24 stundir - 30.01.2008, Síða 6

24 stundir - 30.01.2008, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Málefnasamningur F-lista og Sjálf- stæðisflokks felur í sér 70 prósent af stefnumálum F-listans, en 30 prósent af stefnumálum Sjálfstæð- isflokks. Þetta kemur fram við skoðun 24 stunda á málefnasamningi hins nýja meirihluta, stefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins og málefnahand- bók F-listans fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar. Fjórðungur atkvæða Í síðustu borgarstjórnarkosning- um fékk F-listinn 10,1 prósent at- kvæða, eða 6.527 talsins. Ólafur F. Magnússon var eini frambjóðandi listans sem komst inn í borgar- stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hins vegar 42,9 prósent atkvæða, eða 27.823 alls, og sjö kjörna borgar- fulltrúa. F-listinn fékk því tæpan fjórðung þeirra atkvæða sem Sjálf- stæðisflokkurinn fékk. Ber keim af stefnu F-lista „Ég vil leggja á það áherslu, að þessi stefnumörkun ber mjög keim af þeim áherslum sem F-listinn lagði fram í sinni kosningabaráttu og ég er stoltur af því að hafa kom- ið okkar málum svona rækilega á dagskrá,“ sagði Ólafur eftir að hann hafði kynnt málefnasamning nýs meirihluta sjálfstæðismanna og F-lista í borgarstjórn Reykjavíkur þann 21. janúar síðastliðinn. Margt sameiginlegt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, sagði við sama tilefni að sitt fólk væri mjög ánægt með málefnasamninginn. „Ég ítreka það að þessi meirihluti byggir á mjög skýrri málefnastöðu. Það er svo margt sem er sameig- inlegt í áherslum okkar sjálfstæð- ismanna og frjálslyndra.“ Daginn eftir lét Ólafur ítrekað hafa eftir sér í fjölmiðlum að mál- efnasamningurinn væri „70 pró- sent F-listastefnuplagg“. Traust var ekki fyrir hendi Núverandi valdhafar í Reykjavík ræddu saman um myndun meiri- hluta strax eftir borgarstjórnar- kosningarnar 2006 en sjálfstæðis- menn slitu þeim og gengu til samstarfs við Framsóknarflokkinn. Ólafur lét hafa eftir sér í viðtali við Morgunblaðið þann 30. maí 2006 vegna þessa að hann teldi að „við- ræðurnar við Sjálfstæðisflokkinn hafi verið sviðsettar [af þeirra hálfu] til að tryggja að aðrar við- ræður færu ekki fram á meðan milli flokkanna fjögurra“. Flokk- arnir fjórir sem hann átti við eru þeir hinir sömu og mynduðu 100- daga meirihlutann svokallaða. Vilhjálmur sagði hins vegar við sama tilefni að ástæður viðræðu- slitanna væru þær að ekki hefði verið mikill áhugi hjá sínu fólki að mynda meirihluta með frjálslynd- um. „Það er mjög mikilvægt, þegar verið er að mynda nýjan meiri- hluta, að þar ríki fullt og gagn- kvæmt traust og áhugi til að ráðast í framkvæmdir og vinna vel sam- an.“ Engar sértækar lausnir Þrátt fyrir þessa fortíð náðu framboðin tvö saman fyrir rúmri viku um myndun nýs meirihluta. Málefnasamningurinn sem lagður var til grundvallar valdaskiptunum er í alls sautján atriðum. Hann er í flestum tilfellum almennt orðaður og ekki mikið um að sértækar lausnir eða leiðir til að ná mark- miðunum séu kynntar. Þó er ljóst að hann tekur mun meira úr því stefnuplaggi sem F-listi Ólafs lagði fram í aðdraganda síðustu kosn- inga en nokkurn tímann stefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins. Málefni F-listans  Samanburður á stefnuskrám nýs meiri- hluta í Reykjavík sýnir að áherslur F-lista eru í aðalhlutverki í málefnasamningi hans. ➤ F-listinn fékk 6.527 atkvæði ísíðustu borgarstjórnarkosn- ingum, eða 10,1 