Morgunblaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 37
ræmi við þinglýstar heimildir og
útreikning á hlutfallstölum í sam-
ræmi við gildandi reglur þar að
lútandi er ekki krafist samþykkis
allra eigenda viðkomandi húss. Sé
um að ræða hús þar sem eign-
arhlutar eru fleiri en sex nægir að
eignaskiptayfirlýsing sé undirrituð
af stjórn húsfélagsins en sé um að
ræða hús með færri en sex eign-
arhlutum nægir undirskrift ein-
falds meirihluta, annaðhvort miðað
við fjölda eða hlutfallstölur.
Þeir einir mega taka að sér gerð
eignaskiptayfirlýsinga sem fengið
hafa til þess sérstakt leyfi félags-
málaráðherra. Upplýsingar um
leyfishafa er m.a. að finna á
heimasíðu Húseigendafélagsins;
www.huseigendafelagid.is
Það er skilyrði fyrir þinglýsingu
eignayfirfærslu í eignarhluta í fjöl-
eignarhúsum að til sé þinglýst
eignaskiptayfirlýsing í samræmi
við ákvæði laga.
Séu gerðar breytingar á fjöl-
eignarhúsi eða innbyrðis eigna-
tilfærslur sem breyta eða raska
eignaskiptayfirlýsingu og eign-
arhlutföllum skulu eigendur án
ástæðulauss dráttar gera nýja
eignaskiptayfirlýsingu og láta
þinglýsa henni.
Eldri skiptasamningar
Mat á því hvort eldri fyrirliggj-
andi skiptagerningar séu fullnægj-
andi og hvort þörf sé á nýrri
eignaskiptayfirlýsingu skal byggt
á hagsmunum, þörfum og for-
sendum eigenda og eðli og tilgangi
slíkra gerninga samkvæmt fjöl-
eignarhúsalögum og þeim eign-
arréttarsjónarmiðum og laga-
viðhorfum sem búa að baki þeim.
Sé fyrir hendi þinglýstur skipta-
gerningur, sem tilgreinir a.m.k.
séreignir og hlutfallstölur þeirra í
sameign og ekki fer augljóslega í
bága við ófrávíkjanleg ákvæði fjöl-
eignarhúsalaga og eigendur vilja
hafa áfram til grundvallar í skipt-
um sínum, er ekki þörf á að gera
nýja eignaskiptayfirlýsingu meðan
ekki kemur fram formleg krafa frá
einhverjum eiganda þar að lút-
andi.
Gerð eignaskiptasamninga er
skylda samkvæmt ófrávíkjanlegum
ákvæðum fjöleignarhúsalaganna og
enginn eigandi getur skorast undan
þátttöku í gerð þeirra.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 F 37
Opið
mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17
Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson,
Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson.
Löggiltur fasteignasali Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
www.fjarfest.is - fax 562 4249
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
Nýjar og vandaðar 3ja til 4ra herbergja íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðirnar
verða 95,8 fm til 126 fm flestar með vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar án
gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar
vönduðum innréttingum. Stæði í bílageymslu sem innangengt verður í úr húsinu
fylgja öllum íbúðunum. Lyfta er í húsinu númer 12. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í
Smáralind. Afhending snemma árs 2005. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar.
SJÁLAND - GARÐABÆ - NÝTT
Strandavegur 12-16
SJÁLAND - GARÐABÆ - NÝTT
Norðurbrú 1
Nýjar og vandaðar 3ja til 4ra herbergja íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðirnar
verða 95,8 fm til 125,1 fm flestar með vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar
án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær
búnar vönduðum innréttingum, og stæði í bílageymslu sem innangengt verður í úr
húsinu fylgja öllum íbúðunum. Lyfta er einnig í húsinu. Stutt í miðbæ Garðabæjar og
í Smáralind. Afhending í febrúar 2005. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar.
„Penthouse”
Naustabryggja 12 - 18, NÝTT
Aðeins ein eftir. Ný og glæsileg 5 her-
bergja íbúð, 164,1 fm „Penthouse”-íbúð
sem afhendist nánast tilbún til innréttinga.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni ásamt
sérgeymslu í kjallara. Að utan eru húsið ál-
klædd. Til afhendingar við kaupsamn-
ing. Byggingaraðili er Byggingarfélag
Gylfa og Gunnars.
4ra - 6 herbergja íbúðir
Háaleitisbraut - 4ra herb. Til
sölu mjög góð og falleg 4ra herbergja
íbúð, 121 fm, ásamt stóru aukaherbergi í
kjallara. Íbúðin er mikið uppgerð, m.a. ný
eldhúsinnrétting, parket á gólfum, rafmagn
endurnýjað að hluta og búið að skipta um
flesta glugga. Gengið úr stofu útá suð-
vestursvalir. Stórt sérherbergi í kjallara
með aðgangi að snyrtingu. Húsið allt mjög
snyrtilegt og vel um gengið. Verð 21 millj.
