauns- holts, frá 38–39 m yfir sjávarmáli og með litlum halla. Skólar eru skipulagðir þannig, að grunnskólinn, Sjálandsskóli, mun standa beggja vegna Hraunholts- lækjar við sjávarsíðuna norðan Vífilsstaðavegar. Austan Hafnar- fjarðarvegar standa Flataskóli og Garðaskóli. Í Sjálandi verður leik- skóli, en einnig er leikskóli við Berg- ás og fyrirhugað er að reisa leik- skóla við Brekkuás. Skipulagið nær yfir áður óbyggt svæði, sem er um 13.780 ferm. að stærð og er þá ekki talin með hlut- deild í nærliggjandi götum. Í heild verða á svæðinu 30 al- mennar íbúðir og lóð fyrir leikskóla. Við Bjarkarás er gert ráð fyrir tveimur íbúðarlóðum og er önnur þeirra nr. 1–15 og 4.080 ferm. að stærð og hin nr. 17–29 og um 3.316 ferm. Samtals eru þetta 7.396 ferm. Þar við bætist leikskólalóðin, sem er um 5.105 ferm., og stígar í bæjar- landi, sem eru alls um 1.367 ferm. Flestar byggingarnar verða tveggja hæða hús, en leikskóli og tvö hús, sem standa næst Bjarkarási, verða á einni hæð. Byggingar sem eru með bílageymslu á jarðhæð verða staðsettar eins lágt í landi og kostur er. Vegna nálægðar við hús norðan Bjarkaráss er lögð áherzla á sterkan heildarsvip og stuttan byggingar- tíma jafnframt því að lögð er áherzla á fjölbreytileika í hverfinu. „Það má gera ráð fyrir mikilli ásókn í þessar lóðir af hálfu bygg- ingaraðilanna, en lóðirnar eru á miklum útsýnisstað efst í Hrauns- holti,“ segir Guðfinna B. Kristjáns- dóttir, upplýsingastjóri Garðabæjar. Svæðið liggur milli Ásabrautar, Bjarkaráss og Brekkuáss. Samkvæmt deili- skipulaginu á að byggja þrjátíu íbúðir í eins og tveggja hæða fjölbýlishúsum á nyrðri hluta svæðisins, sem liggur sunnan við Bjarkarás, og leikskóla á syðri hluta svæðisins, sem liggur norðan og norðaustan við Brekkuás. Lóðir fyrir 30 íbúðir íHraunsholti Horft yfir svæðið, sem er efst í Hraunsholti. Lóðirnar eru tvær. Við Bjarkarás 1—15 á að byggja átján íbúðir ásamt sam- eiginlegri bílageymslu og tólf við Bjarkarás 17—29. Lóðirnar eru byggingarhæfar og skal kauptilboð gert í báðar lóðirnar, en samkvæmt deiliskipulagsskilmálum skal byggingarrétti ráðstafað til sama aðila vegna beggja lóðanna. magnuss@mbl.is Barónsstígur - 101 Rvk Naustabryggja - 112 Rvk Sóltún - 105 Rvk 19.900.000 Björt og vel skipulögð 4ra herb. 95 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Sérinngangur af svölum. Góð eign á þessum vinsæla stað. NÝTT 32.000.000 Tveggja íbúða hús auk bílskúrs í hjarta miðbæjarins. Neðri hæðin er 3ja herb. 93 fm og efri sem er 2. hæð og ris, 5 herb. 118 fm. Sér inngangur í hvora fyrir sig og eru báðar samþ. Bílskúrinn er 22 fm. 18.500.000 Glæsileg 3ja herb. 93 fm íbúð með geymslu, á 3. hæð í álklæddu lyftuhúsi. Stæði í bílageymslu. Allar innréttingar eru vandaðar Þvottahús innan íbúðar. Sérinngangur af svölum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.