24 stundir - 29.02.2008, Page 2
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Hrein erlend staða íslenska þjóð-
arbúsins var neikvæð um sem
nemur 113 prósentum af vergri
landsframleiðslu við lok þriðja árs-
fjórðungs 2007. Í lok árs 2003 var
hún neikvæð um 63 prósent. Hún
hefur því næstum tvöfaldast á fjór-
um árum.
Samkvæmt hagtölum Seðla-
bankans voru erlendar skuldir Ís-
lendinga alls 7.255 milljarðar
króna á þriðja ársfjórðungi 2007 en
erlendu eignirnar 5.878 milljarða
króna virði. Íslenska þjóðarbúið
skuldar því 1.377 milljörðum
króna meira erlendis en það á.
Með því mesta í heimi
Daníel Svavarsson og Pétur Örn
Sigurðsson, hagfræðingar hjá
Seðlabanka Íslands, rituðu grein
um þetta í Peningamál síðastliðið
sumar undir heitinu „Erlend staða
þjóðarbúsins og þáttartekjur“. Þar
segja þeir meðal annars að hreinar
skuldir íslenska þjóðarbúsins séu
með því mesta sem þekkist í heim-
inum og að staða þess sé orðin afar
neikvæð í hlutfalli við landsfram-
leiðslu. Þá séu erlendu skuldirnar
að aukast hraðar en eignirnar.
Daníel segir Ísland vera meðal
þeirra landa heims sem eigi einna
mestar eignir erlendis í hlutfalli við
landsframleiðslu en sé að sama
skapi einnig í hópi þeirra landa
sem skuldi hvað mest. „Ísland er
frekar ungt opið markaðshagkerfi í
gríðarlegum vexti. Það að tiltölu-
lega stutt er síðan hömlum á fjár-
magnsflutningum var aflétt og rík-
isbankarnir einkavæddir skýrir að
miklu leyti gríðarlega öra aukningu
á beinni fjárfestingu okkar erlend-
is. Það tekur hins vegar tíma að
byggja upp fyrirtækjarekstur er-
lendis og að skila hagnaði og því
líklegt að þessar eignir okkar séu
ekki enn farnar að skila okkur full-
um arði.“
Útrásin fjármögnuð með lánsfé
Hann segir tölurnar þó sýna að
hin svokallaða útrás íslenskra fyr-
irtækja hafi að verulegu leyti verið
fjármögnuð með erlendu lánsfé.
„Íslendingar eru ekki að spara og
því er útrásin fjármögnuð með lán-
um sem tekin eru í útlöndum.
Mikill viðskiptahalli hér á landi er
þó fyrst og fremst afleiðing mikilla
fjárfestinga í raforku og álfram-
leiðslu síðustu ár, en stóran hluta
hallans má einnig rekja beint til
óseðjandi neyslugleði landans. Það
eru því ekki einungis bankarnir
sem fjármagna sig erlendis. Bank-
arnir taka erlend lán til að end-
urlána m.a. á Íslandi bæði til fjár-
festinga og neyslu. Við í
Seðlabankanum höfum verið að
vekja athygli á og vara við miklum
viðskiptahalla og mikilli erlendri
skuldasöfnun. En hingað til virðist
það ekki hafa vakið mikla athygli.“
Útrás að láni
Erlendar skuldir íslenska þjóðarbúsins með þeim mestu í heimi
Seðlabankinn Íslenska
útrásin er fjármögnuð
með erlendum lánum.
➤ Hrein erlend staða íslenskaþjóðarbúsins var 113 prósent
af vergri þjóðarframleiðslu í
lok þriðja ársfjórðungs 2007.
➤ Erlendar skuldir voru þá7.255 milljarðar króna á með-
an að erlendar eignir voru
5.878 milljarðar króna.
HREIN ERLEND STAÐA
2 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 10
Alicante 16
Barcelona 13
Berlín 9
Las Palmas 21
Dublin 9
Frankfurt 10
Glasgow 8
Brussel 10
Hamborg 10
Helsinki 0
Kaupmannahöfn 8
London 11
Madrid 15
Mílanó 11
Montreal -18
Lúxemborg 8
New York -7
Nuuk -8
Orlando 3
Osló 7
Genf 10
París 10
Mallorca 17
Stokkhólmur 5
Þórshöfn 1
Norðaustan 8-13 m/s og snjókoma eða él, en
hvassari norðvestantil síðdegis.
Frost yfirleitt 2 til 8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
0
-2
-9
-4 -6
Snjókoma eða él
Norðan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast á
annesjum fyrir norðan og él eða snjókoma, en
bjartviðri sunnan- og vestanlands.
Frost víða 2 til 8 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
-3
-7
-10
-4 -4
Snjókoma fyrir norðan
Affallsvatn frá Nesjavallavirkjun kemur upp í Þor-
steinsvík í Þingvallavatni, og veldur því að hiti er þar
töluvert meiri en annars væri.
„Það eru volgar uppsprettur í Þorsteinsvík sem eru
náttúrulegt afrennsli frá jarðhitasvæðinu. Saman við
þann grunnvatnsstraum blandast vatn frá Nesjavalla-
virkjun, sem hefur valdið því að hitastig vatnsins þar
hefur hækkað,“ segir Gestur Gíslason, jarðfræðingur
hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Hann segir hitastig í víkinni hafa hækkað allt til árs-
ins 2004, þegar farið var að beina affallsvatninu niður
fyrir grunnvatnið. Nú þegar sé affallsvatninu beint í
tvær holur, en frá og með næsta hausti verði þriðja
holan tekin í notkun, og muni þá ekkert affallsvatn
fara lengur út í Þorsteinsvík.
