24 stundir - 30.01.2008, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir
Námskeið fyrir þig
um allt milli himins og jarðar
MÍMIR
símenntun
Skeifunni 8 • Innritun í síma 580 1808 • www.mimir.is
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
.2
28
Óhef›bundi› bókband,
byrjendur 4 st.
Gu›n‡ Arna Eggertsdóttir
Mán. kl. 18:45-22
(1 skipti, 4. feb.)
Ver›: 5.800 kr.
Teiknimyndager› 12 st.
- Fyrir unglinga
Jean Antoine Posocco
Mán. kl. 18:30-20:20
(5 vikur frá 11. feb.)
Ver›: 16.300 kr.
Evrópa á breytingaskei›i 10 st.
- Félagslegar og pólitískar
breytingar í Evrópu á 20. öld
fiorleifur Fri›riksson
Mi›. kl. 20-21:55
(4 vikur frá 13. feb.)
Ver›: 12.900 kr.
Nuddnámskei› 16 st.
Ragnar Sigur›sson
Helgina 15. til 17. feb.
Ver›: 21.100 kr.
Leiklistarnámskei› 24 st.
Pétur Einarsson
firi. kl. 19:45-22 og
lau. kl. 10-12:15
(4 vikur frá 19. feb.)
Ver›: 26.300 kr.
Hip hop textager› 5 st.
- Fyrir unglinga
Egill Valdimarsson
firi. kl. 16:40-18:30
(2 skipti, 19. og 26. feb.)
Ver›: 6.100 kr.
Meistari fiórbergur 7,5 st.
- Ævi og störf fiórbergs
fiór›arsonar
Pétur Gunnarsson
Fim. kl. 20-21:55
(3 vikur frá 21. feb.)
Ver›: 10.100 kr.
Arabíska II
mán. og mi›. kl. 20-22:15
(6 skipti frá 25. feb.)
Ver›: 25.400 kr.
Spænska II
mán. og mi›. kl. 17:15-18:45
(9 skipti frá 25. feb.)
Ver›: 25.400 kr.
Vorönn
2008
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Fyrirtaka verður í Hæstarétti í
dag í tveimur málum Reykjavík-
urborgar og Strætó gegn olíufé-
lögunum Skeljungi hf., Olíu-
verslun Íslands hf. og Keri hf.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í
desember 2006 dæmt þau til
greiðslu samtals 78 milljóna
króna skaðabóta vegna ólöglegs
verðsamráðs.
aak
Olíusamráðið
Fyrir Hæstarétt
365 miðlar hafa áfrýjað til Hæsta-
réttar dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur frá 20. desember síðast-
liðnum. Þá var
fyrirtækið dæmt
til að greiða
Magnúsi Ragn-
arssyni 1.500.000
krónur auk máls-
kostnaðar og til
að standa straum
af kostnaði við
birtingu dómsins
í dagblöðum, en Magnús höfðaði
meiðyrðamál á hendur fyrirtæk-
inu vegna niðrandi ummæla í
sinn garð. Voru þau dæmd dauð
og ómerk. Ekki hefur verið
ákveðið hvenær málið verður tek-
ið fyrir. aak
Meiðyrðamál
365 áfrýja dómi
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
hefur óskað eftir áliti frá heilbrigð-
isráðuneytinu um með hvaða hætti
borgin geti beitt þvingunarúræð-
um vegna reykingaherbergis á veit-
inga- og skemmtistaðnum Barnum
við Laugaveg.
„Heilbrigðisráðuneytið hefur
verið þeirrar skoðunar að við get-
um beitt þvingunarúrræðum sam-
kvæmt hollustuháttalögum, en ég
hef efasemdir um að það sé lög-
mætt,“ segir Örn Sigurðsson, lög-
maður og settur sviðsstjóri hjá um-
hverfissviði Reykjavíkur.
Lagabreytinga þörf
„Í löggjöfinni segir eingöngu að
við eigum að hafa eftirlit með því
að ekki sé reykt þar sem það er
bannað. Ráðuneytið vill meina að í
eftirliti felist ákveðin úrræði, en ég
segi að þar sem um verulega
íþyngjandi ákvarðanir er að ræða
verði að vera bein lagaheimild til
þess að beita þeim,“ segir Örn. „Að
mínu mati þyrfti helst að koma til
breyting á löggjöfinni. Heilbrigð-
isráðuneytið ætlast til þess að við
sinnum eftirliti og framfylgjum
lögunum. Þá vil ég hafa til þess al-
mennileg tæki en ekki einhverjar
hálfkveðnar vísur.“
Jafnræðis ekki gætt
Örn segist hafa vakið athygli á
því, þegar verið var að setja reyk-
ingalögin, að úrræðin væru ekki
nógu skýr. „Ég tel að lögin séu
meingölluð og það hefði mátt gera
margt miklu betur til að gera þau
skýrari. Ég hef líka efasemdir um
að í þeim sé gætt fyllsta jafnræðis
þar sem sums staðar er leyfilegt að
hafa reykingaherbergi en annars
staðar ekki. Löggjafinn hefur fram
að þessu komist að þeirri niður-
stöðu að það megi mismuna með
þessum hætti, sé það í þágu al-
mannaheilla. Ég á hins vegar mjög
erfitt með að kyngja því að það sé í
þágu almannaheilla að leyfa að
reykja einhvers staðar ef það ríkir
almennt bann.“
Reykingaherbergi Barsins verður
því ekki lokað á næstunni.
