24 stundir


24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 18

24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Konur verða áfram í meirihluta í fagráðum Reykjavíkurborgar og stjórnum helstu fyrirtækja í eigu hennar. Alls er 81 slíkt sæti til skipt- anna og skipa konur 42 sætanna. Karlarnir eru jafnmargir og þeir voru í stjórnartíð fráfarandi meiri- hluta, eða 39. Fagráð borgarinnar eru tíu tals- ins, en sú breyting var gerð fyrir skemmstu að mannréttindanefnd varð gerð að fagráði. Við það fjölg- aði fulltrúum hennar úr fimm í sjö. Bæði sætin sem bæst hafa við eru skipuð konum. Sjálfstæðismenn allsráðandi Til stendur að tveir menn muni gegna embætti borgarstjóra á þeim tíma sem eftir lifir af þessu kjör- tímabili. Þeir eru karlmennirnir Ólafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Sá þeirra sem situr ekki í borgarstjórastólnum hverju sinni fer með embætti formanns borgarráðs og staðgengils borgar- stjóra. Eina konan í yfirstjórn borg- arinnar er því Hanna Birna Krist- jánsdóttir, forseti borgarstjórnar. Í þeim tólf formannsstólum ráða og stjórna sem tilgreind eru hér til hliðar sitja fimm karlmenn og fjórar konur. Þau Júlíus Vífill Ingvarsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Jór- unn Frímannsdóttir gegna öll for- mennsku í tveimur ráðum eða stjórnum. Allir formenn fagráð- anna koma úr röðum D-listans. Tveir af feitustu bitunum í skipt- ingu valdaembættanna milli hinna ráðandi afla eru stjórnir stærstu fyr- irtækjanna sem eru í eigu borgar- innar, Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Faxaflóahafna. Í hvoru fyrir sig er fimm manna stjórn. Ásta Þorleifs- dóttir situr í báðum sætum F-lista í þessum fyrirtækjum og er þess utan orðin varaformaður stjórnar OR. Vandi F-listans í meirihluta Ástæða formannsleysis F-listans er einföld, Ólafur F. Magnússon er sá eini sem má gegna slíku hlutverki af þeim sem sitja sem fulltrúar hans í meirihluta. Í samþykktum borgarinnar stendur nefnilega að einungis borg- arfulltrúar og varaborgarfulltrúar megi vera formenn fagráða. Þar sem Ólafur gegnir valdamesta embætti borgarinnar um þessar mundir lá beint við að hann myndi ekki sitja sjálfur sem formaður nefnda til við- bótar við það annasama starf. Fólk- ið sem mun starfa með Ólafi sem fulltrúar F-listans í nýja meirihlut- anum er hvorki borgarfulltrúar né varaborgarfulltrúar og því lá ljóst fyrir að allir formenn fagráða yrðu úr röðum sjálfstæðismanna. Sama gildir um stjórnarformenn stóru fyrirtækjanna tveggja. Auk þess fær F-listi engan fulltrúa í borgarráði á meðan Ólafur er borgarstjóri. Fólk úr Íslandshreyfingunni F-listinn er bæði í meirihluta og minnihluta í hinu nýja stjórnar- mynstri þrátt fyrir að hafa einungis fengið einn mann kjörinn í síðustu borgarstjórnarkosningum. Það er vegna þess að Margréti Sverrisdótt- ur og Guðrúnu Ásmundsdóttur var boðið að starfa áfram með Tjarn- arkvartettinum svokallaða í minni- hluta. Aðrir í því samstarfi gáfu því eftir þrjú nefndarsæti til að koma þeim að. F-listi Ólafs fær alls ellefu þeirra 46 sæta í ráðum og stjórnum sem tilheyra meirihlutanum, eða rétt tæpan fjórðung. Sjö einstaklingar sitja í þeim sætum fyrir F-listann. Þar af voru fjórir á framboðslista flokksins í kosningunum 2006; Ásta Þorleifsdóttir (4. sæti), Kjartan Egg- ertsson (6. sæti), Egill Örn Jóhann- esson (9. sæti) og Gunnar Hólm Hjálmarsson (10. sæti). Ásta og Eg- ill voru bæði á framboðslista Ís- landshreyfingarinnar í síðustu al- þingiskosningum, Egill í Reykjavíkurkjördæmi en Ásta leiddi lista á Suðurlandi. Hinir þrír sem sitja fyrir F-lista eru Jakob Frímann Magnússon (leiddi lista Íslandshreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi), Elvira Men- dez Pinedo ( 4. sæti á lista Íslands- hreyfingarinnar í Reykjavíkurkjör- dæmi suður) og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir (fyrrum varaþing- maður Framsóknarflokksins). Konur fleiri en karlar ➤ Þegar meirihluti Tjarnar-kvartettsins var myndaður í október síðastliðnum voru konur fleiri en karlar í fagráð- um borgarinnar og í stjórnum helstu fyrirtækja hennar. ➤ Þær verða