Gestur segir kvikasilfursmagn ekki mælast meira í
Þorsteinvík en annars staðar í vatninu, en eins og sagt
hefur verið frá í 24 stundum er magn kvikasilfurs í
stórurriða í Þingvallavatni yfir heilsuverndarmörkum.
Þá segir hann kvikasilfursmagn í jarðhitagufu frá
Nesjavallavirkjun almennt vera mjög lítið og minna en
mælist frá jarðhitavirkjunum annars staðar í veröld-
inni. hlynur@24stundir.is
Affall frá Nesjavallavirkjun kemur upp í Þorsteinsvík
Affalli beint í Þingvallavatn
Náttúruparadís Miðnæturveiði í Þingvallavatni.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
ýtti í gær úr vör verkefninu 1,2 og
Reykjavík. Verkefnið felur í sér
víðtækt samráð við íbúa í hverf-
um borgarinnar um viðhalds-
verkefni og smærri nýfram-
kvæmdir. Stýrihópar munu leita
leiða til að virkja íbúana til að
koma með hugmyndir og hægt
verður að senda ábendingar á
heimasíðu Reykjavíkur. mbl.is
Aukið samráð við borgarbúa
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Í nýrri skýrslu OECD um
efnahagsmál á Íslandi er lagt
til að í framtíðinni sé fjárfest-
ingum ríkisstjórnar ekki stýrt
eftir hagsveiflu heldur eftir
langtímamarkmiðum.
„Sú tillaga er mjög athygl-
isverð. Það er mjög erfitt að
spá fyrir um hagvöxt auk þess
sem að ef spáin er röng hafa
aðgerðirnar þveröfug áhrif á
við það sem ætlað var,“ segir
Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra. þkþ
Langtíma-
hugsun
OECD um efnahaginn
Björn Bjarnason
dómsmálaráð-
herra ræddi í
gærmorgun í
Brussel við
dómsmálaráð-
herra Litháens,
Petras Baguska,
um flutning
Litháa, sem íslenskir dómstólar
hafa dæmt til fangavistar, til af-
plánunar í ættlandi sínu, að því
er segir á vef dómsmálaráðuneyt-
isins. Baguska samþykkti að þessi
tilhögun yrði höfð vegna þeirra
fanga sem falla undir ákvæði
samnings Evrópuráðsins um
flutning dæmdra manna. Und-
irbúningur er hafinn að flutningi
tveggja Litháa sem eru í afplánun
á Litla-Hrauni. ibs
Litháar afpláni í
ættlandi sínu
Kristján L. Möller samgönguráðherra segir það áhyggjuefni að fram-
kvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar hafi stöðvast. „Auðvitað er
þetta mikið áhyggjuefni, og ég tala nú ekki um á þessum árstíma,“ seg-
ir Kristján í samtali við mbl.is.
Kristján segir að Vegagerðin vinni hörðum höndum að því að útbúa ný
útboðsgögn. „Það var auðvitað svekkelsi að þess þyrfti, vegna þess að
það tefur verkið.“ Slys hafa orðið á Reykjanesbraut síðustu daga og í
fyrradag þurfti að loka veginum alveg um tíma, meðan bílar voru
dregnir burt eftir árekstur. mbl.is
Ástandið á Reykjanesbraut
Heilsufar aldraðra er almennt
gott og hvað best meðal þeirra
sem eru giftir eða í sambúð. Þetta
eru niðurstöður nýlegrar könn-
unar á högum og viðhorfum eldri
borgara (80 ára og eldri) sem
Reykjavíkurborg hefur látið gera.
Alls búa 75 prósent í eigin hús-
næði og af þeim fjórðungur í hús-
næði fyrir eldri borgara. Af 1000
manna úrtaki svöruðu 58,8 %. ibs
Heilsufarið best
í hjónabandi
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moo-
dy’s hefur lækkað lánshæfismat ís-
lensku viðskiptabankanna þriggja.
Er langtímaeinkunn Kaupþings
lækkuð um einn flokk, úr Aa3 í A1,
en einkunn Glitnis og Landsbank-
ans um 2 flokka, í A2.
Þá hefur einkunn Kaupþings
fyrir fjárhagslegan styrk verið
lækkuð úr C í C-2. Einkunn danska
bankans FIH, sem er í eigu Kaup-
þings er óbreytt, A1/C.
Moody’s segir, að lausafjárstaða
Kaupþings sé sterk, m.a. vegna þess
að bankinn hætti við kaup á hol-
lenska bankanum NIBC og boð-
aðrar eignasölu hjá Singer &
Friedlander í Bretlandi.
Einkunn Landsbanka fyrir fjár-
hagslegan styrk er einnig lækkuð úr
C í C-. Moody’s segir, að lækkun á
mati bankans endurspegli áhyggjur
af gæðum eigna bankans og mögu-
leikum á hagnaði. mbl
Moodys telur matið ekki hækka á næstunni
Bankarnir lækka
Er mikið álag
í vinnunni?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Oft koma fyrstu einkenni streitu fram
sem stöðug þreyta og óþægindi í
maganum og ónæmiskerfið starfar
af minni krafti en áður. Rannsóknir
sýna að LGG+ vinnur gegn
þessum neikvæðu áhrifum
og dagleg neysla þess
tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA