24 stundir - 26.01.2008, Side 39
24stundir LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 39
Ó
lafur F. Magnússon er
nýr borgarstjóri
Reykvíkinga. Á sínum
tíma sagði hann sig úr
Sjálfstæðisflokknum
og fór í sérframboð en myndaði á
dögunum alls óvænt nýjan borgar-
stjórnarmeirihluta með Sjálfstæðis-
flokknum. Fyrsti dagur Ólafs í
embætti var síðastliðinn fimmtu-
dag. Á áheyrendapöllum borgar-
stjórnar urðu gríðarleg læti og hróp
og köll voru gerð að hinum nýja
borgarstjóra. Blaðamaður hitti Ólaf
á skrifstofu hans daginn eftir og
spurði eftir að hafa tekið í hönd
borgarstjóra hvort þessi stund í
Ráðhúsinu hefði ekki verið erfið.
„Að sumu leyti var þetta erfið
stund en mér ofbauð eins og fleir-
um. Háreystin var slík að það var
ekki fundarfært og ég held að mót-
mæli falli um sjálf sig þegar þau fara
svo gjörsamlega úr böndunum. Ég
veit að mjög margir sem horfðu á
þessa uppákomu í sjónvarpi voru
einfaldlega hneykslaðir,“ segir Ólaf-
ur. „Ég var að vissu leyti undir þetta
búinn. Ég hafði séð upptaktinn að
þessu á netinu og víðar og vissi að
það var mikið af sms-skilaboðum í
gangi. Þetta var keyrt áfram af póli-
tískum öflum og hópum sem eru
nokkuð vel æfðir á þessu sviði. Ég
vissi að eitthvað myndi gerast og
gat því að einhverju leyti leitt þetta
hjá mér.“
Hef miklar mætur á Degi
Hvernig finnst þér viðbrögð fyrr-
um félaga þinna í borgarstjórn hafa
verið við því að þú myndaðir nýjan
meirihluta með sjálfstæðismönnum?
„Mér finnst viðbrögð oddvita
fráfarandi meirihluta skiljanleg,
sérstaklega Dags B. Eggertssonar
sem var sá einstaklingur í samstarf-
inu sem reyndi helst að koma til
móts við aðila og styrkja samstarf-
ið. Þegar ég kom úr veikindafríi þá
var staðan sú að stefnumál F-listans
og áhrif hans í ráðum og nefndum í
meirihlutanum voru ekki með við-
unandi hætti. Ég sagði að þetta
þyrfti að lagfæra. Ég held að í hópn-
um hafi Dagur sýnt því mestan
skilning en það var hins vegar erfitt
að ná fram lagfæringu, kannski ekki
síst vegna þess sem komið hefur æ
betur á daginn að ég hafði vara-
borgarfulltrúann minn ekki á bak
við mig eins og nauðsynlegt var.
Það hefur komið skýrt fram í um-
mælum Margrétar Sverrisdóttur í
fjölmiðlum að undanförnu. Þarna
var trúnaðarbrestur í gangi sem
veikti stöðu mína og F-listans inn-
an samstarfsins.“
Var þér þá ljóst þegar þú fórst í
viðræður við Sjálfstæðisflokkinn að
þú gætir ekki haft Margréti með þér?
„Þetta var ekki svo einfalt. Þetta
voru engar formlegar viðræður fyrr
en undir blálokin, aðeins var um
þreifingar að ræða. Það var alveg
ljóst að sjálfstæðismenn höfðu ver-
ið með þreifingar í gangi gagnvart
oddvitum allra meirihlutaflokk-
anna nema Samfylkingar á þeim
þremur mánuðum sem meirihlut-
inn var við völd. Það var enginn
blekktur af minni hálfu í þessum
viðræðum.
Ég hefði aldrei gert það sem ég
gerði ef ég hefði ekki verið viss um
að þau stefnumál sem ég hef barist
fyrir gætu náð fram að ganga með
afgerandi hætti og að nýr meirihluti
myndi hafa málefnaskrá sem end-
urspeglaði skýrt stefnumál F-
listans.“
Heldurðu að þetta samstarf muni
halda?
„Ég færi varla út í þetta hefði ég
ekki trú á því. Málefnin eru sett á
blað til að þau nái fram að ganga. Ef
þau eru orðin tóm þá eru þau
einskis virði.“
Er það rétt að það sé áralöng vin-
átta milli fjölskyldu Dags B. Eggerts-
sonar og þín?