Borgin ráðalaus
vegna reykklefa
Lögfræðingur hjá Reykjavíkurborg segir skorta úrræði til að
framfylgja reykbanni „Meingölluð lög,“ segir Örn Sigurðsson
➤ Reykingaherbergið var tekiðí notkun í nóvember.
➤ Eigendur Barsins hafa ítrek-að neitað að loka því.
➤ Borgin boðaði á dögunum aðherbergið yrði innsiglað.
➤ Lögmaður Barsins andmæltiþví með ítarlegu bréfi.
REYKKLEFINN UMDEILDI
Reykingaklefinn Borgin hefur óskað eftir að heilbrigðisráðuneytið útskýri hvaða úr-
ræði hún hefur til að loka klefanum.
Árvakur/Árni Sæberg
„Miðbæjarnefndin hafði öll
tækifæri til þess að veita umsögn ef
einhver hefði haft hug á því, en það
kom engin ósk eða beiðni um slíkt
af hálfu nefndarmanna.“ Þetta seg-
ir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar.
Þóroddur Skaptason, fulltrúi
sjálfstæðismanna í miðbæjarnefnd
Hafnarfjarðar, gagnrýndi harðlega
vinnubrögð bæjaryfirvalda í 24
stundum í gær. Hann sakaði bæj-
aryfirvöld um að ganga framhjá
nefndinni með því að leita ekki
umsagnar hjá henni vegna fyrir-
hugaðra framkvæmda við Strand-
götu 26-30. Þetta hafi verið gert til
að komast hjá neikvæðri umsögn
nefndarinnar, en Lúðvík vísar þess-
um ásökunum á bug.
„Miðbæjarnefndin hafði veitt
umsögn um tillöguna að deili-
skipulaginu eins og íbúar og aðrir
hagsmunaaðilar á svæðinu. Nýja
tillagan tók mið af þessum um-
sögnum og ef miðbæjarnefndin
hefði viljað veita umsögn um nýju
tillöguna hafði hún tækifæri til
þess eftir kynningarfundinn.“
Fundurinn sem Lúðvík vísar til
var haldinn til að kynna miðbæj-
arnefndinni tillöguna eftir breyt-
ingar, en að honum loknum vísaði
skipulags- og byggingarráð bæjar-
ins tillögunni til samþykkis hjá
bæjarstjórn.
„Eftir fundinn þakkaði nefndin
fyrir kynninguna og þá kom engin
ósk fram í þeirra röðum um að
bregðast við kynningunni með því
að veita umsögn um hana eða gera
athugasemdir. Þau höfðu líka gott
tækifæri til þess að koma sínum at-
hugasemdum á framfæri því málið
var ekki afgreitt í bæjarstjórn fyrr
en þriðjudaginn eftir fundinn,“
segir Lúðvík.
„Mér finnst svolítið seint í rass-
inn gripið að gera athugasemdir
við það núna að menn hafi ekki
fengið að koma á framfæri athuga-
semdum. Miðbæjarnefndin hafði
bæði tíma og tækifæri til að gera
slíkt en gerði ekki.“ aegir@24stundir.is
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar vísar gagnrýni vegna Strandgötureits á bug
Miðbæjarnefndin gat tjáð sig
Íbúasamtök 3. hverfis í Reykja-
vík, það er Hlíða, Holta og Norð-
urmýrar, telja að mislægu gatna-
mótin sem Ólafur F. Magnússon,
borgarstjóri Reykjavíkur, boðar við
Kringlumýrarbraut og Miklubraut
auki mengun í hverfinu í stað þess
að draga úr henni, að sögn Hilmars
Sigurðssonar, formanns samtak-
anna. „Á fyrstu 11 dögum jan-
úarmánaðar mældist mengunin á
gatnamótum Stakkahlíðar og
Miklubrautar 40 prósentum hærri
en við Grensásveg þar sem mæla á
mestu mengunina í Reykjavík.
Þetta sýnir okkur að það er meiri
mengun í hverfinu okkar en við
töldum,“ segir Hilmar.
Hann segir niðurstöður mæling-
anna hafa verið kynntar fyrir hverf-
isráðinu. „Við ætlum að skora á
hverfisráðið að halda opinn borg-
arafund með þátttöku borgaryfir-
valda um hugmyndir borgarstjóra
um mislægu gatnamótin og meng-
unina. Við viljum fá skýr svör við
því hvað yfirvöld ætli að gera, sér-
staklega í ljósi niðurstöðu mæling-
anna nú í janúar. Hingað til höfum
við fengið mjög misvísandi skila-
boð. Síðast í nóvember sagði þá-
verandi meirihluti að stokkalausn
væri forgangsverkefni,“ segir
Hilmar.
Frá 7. desember til 16. janúar fór
svifryksmengun við gatnamót
Stakkahlíðar og Miklubrautar
fimm sinnum yfir sólarhrings-
verndarmörk en tvisvar sinnum
við gatnamót Grensásvegar og
Miklubrautar.
ibs
Íbúasamtök 3. hverfisins segja mislæg gatnamót auka mengun
Vilja skýr svör frá yfirvöldum