24 stundir


24 stundir - 30.01.2008, Qupperneq 17

24 stundir - 30.01.2008, Qupperneq 17
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 17 Eftir viðburðaríka viku íborgarpólitíkinni skundaðiminnihlut- inn, fyrrverandi meirihluti, í kyrrð og ró Borgarfjarðar um helgina þar sem hann dvaldi í veiði- húsinu við Grímsá. Menn ræddu málin á alvarlegum nótum en einnig var brugðið á leik og mun Svandís Svav- arsdóttir hafa tekið upp gítarinn og sungið hástöfum svo undir tók í sýslunni. Ekki fylgdi sögunni hvort hún söng REI-lagið sem ómaði frá Orkuveitunni fyrir jólin en hver veit. Hins vegar mun Guðmundur Steingrímsson (Hermannssonar) hafa tekið upp nikkuna og flutt frumsamið lag sem fjallaði helst um óheppni hans í lífinu, inn og út um gluggann. Guðmundur hafði nefnilega nýlega fengið starf að- stoðarmanns Dags B. Eggerts- sonar þegar skipt var skyndilega um borgarstjóra og fékk hann því ekki tæki- færi til að vaxa í því starfi. Flestir muna einnig eftir að Guð- mundur datt ýmist inn eða út af þingi í síðustu alþingiskosningum. Reynir Traustason, ritstjóriDV, eða karlinn með hatt-inn, eins og hann er jafnan kallaður, slengdi því framan í Siv Friðleifsdóttur í Silfri Egils um helgina að búið væri að gefa út skotveiðileyfi á hana. Sagði Reynir að hún yrði næsta peð til að falla út af framsóknarskákborðinu. Það vakti athygli þeirra sem á þáttinn horfðu að Reynir komst upp með að skýra ekki orð sín nánar sem þótti einkennilegt. En í DV í gær er sagt frá því að Guðjón Ólafur sé hér enn á ferð og nú ásamt bróður sínum, Einari Kristjáni Jónssyni, og ætli þeir að bola Siv úr flokknum til að rýma fyrir Páli Magnússyni, bróður Árna Magn- ússonar, fyrrverandi ráðherra. Guðjón Ólafur, sem sagði í Silfr- inu fyrir stuttu að hann væri margstunginn maður, telur sig greinilega vera þess verðan að reka fólk og ráða í Framsókn, þótt flokksforystan, Guðni og félagar, séu á öndverðum meiði. Það hljóta þó að vera kjósendur flokksins sem eiga lokaorðin í þessum slag. elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Sama dag og tilkynnt var um nýjan borgarstjórnarmeirihluta sagði Mörður Árnason í þingræðu að vegna atburða í borgarmálum hefði orðið meira fall á gengi stjórnmálamanna en á gengi hluta- bréfa. Gengi hlutabréfa féll meira þann dag en nokkru sinni fyrr. Sennilega er þetta rétt hjá Merði. Fólk sættir sig ekki við óheilindi og undirmál í borgarstjórn Reykjavík- ur. Með aðgerðum sínum við að sprengja upp meirihlutasamstarf í Reykjavík tók Sjálfstæðisflokkur- inn skammtímahagsmuni fram yfir langtímahagsmuni. Þegar meiri- hluti sjálfstæðismanna og fram- sóknarmanna féll, þá var það vegna ágreinings innan borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins og borg- arfulltrúa Framsóknarflokksins. Því meirihlutasamstarfi var slitið í beinni útsendingu frá Iðnó. Ég gagnrýndi þá hvernig staðið var að málum af hálfu vinstri flokkanna og Ólafs F. Magnússonar sem lagði á ráðin um stjórn með vinstri flokkunum. Ekki hvarflaði það að mér á þeim tíma að sjálfstæðis- menn mundu nokkru síðar leika enn leiðinlegri leik í borgarmálun- um og standa að því með yfirboð- um að sprengja upp starfandi meirihluta. Þau vinnubrögð eru hvorki Sjálfstæðisflokknum né þeim sem gjörva hönd lögðu á þann plóg til sóma og hætt er við að það traust sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur haft í íslenskum stjórnmálum hafi beðið mikinn hnekki. Borgarstjóraembættið er gert að pólitískri skiptimynt og samþykkt útgjöld strax upp á 600 milljónir sem borgarbúar greiða, allt til að ná völdum í 2 ár. Meirihluti hverra hefur tekið við völdum í Reykjavík? Í fjölmiðlum er talað um Frjálslynda og Sjálf- stæðisflokkinn. Það er rangt. Frjálslyndi flokkurinn bauð fram í síðustu borgarstjórnarkosningum og vann góðan sigur en þeir sem skipuðu 5 efstu sæti listans hafa yf- irgefið flokkinn. Frjálslyndi flokk- urinn