24 stundir - 30.01.2008, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 7
Ankara -7
Barcelona 15
Berlín 7
Chicago -7
Dublin 7
Frankfurt 8
Glasgow 8
Halifax 8
Hamborg 6
Helsinki 2
Kaupmannahöfn 5
London 10
Madrid 16
Mílanó 10
Montreal -11
München 6
New York 1
Nuuk -11
Orlando 8
Osló 7
Palma 20
París 4
Prag 7
Stokkhólmur 8
Þórshöfn 3
Austlæg átt, 5-10 m/s og snjómugga eða él
um landið sunnanvert, annars þurrt og bjart
að mestu. Gengur í NA 10-18 með snjókomu
á Vestfjörðum og á annesjum norðantil. Frost
0 til 10 stig, kaldast í innsveitum á NA-landi.
VEÐRIÐ Í DAG
0
-1
-2
-1 -3
Allt að 10 stiga frost
Norðlæg átt, 15-20 m/s. Snjókoma eða él N-
og A-lands en annars úrkomulaust að mestu.
Frost 6 til 14 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
0
-1
-1
-1 -3
Snjókoma fyrir norðan og austan
Viðræðum um kjarasamninga
milli Starfsgreinasambandsins og
Samtaka atvinnulífsins var haldið
áfram í gær. Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambands-
ins, segir samningsaðila hafa fund-
ið ákveðna sameiginlega fjöl að
stíga á varðandi forsenduákvæði og
samningslengd. „Þetta þokaðist
áleiðis í gær. Við náðum að þoka
málum áfram varðandi samnings-
forsendur og sjáum nokk fyrir end-
ann á því. Hvað varðar samnings-
lengdina þá eru menn að ná
lendingu um að semja til þriggja
ára, það er eitt ár til að byrja með
og svo framlenging til tveggja ára.
Þetta er mjög jákvæður áfangi, en
leiðin er löng framundan. Vonandi
getum við loksins farið að snúa
okkur að viðræðum um launalið
kjarasamninganna.“
Erum að finna taktinn
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, tekur ekki alveg jafn djúpt í ár-
inni og Kristján. „Við vorum að
kasta á milli hugmyndum og þetta
er ekki frágengið, en vissulega er
kominn meiri samhljómur milli
samningsaðila en var. Við erum að
finna taktinn í þessum viðræðum
og vonandi tekst að ná utan um
þessi forsenduákvæði í dag og þeg-
ar það er komið þá getum við ein-
hent okkur í næsta verkefni. Þá
verður hægt að byrja að ræða
launaliðinn.“
freyr@24stundir.is
Viðræður um kjarasamninga þokuðust áfram í gær
Loks farið að ræða laun í dag
Fundað stíft SGS og SA fund-
uðu hjá sáttasemjara í gær.
Tillögur vinnuhóps Öryrkja-
bandalags Íslands, ÖBÍ, um útdeil-
ingu 2 milljarða framlags ríkis-
stjórnarinnar verða lagðar fram á
fundi framkvæmdastjórnar banda-
lagsins í dag. „Það er ekkert sem
kemur á óvart í tillögunum. Þær
eru algjörlega byggðar á hugmynd-
um vinnuhópsins,“ segir Emil
Thoroddsen, varaformaður ÖBÍ.
Tillögurnar verða kynntar á aðal-
stjórnarfundi ÖBÍ sem haldinn
verður í kvöld en bandalagið á að
senda tillögurnar frá sér fyrir 1.
febrúar.
Á dagskrá aðalstjórnarfundar er
boðun aukafundar milli aðalfunda,
að því er Emil greinir frá. Hægt er
að kjósa nýjan formann á slíkum
aukafundi.
ibs
Aðalstjórnarfundur Öryrkjabandalagsins
Kynna tillögur um
2 milljarða ríkisins
„Það vekur furðu að málið sé ekki komið
fram, enda mjög stórt mál sem nauðsynlegt
er að góður tími gefist til að ræða,“ segir
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins um ný orkulög iðn-
aðarráðherra, sem fjalla meðal annars um
eignarhald á auðlindum. Hann telur málið
sitja fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
„Það er merki þess að þau séu ekki sam-
mála,“ bætir hann við og vísar á þann af-
stöðumun sem kom í ljós á meðal borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
REI-málinu. „Þar voru sumir sem vildu
ekki að orkufyrirtæki væru í eigu hins opinbera.“
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir
ekkert standa í vegi fyrir að þau samþykki frumvarpið og það verði
gert fljótlega. „Við vildum fara almennilega yfir það,“ segir hún og
bætir því við að hún búist ekki við að þau geri miklar breytingar á því.
elias@24stundir.is
Bíður eftir orkufrumvarpi
Lögregla hefur í vetrartíðinni
haft afskipti af allmörgum öku-
mönnum sem skafa ekki snjó og
ís af bílrúðunum, en gægjast
gegnum lítil göt og setja sjálfa sig
og aðra í hættu með því að sjá
ekki almennilega út. Skussarnir
verða nú sektaðir um fimm þús-
und krónur í hvert skipti. bee
Sköfuskussar fá
5000 kr. sekt
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Ekki hefur verið formlega kvart-
að um kynferðislega áreitni á Al-
þingi af hálfu samstarfsmanna frá
því að settar voru reglur um við-
brögð við slíku í handbók Alþingis
fyrir tveimur árum.
