24 stundir - 30.01.2008, Síða 22

24 stundir - 30.01.2008, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir Flestar þjóðir leggja mesta áherslu á að minnast þess gæfurík- asta í sögu sinni með hátíðahöld- um, minnismerkjum og menning- arviðburðum. Hið sama er þó ekki að segja um Þjóðverja því að af öllu því sem hægt er að minnast í sögu þjóðarinnar er ekkert sem fær eins mikla athygli og hið allra blóðug- asta, sem er helför nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Eins og frægt var fyrir nokkrum árum var reistur víðáttumikill minnisvarði um þá sem létust í helförinni, en að sögn Bernds Neumanns, ráðherra menningarmála í Þýskalandi, stendur til að reisa að minnsta kosti tvo nýja minnisvarða í Berlín til viðbótar, annan í nágrenni við þinghúsið til minningar um sí- gauna sem urðu fyrir barðinu á of- sóknum nasista, og hinn rétt hjá Brandenborgarhliðinu til minn- ingar um homma og lesbíur sem voru myrt í helförinni. Þá eru ófá söfn starfrækt í landinu um ógn- arstjórn nasista ásamt því sem fyrr- um fangabúðir þeirra í landinu eru opnar gestum. Avi Primor, fyrrver- andi sendiherra Ísraels í Þýska- landi, hélt erindi í síðustu viku í Erfurt á minningarsamkomu um helförina. Hann spurði: „Hvaða önnur þjóð í heiminum hefur reist jafnmarga minnisvarða með það fyrir augum að gera skömm sína ódauðlega? Enginn hefur sýnt eins mikið hugrekki og auðmýkt og Þjóðverjar.“ Fjölmargir minnisvarðar um helförina í Þýskalandi Minnast þess slæma í sögunni Hinna látnu minnst Þennan gríðarstóra minnisvarða er að finna í miðborg Berlínar. Þeir sem eru með síðu á my- space-samskiptavefnum ættu að prófa að kíkja inn á síðu tónlistar- mannsins Tim Ten Yen á slóðinni myspace.com/timtenyen. Kappinn hélt tónleika á skemmtistaðnum Organ í Reykjavík þann 20. desem- ber síðastliðinn og með honum í för var ljósmyndari sem myndaði ferðalagið í bak og fyrir, og eru myndirnar inni á myspace-síð- unni. Meðal annars má sjá tónlist- armanninn við verslunina 12 Tóna, Ráðhús Reykjavíkur, Hallgríms- kirkju, Bæjarins bestu og á fleiri stöðum. Þessar myndir eru þó eingöngu sjáanlegar þeim sem eru skráðir inn á myspace, en fyrir þá sem eru það ekki má sjá aðrar myndir frá tónleikunum sjálfum á Organ á slóðinni twolittledogs.co.uk/ myndir_tim.html, en það var Arn- þór Birkisson sem tók þær. Tim Ten Yen spilaði á Organ í desember Ferðasaga í myndum Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Um síðustu áramót var aðgangs- eyrir felldur niður í Listasafni Reykjavíkur með það að markmiði að færa safnið nær borgarbúum og laða að fleiri gesti. En það er ekki eina safnið þar sem aðgangur er ókeypis þar sem slíkt hefur verið upp á teningnum í söfnum á borð við Listasafn Íslands og Listasafn ASÍ um þó nokkurt skeið svo ein- hver dæmi séu tekin. Að sögn Hrafnhildar Schram listfræðings er þetta svipuð þróun og hefur verið á Norðurlöndum þar sem aðgangur að fjölmörgum söfnum hefur verið ókeypis um nokkurra ára skeið. „Sömu sögu er að segja til dæmis í Washington- borg í Bandaríkjunum og þar, líkt og á Norðurlöndum, hefur þetta skilað sér í mikilli fjölgun gesta, þannig að ég held að þetta sé líka framtíðin hér á landi,“ segir hún. „Þetta er liður í því að gera söfnin aðgengilegri. Vissulega hefur að- gangseyrir í þau aldrei verið mjög hár, enda er 500 króna aðgangs- eyrir inn á listasafn til að mynda ekki hár miðað við 800 króna bíó- miða. En peningarnir eru fljótir að safnast saman þegar margra manna fjölskylda ákveður að fara í safn og setjast svo niður og fá sér hress- ingu. Ég held líka að aðgangseyrir, hversu hár eða lágur sem hann er, geri það að verkum að fólk þarf að setja sig í stellingar áður en það fer í söfn og virki þannig sem hindr- un.