Bryggjuhverfi - Útsýni Einstak-
lega falleg 4ra herbergja útsýnisíbúð í
glæsilegu fjölbýlishúsi með lyftu, við
sjóinn, til sölu. Um er að ræða stórglæsi-
lega og sérlega vel skipulaða íbúð 114,4
fm á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu
í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Gegnheilt
parket er á allri íbúðinni, en granít á eld-
húsgólfi. Tvö flísalögð, vel innréttuð bað-
herbergi. Vestursvalir með frábæru útsýni
yfir bryggjuna og Sundin blá. Laus til af-
hendingar á næstu dögum.
Strandvegur - Sjáland Til sölu
glæsileg 3ja - 4ra herbergja íbúð, 141,2 fm
á 2. hæð með tvennum svölum. Lyfta er í
húsinu. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni
ásamt sérgeymslu í kjallara. Íbúðin er til-
búin til afhendingar.
Naustabryggja - 4ra herb. Til
sölu glæsileg og vel skipulögð, 112.5 fm
4 herbergja íbúð á 1. hæð, ásamt stæði í
bílageymslu og sérgeymslu í kjallara. Fal-
leg timburverönd við húsið. Innréttingar,
maghóní, ná upp í loft. Parket á gólfum.
Flísalagt gólf og veggir á baðherbergi.
Eskihlíð - 2ja herb. Til sölu 2ja
herbergja, 46,5 fm á þessum eftirsótta
stað í bænum. Pergo parket á gólfum í
stofu og herbergi. Gólftex á gólfi í baðher-
bergi. Verð 8,9 millj.
Nýjar lúxusíbúðir við sjávarsíðuna 3ja til 4ra herbergja í 4ra hæða fjölbýlishúsum
með lyftum. Íbúðirnar verða 65 fm til 142 fm. Þær verða afhentar fullbúnar án gólf-
efna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar
vönduðum innréttingum og með stæði í bílageymslu sem innangengt verður í úr
húsinu. Mjög gott útsýni. Stutt í miðbæ Garðabæjar og í Smáralind. Fyrstu íbúðir í
þessum húsum hafa þegar verið afhentar. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa
og Gunnars. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar
SJÁLAND - GARÐABÆ - NÝTT
Strandvegur 9-17
Vantar
eignir
Mikil sala
SELJENDUR -
hafið samband
við sölumenn
okkar
Atvinnuhúsnæði
Grafarholt - Kirkjustétt Til sölu
eða leigu mikið rými í nýrri verslunar og
þjónustumiðstöð við Kirkjustétt í Reykja-
vík. Hægt er að skipta rýminu niður í
smærri einingar fyrir ýmsa starfsemi.
Eignin býður upp á margs konar nýtingar-
möguleika. Staðsetning er góð, mið-
svæðis í ört vaxandi íbúðahverfi. Góð að-
koma og næg bílastæði. Ný matvöru-
verslun, Krónan, opnar eftir áramót. Kom-
in er hárgreiðslustofa, pizza staður og
veitingastaður. Teikningar og nánari upp-
lýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar.
KATRÍNARLIND 6-8 - GRAFARHOLTI- NÝTT
Katrínarlind 6-8 - Nýjar og rúmgóðar 2ja til 4ra herbergja íbúðir á þessum barn-
væna stað frá 83 fm upp í 132,6 fm íbúðir. Um er að ræða 4ra hæða álklætt fjöl-
býlishús með lyftu og sérinngangi af svalagangi. Íbúðirnar verða afhentar fullbún-
ar, en án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúð-
irnar eru með vönduðum innréttingum. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi.
Bílageymslur fylgja flestum íbúðum. Að utan eru húsin álklædd. Öll sameign frá-
gengin. Til afhendingar í júní 2005. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og
Gunnars. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar.
KRISTNIBRAUT - GRAFARHOLTI - NÝTT
Kristnibraut 87. Nýjar og vandaðar 3ja til 4ra herbergja íbúðir í stærðunum frá
118,6 fm upp í 130,7 fm íbúðir. Um er að ræða 3ja hæða fjölbýlishús með sex
rúmgóðum íbúðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar, án gólfefna nema á bað-
herbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum inn-
réttingum og tækjum. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bílageymslur
fylgja flestum íbúðum. Að utan er húsið múrað með hvítum og gráum salla. Öll
sameign og lóð er frágengin. Til afhendingar í mars 2005. Byggingaraðili er
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppýsingar hjá sölu-
mönnum Fjárfestingar.
Eiðistorg - Seltjarnarnes Falleg
og sólrík 117 fm 4ra herbergja á 4. hæð
með sérinngangi af svölum. Lyfta er í hús-
inu. Íbúðin er tveimur hæðum. Stæði í
bílageymslu, auk þess er sérmerkt útibíla-
stæði. Innangengt er í verslunar miðstöð-
ina Eiðistorg. Frábær staðsetning.
2ja - 3ja herbergja íbúðir
Engihjalli - 2ja herb. Erum með til
sölu góða 2ja herbergja íbúð, 62,2 fm á 8.
hæð með frábæru útsýni. Vestursvalir
meðfram allri íbúðinni, útgangur á svalir
bæði úr stofu og herbergi. Verð 11 millj.
www.fjarfest.is FAX 562 4249