24 stundir - 26.01.2008, Síða 56
! " "
# $%&&'$% ()) *&+,-. (/)) 0$1*&+,-. 23)) 4- *56$7,& 23))
-$+8
9#&%8
! " !# $ %
#
&
!
! ! !
:
;;
<
())/!
< :
;
8
!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Öllum þeim sem fylgdust með ís-
lenska handboltalandsliðinu á EM
í Noregi er ljóst að mikið vantaði
upp á leik liðsins í keppninni. Hafa
spekingar velt því fyrir sér hvað
hrjáði liðið og hafa klisjulegar
tuggur á borð við slaka mark-
vörslu, hæga sókn og slæma nýt-
ingu dauðafæra jafnan verið
nefndar sem mögulegar skýringar.
Að mati sérfræðinga 24 stunda,
gæti skýringin á slæmu gengi þó
verið allt önnur; nefnilega skortur
á lukkudýri.
Mennskt lukkudýr Ungverja
Líkt og þeir sem fylgdust með
leik Íslands og Ungverjalands tóku
eftir, þá hópuðust leikmenn Ung-
verja í kringum þéttvaxinn mann
með yfirvaraskegg á sextugsaldri í
hvert skipti sem leikhlé var tekið.
Hlutverk þessa manns var aðeins
eitt; að vera lukkudýr síns liðs. Er
þetta eitthvað sem Ísland mætti
taka upp á sína arma og að sögn
fyrrum stórskyttu landsliðsins, Sig-
urðar Sveinssonar, er íslenska
sauðkindin tilvalin í slíkt embætti.
Sauðkindin afskaplega þjóðleg
„Í Þýsku Bundes-ligunni er
Kölnar-liðið með lukkudýr, sem er
eitt stykki geit! Hún mætir á alla
heimaleiki og útileiki líka. Því er
ekkert vitlaust að við myndum
notast við íslensku sauðkindina, í
fánalitunum jafnvel, það gæti ekki
klikkað!“ sagði Sigurður grafalvar-
legur í bragði. Á bloggsíðu íþrótta-
fréttamannsins Henrys Birgis
Gunnarssonar er stungið upp á
leikaranum Pétri Jóhanni Sigfús-
syni sem lukkudýri landsliðs-
ins. Hann segist þó sjálfur ekki vel
til þess fallinn. „Ég held ég myndi
reyna að komast undan því með
hagsmuni liðsins í huga. Ólukkan
hefur nefnilega loðað
við mig í íþróttum,
því miður,“ sagði
Pétur Jóhann að
lokum.
Áfram Ísland! Einhvern
veginn svona gæti næsti
landsleikur Íslands litið út.
Slakt gengi handboltalandsliðsins á sér sínar skýringar
Landsliðið
vantar lukkutröll
Íslenska landsliðið vantar
sárlega lukkutröll, ef
miðað er við frammi-
stöðu liðsins á EM í Nor-
egi. Siggi Sveins leggur
til að íslenska sauðkindin
gegni því hlutverki.
Fann lausn! Siggi Sveins
stingur upp á sauðkind.
ar þetta starf. Það er samt rosalega
erfitt að ná í Ólaf, en við munum
beita öllum ráðum, jafnvel Margréti
Sverrisdóttur. Þetta verður allt í
beinni útsendingu, sem styrkir
stoðir hins beina lýðræðis. Ég mun
bjóða honum starfskrafta mína og
þar sem hann er ekki í neinum
flokki er ég ekki að svíkja jafn-
aðarmennsku mína á neinn
hátt. Ég er jú menntaður
stjórnmála- og stjórnsýslufræð-
ingur og tel ég mig hæfastan
allra til að gegna þessu starfi. Ég
mun þó ekki hætta í útvarp-
inu, enda vinna borg-
arstarfsmenn aldrei
um helgar.“
traustis
24stundir
Vangaveltur eru nú uppi um
hvern Ólafur F. Magnússon borg-
arstjóri velji sér sem aðstoðarmann.
Eflaust eru margir um hituna, en
einn sá áhugasamasti hlýtur að
teljast Gunnar Sigurðs-
son, fyrrum fram-
kvæmdastjóri V-
samtakanna, kosn-
ingastjóri
Samfylkingarinnar,
meðlimur í Strákun-
um á Stöð 2 og nú-
verandi útvarpsmaður
á X-inu. Gunnar er ann-
ar stjórnenda Hljóðvarps-
ins Grútvarps og ætlar
hann sér að ná í Ólaf í
dag, milli klukkan 12
og 14. „Mig bráðvant-
Gunnar Sigurðsson leitar sér að nýju starfi
Borgarstjórinn Ólaf vantar að-
stoðarmann.
Biðlar til borgarstjóra í beinni
Umsækjandinn Gunnar vill
fá starf aðstoðarmanns.
Einn af stórleikjum ársins er án
nokkurs vafa Grand Theft Auto 4.
Leikurinn átti upphaflega að koma
út seinni hluta síðasta árs en á síð-
ustu stundu var útgáfu leiksins
frestað um óákveðinn tíma. Nú
hefur framleiðandi leiksins,
Rockstar Games, ákveðið að svipta
hulunni af útgáfudegi leiksins og
mun hann koma í búðir þann 29.
apríl næstkomandi fyrir Playsta-
tion 3 og Xbox 360.
Leikjaserían hefur verið harð-
lega gagnrýnd í gegnum tíðina fyr-
ir að innhalda óþarflega mikið of-
beldi og verður að teljast líklegt að
þessi nýjasta viðbót í hinni al-
ræmdu leikjaséríu verði engin
undantekning frá þeirri reglu.
Allt frá því að leiknum var frest-
að á sínum tíma hefur leikjaunn-
endum verið tíðrætt um ástæð-
urnar fyrir því að leiknum var
frestað. Jeronimo Barrera, starfs-
maður Rockstar, sagði á dögunum
í viðtali við MTV að aðalsökudólg-
urinn í þeirri töf hafi verið hæga-
gangur við Playstation 3-útgáfa
leiksins. „Það ætti ekki að koma
neinum á óvart að PS3 var hiklaust
einn af þeim þáttum sem ollu
seinkuninni,“ sagði Barrera. vij
Glæpaaldan hefst 29. apríl
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ég held ég myndi reyna að komast undan því
með hagsmuni liðsins í huga. Ólukkan hefur
nefnilega loðað við mig í íþróttum, því miður.
56 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir