Morgunblaðið - 06.12.2004, Side 26
G
óð eftirspurn hefur verið
eftir íbúðum í hinu nýja
hverfi, Sjálandi, í Garða-
bæ. Það þarf ekki að
koma á óvart, en hverfið hefur
marga kosti. Eitt aðaleinkenni þess
er nálægðin við sjóinn og gott útsýni
yfir Arnarnesvog allt til Snæfells-
jökuls og Esjunnar. Aðkoman norð-
an megin er blátt áfram hrífandi og
óhætt að fullyrða að óvíða er sjáv-
arútsýni jafn heillandi.
Í heild verður þetta allstórt
hverfi, en gert er ráð fyrir, að þar
verði byggðar um 750 íbúðir alls og
íbúarnir verði um 2.000. Fyrsti
áfangi er þegar langt kominn og
margir íbúar þegar fluttir inn. Þar
eru byggðar tæplega 300 íbúðir í
fjölbýlishúsum, frá þremur og upp í
sex hæðir.
Framkvæmdir við annan áfanga
hófust fyrr á þessu ári og nú eru
fyrstu húsin þar tekin að rísa, en í
þessum áfanga verða einnig byggð-
ar tæplega 300 íbúðir, aðallega í fjöl-
býlishúsum, sem verða þrjár til
fimm hæðir.
Fyrirtækin Björgun og Bygg-
ingafélag Gylfa og Gunnars standa
að uppbyggingu hverfisins í sam-
vinnu við Garðabæ. Hverfið er
hannað af Birni Ólafs, arkitekt í
París, en margir arkitektar hanna
húsin og á það að tryggja fjölbreytni
í húsagerð, þannig að hverfið verði
ekki of einsleitt.
Hverfið hefur hlotið nafn sitt eftir
Sjálandi í Danmörku og göturnar
heita eftir þekktum götum í Kaup-
mannahöfn, þar sem Íslendingar
komu við sögu hér áður fyrr. Hug-
myndasmiðurinn að baki þessum
nafngiftum er Hallgrímur Helgason
rithöfundur. Þannig á verzlunargata
hverfisins að heita Strikið og höfnin
að heita Nýhöfn.
Rúmgóðar íbúðir
Við Löngulínu 7 eru nú hafnar
framkvæmdir við fjölbýlishús, sem
verður fimm hæðir og með 19 íbúð-
um og lyftu. Bílageymsla með að-
komu af aðalgötu verður í kjallara
en stæði í bílageymslu fylgir öllum
íbúðunum sem og sérgeymsla og
gengt er úr kjallara og beint í lyftu-
hús.
ÞG verktakar byggja húsið, en
hönnuður er Björn H. Jóhannesson
arkitekt. Töluvert er í þetta hús
lagt, en það er steinsteypt á hefð-
bundinn hátt og útveggir einangr-
aðir að innan.
Gluggar eru úr furu, álklæddir að
utan og glerjaðir með K-gleri, en
opnanleg fög úr áli og hurðir ýmist
úr áli eða úr Oregon-furu og þá mál-
aðar.
Í heild er lögð áherzla á góða end-
ingu og lítið viðhald að utan, en út-
veggir hússins eru klæddir með lit-
ekta múrklæðningu og mismunandi
litaval mun gefa húsinu ferskan blæ.
Á þaki verða uppbyggðir bogalaga
kvistir yfir stofurýmum en annars
verða þökin flöt.
Húsinu verður skilað fullbúnu að
utan og bílastæði malbikuð og hellu-
lögn við innganga, en inngangar og
aðkeyrsla í bílageymslu verða með
snjóbræðslu.
Frágangur að innan verður mjög
góður. Þannig eru eldhúsinnrétting-
ar af vandaðri gerð frá danska fyr-
irtækinu HTH og mynddyrasíma-
kerfi í hverri íbúð. Baðherbergi
verða rúmgóð og falleg og flísalögð
með vönduðum ítölskum flísum.
Gert er ráð fyrir, að íbúðirnar
verði tilbúnar til afhendingar í júlí-
ágúst á næsta ári fullbúnar án gólf-
efna en baðherbergi fullfrágengin
með flísalögn.
Íbúðirnar eru nítján samkv. fram-
ansögðu, fjórar íbúðir á hæð nema á
1. hæð, en þar eru þrjár íbúðir.
Íbúðirnar eru 3ja–4ra herbergja og
það stórar, að auðvelt er að breyta
þeim í 4ra herb. íbúðir, ef vill.
Íbúðirnar eru samt mismunandi
að stærð eða á bilinu 106,2–126,5
ferm. og kosta 23,4–27,5 millj. kr.
allt eftir stærð og stað-
setningu í húsinu. Auk
þess er ein íbúð, sem er
4ra herbergja. og kostar
26 millj. kr. Allar íbúðirn-
ar eru með bílageymslu í
kjallara, sem er ekki inni í
fermetrastærðinni.
Byggingaraðili er ÞG
verktakar, sem er á meðal
stærstu verktakafyrir-
tækja landsins og hefur að
baki áralanga reynslu í
framkvæmdum fyrir opin-
bera aðila, stórfyrirtæki
og einstaklinga ásamt því
að byggja atvinnu- og
íbúðarhúsnæði á eigin veg-
um.
Fyrirtækið hefur m.a.
byggt prentsmiðju Morg-
unblaðsins við Hádegis-
móa, höfuðstöðvar Orku-
veitu Reykjavíkur og
stækkun Nesjavallavirkj-
unar svo að eitthvað sé
nefnt. Hjá því starfa að
jafnaði vel á annað hundrað manns í
útboðsverkum og eigin framkvæmd-
um. Á þessu ári lýkur fyrirtækið við
smíði á um eitt hundrað nýjum íbúð-
um.
