24 stundir - 30.01.2008, Síða 1
24stundirmiðvikudagur30. janúar 200820. tölublað 4. árgangur
Jón G. Friðjónsson prófessor segir að
nýja biblíuþýðingin sé með óteljandi
villum og hann gerir athuga-
semdir við málfar hennar og
framsetningu. Jón sannar
mál sitt í fyrirlestri.
Biblía með villum
KOLLA»20
Hrafnhildur Schram listfræðingur
er ánægð með að listasöfn í borg-
inni hafi lagt niður aðgangseyri og
telur hún að það muni auka að-
sókn að söfnunum, jafnt ungra
sem aldinna.
Eykur aðsókn
MENNING»22
Engin formleg kvörtun hefur bor-
ist frá starfsmönnum Alþingis um
kynferðislega áreitni af hálfu sam-
starfsmanna frá því að settar voru
reglur um viðbrögð við
slíku fyrir tveimur árum.
Ekki kynferðis-
áreitni á Alþingi
»2
Ákveðið var fyrir rúmum mánuði
hvaða stofnanir fengju fé til hús-
næðisendurbóta samkvæmt mót-
vægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Forstjórar höfðu ekki
frétt af því.
Mótvægisaðgerð
sem fer hljótt
»4
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Maður er hálfsjokkeraður yfir sinnaskiptum
bankanna,“ segir Einar Páll Kjærnested, löggilt-
ur fasteignasali, um skyndilega stefnubreytingu
viðskiptabankanna í útlánum til nýbygginga.
Erfiðleikar með að fá lánsfé fyrir stórum ný-
framkvæmdum eru farnir að koma illa við verk-
taka, sem margir hverjir hafa þurft að hætta við
fyrirhuguð verk. Einnig eru dæmi þess að ein-
staklingar, sem hafa fengið lánað í áföngum fyrir
nýbyggingum, til dæmis fyrir stórum einbýlis-
húsum, séu nú í vandræðum með að fjármagna
síðustu áfanga verkanna.
Einar Páll gagnrýnir bankana fyrir skort á
jafnvægi í útlánum. Farið hafi verið of geyst af
stað í lánveitingar til húsnæðiskaupa og nú
bregðist bankarnir aftur of harkalega við án við-
unandi skýringa. „Þetta er eins og að vera í flug-
vél og sjá ekkert fram fyrir sig, en svo er allt í
einu snarhemlað. Þá er mjög gott að fá skýringu
frá flugstjóranum á því sem er að gerast.“
Hverjir eiga að búa í öllum þessum húsum?
Tregða bankanna til að lána til nýfram-
kvæmda stafar annars vegar af spám greining-
ardeilda um offramboð á nýju húsnæði. „Sá sem
fær sér bíltúr í úthverfi Reykjavíkur hlýtur að
velta því fyrir sér hverjir eigi að búa í öllu þessu
húsnæði,“ segir Elín Sigfúsdóttir, framkvæmda-
stjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans. „Við horf-
um auðvitað á framboðsþáttinn því við viljum
að kúnnar okkar geti selt það sem þeir byggja.“
Hins vegar stafar tregðan af erfiðleikum
bankanna með að sækja sér fé á alþjóðlega
markaði, sem veldur því að þeir fara sérlega var-
lega með það fé sem þeir hafa úr að spila. „Við
verðum að geta klárað að fjármagna það sem við
erum búin að lofa, standa skil á endurgreiðslum
á okkar eigin lánum og standast þær lauafjár-
kröfur sem á okkur eru lagðar. Þess vegna höld-
um við að okkur höndum nú,“ segir Elín.
„Þessi viðsnúningur innan bankakerfisins
hefur áhrif til langs tíma,“ segir Árni Jón Jó-
hannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs hjá
Samtökum iðnaðarins. „Það má búast við því að
verktakar finni fyrst virkilega fyrir viðsnúningn-
um í sumar.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Óklárað Bankar og
verktakar kunna að
hafa farið of geyst í
nýbyggingar.
➤ Vegna spádóma um offramboð á nýju hús-næði eru bankarnir tregir til að lána til ný-
framkvæmda.
➤ Þá halda þeir að sér höndum vegna erf-iðleika með að ná í fé á alþjóðamörkuðum.
HALDA AÐ SÉR HÖNDUM
Bankarnir bremsa
Bankarnir draga mjög úr lánum til nýbygginga Reyna að stýra framboði húsnæðis
með því að takmarka útlán Erfiðleikar hjá verktökum þegar kemur fram á sumar
Árvakur/Golli
Ofbeldisglæpum mætti fækka
um þriðjung með bættu mat-
aræði. Þetta er kenning sem
vísindamenn við Oxford-
háskóla munu rannsaka nánar
á næstu árum á vegum breska
dómsmálaráðuneytisins.
Frumathuganir vísindamann-
anna leiddu í ljós að draga
mætti úr ofbeldi innan fang-
elsismúra með því að gefa
föngum vítamín og bætiefni.
Er talið að bætiefnaskortur
dragi úr sjálfsstjórn fólks. aij
Rustar borða
ruslfæði
Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!
fitnesskort
TILBOÐ
Brautarholti 20 • 105 Rvk • Sími 561 5100 • www.badhusid.is
Málefnasamningur F-lista og Sjálf-
stæðisflokks felur í sér 70 prósent
af stefnumálum F-listans, en 30
prósent af stefnumálum Sjálfstæð-
isflokks. 24 stundir báru
saman málefnaskrárnar.
Málefni F-lista
ríkja í samstarfi
»6
Umhverfissvið borgarinnar óskar
eftir því að heilbrigðisráðherra út-
skýri hvernig borgin geti gripið til
þvingunarúrræða vegna reyk-
herbergis á Barnum
við Laugaveg.
Borgin ráðalaus
vegna reykklefa
»10
0
-1
-2
-1 -3
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 126,21
ÚRVALSVÍSITALA 5.552,98
SALA %
USD 65,04 -0,20
GBP 129,26 -0,09
DKK 12,88 -0,09
JPY 0,60 -0,35
EUR 96,02 -0,09
-0,08
2,57
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
Mikill munur á
klippingu
NEYTENDAVAKTIN
16