24 stundir - 26.01.2008, Síða 40

24 stundir - 26.01.2008, Síða 40
„Þessa dagana hef ég verið, ekki síst í tengslum við endurskipanir í nefndir og ráð á vegum borgarinn- ar, að styrkja grasrót F-listans, sem hefur veikst mjög í fjarveru minni á liðnu ári. Ég er að fá fólk til starfa fyrir okkur úr Frjálslynda flokknum og Íslandshreyfingunni, auk þeirra sem eru óháðir og eru á lista hjá okkur eða störfuðu með okkur. Því hefur verið haldið fram að ég hafi ekki mikinn stuðning eða bakland á bak við mig. Ég held að þetta sé rækilegasta sönnun fyrir því að svo er ekki. Ég tel mig vera að ná því að virkja aftur þá grasrót sem var megnug þess að fá yfir 10 prósenta fylgi í síðustu borgarstjórnarkosn- ingum.“ Í málefnasamningi nýs borgar- stjórnarmeirihluta er talað um að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegs og miðbæjarins. Það á þá ekki bara að vernda tvö hús á Lauga- vegi? „Nei. 19. aldar hús eru orðin fá- tíð hér í borg. Við eigum að varð- veita heildargötumyndirnar. Lág- reist hús og einlyft timburhús njóta sín ekki vel ef sitt hvorum megin við þau standa stórar steinsteypu- byggingar. Tækifæri til varðveislu er sérstaklega mikið neðst á Laugavegi þar sem er tiltölulega mestur fjöldi 19. aldar bygginga. Ég er mjög ánægður með að hafa brugðist rösklega við yfirvofandi niðurrifi á Laugavegi fyrir fjórum árum og mál þróuðust þannig að umræðan varð mjög heit. Ég held að menn hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrr en fyrir þremur árum að niðurrifið var tiltölulega mest á elstu húsunum og afar fá áttu að fá að standa af þeim tuttugu sem voru eftir. Nokkur eru farin eins og síðasti hlaðni stein- bærinn sem stóð við Laugaveg 22A. Þar sýndum við skort á frumkvæði en sýnum það núna og ætlum að halda götumyndinni frá 19. öld neðst á Laugaveginum. Tillagan sem nú er verið að samþykkja í borgarstjórn er nánast samhljóða tillögu sem ég flutti fyrir tveimur árum og hlaut ekki stuðning neins annars borgarfulltrúa. Veður hafa heldur betur skipast í lofti í þessu máli. Það hefur orðið hugarfars- breyting. Það hefur verið vísað í skoðana- könnun í Fréttablaðinu þar sem yf- irgnæfandi meirihluti vill ný hús í stað þeirra sem eru númer 4 og 6 við Laugaveg en vill ekki friða hús- in. Það er líka nokkurn veginn það sem við viljum. Við viljum varð- veita götumyndina en húsin í óbreyttri mynd eru nánast ónýt. Það hefur verið notað gegn okkur í umræðunni. Það þarf að endurreisa þessi hús og gera þau nýtileg til að hafa aðstöðu og þjónustu í þeim og það er hægt.“ Hef miklu að tapa Er þetta mál sem þú setur í önd- vegi? „Já, ásamt skipulagsmálum og samgöngumálum almennt. Innan borgarstjórnar hef ég sérstöðu í flugvallarmálinu og hafði lengi sér- stöðu í húsaverndunarmálum. Varðandi umferðarskipulag hef ég greinilega haft áherslur sem eru nær því að vera líkar stefnu Sjálfstæð- isflokksins en vinstri flokkanna í borgarstjórn. Hins vegar hafa um- hverfissjónarmiðin átt mun erfiðara uppdráttar hjá Sjálfstæðisflokknum en það virðist vera að breytast. Þar er verið að svara kalli tímans um breytt viðhorf. Það hefur verið mik- ið umrót og þensla í þjóðfélaginu og þá gerir fólk sér enn betur grein fyrir því að þessi gildi eru afar þýð- ingarmikil“. Ertu búinn að ráða aðstoðar- mann? „Nei, það er verið að skoða það mál. Það er mjög þýðingarmikið að þar takist vel til því það er alveg ljóst að í því krefjandi starfi sem ég gegni þarf að hafa mjög gott fólk til að- stoðar og kunna að skipta verkum. Borgarstjóri sem ætlar að taka allt í fangið á sjálfum sér er fljótur að hverfa.“ Þú sagðir áðan að þú hefðir gengið í gegnum erfiða tíma. Ertu ánægður í dag? „Það að lenda í skilnaði eftir 37 ára samband er skipbrot af því tagi að maður verður aldrei fullsáttur við það. Ég vona að ég geti aftur fundið hamingju og festu í einkalífi. En með þessu er ég ekki að segja að ég sé svo brotinn að ég geti ekki gegnt þeirri ábyrgð og þeim skyld- um sem ég hef tekið að mér. Ég ætla ekki að reisa mér þann minnisvarða að hafa verið lélegur borgarstjóri sem tók eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni borgarbúa. Ég ætla að leggja mig allan fram í þessu starfi. Ég tel mig hafa átt farsælan og ár- angursríkan stjórnmálaferil. Ég sigldi í gegnum mótbyr og storma og fór ekki hefðbundnar leiðir. Það má heita ótrúlegt að maður sem sagði sig á sínum tíma úr stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar og fór ekki í annan stóran stjórnmálaflokk heldur sérframboð sé nú kominn í borgarstjórastólinn. Ég er stoltur af stjórnmálaferli mínum og vil ekki eyðileggja hann. Þess vegna vísa ég á bug ásökunum um að ég sé vegna tækifæris- mennsku eða einhvers konar eftir- sóknar eftir vegtyllum að gera það sem ég er að gera núna. Ég ætla að standa mig. Ég hef þrátt fyrir allt miklu að tapa og geri mér grein fyr- ir að ef ég stend mig ekki þá hefði betur verið heima setið en af stað farið.“ Einkalífið Ég vona að ég geti aftur fundið ham- ingju og festu í einkalífi. a Ég hef ekki verið fyrirgreiðslu- pólitíkus eða skarað eld að eigin köku í störfum mínum. Ég hef aldrei fengið á mig spill- ingarstimpil. Ég ætla ekki að reisa mér þann minnisvarða að hafa verið lélegur borg- arstjóri sem tók eigin hagsmuni fram yfir hags- muni borgarbúa. Árvakur/Kristinn 40 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.