24 stundir - 08.12.2007, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007ATVINNA44 stundir
Stafrænn og vefrænn hönnuður
sem vill starfa á auglýsingastofu
Ef þú vinnur með Adobe Flash og A.E. eins
og við hin með hníf á gaffal, já og finnst fátt
skemmtilegra en náið samband við gull-
fallega, þrælöfluga og eldsnögga tölvu þá
er Fíton rétti staðurinn fyrir þig. Hér er nóg
að gera við skemmtileg verkefni.
Grafískur hönnuður sem gæti
hugsað sér að prófa eitthvað nýtt
Þú þarft að hanna frábærar auglýsingar
og annað prentefni af öllum tegundum,
grípa í hreinteikningu þegar á liggur, og
auðvitað að sitja hugmyndafundi í sam-
starfi við góðan hóp af skapandi fólki.
Umsóknum skal skila til Fíton, Garðastræti 37, 101 Reykjavík eða á netfangið atvinna@fiton.is.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 14. desember.
Þú missir af
jólahlaðborðinu
en gætir náð
árshátíðinni
Garðastræti 37
101 Reykjavík
Sími 595 3600
fiton@fiton.is
www.fiton.is
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
BLAU ÐIÐINNATVINNUBL
AÐIÐ
atvinna@24stundir.is
Starfsánægja mikil-
væg yfirmanninum
Ef þú ert ekki fyllilega ánægð/ur í vinnunni skaltu ræða málið
við yfirmann þinn og reyna að komast að niðurstöðu um breytingar
til hins betra. Góður yfirmaður veit hve mikilvægt er að starfsfólk
hans sé ánægt. Margir hverjir eru t.d. reiðubúnir að hjálpa starfs-
fólki verði tímabundin eða langtímabreyting á fjölskylduaðstæðum
viðkomandi og geta boðið lausnir á við sveigjanlegri vinnutíma eða
hlutastarf. Það sem þú þarft að byrja á að gera sem starfsmaður er að
kanna hvers lags viðmiðum yfirmaður þinn fylgir og hvernig hann
hefur áður meðhöndlað slíkar beiðnir. Með þessu móti getur þú farið
til yfirmannsins vel undirbúin/n og sýnt fram á hvernig breytingar
samkvæmt þínu höfði geti gert þig að enn mikilvægari starfsmanni.
Klæðnaður á
vinnustað
Það fer að sjálfsögðu eftir því hvar fólk vinn-
ur hvernig klæðnaður er talinn viðeigandi. Á
sumum stöðum er ætlast til að allir skartgrip-
ir séu fjarlægðir, svo sem eyrnalokkar og að
önnur göt, t.d. í nafla, séu hulin. Öll
viljum við koma vel fyrir og þar hef-
ur mikið að segja að vera hreinn
og vel strokinn. Jafnvel þótt klæða-
burðurinn þurfi ekki að vera ýkja formlegur
skiptir þetta höfuðmáli. Þá á ekki við alls stað-
ar að klæðast mjög skærum litum, en mestu
skiptir þó að fötin séu hrein og vel straujuð ef
þess þarf.
Takmörk og
ástríða
Sum okkar vinna af ástríðu og vilja ná settum markmiðum þar
sem okkur finnst við virkilega vera að leggja okkar af mörkum. Þá
eiga sumir sér persónuleg markmið sem þeir ná fram í gegnum gef-
andi starf á meðan öðrum líkar að geta einfaldlega fyllt upp í tíma
sinn með einhverju. Þó er sjálfsagt fyrst og fremst efst í huga okkar
flestra, í það minnsta öðru hverju, að afla tekna með störfum okkar
og gott er að hafa það í huga þá daga sem róðurinn þyngist og starfs-
ánægjan virðist vera að fjara út. Sá sem vill fá brauð verður að vinna
eins og sagt var hér áður fyrr.
Jafnvægi
mikilvægt
Það er ekki sérlega gott fyr-
ir heilsuna að lifa og hrærast í
vinnunni allan daginn alla daga.
Reyndu eins og þú getur að skipu-
leggja tíma þinn þannig að þú haf-
ir tíma til að stunda líkamsrækt
eða taka smá tíma á hverjum degi
til að slaka aðeins á og hugsa um
eitthvað allt annað en vinnuna.
Stattu fast á þínu þegar kemur að
þessu, annars getur þú brunnið
út mjög hratt.