24 stundir - 30.01.2008, Síða 32

24 stundir - 30.01.2008, Síða 32
„Þetta er svona nútíma barber- shop-keppni. Við coverum lög þegar við erum þrír saman, við tökum mikið af danslögum en svo höfum við verið að taka íslensk dægurlög. Það fer bara eftir áhorf- endum hverju sinni.“ Undanfarið hefur verið nóg að gera hjá tríóinu en þeir hafa meðal annars komið fram í brúðkaupum og árshátíðum. Á meðal vænt- anlegra verkefna taktkjaftanna er árshátíð hjá virtu stórfyrirtæki, sem Sigurður vill ekki nefna. „Við erum búnir að vera að spila á plebbalegustu árshátíðunum niður í yngstu afmælin. Mestu plebbarn- ir eru alveg að elska okkur. Við er- um að taka svona djasslög og shit sem fólk er að fíla.“ vij „Við erum að fara á tónleika fyr- ir fjölmiðla úti í heimi til að kynna heimsmeistarakeppnina sem verð- ur í sumar,“ segir taktkjafturinn Sigurður Ágúst Magnússon, sem gengur einnig undir nafninu Siggi BPM, um ferðalag tríósins Haltu taktkjafti til Berlínar. Tríóið skipa auk Sigurðar, Bjartur Guðjónsson, einnig þekktur sem Beatur, og Kristinn Ágústsson sem ansar einnig nafninu Bangzi. Taktkjaftur er íslenskun á orð- inu beatbox en þá nota menn munninn til að herma eftir hinum ýmsu hljóðfærum. Beatbox þekkist einna helst í rapptónlistinni en það var einmitt þar sem Sigurður og félagar komust í kynni við þessa sérstöku tónlistargrein. „Við erum allir tengdir rapp- heiminum hérna á Íslandi en þetta byrjar náttúrlega þegar maður er lítill og fer að gera hljóðin sem ac- tion-kallarnir eru að gera. Síðan fer maður að reykja úti í sjoppu og þá vantar einhvern bít fyrir rappið sitt. Þá fer maður að berja rusla- tunnur og gera það með munn- inum. Þeir sem eru góðir í þessu halda áfram.“ Nútíma rakarastofutónlist Í sumar fer fram heimsmeist- arakeppnin í beatboxi og Sigurður, Bjartur og Kristinn munu keppa þar fyrir Íslands hönd. Bjartur keppir í einstaklingskeppninni en svo munu allir þrír sameina krafta sína í liðakeppni. Íslenskir taktkjaftar kynna sig í Berlín Árvakur/Golli Útrás hjá taktkjöftum Sigurður og Bjartur eru klárir fyrir Berlín. Kristinn sá sér ekki fært að mæta í myndatöku en sendi staðgengil sinn. Mestu plebbar landsins elska okkur 32 MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 24stundir Fyrirsætan sem á vel mótaða aft- urendann á fyrstu plötu Strokes, Is This It, hefur sagt frá tilurð myndarinnar. Í nýju myndbandi sem birtist á vinsælli bloggsíðu segir hún að myndatakan hafi verið hálfgert slys þegar hún var að koma úr sturtu hjá þáverandi kærastanum sínum, ljósmynd- aranum Colin Lane. „Ég kom úr sturtunni og var að striplast um húsið og þá bað hann mig að láta á mig þennan hanska og, búmm, myndin var komin.“ Ljósmynd- arinn sagði í viðtali við NME að hann hafi tekið um 10 myndir í heildina og ekki ætlað sér annað en að ná kynþokka hennar. „Þeg- ar myndin fór á Strokes-plötuna varð vinkona mín ofsaglöð, enda er hún rokkari og stolt af því að rassinn sé á rokkplötu.“ re Rassinn hálfgert slys Hljómsveitirnar Modest Mouse og The National munu hita upp fyrir sveitina REM á væntanlegri Ameríkuferð þeirra. REM sóttist sérstaklega eftir því að fá þessar tvær hljómsveitir til liðs við sig í tónleikaferðina, en söngvari REM, Michael Stipe, er yfirlýstur aðdáandi New York- bandsins The National. REM mun kynna næstu plötu sína, Ac- celerate, sem kemur út um mán- aðamótin mars/apríl. re Modest Mouse spilar með REM Blindi blúsarinn frá Kanada, Jeff Healey, hefur samið við Ruf Re- cords og í mars kemur út hans fyrsta plata í 8 ár. Platan er tekin upp síðla síðasta árs, og með honum eru tónlistarmennirnir sem spila reglulega á Jeff Healey’s Roadhouse í Toronto. Hljóm- sveitin Jeff Healey Blues Band var stofnuð til að mæta alþjóðlegri eftirspurn eftir kraftmiklum og óvenjulegum gítarleik hans. Jeff segir hljómsveitina vera besta búllubandið í landinu. re Fyrsta plata Jeff Healey í átta ár Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Dómnefndin var ein af ástæð- unum fyrir að við sóttum um. Ef við náum svo langt að þetta