prósent allra atkvæða. ➤ Ólafur F. Magnússon var einimaðurinn á lista sem náði kjöri til borgarstjórnar. ➤ Sjálfstæðisflokkurinn fékk27.823 atkvæði, eða 42,9 pró- sent. ➤ Hann fékk því sjö kjörna full-trúa í borgarstjórn. KOSNINGAR 2006 Nýr meirihluti Oddvitarnir kynna málefnasamning sinn á Kjarvalsstöðum. Árvakur/Kristinn 1. Reykjavíkurflugvöllur Málefnasamningur F-lista og D-lista: Reykjavíkurflugvöllur verður sýndur óbreyttur á aðalskipulagi á meðan önnur flugvallarstæði eru könnuð. Ekki verður tekin ákvörðun um flutning hans á kjörtímabilinu. Stefnuskrá D-lista: Flugvellinum verði fundinn annar staður á höfuðborgarsvæðinu. Innanlandsflug verði ekki flutt til Keflavíkur. Í samræmi við heildarskipulag af svæðinu verði fyrstu lóðum úthlutað utan helgunarsvæðis flugvallar í byrjun árs 2008. Íbúafjöldi getur orðið 8 til 10 þúsund. Málefnahandbók F-lista: Flugvöllurinn áfram í Vatnsmýrinni. Hólmsheiðin er ekki hentugur staður fyrir nýjan flugvöll og flugvöllur á Lönguskerjum væri bæði of dýr framkvæmd og myndi valda gífurlegum náttúruspjöllum. Fyrirætlanir um fjölmenna byggð í Vatnsmýrinni ekki raunhæfar. Í málefnasamningi D og B 2006: Ákvörðun um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallar tekin á kjörtímabilinu. Byggð verði skipulögð í Vatnsmýrinni. Þegar meirilhuti B og D kynnti áætlun um uppbyggingu í Reykjavík í apríl 2007 var Vatnsmýrin nefnd sem „lykilsvæði.“ Niðurstaða: 2. Laugavegur Málefnasamningur F-lista og D-lista: Leitað verður leiða til að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins og miðborgarinnar eins og kostur er. Stefnuskrá D-lista: Miðborgin og nærliggjandi svæðum eru nefnd sem „önnur uppbyggingarsvæði.“ Ekki er minnst sérstaklega á verndun eða varðveislu götumynda. Málefnahandbók F-lista:19. aldar götumynd Laugavegarins varðveitt. Tekið er fram að „sérstaka athygli vekur að allar tillögur F- listans um verndun húsa við Laugaveg hafa verið felldar með öllum atkvæðum annarra borgarstjórnarflokka.“ Í málefnasamningi D og B 2006: Ekkert minnst á verndun eða varðveislu götumynda. Niðurstaða: 3. Mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut Málefnasamningur F-lista og D-lista: Framkvæmdir hefjist sem fyrst við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Stefnuskrá D-lista: Byggja á mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þá á að leggja Miklubraut í stokk að hluta þar sem byggðin er næst. Málefnahandbók F-lista: Lögð áhersla á að sem flest gatnamót Miklubrautar verði mislæg, sérstaklega gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Einnig verði athugað að setja Miklubraut í stokk á gatnamótunum við Lönguhlíð. Í málefnasamningi D og B 2006: Framkvæmdum vegna milsægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut verði lokið á kjörtímabilinu. Niðurstaða: 4. Sundabraut Málefnasamningur F-lista og D-lista: Staðarvali og undirbúningsvinnu vegna lagningar Sundabrautar verði lokið sem fyrst. Stefnuskrá D-lista: Sundabraut alla leið upp á Kjalanes í einum áfanga. Málefnahandbók F-lista: Að Sundabraut taki mið af þróun framtíðar og verði lögð í sátt við íbúa borgarinnar. Fyrsti áfangi Sundabrautar verði í göngum undir Elliðavog með uppkomu við Gufunes. Þá taki við brú yfir í Geldinganes, síðan aftur í göng undir Leiruvog með uppkomu í Víðinesi og loks brú yfir Kollafjörð. Í málefnasamningi D og B 2006: Ákvörðun um legu Sundabrautar tekin á þessu ári, hönnun og