“ Góð þróun Hrafnhildur segist fagna þeirri þróun sem verið hefur á listasöfn- um undanfarin ár þar sem þau séu mörg hver farin að bjóða upp á fjölbreyttari dagskrá og andrúms- loftið almennt orðið afslappaðra. Ókeypis aðgangur eigi eftir að ýta frekar undir þessa þróun. „Hér áð- ur fyrr voru listasöfn kannski oft dálítið upphafin ef svo má segja og þar máttu ekki vera mikil læti þannig að það gat verið erfitt að fara með börn inn í söfnin. Nú ætti fólk hins vegar að geta dottið inn á söfnin af rælni þar sem það á leið hjá og engum ætti að finnast að hann þyrfti að mæta á sparifötun- um í listasöfn. Svo er oft verið að bjóða upp á kvikmyndasýningar, tónlistaratriði og alls kyns uppá- komur fyrir börn og fullorðna þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Uppeldisfræðilegur ávinningur Hrafnhildur segist telja að ókeypis aðgangur í listasöfnum eigi eftir að hafa mikil áhrif á komandi kynslóðir. „Þá geta þau vanist því alveg frá barnæsku að það að fara inn á listasafn er sjálfsagður hlutur og krefst ekki neins sérstaks und- irbúnings. Þegar aðgangseyrir er rukkaður eru kannski minni líkur á að foreldrar fari í söfnin með börn- in sín nema þeir hafi þeim mun meiri myndlistaráhuga. En það á auðvitað ekki að þurfa til,“ segir hún að lokum. Hrafnhildi Schram listfræðingi líst vel á frían aðgang á listasöfn Listasöfn verða aðgengilegri Þegar aðgangur að lista- söfnum er frír ættu þau að verða aðgengilegri og laða að fleiri gesti. Hrafn- hildur Schram listfræð- ingur telur að ókeypis að- gangur sé framtíðin. Hrafnhildur Schram Listasöfn eru fyrir alla. ➤ Var forstöðumaður ListasafnsÁsgríms Jónssonar 1984 til 1988, deildarstjóri við Lista- safn Íslands 1988 til 1991 og forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar 1991 til 2000 og er í dag sjálfstætt starfandi fræðimaður. HRAFNHILDUR Tvö af þeim erlendu samtíma- leikritum sem sýnd eru á Smíða- verkstæði Þjóðleikhússins verða sýnd á sérstakri maraþondagskrá næstkomandi laugardag. Dagskrá- in hefst klukkan 16 með sýningu á verkinu Vígaguðinn í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur og að lokinni sýningu verður gert hlé til að gestir geti fengið sér hressingu, en í nágrenni Þjóðleikhússins er að finna fjölda góðra veitingastaða sem sumir bjóða upp á sérstakan leikhúsmatseðil. Klukkan 19.30 verður svo kynning á leikritinu Sá ljóti eftir Marius von Mayenburg í anddyri Smíðaverkstæðisins, en það verður frumsýnt í apríl. Seinni sýning kvöldsins hefst svo klukkan 20 þar sem leikritið Konan áður eftir þýska leikskáldið Roland Schimmelpfennig í leikstjórn Haf- liða Arngrímssonar verður sýnt. Í tengslum við sýningarnar á Smíða- verkstæðinu er boðið upp á kynn- ingar, fræðsluerindi og umræður í bland við annað og býðst gestum sérstakt tilboð á allar sýningarnar. Erlend samtímaleikrit á Smíðaverkstæðinu Dramatískt maraþon „Óþelló, Desdemóna og Jagó“ er samvinnuverkefni Draumasmiðj- unnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins og verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu klukkan 20 í kvöld. Sýningin er nýstárleg leikgerð Gunnars Gunnsteinssonar og byggir á Óþelló eftir Shakespeare, en Gunnar er jafnframt leikstjóri verksins. Í sýningunni eru aðeins þrjú hlutverk og hefur hvert hlut- verkanna sitt eigið tjáning- arform, það er að segja dans, táknmál og talað mál. Þessum ólíku tjáningarformum er stefnt saman og standa þau annars veg- ar sjálfstæð eða tvinnast saman í dramatíska framvindu örlaga þriggja höfuðpersónanna í einu þekktasta leikverki Shakespeares. Þrjú tjáningarform Leikritið Hetjur eftir Gerald Si- bleyras verður frumsýnt á Nýja sviðinu í Borg- arleikhúsinu næstkomandi föstudag, þann 1. febrúar. Verkið er grát- broslegt og fjallar um vinskap þriggja fyrrverandi hermanna úr fyrri heimsstyrjöldinni sem dvelja saman á elliheimili. Með hlutverk félaganna þriggja fara þeir Guðmundur Ólafsson, Sig- urður Skúlason og Theódór Júl- íusson og leikstjóri er Hafliði Arngrímsson. Félagar úr fyrri heimsstyrjöld Mikil aðsókn hefur verið á leik- ritið Fool for Love sem leikfélagið Silfurtunglið sýnir í Austurbæ og hefur verið uppselt á allar sýn- ingar verksins. Því hefur verið ákveðið að framlengja sýning- artímann fram í lok febrúar, en upphaflega var einungis áætlað að sýna tíu sýningar. Þá eru einn- ig hafnar sýningar klukkan 22 á föstudögum og laugardögum. Fool for Love sýnt áfram MENNING menning@24stundir.is a Nú ætti fólk hins vegar að geta dottið inn á söfnin af rælni þar sem það á leið hjá og eng- um ætti að finnast að hann þyrfti að mæta á spari- fötunum í listasöfn.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.