lið hlustar á okkur væri það alveg nægur vinningur fyrir okkur,“ seg- ir Áskell Harðarson, bassaleikari hljómsveitarinnar Soundspell. Lagið Pound með Soundspell er komið í undanúrslit alþjóðlegu lagakeppninnar ISC. Meðal dóm- ara í keppninni eru Tom Waits, kanadíska söngkonan Nelly Fur- tado, frumkvöðullinn Jerry Lee Lewis, Frank Black, forsprakki Pixies, og Robert Smith úr hljóm- sveitinni The Cure. Þá sitja for- stjórar útgáfufyrirtækja á borð við Universal og Epic Records einnig í dómnefnd. Fundu keppnina á Netinu „Við erum með aðgang með heimasíðu sem heitir Sonic Bids. Þar eru upplýsingar um tónleika, hátíðir og keppnir,“ segir Áskell spurður um tildrög þess að þeir tóku þátt í keppninni. „Við fengum sendar upplýsingar um keppnina í nóvember og ákváðum að slá til og vera með. Við sendum þeim disk- inn okkar og fengum svar í nótt um að við værum komnir í undanúrslit.“ Lagið Pound er á fyrstu breiðskífu Soundspell sem kom út í byrjun september í fyrra. Fyrir fyrstu verðlaun í keppninni fást tæpar tvær millj- ónir króna í verðlaunafé ásamt ýmsum öðrum vinningum. Ekki hefur verið gefið upp hversu marg- ar hljómsveitir eru komnar í und- anúrslit, en 4. febrúar verður tilkynnt hvaða hljóm- sveitir komast í úrslit og hefst þá netkosning. „Við vonumst til þess að keppnin gefi eitthvað af sér,“ segir Áskell að lokum. „Það eru svo margir útgef- endur og skipu- leggjendur sem eru í dómnefnd í keppninni. Vonin er að komast eitt- hvað út.“ Soundspell Komin áfram í alþjóðlegri lagakeppni. Stórstjörnur skera úr um hvort hin íslenska Soundspell kemst í úrslit Robert Smith og Tom Waits dæma Soundspell er komin í undanúrslit í alþjóðlegri lagakeppni. Stórstjörnur úr heimi tónlistarinnar sitja í dómnefnd, en hún var ein af ástæðum þess að sveitin tók þátt í keppninni. ➤ Meðlimir Soundspell eru áaldrinum 17 til 18 ára og gáfu út sína fyrstu breiðskífu, An Ode to the Umbrella, í fyrra. ➤ Lagið sem Soundspell á íkeppninni má hlusta á á mys- pace.com/spellthesound. SOUNDSPELL Nelly Furtado Situr í dómnefnd keppninnar. Alex James, bassaleikari bresku hljómsveitarinnar Blur, hefur verið að tjá sig að undanförnu um hugs- anlega endurkomu hljómsveitar sinnar, og þá ættu aðdáendur þess- ara konunga Brit-poppsins að gleðjast, því einnig er rætt um nýja Blur-plötu. James segir að staða þeirra sé öll mjög pólitísk sem stendur. „Við höfum verið að skiptast á um að vilja ekki gera þetta. Ég held að í augnablikinu sé það Damon sem vilji ekki fara aftur af stað með Blur. Það lítur þá út fyrir að næst sé áreiðanlega komið að mér. Já, frá og með mars næstkomandi get ég alls ekki gert nýja plötu því ég er í fýlu,“ segir Alex James í gríni. Honum finnst þó allavega mjög já- kvætt að hljómsveitin sé að ræða útgáfumál og annað. „Við tölum um þetta og það er gott, því það væri hreinlega hræðilegt að hugsa til þess að það kæmi aldrei aftur út Blur-plata.“ Hljómsveitin hefur ekkert tekið upp saman síðan Graham Coxon gítarleikari gekk út úr upptökum fyrir plötuna Think Tank í Marra- kesh árið 2002. heida@24stundir.is Von á nýrri Blur-plötu?Sheryl Crow skammast við blaða- menn fyrir að hnýsast í sín prí- vatmál á versta tíma lífs síns. Hún greindist með brjóstakrabba í febrúar árið 2006, nokkrum dögum eftir að hún sleit sam- vistum við hjólakappann Lance Armstrong, sem vann bug á sínu krabbameini. Sheryl telur að við þetta hafi holskefla papparassa- ljósmyndara skollið á sér og það hjálpi sér alls ekki við að ná bata. „Það að hafa 100 ljósmyndara fyrir utan húsið mitt öllum stundum sagði mér ýmislegt um hvernig mannskepnan er orðin,“ sagði Sheryl. „Ef slíkar fréttir fá fólk til að kaupa tímarit, fréttir af fólki á sínum verstu stundum, þá eru það mjög sorgleg skilaboð. Mér fannst þetta allt afar erfitt.“ re Sheryl reið við pressuna 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a [...]Við tökum mikið af danslögum en svo höfum við verið að taka íslensk dægurlög. Það fer bara eftir áhorfendum hverju sinni.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.