„Það hefur að minnsta kosti
engin formleg kvörtun borist síðan
þessar reglur voru settar,“ tekur
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri
Alþingis, fram.
Hann kveðst ekki geta staðfest
hvort óformlegar kvartanir hafi
borist, hvorki eftir að reglurnar
voru settar né fyrir þann tíma.
Þingmenn 40 prósent
Samkvæmt könnun tengdri
jafnréttismálum sem vísindamað-
urinn Hertta Niemi gerði meðal
starfsmanna finnska þingsins, ann-
arra en þingmanna, hefur þriðj-
ungur þeirra orðið fyrir kynferð-
islegri áreitni. Í 40 prósentum
tilfella voru það þingmenn sem
áreittu starfsmenn. Slík könnun
hefur ekki verið gerð á Alþingi, að
sögn Helga Bernódussonar.
Rangur vettvangur
Forseti finnska þingsins, Sauli
Niinistö, undrast niðurstöðurnar
en bendir á að þær séu ekki frá-
brugðnar því sem gerist úti í þjóð-
félaginu. „En þetta hús er algjör-
lega rangur vettvangur. Hér eiga
menn að vera góðar fyrirmyndir,“
segir Niinistö í viðtali við finnska
blaðið Helsingin Sanomat.
Stuðningsaðilar útnefndir
Alls sögðu 15 prósent
kvennanna sem þátt tóku í finnsku
rannsókninni að reynt hefði verið
við þær og káfað á þeim. 12 pró-
sent höfðu fengið póst sem ekki
snerti starfið eða áreitandi símtöl.
Karlkyns starfsmenn finnska
þingsins höfðu nær ekkert orðið
fyrir kynferðislegri áreitni.
Í kjölfar niðurstöðu skýrslunnar
útnefndu allir þingflokkar í finnska
þinginu stuðningsaðila sem hægt
væri að snúa sér til yrðu menn fyrir
kynferðislegri áreitni. Jafnframt
hafa verið settar reglur um hvernig
bregðast skuli við í slíkum tilfellum.
Kynferðisleg
áreitni ekki liðin
Reglur í nýrri starfsmannahandbók Alþingis um viðbrögð við
kynferðislegri áreitni Engin formleg kvörtun síðan
Á Alþingi Nýju reglurnar
eru liður í jafnréttisáætlun
meðal starfsmanna.
➤ Kynferðisleg áreitni verðurekki látin viðgangast á skrif-
stofu Alþingis.
➤ Sé starfsmanni misboðið ískal hann snúa sér til yf-
irmanns eða aðstoð-
arskrifstofustjóra. Vitni eru
hvött til að vekja athygli á
slíkri hegðun.
➤ Yfirmanni ber að grípa til við-eigandi ráðstafana.
REGLURNAR UM ÁREITNI
STUTT
● Stundaði ekki vinnu
Héraðsdómur Reykjaness hefur
úrskurðað erlendan karlmann í
gæsluvarðhald til 1. febrúar að
kröfu lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu. Maðurinn
var staðinn að verki við innbrot
ljósmyndavöruverslun í Hafn-
arfirði í nótt en annar maður,
sem var með honum, komst
undan og er hans leitað.
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns hefur maðurinn að
mati lögreglu ekki gert næga
grein fyrir ferðum sínum hér á
landi að undanförnu en ljóst sé
að hann hafi ekki stundað hér
vinnu. mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Ólafur F. Magnússon, nýkjörinn
borgarstjóri í Reykjavík, hefur
tekið þá ákvörðun að sækja ekki
höfuðborgarráðstefnu í Stokk-
hólmi um mánaðamótin.
Í tilkynningu frá skrifstofu borg-
arstjóra segir að Ólafur vilji frek-
ar einbeita sér að mikilvægum
verkefnum, sem bíða á vettvangi
borgarinnar og kynna sér mál þar
sem hann sé nýtekinn til starfa.
Þýðingarmikið sé að skapa festu
og góðan vinnufrið hjá Reykja-
víkurborg eftir atburði undanfar-
inna daga. mbl.is
Borgarstjóri
situr heima
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is