„Eiginkona Dags og dóttir mín
eru æskuvinkonur. Ég og fjölskylda
mín ásamt tengdaforeldrum Dags
vorum á sama tíma í framhalds-
námi í Svíþjóð og þar myndaðist
góð vinátta. Ég hef alltaf haft, og hef
enn, miklar mætur á Degi B. Egg-
ertssyni þannig að gagnvart honum
eru þessi skref mér mjög erfið og
hefðu aldrei verið tekin ef ég teldi
það ekki skyldu mína sem stjórn-
málamanns gagnvart þeim mikla
fjölda sem kaus mig í síðustu kosn-
ingum.“
Langt niðri á tímabili
Það hefur verið rætt nokkuð um
veikindi þín. Hvernig hefur þér fund-
ist sú umræða?
„Hún hefur verið mjög neikvæð,
einhæf og stundum einkennst af
ótrúlegri illgirni í minn garð. Ein-
hverjir fara þar offari og ég er ekki
einn um þá skoðun.“
Hvaða veikindi eru þetta?
„Ég hef viljað eiga rétt á því að
halda veikindum mínum fyrir mig
vegna þess að mér finnst það vera
réttur stjórnmálamanna að eiga sitt
persónulega líf fyrir utan kastljósið,
svo fremi sem þeir gegni störfum
sínum vel og eru heiðarlegir. Ég held
að það hafi ekki verið umdeilt hvað
mig varðar. Ég hef ekki verið fyr-
irgreiðslupólitíkus eða skarað eld að
eigin köku í störfum mínum. Ég hef
aldrei fengið á mig spillingarstimpil.
Það er rétt að ég hef lent í heilsu-
farslegum mótbyr og erfiðleikum í
einkalífi sem hafa ekki verið til þess
að auka gleði mína heldur þvert á
móti. Ég var nokkuð langt niðri á
tímabili, en sótti mér viðeigandi
aðstoð og aðhlynningu til að sigrast
á þessum veikindum. Þúsundir Ís-
lendinga lenda í svipuðum erfið-
leikum á hverju ári, en snúa full-
frískir aftur út í samfélagið. Mér
finnst hvorki ég né aðrir eiga skilið
að brugðist sé við andlegum veik-
indum með jafn neikvæðum hætti
og við höfum séð sums staðar und-
anfarna daga.
Lastu umfjöllun DV um þig í dag?
„Já, þar er á ferð aðför að mann-
orði mínu, flest í þeirri grein sem er
ekki bein tilvitnun í heimildir og
heimildarmenn er hrein lygi. Þessi
skrif eru ekki svaraverð.“
Er að styrkja grasrótina
Því er haldið fram að þú hafir ekk-
ert bakland í stjórnmálum. Er það
ekki rétt?
HELGARVIÐTALIÐ
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
a
Ég hef alltaf
haft, og hef enn,
miklar mætur á
Degi B. Eggertssyni þann-
ig að gagnvart honum
eru þessi skref mér mjög
erfið og hefðu aldrei ver-
ið tekin ef ég teldi það
ekki skyldu mína sem
stjórnmálamanns gagn-
vart þeim mikla fjölda
sem kaus mig í síðustu
kosningum.
WWW.N1.ISN1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
27
79
/
T
A
1
0.
20
07
SUPER SWAMPER
GROUND HAWG
DEKK OG FELGUR
FYRIR JEPPA
Fellsmúla 24, Rvk. s: 530 5700
Réttarhálsi 2, Rvk. s: 587 5588
Ægisíðu 102, Rvk. s: 552 3470
Langatanga 1, Mos. s: 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hfj. s: 555 1538
Dalbraut 14, Akranes. s: 431 1777
EAGLE ALLOYS
POLISHED
DOTZ
LUXOR
U.S. WHEEL
SILVER TRACKER
U.S. WHEEL
CHROME TRACKER
COOPER
DISCOVERER ATR
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
COOPER
DISCOVERER M+S
JEPPA OG JEPPLINGADEKK
GROUND HAWG II
FÁANLEGT Í 36 - 44"
15 -16,5" FELGUR
SUPER SWAMPER
SSR
FÁANLEGT Í 35 - 38"
15 -18" FELGUR
SUPER SWAMPER
IROK
FÁANLEGT Í 33 - 49"
15 -18" FELGUR
EAGLE ALLOYS
1144