ber ekki pólitíska ábyrgð á þeim eins og Guðjón Arnar Krist- jánsson, formaður Frjálslynda flokksins, benti á varðandi annan liðhlaupa, Gunnar Örlygsson. Óm- ar Ragnarsson, formaður Íslands- hreyfingarinnar, hlakkar yfir því að efstu menn á F-lista séu í Íslands- hreyfingunni. En þeir voru ekki kjörnir á hennar vegum og kenna sig ekki við hana í opinberri um- ræðu, en það er rétt hjá Ómari að þeir eru í Íslandshreyfingunni. Mér er spurn, er Ómar Ragnarsson svo gjörspilltur stjórnmálamaður að honum þyki sæmd að því hvernig þetta fólk hefur komið fram við flokkinn sem kom þeim í trúnaðar- stöður, fólk sem virðir ekki trúnað og hefur rofið öll grið gagnvart Frjálslynda flokknum. Með aðgerðum sínum og það að taka skammtímahagsmuni fram yfir langtímahagsmuni hefur Sjálf- stæðisflokkurinn í fyrsta lagi kom- ið á nýju R-listasamstarfi í Reykja- vík. Í öðru lagi ýtt undir vonir ýmissa innan þings sem utan að mynduð verði ný vinstri stjórn í stað þeirrar sem nú situr. Í þriðja lagi þá kemur Sjálfstæðisflokkur- inn fram með slíkum óheilindum að fer í bága við langa sögu flokks- ins um að viðhafa lágmarks kurt- eisi og mannasiði í samskiptum við samstarfsflokka og pólitíska and- stæðinga. Starfsemi Reykjavíkur lýtur að- allega að þjónustu við borgarana þannig að mestu skiptir að traustur framkvæmdastjóri hafi yfirsýn og stjórn mála. Það sýndi sig m.a. þeg- ar menn eins og Gunnar Thorodd- sen og Geir Hallgrímsson voru borgarstjórar í Reykjavík. Á þeim tíma hefði aldrei hvarflað að nokkrum sjálfstæðismanni að borgarstjórastóllinn í Reykjavík gæti verið pólitísk skiptimynt. Svo illa er komið þar sem stefna flokkanna í borgarmálum er ill- sundurgreinanleg og svo keimlík að allir geta starfað með öllum á grundvelli málefna. Þá skiptir enn meira máli en áður, þegar flokk- arnir höfðu skýrari stefnu og meiri munur var á milli þeirra, að stjórn- málamenn virði trúnað og komi fram með þeim hætti að þeir ávinni sér traust með réttu. Þannig er því ekki farið í dag. Það þarf sið- væðingu í stjórnmálalífið í land- inu. Höfundur er alþingismaður Siðvæðing stjórnmálanna VIÐHORF aJón Magnússon Í þriðja lagi þá kemur Sjálfstæð- isflokkurinn fram með slíkum óheil- indum að fer í bága við langa sögu flokksins um að viðhafa lágmarks kurteisi og mannasiði í samskiptum við samstarfsflokka og pólitíska andstæðinga. í dag Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 Sveppi leikur diskó- gæjann Danna. LEIKHÚS» Miðvikudagur 30. janúar 2008 Viðskiptafræðing- urinn ákvað að ger- ast kvikmyndaleik- ari í Hollywood. FÓLK» Ágúst Bjarnason Olíuvæn setlög við Ísland – þú átt leik, Össur Hvers vegna kristilegt siðgæði? Pólitík í staðinn fyrir „plottitík“ Vinaleiðin fær góða dóma » Meira í Morgunblaðinu Það er meira í Mogganum  Á nýársdag hélt Áslaug Björgvinsdóttir ásamt fimm öðrum Íslendingum til Úkraínu til að fylgja eftir verkefninu „Jól í skókassa“. Verkefnið, sem unnið er af ungu fólki fyrir hönd KFUM og KFUK á Íslandi, gekk út á að fá börn og fullorðna til að safna gjöfum í skókassa fyrir munaðarlaus börn í Úkraínu. »Meira í Morgunblaðinu 5.000 jólagjafir í skókössum reykjavíkreykjavík  Þóra Helgadóttir gefur ekki kost á sér.  Tvær landsliðsstúlkur í bann vegna agabrots.  Sigurður Ragnar velur landsliðshóp kvenna.  NBA: Níu sigrar í röð hjá New Orleans.  Kaka útnefndur bestur á Ítalíu. » Meira í Morgunblaðinu Íþróttir  Ávöxtun séreignasparnaðar landsmanna minnk- aði í dýfunni á hlutafjármörkuðum í fyrra. Bankarnir bjóða margvíslegar leiðir í lífeyrissparnaði. Sumar ávöxtunarleiðir skiluðu jákvæðri raunávöxtun en nei- kvæð ávöxtun varð af öðrum og áhættumeiri leiðum. Dæmi eru um allt að 5% neikvæða raunávöxtun. »Meira í Morgunblaðinu Séreignalífeyrissparnaður UMRÆÐAN» ATVINNUBLAÐIÐ atvinna@24stundir.is alltaf á laugardö gum Pantið gott pláss t ímanlega

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.