áfram fleiri eftiruppstokkun síðustu daga. ➤ Allir formenn ráða og stjórnakoma úr röðum Sjálfstæð- isflokksins. RÁÐ OG STJÓRNIR SKIPTING EMBÆTTA OG SKIPAN Í HELSTU RÁÐ OG NEFNDIR REYKJAVÍKURBORGAR Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson staðgengill borgarstjóra Hanna Birna Kristjánsdóttir forseti borgarstjórnar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs Borgarráð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, form. Hanna Birna Kristjánsdóttir Gísli Marteinn Baldursson Kjartan Magnússon Svandís Svavarsdóttir Dagur B. Eggertsson Óskar Bergsson 2 5/ Framkvæmdaráð Jórunn Frímannsdóttir, formaður Kristján Guðmundsson Ólafur R. Jónsson Kjartan Eggertsson Stefán Jóhann Stefánsson Sigrún Elsa Smáradóttir Sóley Tómasdóttir 3 4/ Umhverfis- og samgöngur. Gísli Marteinn Baldursson, form. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Helga Jóhannsdóttir Ásta Þorleifsdóttir Dofri Hermannsson Þorleifur Gunnlaugsson Margrét Sverrisdóttir 4 3/ Leikskólaráð Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, form. Áslaug Friðriksdóttir Ragnar Sær Ragnarsson Egill Örn Jóhannesson Sigrún Elsa Smáradóttir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir Sóley Tómasdóttir 5 2/ Menningar- og ferðamálaráð Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, form. Marta Guðjónsdóttir Helga Kristín Auðunsdóttir Jakob Frímann Magnússon Guðrún Erla Geirsdóttir Dofri Hermannsson Guðrún Ásmundsdóttir 5 2/ Menntaráð Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður Bolli Thoroddsen Marta Guðjónsdóttir Egill Örn Jóhannesson Oddný Sturludóttir Helga Björg Ragnarsdóttir Margrét Sverrisdóttir 4 3/ Velferðarráð Jórunn Frímannsdóttir, formaður Björn Gíslason Elínborg Magnúsdóttir Gunnar Hólm Hjálmarsson Björk Vilhelmsdóttir Stefán Benediktsson Þorleifur Gunnlaugsson 3 4/ Mannréttindanefnd Sif Sigfúsdóttir, formaður Marta Guðjónsdóttir Andri Óttarsson Maria Elvira Mendez Pinedo Felix Bergsson Falasteen Abu Libdeh Jóhann Björnsson 4 3/ Skipulagsráð Hanna Birna Kristjánsdóttir, form. Gísli Marteinn Baldursson Jórunn Frímannsdóttir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir Stefán Benendiktsson Björk Vilhelmsdóttir Svandís Svavarsdóttir 5 2/ Faxaflóahafnir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður Jórunn Frímannsdóttir Ásta Þorleifsdóttir Björk Vilhelmsdóttir Óskar Bergsson 3 2/ Orkuveita Reykjavíkur* Kjartan Magnússon, formaður Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður Júlíus Vífill Ingvarsson Sigrún Elsa Smáradóttir Svandís Svavarsdóttir 3 2/* Akranesbær á einnig einn fulltrúa 42 39/Alls 81stöður og embætti.Hlutfall kynjanna: = Fulltrúar F-lista, frjálslyndra og óháðra Íþrótta- og tómstundaráð Bolli Thoroddsen, formaður Kjartan Magnússon Björn Gíslason Egill Örn Jóhannesson Stefán Jóhann Stefánsson Oddný Sturludóttir Hermann Valsson 1 6/  Konur í meirihluta í ráðum borgarinnar  F-listi með fjórðung sæta meirihlutans því að settur verði stokkur bæði á Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Ekki liggur endanlega fyrir hversu mikið framkvæmdin muni kosta, en nefndir hafa verið 11 milljarðar í því samhengi. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdin taki um tvö ár. Fyrri meirihluti hafði áhyggjur af því að framkvæmdin ógnaði lífs- gæðum íbúanna á svæðinu. Að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, telur flokkurinn þvert á móti að lífsgæði fólks t.d. í Hlíðunum muni aukast mikið með stokkunum. Þeir muni draga úr hljóðmengun, bún- aður í stokkunum muni minnka svifryksmengun, og aðgengi hjól- andi og gangandi vegfarenda á svæðinu muni batna.  Strætó Meirihlutinn ætlar að fella niður strætófargjöld barna að 18 ára aldri. Gert er ráð fyrir því að viðbótarniðurfellingin muni kosta borgina 200 til 300 milljónir ár hvert.  Aldraðir Fjölga á hjúkrunar- og þjónusturýmum í borginni. Að sögn Jórunnar Frímannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, verður í þeim efnum haldið áfram með það sem lagt var upp með vor- Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Í málefnasamningi nýs meirihluta í borginni er að finna kunnugleg stef úr stefnuskrám Sjálfstæðisflokks og F-lista. Ýmsar nýjungar er þar einnig að finna, en flest málanna koma vel heim og saman við þau mál sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur lögðu upp með í samstarfi sínu vorið 2006  Flugvöllurinn Ekki verður tekin ákvörðun um Reykjavíkurflugvöll á þessu kjörtímabili. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, viðurkennir að ekkert nýtt sé um að ræða í þeim efnum, en í málefnasamningnum segir einfaldlega að flugvöllurinn verði á sínum stað á meðan önnur flugvallarstæði eru könnuð.  Orkuveitan Um Orkuveitu Reykjavíkur segir að veitan ásamt orkulindum hennar verði áfram í eigu almennings. „Ekki hefur verið kveðið jafn skýrt á um þetta atriði áður, enda hefði Framsóknarflokk- urinn ekki verið tilbúinn til að skrifa undir það,“ segir Þorbjörg Helga.  Skattarnir Í borgarráði á fimmtudag var samþykkt að lækka fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði um 5%, sem þýðir að þeir lækka úr 0,225% í 0,214%. Mun það kosta 135 milljónir króna á ári, að sögn Birgis Björns Sigurjónssonar, fjár- málastjóra borgarinnar. Þá hefur meirihlutinn nýi lofað sér- tækum lækkunum fasteignaskatta ákveðins tekjuhóps. Enn á eftir að ákveða við hvaða tekjur verði mið- að, en sérstaklega verður horft til elli-, örorku- og lífeyrisþega.  Götumynd og menning Í mál- efnasamningnum er kveðið á um að 19. aldar götumynd Laugavegar og miðborgarinnar verði varðveitt eins og kostur er.  Sundabraut Um Sundabrautina segir einfaldlega að staðarvali og undirbúningi eigi að ljúka sem fyrst svo framkvæmdir geti hafist. Ennþá er verið að vinna frum- skýrslur um umhverfisáhrif vegna framkvæmdanna og áhrif á íbúa nærliggjandi svæða.  Gatnamót Eitt það sem helst greinir þann meirihluta sem nýtek- inn er við frá þeim sem á undan var, er útfærslan á mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Sú leið sem núverandi meirihluti boðar felst í ið 2006. Þannig verða byggðar þjónustuíbúðir við Sléttuveg og Mörkina, en þær eiga að verða 210 talsins. Þá sé á teikniborðinu bygg- ing íbúða fyrir eldri borgara við Gerðuberg og Skógarbæ. Félag eldri borgara mun byggja blokkirn- ar, en borgin leggja til þjónustuna. Þá verður heimahjúkrun og heimaþjónusta sameinuð, en hing- að til hafa þetta verið tvö aðskilin þjónustusvið innan borgarinnar þótt samþætting sviðanna hafi staðið yfir undanfarin ár.  Félagsaðstoð Meirihlutinn sem nú er við völd ákvað þegar hann tók við 2006 að fjölga kaupum á íbúðum, til að leigja út sem fé- lagslegar íbúðir, úr 50 á ári í 100. Samkvæmt málefnasamningnum verður haldið áfram með verkefn- ið, sem þegar er farið af stað og er á núverandi fjárhagsáætlun.  Lóðir Þá segir í samningnum að framboð lóða fyrir fjölskyldur og at- vinnurekstur verði tryggt. Ýmsir hafa bent á að nú þegar sé of mikið framboð, en Þorbjörg Helga segir líkur á að það muni breytast ef ekki verði að gætt.  Menntun Um menntamál segir að þjónusta leik- og grunnskóla verði aukin og faglegt og fjárhags- legt sjálfstæði þeirra verði styrkt. „Það hefur verið tilhneiging til ákveðinnar miðstýringar,“ segir Þorbjörg Helga. „Flestir eru sam- mála um að losa um það, þannig að stjórnendur hvers skóla fyrir sig fái meira sveigjanleika.“  Öryggið Auka á öryggið í mið- borginni, sem verður að sögn Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðisflokks í borginni, gert með því að fjölga öryggismynda- vélum, auka lýsingu og halda áfram „góðu samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.“  Mengun Þá er stefnt að því að minnka mengun í borginni, en að sögn Gísla Marteins verður það fyrst og fremst gert með því að draga úr notkun einkabíla. Það verði gert með því að fjölga farþeg- um strætó, en einnig með stokka- lausnum um gatnamót Kringlu- mýrarbrautar og Miklubrautar, og öðrum aðgerðum til að auðvelda mönnum að fara um borgina hjól- andi eða gangandi. Þá stendur til að fara í fræðsluátak um nagladekkjanotkun, og þá svif- ryksmengun sem af henni stafar, segir Gísli Marteinn. Málefnasamningur nýs meirihluta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.