24 stundir - 26.01.2008, Side 58
58 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
Ég er í síðri peysu úr versluninni H&M. Ég var
nú svo heppin að mamma mín keypti þessa
peysu fyrir sig en svo notaði hún hana ekki
neitt þannig að ég fékk
að nota hana. Þetta er
ein af fáum peysum úr
ullarefni sem ég get notað án þess að klæja.
Annars á ég mjög erfitt með að vera í svona
efni og verð frekar að vera í mjúkum og
þægilegum peysum sem mig klæjar ekkert
undan. En þessi er voðalega hlý og góð.
PEYSA
Jakkinn er frá Miss Sixty og ég keypti hann í Banda-
ríkjunum. Þetta er örugglega mest notaði jakkinn
minn enda get ég notað hann við hvað sem er. Ég er
ofboðslega veik fyrir jökkum, stíg-
vélum, töskum og öllu svoleiðis
þegar ég fer í búðir. Svo finnst mér
mjög gaman að jökkum með alls kyns loðköntum
og skemmtilegu dóti. En ég er rosalega ánægð með
þennan jakka og nota hann bæði við kjóla, buxur og
annað.
JAKKI
Ég er nú bara í svörtum, venjulegum og ódýrum
leggings sem ég keypti í Bandaríkjunum. Ég nota
leggings voðalega mikið við casual kjóla, víðar
peysur og annað slíkt.
Ég á leggings í nokkrum
litum, en yfirleitt nota ég
þessar svörtu langmest. Það er eiginlega orðinn
vani hjá mér að fara frekar í leggings en sokkabuxur
og svo finnst mér það líka smartara ef ég er í lág-
botna skóm. Svo eru leggings oft þykkari en sokka-
buxurnar og því hlýrri.
LEGGINGS
Ég er í stígvélum sem ég keypti í Ameríku
fyrir stuttu. Þeir eru frá Aldo og ég hef not-
að þá rosalega mikið. Reyndar eru þeir
mjög háir þannig að ég er
alveg að drepast í löpp-
unum eftir smástund, en
maður lætur sig bara hafa það. Annars er
ég mikið stígvélafrík og þetta eru bara ein
stígvél af allavega tíu pörum sem ég á. Ég
nota stígvélin mikið yfir gallabuxur, við
síðar peysur og allskonar kjóla og eig-
inlega bara hvað sem er.
SKÓR
Ég er alveg rosalega ófrumleg þegar kemur að
hárinu og geri eiginlega aldrei neitt við það. Ég
greiði kannski aðeins í gegnum það
og þvæ það reglulega, en annað
ekki. Ég vil helst hafa það nátt-
úrulegt og fíla mig best þannig. Mér finnst ég til
dæmis frekar asnaleg ef ég slétti það eða geri eitt-
hvað svoleiðis. Stundum nenni ég ekki einu sinni að
greiða það.
HÁR
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@24stundir.is
„Ég er frekar lengi fyrir framan spegilinn á morgnana, en
það er aðallega vegna þess að ég er svo hægvirk í öllu. Ann-
ars mála ég mig ekki mikið og er oft með svona grýlu-
greiðslu í hárinu þar sem ég vil síður gera eitthvað mikið
við það,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, en
hún kann illa við að vakna á morgnana og taka sig til í
hendingskasti.
„Ég þarf góðan tíma til að taka mig til og hreinlega þoli
ekki að vakna í látum. Ég verð að taka því rólega.“
Aðspurð kveðst Jóhanna lítið fylgjast með tískunni en
viðurkennir þó að tískustraumar hvers tíma hafi óneit-
anlega alltaf einhver áhrif.
„Ég er alls ekki að lesa tískublöð eða
spá mikið í þetta þó svo að maður tíni alltaf ósjálfrátt eitt-
hvað úr umhverfinu. Ég fer annars bara í það sem mér
finnst flott og er kannski allt öðruvísi klædd en allar vin-
konur mínar án þess að það sé eitthvað öskrandi áberandi,“
segir söngkonan og bætir því við að verslunarferðir sínar á
erlendri grund geri það að verkum að hún sé oft öðruvísi
klædd en aðrar í vinkonuhópnum.
„Þetta er náttúrlega bara af því að ég versla mikið erlend-
is. Hérna heima er rosalega mikið um að fólk sé í svip-
uðum fötum af því að við erum lítil þjóð og framboð ekki
eins mikið. En það hefur reyndar verið að breytast svolítið
að mínu mati og fólk er farið að vera meira spes.“
Ekki upptekin af merkjavöru
Jóhanna kveðst kappkosta að velja föt sín eftir þægindum
og útliti án þess að leggja áherslu á flottustu merkin.
„Ég hef aldrei verið upptekin af merkjum. Ég klæði mig
einfaldlega eftir því sem mér finnst flott og á svosem engar
uppáhaldsbúðir. Ég pikka upp fötin mín hér og þar án þess
að velta fyrir mér hvaðan þau koma eða hvar þau fást,“
segir hún og bætir við að svarti liturinn sé í hávegum hafð-
ur í fataskápnum.
„Ég er eiginlega alltaf í svörtu. Svartur hentar einhvern
veginn alltaf og það er auðvelt að setja saman föt í þeim lit.
En stundum bæti ég við kannski rauðum eða bláum, en
rautt og svart finnst mér sérstaklega flott saman. Annars er
dagsdaglega dressið yfirleitt gallabuxur, plain bolur, stígvél
og jakki, eða síð peysa eða kjóll við leggings og flott stíg-
vél,“ segir söngkonan að lokum.
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir gluggar lítið í tískutímaritin
Grýlu-
greiðslan í
uppáhaldi
Jóhanna Guðrún lætur tískutímaritin lönd
og leið og fer sínar eigin leiðir í fatavali.
Mikil förðun á ekki upp á pallborðið hjá
söngkonunni og hárgreiðslan á það til að
minna á sjálfa Grýlu.
Í MYND
Dagsdaglega farða ég mig alls ekki mikið. Oftast er
ég með bara sólarpúður og maskara, en stundum
nota ég létt, litað dagkrem frá Estée Lauder. Núna
er ég með dagkremið, sól-
arpúður og maskara frá Co-
ver Girl, en annars nota ég
mikið maskara frá Helenu Rubenstein. Ég er voða
lítið fyrir eye-liner eða mikinn augnskugga, enda er
ég alls ekki nógu góð í að mála mig sjálf og finnst ég
oft líta kerlingarlega út ef ég er of mikið máluð. Það
fer mér bara alls ekki vel.
FÖRÐUN
24TÍSKA
tiska@24stundir.is a
Ég er eiginlega alltaf í svörtu. Svartur
hentar einhvern veginn alltaf og það er
auðvelt að setja saman föt í þeim lit.