24 stundir - 26.01.2008, Page 29

24 stundir - 26.01.2008, Page 29
24stundir LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 29 MENNING menning@24stundir.is a Íranar bera almennt höfuðið hátt og eru stoltir sem einstaklingar og sem þjóð með merkilega sögu. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Íranska kvikmyndagerðarkonan Afsar Sonia Shafie er nú stödd hér á landi á vegum Reykjavík Docu- mentary Workshop í tilefni af því að heimildarmynd hennar, „City Walls: My Own Private Teheran“ var sýnd í Listasafni Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld ásamt því sem hún heldur erindi í safninu milli klukkan 14 og 16 í dag. Í myndinni segir Afsar Sonia söguna af ömmu sinni, móður og sjálfri sér á afar persónulegan hátt. Upphaf- lega markmiðið var að gera mynd um þrjú ungmenni í Teheran sem öll hefðu ólíkan bakgrunn. „Ég ætl- aði að fjalla um einn sem hefði ver- ið alinn upp við veraldleg gildi, einn sem væri af mjög trúrækinni fjölskyldu og einn sem væri af íhaldssamri fjölskyldu og svo ætl- aði ég sjálf að segja mína sögu með hliðsjón af því. En þegar ég talaði við ömmu og mömmu til að læra meira um æsku mína fóru samtölin gjarnan fljótt að snúast um þær sjálfar og ég komst að ýmsu nýju um þær og niðurstaðan varð sú að ég ákvað að gera frekar mynd um okkur sjálfar,“ segir hún. Með henni í för var svissneskur eigin- maður hennar, Martin Frei, sem einnig er staddur hér á landi núna, en hann var myndatökumaður og að auki voru einn hljóðmaður og einn framleiðandi. „Ég sjálf og þrír svissneskir karlmenn unnum myndina en enginn annar var með í för og það gerði andrúmsloftið mjög afslappað þegar ég tók viðtal við ömmu og mömmu og þær áttu betra með að opna sig. Bæði af því að það voru svo fáir á staðnum og líka af því að ég var sú eina sem skildi hvað þær voru að segja á persnesku,“ segir hún og bætir því við að þó svo að myndin sé ekki á nokkurn hátt pólitísk hafi sér alla tíð verið mjög umhugað um að fjalla um sögu fólksins í Teheran sem mótvægi við þann einhliða fréttaflutning þaðan sem Vestur- landabúar eru mataðir af. „Það er stór munur á ráðamönnum þjóð- arinnar annars vegar og almenn- ingi hins vegar og mér finnst mjög mikilvægt að fólk geti fengið tæki- færi til þess að setja sig í spor kvenna í Íran. Fólk er alltaf bara fólk og glímir við sín hversdagslegu vandamál og úrlausnarefni, hvort sem það býr í Íran eða í öðrum löndum. En þessi mynd er líka hugsuð fyrir íranska áhorfendur sem ég held að sjái hana í öðru ljósi. Íranar bera almennt höfuðið hátt og eru stoltir sem einstaklingar og sem þjóð með merkilega sögu. Af því leiðir að fólk á almennt ekki því að venjast að vera að tala mjög opinskátt og á persónulegan hátt um sjálft sig og sín mál, en það er einmitt það sem við mamma og amma gerum í myndinni.“ Martin segist sjálfur hafa glímt við sína fordóma áður en hann kom fyrst til Írans. „Einhverra hluta vegna var ég hálfsmeykur til að byrja með en um leið og ég kom þangað sá ég að óttinn var ástæðu- laus. Um leið og ég kynntist fjöl- skyldu Afsar Soniu var mér tekið opnum örmum og ég var frá fyrsta degi hluti af fjölskyldunni. Og alls staðar þar sem ég kom mætti ég mikilli gestrisni og fólk vildi allt fyrir mig gera,“ segir hann og Afsar Sonia bætir því við að gestrisnin hafi ávallt verið í hávegum höfð í sínu heimalandi. Amman Þegar amma Afsar Sofie var 13 ára gömul giftist hún 22 ára göml- um lestarstjóra í Teheran sem henni fannst hvorki vera aðlaðandi né spennandi. Hún tók strax eftir því að hann var alltaf að neyta ein- hvers efnis sem hún vissi ekki hvað var fyrr en hún varð aðeins eldri og komst að því að var ópíum. Þegar hún gifti sig geisaði seinni heims- styrjöldin og landið var hersetið af Bretum og Rússum. Mikil hung- ursneyð og fátækt ríkti í landinu og maður hennar missti