24 stundir - 29.02.2008, Side 6
EVRA EÐA KRÓNA
Niðurstöðurnar af fundamara-
þoni Geirs H. Haarde með forystu-
mönnum Evrópusambandsins í
Brussel í fyrradag eru aðallega tvær.
Annars vegar voru umræður um
einhliða upptöku evrunnar endan-
lega slegnar kaldar. Hins vegar fór
ekki á milli mála að forsætisráð-
herranum var mikið í mun að gefa
ekki með neinum hætti til kynna
að Ísland væri neitt að þoka sér
nær ESB-aðild.
Það hefur út af fyrir sig legið fyr-
ir lengi að Evrópusambandið væri
andsnúið því að nágrannaríki þess
tækju einhliða upp evruna. Ýmsir
talsmenn sambandsins hafa lýst
þessum skoðunum og varað við
þeim vandamálum og hættum,
sem kynnu að fylgja einhliða upp-
töku. Hafi einhver enn velkzt í vafa
tóku ummæli José Manuels Bar-
roso, forseta framkvæmdastjórnar
ESB, endanlega af skarið. Geir
Haarde bætti um betur þegar hann
útskýrði að Evrópusambandið
kynni að draga lappirnar í EES- og
Schengen-samstarfinu ef Íslend-
ingum dytti í hug að taka einhliða
upp evru.
Ekki á dagskrá, ekki spurt
Þá liggur það alveg ljóst fyrir að
evra kemur ekki nema með aðild
að Evrópusambandinu. Geir H.
Haarde notaði engin af þeim tæki-
færum sem hann fékk á fundunum
með æðstu mönnum ESB til að
grennslast fyrir um möguleika eða
skilmála slíkrar aðildar. Hann sagði
skýrt að málið væri ekki á dagskrá.
Forsætisráðherra sagði á við-
skiptaþingi á dögunum að hann
vildi ræða gjaldmiðilsmálið í ein-
drægni en það mætti ekki vera neitt
trúaratriði. Með endurteknum yf-
irlýsingum sínum um að ESB-aðild
sé ekki á dagskrá er hann hins veg-
ar í raun búinn að útiloka fyrirfram
eina hugsanlega niðurstöðu þeirrar
umræðu; að það þjóni hagsmun-
um Íslands að sækja um aðild að
ESB, meðal annars til að fá evruna.
Geir ítrekaði líka þá afstöðu sína
að upptaka evru með aðild að ESB
væri engin lausn á skammtíma-
vanda íslenzka fjármálageirans.
Talsmenn upptöku evru í fjármála-
geiranum segja hins vegar sem svo:
Upptaka evru er að sjálfsögðu ekki
lausn á núverandi vanda en evran
gæti hins vegar dregið úr slíkum
kreppum í framtíðinni. Evran
myndi auka traust á viðskiptalíf-
inu. Jafnvel umsókn um aðild að
ESB sem slík myndi auka traust ís-
lenzks efnahagslífs á alþjóðlegum
vettvangi.
Geir sagði eftir fund sinn með
Barroso að mat hans á kostum og
göllum aðildar að ESB væri
óbreytt; gallarnir vægju þyngra. En
ef hugsanleg aðild Íslands var ekki
til umræðu á fundunum í Brussel
var heldur engra þeirra spurninga
spurt, sem hefðu getað leitt í ljós
breytta stöðu í þeim efnum, til
dæmis hvað varðar undanþágur
eða sérlausnir fyrir Ísland í sjáv-
arútvegsmálum.
Óvænt útspil
José Manuel Barroso kom hins
vegar með dálítið óvænt útspil,
þegar hann óskaði að fyrra bragði
eftir hugmyndum frá Íslendingum
um endurskoðun sjávarútvegs-
stefnu ESB. Hann virðist þannig
gefa í skyn að Ísland geti haft áhrif
á sjávarútvegsstefnuna, jafnvel utan
sambandsins. Og hefði verið spurt
hefði kannski fengizt það svar að
sem aðildarríki gæti Ísland haft
veruleg áhrif á stefnuna.
Líklegt verður að teljast að ofur-
varkárni Geirs í Brussel-ferðinni,
sem gaf ekkert tilefni til að ætla að
hann væri byrjaður að halla sér að
Evrópusambandinu, ráðist ekki
sízt af mati hans á stöðu mála inn-
an Sjálfstæðisflokksins. Geir lítur
sennilega svo á að stuðningsmenn
evru og ESB-aðildar innan flokks-
ins séu enn of fáir til að hættandi sé
á nokkra stefnubreytingu í Evr-
ópumálunum. Flokkurinn hafi nóg
viðfangsefni þótt deilur um Evr-
ópumál bætist ekki við.
Hvernig skiptast evrusinnar?
Það skiptir máli fyrir framhaldið
hvernig sá allstóri hópur innan við-
skiptalífsins, sem hefur stutt ein-
hliða upptöku evru, mun skiptast,
nú þegar sá kostur hefur endanlega
verið strikaður út. Hverjir munu
vilja lifa með krónunni og hverjir
telja það þess virði að ganga í ESB
fyrir evruna? Það skiptir ekki sízt
máli fyrir stöðuna innan Sjálfstæð-
isflokksins.
ESB eða lifað
með krónunni
➤ Í könnun Viðskiptaráðs, semgerð var fyrir viðskiptaþingið,
kom fram að 63% fyrirtækja í
ráðinu vildu skipta um gjald-
miðil. Flest hölluðust að evru.
➤ Hins vegar var yfir helmingurandvígur inngöngu í Evrópu-
sambandið.
FRÉTTASKÝRING
Ekki á leiðinni inn Geir H. Haarde opnar ekki neina smugu fyrir ESB-aðild.
Einhliða evruvæðing útilokuð eftir Brusselferð forsætisráðherra
Mun viðskiptalífið velja ESB eða þrauka með krónunni?
Ekki rætt Geir Haarde og Olli Rehn
ræddu stækkun ESB, þó ekki til Íslands.
Árvakur/Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
6 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
Sex ungir menn hlutu þunga
dóma í Hæstarétti í gær vegna
fjölda brota sem þeir hafa framið á
undanförnum árum. Mennirnir
eru allir hluti af hinu svokallaða
Árnesgengi sem fór mikinn í af-
brotum hérlendis á árunum 2006
til 2007. Þyngstan dóm hlaut Stef-
án Blackburn, eða fjögurra ára
fangelsi. Hæstiréttur þyngdi dóm
hans úr héraði um eitt og hálft ár.
Stefán er fæddur árið 1991 og er
því sextán ára gamall. Hann var
meðal annars dæmdur fyrir þrjú
rán, eina ránstilraun og þrjár lík-
amsárásir auk fjölda annarra
smærri brota. Davíð Þór Gunnars-
son, 19 ára, fékk þriggja og hálfs árs
dóm og Ívar Aron Hill Ævarsson,
21 árs, þrjú ár á bak við lás og slá.
þsj
Árnesgengið dæmt í Hæstarétti
Sextán ára í fjög-
urra ára fangelsi
Hæstiréttur hefur hafnað
kröfu dánarbús listmál-
arans Jóhannesar Kjarvals
um að viðurkenndur yrði
eignarréttur þess að mun-
um, sem fluttir voru úr
vinnustofu listmálarans
síðla árs 1968. Var dómur
Héraðsdóms Reykjavíkur
staðfestur.
Um er að ræða fjölda
listaverka og annarra
muna sem geymdir voru í húsnæði sem Kjarval hafði umráð yfir að
Sigtúni 7 í Reykjavík.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að gögn málsins bendi eindregið til
þess að ákvörðun Kjarvals um að afhenda Reykjavíkurborg þá muni,
sem um ræði, hefði átt aðdraganda og mótast á nokkrum tíma. Taldist
því sannað að Kjarval hefði gefið Reykjavíkurborg þá muni sem málið
snerist um með munnlegri yfirlýsingu. mbl.is
Borgin á Kjarvalsverkin
Íslenskir sjúkraþjálfarar blása til
mikillar dagskrár í dag, hlaup-
ársdag, á Grand Hóteli. Nefna þeir
daginn viðburðadag. Aðalfundur
Félags íslenskra sjúkraþjálfara
verður haldinn í dag og auk hans
munu fara fram fjölmargar mál-
stofur. Þetta er í þriðja sinn sem
dagurinn er haldinn. Búist er við
að hátt í 300 sjúkraþjálfarar taki
þátt í dagskránni. fr
Viðburðadagur
sjúkraþjálfara
Kjartan Magnússon, stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykja-
víkur (OR), var í gær einnig kos-
inn stjórnarformaður Reykjavík
Energy Invest (REI) á hluthafa-
fundi félagsins. Auk hans var
Ásta Þorleifsdóttir, af F-lista,
kjörin í stjórn REI. Minnihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur
stendur til boða að tilnefna full-
trúa í stjórnina. Hjörleifur B.
Kvaran, forstjóri OR, skipar
stjórnarsætið þar til tilnefning
liggur fyrir. Reykjavík Energy In-
vest hefur ekki haft starfhæfa
stjórn síðan í desember þegar
Bjarni Ármannsson hætti. þsj
Nýr formaður
REI og OR
Laugardaginn 1. mars munu Háskólinn í Reykjavík og Tæknifræðingafélag Íslands
standa fyrir Tæknidegi í Háskólanum í Reykjavík, Höfðabakka 9.
www.hr.is »
TÆKNIDAGUR HR & TFÍ
LAUGARDAGINN 1. MARS KL. 13 – 16
Allir velkomnir – ókeypis aðgangur
» Fyrirtæki úr atvinnulífinu sækja skólann heim og kynna starfsemi sína.
» Fulltrúar úr atvinnulífinu flytja fyrirlestra.
» Nemendur í tæknifræði við HR kynna verkefni sín.