24 stundir - 30.01.2008, Side 40
24stundir
Allt fyrir skrifstofuna
undir 1 þaki
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri
• Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum •
Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
Öflug fyrirtækjaþjónusta • S:550-4111 • pontun@office1.is
Fréttir af voveiflegu and-
láti Heaths Ledgers
skóku heimsbyggðina.
Því miður er hann ekki
eina dæmið um ungar
stjörnur sem hafa þurft
að kveðja sviðið langt
um aldur fram. 24
stundir tóku saman lista
yfir nokkra unga leikara
sem létust á þessum ára-
tug og þeim
síðasta.
Fallnar stjörnur
«30
Íslenska beatbox-tríóið Haltu taktkjafti er far-
ið til Þýskalands til að kynna og undirbúa sig
fyrir heimsmeistaramót taktkjafta sem fram
fer í Þýskalandi næsta sumar.
Taktkjaftar í Berlín
«32
Ragna Ingólfsdóttir badmintonhetja hræðist
ekki för sína til Írans á fimtudag, en hún
keppir á móti í Teheran um helgina. Hún fær
líklega að keppa í stuttbuxum og bol, en þær
innfæddu eru í hyljandi alklæðnaði.
Hræðist ekki Íran
«38
Megum við búast við óvæntum
endi á Pressu næsta sunnudags-
kvöld? „Já, ég get lofað því að það
er allt að fara í háaloft,“ svarar
Óskar Jónasson kvikmynda-
gerðarmaður dulur. Verður end-
irinn blóðugur? „Já, fyrir suma,“
svarar hann enn dularfyllri. Er end-
irinn rómantískur? „Já, fyrir aðra
en eins og þú heyrir gef ég ekki
meira upp.“ Fáum við framhalds-
seríu? „Það er verið að ræða það.
Við erum að kanna viðbrögðin.
Það verður ákveðið með hækk-
andi sól.“ Allir leikararnir sem ég
hef spjallað við segja að þú sért
sérstaklega ljúfur leikstjóri? „Ætli
ég sé ekki frekar nákvæmur og
dálítill vinnupískari en það fylgir
því hvernig við gerum þættina. Við
gerum þá á hagkvæman hátt.“
Dálítill vinnupískari
Ég vil geta boðið íslenskum
dönsurum upp á það besta sem í
boði er hverju sinni og er óhætt
að segja að Dan og Shane standi
undir þeim kröfum,“ segir Nanna
Ósk Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri DancCenter Reykjavík, en
hún hefur haft veg og vanda af
komu fjölda heimsfrægra dans-
höfunda til landsins. „Shane úr
þáttunum So You Think You Can
Dance? þurfti t.d. að gera sér-
stakar ráðstafanir til að komast
en hann verður að vinna við MTW
Music Awards á sama tíma og
Dansfestivalið hjá okkur.“
Flytur inn dansara
Ég er að leggja lokahönd á sjö-
unda Rokklandsdiskinn sem
kemur út eftir 2-3 vikur vonandi,“
svarar Ólafur Páll Gunnarsson,
flottasti útvarpsmaður landsins.
„Svo er mikið stuð á Rásinni (Rás
2) en hún verður 25 ára í desem-
ber. Ég hef verið með annan fót-
inn þar í 17 ár. Hjálmar Hjálm-
arsson leikari byrjar um næstu
helgi með vikulegan þátt á
sunnudögum klukkan þrjú þar
sem hann spjallar við fólk sem
hefur komið að Rásinni á einn
eða annan hátt öll þessi ár. Hann
ætlar að blanda saman gömlum
brotum úr safninu, spila gamlar
auglýsingar, tónleikaupptökur og
gamla pistla. Við erum líka að lýsa
eftir nýjum pönk-
lögum í samstarfi
við Þjóðleikhúsið.
Rás 2 á stórafmæli í ár
Umsjón: Ellý Ármanns
elly@svidsljos.is
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við