framkvæmdir hefjist í kjölfarið. Niðurstaða: 5. Gangandi og hjólandi vegfarenda Málefnasamningur F-lista og D-lista: Áhersla verður lögð á að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Stefnuskrá D-lista: Öll hverfi borgarinnar verði tengd með vel útbúnum göngu- og hjólreiðastígum. Málefnahandbók F-lista: tryggja börnum og öðrum gangandi vegfarendum öryggi í hverfum borgarinnar. Göngu- og hjólreiðastígar með góðri lýsingu og merkingum ásamt góðu aðgengi að útivistarsvæðum. Reiðhjól verði raunhæfur samgöngumáti. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaða: 6. Almenningssamgöngur Málefnasamningur F-lista og D-lista: Almenningssamgöngur verði efldar. Tilraun um frían aðgang í strætisvagna fyrir ákveðna hópa verður haldið áfram. Fargjöld verða felld niður hjá börnum og unglingum að 18 ára aldri sem og öldruðum og öryrkjum. Unnið verður að því að bæta leiðakerfið og þjónustu við farþega. Stefnuskrá D-lista: Samgönguúrbætur taki mið af þörfum borgarbúa og því að allir komist leiðar sinnar með skjótum og öruggum hætti, hvort sem þeir velja einkabíl eða almenningssamgöngur. Málefnahandbók F-lista: Brýnt er að efla almenningssamgöngur til að draga úr yfirþyrmandi einkabílanotkun, sliti á götum og mengun í borginni. Til að auka nýtingu almenningssamgangna ber að fella niður fargjöld í strætisvagna fyrir unglinga að 18 ára aldri ásamt öldruðum og öryrkjum. Brýnt er að bæta leiðakerfið og þjónustuna. Í málefnasamningi D og B 2006: Gerð verður tilraun til að efla almenningssamgöngur með ókeypis strætó fyrir tiltekna hópa. Niðurstaða: 7-8. Aldraðir Málefnasamningur F-lista og D-lista: Fjölgun hjúkrunarrýma og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Efling og samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Stefnuskrá D-lista: Að fjölbreytt sameiginlegt búsetuform í hjúkrunar-, þjónustu- og leiguíbúðum auk almennra íbúða verði tryggt til þess að vinna gegn félagslegri einangrun eldri borgara. Málefnahandbók F-lista: Að fjölga þurfi hjúkrunarrýmum og efla heimaþjónustu fyrir aldraða. Jafnframt þarf að efla heimaþjónustu og heimahlynningu. Í málefnasamningi D og B 2006: Undirbúningur að byggingu 300 nýrra leigu- og þjónustuíbúða á kjörtímabilinu. Undirbúningur að umtalsverðri fjölgun hjúkrunarrýma á kjörtímabilinu. Áætlun um bætta heimaþjónustu. Niðurstaða: 9. Elli- og örorkulífeyrir Málefnasamningur F-lista og D- lista: Tekjumörk vegna niðurfellingar fasteignarskatta fyrir elli- og örorkulífeyrisþega verða hækkuð verulega. Stefnuskrá D-lista: Ekki neitt. Málefnahandbók F-lista: Að hækka eigi tekjumörk vegna niðurfellingar fasteignaskatta. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaða: 10. Fasteignarskattar Málefnasamningur F-lista og D-lista: Fasteignaskattar á íbúðarhúsnæði verða lækkaðir á árinu. Stefnuskrá D-lista: Að lækka eigi fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði. Málefnahandbók F-lista: Ekki neitt. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaða: 11. Félagslegar leigíbúðir Málefnasamningur F-lista og D-lista: Félagslegum leiguíbúðum verður fjölgað um 100 á ári. Stefnuskrá D-lista: Ekki neitt. Málefnahandbók F-lista: Ekki neitt. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaðan: 12. Framboð lóða Málefnasamningur F-lista og D-lista: Framboð lóða fyrir fjölskyldur og atvinnurekstur verði tryggt. Stefnuskrá D-lista: Brýnustu verkefnin í skipulagsmálum eru meðal annars að stórauka framboð lóða. Ný byggingasvæði verði í Geldinganesi, Vatnsmýri og í Örfirisey. Málefnahandbók F-lista: F-listinn vill að framboð verði aukið á lóðum. Þegar bætt er við nýju byggingarlandi í úthverfum Reykjavíkur eiga lóðir að vera á hóflegu verði þannig að öllum sem vilja byggja sé gert það kleift. F- listinn hafnar alfarið byggð í Vatnsmýrinni og Örfirisey. Í málefnasamningi D og B 2006: Aukið framboð fjölbreyttra lóða, sérstaklega sérbýlishúsalóða. Eftirfarandi hverfi verða skipulögð: Geldinganes, Úlfarsfell, Örfirisey og Vatnsmýri. Niðurstaða: 13. Þjónusta leikskóla og grunnskóla Málefnasamningur F-lista og D-lista: Þjónusta leikskóla og grunnskóla verði aukin og faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði þeirra styrkt. Stefnuskrá D-lista: Þjónusta leikskólanna bætt enn frekar með sveigjanleika og vali fyrir foreldra, í samráði við leikskólastjóra og starfsfólk. Raunverulegt val um skóla þar sem öll börn njóta sama stuðnings, óháð rekstrarformi eða staðsetningu þess skóla sem foreldrar og börn velja. Málefnahandbók F-lista: Virkja ber sjálfstæði skóla og frumkvæði kennara og skólastjórnenda og samvinnu þeirra og foreldra. Í málefnasamningi D og B 2006: Lækkun gjalda á fyrsta skólastigi, gengið verði til samninga við dagforeldra um stuðning til að tryggja framboð þjónustu, frístundakort til allra barna í framhaldi af viðræðum við íþróttafélög og félagasamtök um tilhögun og framkvæmdaáætlun um samræmingu skóla- og tómstundastarfs. Niðurstaða: 14. Öryggi Málefnasamningur F-lista og D-lista: Öryggi í miðborg Reykjavíkur verði aukið. Stefnuskrá D-lista: Hverfalöggæsla verði efld í samvinnu við lögregluyfirvöld, bæði í miðborginni og öðrum hverfum borgarinnar. Málefnahandbók F-lista: Lögreglan verði sýnilegri í umferðinni og á götum borgarinnar. Ofbeldi hefur aukist mjög í borginni og F-listinn vill taka hart á slíkum brotum. Í málefnasamningi D og B 2006: Viðræður við lögregluyfirvöld um aukið öryggi í borginni hefjist í sumar. Útideild taki aftur til starfa og áhersla á forvarnir verði aukin. Niðurstaða: 15. Menningararfur Málefnasamningur F-lista og D-lista: Átak í merkingu og varðveislu sögufrægra staða. Stefnuskrá D-lista: Merkir staðir í borgarlandinu verða merktir sérstaklega með aðgengilegum upplýsingum og fróðleik. Málefnahandbók F-lista: F-listinn leggur nú sem áður áherslu á verndun menningarsögulegra minja. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaða: 16. Náttúruvernd Málefnasamningur F-lista og D-lista: Lögð áhersla á verndun óspilltrar náttúru og dregið úr mengun. Stefnuskrá D-lista: Ekki neitt. Málefnahandbók F-lista: F-listinn leggur áherslu á að dregið verði úr mengun í borginni og á verndun óspilltrar náttúru. Í málefnasamningi D og B 2006: Ráðist verði í hreinsunar- og fegrunarátak í borginni. Niðurstaða: 17. Orkuveita Reykjavíkur Málefnasamningur F-lista og D-lista: Orkuveita Reykjavíkur og orkulindir hennar verða áfram í eigu almennings. Stefnuskrá D-lista: Ekki neitt. Málefnahandbók F-lista: F-listinn leggst alfarið gegn einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar og varar við því að fleiri auðlindir almennings komist í hendur fárra. Í málefnasamningi D og B 2006: Ekki neitt. Niðurstaða: MÁLEFNASAMNINGUR F-LISTA OG D-LISTA 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D 0 25 50 75 1000255075100 D Samtals: 70% 30%

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.