Mikið útsýni
„Við hönnun hússins var leitazt
við að brjóta upp hið hefðbundna
fjölbýlisform og skapa fallega bygg-
ingu í hjarta hins nýja Sjálands í
Garðabæ,“ segir Björn H. Jóhann-
esson arkitekt, hönnuður hússins.
„Lögð var áherzla á að fá fram
bjartar íbúðir með góða innri nýt-
ingu og stóra glerfleti í útsýnisátt-
um, en flestar íbúðir í húsinu hafa
framúrskarandi útsýni. Baðher-
bergi eru rúmgóð og vel búin og fal-
legar og vandaðar innréttingar eru í
öllum íbúðum.
Sala á íbúðunum er nýhafin, en
þær eru til sölu hjá Borgum og
Eignamiðlun. Þeir Magnús Geir
Pálsson hjá Borgum og Þorleifur St.
Guðmundsson hjá Eignamiðlun
stjórna sölu íbúðanna hvor á sínum
stað. Þrjár íbúðir eru þegar seldar
og líklegir kaupendur komnir að
tveimur til viðbótar.
„Við höfum trú á því, að mark-
aðurinn taki þessum íbúðum vel, en
þær höfða til kröfuharðra kaup-
enda,“ segja þeir. „Þetta verða
óvenju stórar og rúmgóðar 3ja–4ra
herb. íbúðir og það verður hægt að
breyta þeim í 4ra herb. íbúðir með
litlum tilkostnaði og lítilli fyrirhöfn.
Þetta stórar íbúðir höfða gjarnan til
fólks, sem á stóra eign fyrir, ein-
býlishús eða sérhæð og er vant því
að hafa rúmt í kringum sig. Margt
af þessu fólki á líka talsvert innbú,
sem það vill halda í og geta flutt
með sér, þegar það skiptir um heim-
ili.
Þessar íbúðir hafa ýmsa aðra
kosti, þeirra á meðal mikið útsýni til
vesturs yfir ylströndina en einnig til
austurs. Allar íbúðirnar eru með
svölum og sumar meira að segja
með tvennum svölum. Jarðhæðirnar
eru með afar stórum sérgarði, sem
er um 100–140 ferm., og auk þess
góðri verönd.
Staðsetningin er að öðru leyti
mjög góð. Það er stutt í góðar
gönguleiðir og útivistarsvæði enda
húsið á einum fallegasta stað höf-
uðborgarsvæðisins, sem liggur jafn-
framt mjög vel við samgöngum.“
Þeir Magnús Geir og Þorleifur
segja að almennt hafi sala á íbúðum
í fyrsta áfanga Sjálands gengið afar
vel og flestar íbúðir þar eru nú seld-
ar. Af 43 íbúðum, sem ÞG verktakar
hafa byggt í fyrsta áfanga, eru nú
allar íbúðirnar seldar.
Ekki hætta á offramboði
Það er mikið byggt af íbúðum í ár
og allar horfur á miklum íbúðabygg-
ingum bæði á næsta ári og því þar-
næsta. Þeir Magnús Geir og Þorleif-
ur voru spurðir að því, hvort ekki
væri hætta á ofmettun á nýjum
íbúðum á markaðnum?
„Við teljum svo ekki vera,“ sögðu
þeir að lokum. „Árleg íbúafjölgun á
höfuðborgarsvæðinu er um 2.000
manns og það þarf um 700 nýjar
íbúðir á ári bara handa þessum hópi.
Auk þess er til staðar undirliggj-
andi eftirspurn, en stórir árgangar
af ungu fólki eru núna að koma inn á
markaðinn. Margt af þessu fólki
hefur búið heima hjá foreldrum sín-
um, en sér nú nýja möguleika á að
kaupa íbúð með meiri og hagkvæm-
ari lánamöguleikum en áður var.
Einnig má benda á, að sumir eru
nú að fara úr leiguhúsnæði yfir í eig-
ið húsnæði, þannig að þar skapast
einnig eftirspurn eftir íbúðum til
kaups. Loks má benda á, að almennt
er ekki mikið framboð af íbúðum á
markaðnum, hvorki nýjum né not-
uðum.“
Á byggingarstað. Frá vinstri: Magnús Geir Pálsson hjá Borgum og Þorleifur St. Guð-
mundsson hjá Eignamiðlun, þar sem íbúðirnar eru til sölu, Björn H. Jóhannesson, arkitekt
og hönnuður hússins, Davíð Már Sigurðsson, markaðsstjóri ÞG verktaka, og Gunnar Bjarki
Rúnarsson byggingarstjóri.
Nýjar útsýnisíbúðir við
Löngulínu 7 í Garðabæ
Við Löngulínu 7 eru nú
hafnar framkvæmdir við
fjölbýlishús, sem verður
fimm hæðir og með 19
íbúðum og lyftu. Magnús
Sigurðsson kynnti sér
íbúðirnar, sem eru til
sölu hjá Eignamiðlun og
Borgum.
Tölvuuppdráttur af Sjálandi, eins og það mun líta út fullbyggt. Fjölbýlishúsið Langalína 7 er í öðrum áfanga hverfisins og merkt með rauðum hring. Fremst eru lág raðhús, en
að öðru leyti hefur húsið Langalína 7 óhindrað útsýni til austurs og jafnframt afar gott útsýni til vesturs yfir fyrirhugaða ylströnd, sem verður rétt fyrir vestan.
magnuss@mbl.is
26 F MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