fljótt vinn- una. Þau bjuggu í þorpi fyrir utan Teheran og einn daginn hélt eig- inmaðurinn af stað til borgarinnar í atvinnuleit og hvarf þar. Amman, sem var einungis táningur, fór þá í borgina að leita að honum og fann hann þar á kaffihúsi þar sem hann reykti ópíum. Hún hjálpaði hon- um að finna vinnu sem bygging- arverkamaður og fljótlega eignaðist hún sitt fyrsta barn, sem lést síðar vegna veikinda. Hjónin höfðu eng- an fastan dvalarstað og þvældust því á milli og bjuggu um tíma í ný- byggingu sem maður hennar vann að. Þar voru engir gluggar og engar hurðir og einn daginn kom ræningi að þeim þar sem þau lágu á dýnu með litla barnið á milli sín og rændi því litla sem þau áttu. Eig- inmaðurinn hélst illa í vinnu og unga stúlkan þurfti því fljótlega að gerast fyrirvinna fjölskyldunnar. Hún keypti te og fleiri nauðsynjar ódýrt og seldi svo aðeins dýrara, tók að sér brjóstagjöf gegn greiðslu fyrir mæður sem mjólkuðu ekki og gerðist húshjálp hér og þar. Þótt hún væri fyrirvinna fjölskyldunnar gat hún ekki stofnað bankareikn- ing nema með leyfi og undirskrift eiginmanns síns þannig að hún brá á það ráð að safna peningum í bauk sem hún gróf í jörðina til að forða þeim frá því að ópíumfíkillinn eig- inmaðurinn hennar kæmist í þá. Smám saman náði hún að safna nóg fyrir sinni fyrstu íbúð. Mamman Móðir Afsar Soniu skildi við föður hennar þegar hún og systir hennar voru börn, en hann var alkóhólisti. Hún þurfti að berjast fyrir því að fá að halda forræði yfir dætrum sínum og til þess varð hún að giftast aftur, en þá giftist hún hálfbróður fyrri eiginmanns síns og átti með honum tvö börn til viðbótar. Afsar Sonia Hún var 11 ára þegar íslamska byltingin átti sér stað í landinu. En þvert á það sem almennt er talið hafði hún ekki bara neikvæðar af- leiðingar fyrir íranskar konur. „Í kjölfar byltingarinnar jókst mennt- unarstig kvenna til muna. Ástæðan er sú að háskólarnir urðu íslamskir og fyrir vikið fóru íhaldssamar og fátækar fjölskyldur í auknum mæli að senda dætur sínar í nám. Í orði kveðnu voru réttindi kvenna meiri fyrir byltinguna en reyndin var sú að fólk var almennt ekki mjög upp- lýst um réttindi sín og skyldur,“ bendir hún á og bætir því við að í dag séu um 70 prósent háskóla- nema á framhaldsstigi í Íran konur. Sjálf fór hún í háskóla ólíkt móður sinni og ömmu og þegar hún skildi við íranskan eigimann sinn naut hún fulls stuðnings móður sinnar sem gat fyllilega sett sig í hennar spor. „Karlar hafa vissulega meiri rétt en konur í Íran eins og frægt er en það er ekki þar með sagt að þeir græði alltaf á því. Til þeirra eru gerðar miklar kröfur um að þeir gerist fyrirvinnur og fari snemma á vinnumarkaðinn og því geta færri karlar en konur stundað fram- haldsnám,“ bendir Martin á. „Ég myndi segja að íranskar konur væru almennt framsæknari en karlar af þessari ástæðu og þar sem þjóðin er ung leyfi ég mér að vera vongóð um framtíðina,“ segir Afsar Sonia að lokum. Samhent hjón Afsar Sofia Shafie og Martin Frei á köldum degi í Reykjavík. Mynd um þrjár kynslóðir kvenna í Íran Mín eigin Teheran Afsar Sonia Shafie segir sögu þriggja kvenna, ömmu sinnar, mömmu og sjálfrar sín í heimild- armyndinni „City Walls: My Own Private Teher- an“. Hún er stödd hér á landi og ætlar að halda erindi í Hafnarhúsinu í dag. ➤ Fæddist í Teheran árið 1968. ➤ Lauk gráðu í félagsvísindumog hagfræði frá Fatemieh- skólanum í Teheran árið 1988 og BA-gráðu í heimspeki frá Tabriz háskólanum 1992. ➤ Lærði kvikmyndafræði í Laus-anne í Sviss þar sem hún býr nú ásamt manni sínum. ➤ Gaf út sína fyrstu heimild-armynd árið 1997. AFSAR SONIA SHAFIE a Fólk er alltaf bara fólk og glímir við sín hversdagslegu vanda- mál og úrlausnarefni, hvort sem það býr í Íran eða í öðrum löndum. Árvakur/Kristinn Ingvarsson

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.