24 stundir - 29.02.2008, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
SIMPLY CLEVER
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Í dag halda Davíð Bjarnason og
Erla Hlín Hjálmarsdóttir ásamt
strákunum sínum þremur til
Windhoek í Namibíu þar sem fjöl-
skyldan ætlar að búa í tvö ár. Dav-
íð, sem nýlega lauk doktorsprófi í
mannfræði, verður verkefnisstjóri
félagslegra verkefna Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands á svæðinu
sem er honum reyndar ekki alveg
ókunnugt.
,,Ég dvaldi í Namibíu þegar ég
skrifaði meistaranámsritgerðina
mína um þátttöku heimamanna í
auðlindastjórnun á villtu dýralífi,“
greinir hann frá.
Mögulega betri dagvistun
Erla Hlín, sem er stjórnsýslu-
endurskoðandi hjá Ríkisendur-
skoðun, gerir ráð fyrir að vera
heimavinnandi í fyrstu. ,,Yngsti
sonur okkar, Stefán Orri, er eins og
hálfs árs. Mér skilst að það sé erfitt
vistun þriðja hvern dag en nú er
reyndar búið að fullmanna í leik-
skólanum.“ Haraldur Bjarni, sem
er 8 ára, fer beint í skóla þegar þau
koma til Windhoek.
Opinn hugur lykilatriðið
Davíð og Erla Hlín eru viss um
að dvölin í Namibíu verði góð
reynsla fyrir alla fjölskylduna. ,,Það
verða auðvitað viss viðbrigði að
flytja inn í nýtt samfélag og það
verður örugglega margt sem kemur
á óvart. Lykilatriðið er að fara með
opnum huga og laga sig að aðstæð-
um,“ segir Davíð og Erla Hlín
bendir á að fjölmargir Íslendingar
hafi búið í Namibíu í gegnum tíð-
ina. ,,Þar hefur verið umfangsmikil
þróunarsamvinna og nokkur ís-
lensk fyrirtæki hafa verið með
starfsemi í landinu.“
Davíð mun halda áfram með
þau verkefni Þróunarsamvinnu-
stofnunarinnar sem eru í gangi í
Namibíu en þau eru á fjölmörgum
sviðum.
Á leið til nýs samfélags
Doktor í mannfræði nýr verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Namibíu Góð reynsla fyrir fjölskylduna
Á framandi slóðir Davíð og
Erla Hlín með synina þrjá.
➤ Í Namibíu er meðal annarsunnið að bættum mennta-
skilyrðum heyrnarlausra
barna, vatns- og beitistjórn-
unarverkefni meðal Himba-
þjóðflokksins og stuðningur
veittur við uppbyggingu leik-
skóla fyrir San-þjóðflokkinn.
ÞRÓUNARSAMVINNA
að fá leikskólapláss fyrir bleiubörn
í Namibíu og það gæti þá tekið ein-
hvern tíma að finna pláss. Konur
vinna víst ekki mikið úti á meðan
börnin nota bleiur,“ segir Erla Hlín
sem bætir því að leikskólar í Nami-
bíu séu einkareknir.
,,Við hlógum nú reyndar að því
á tímabili að mögulega gætum við
fengið betri úrlausn dagvistunar-
mála í þróunarlandi, heldur en á
Íslandi. Hér heima fengum við
hálfsdagspláss hjá dagmömmu fyr-
ir yngsta soninn. Í leikskóla Óskars
Víkings, sem er að verða þriggja
ára, var á tímabili ekki boðið upp á
Lesbíur víða að úr Afríku hafa
skorað á ríkisstjórnir í álfunni að
hætta að koma fram við samkyn-
hneigða eins og glæpamenn. Sam-
band afrískra lesbía fundar um
þessar mundir í Mósambík.
Samkynheigð er refsiverð í 38
ríkjum álfunnar. Refsing er misjöfn
á milli landa, en getur numið allt
að dauðadómi.
Sambönd fólks af sama kyni eru
litin hornauga í mörgum íhalds-
samari samfélögum Afríku. Tals-
menn samtaka samkynhneigðra
segja að víða njóti mismunun og
ofsóknir stuðnings stjórnvalda.
Hefur Robert Mugabe, forseti Sim-
babve, til dæmis sagt samkyn-
hneigð vera flutta inn frá Vestur-
löndum.
Suður-Afríka er eina Afríkuríkið
þar sem bannað er með lögum að
mismuna fólki vegna kynhneigðar.
Lesbíur funda í Mabútó
Samkynhneigðir
krefjast úrbóta
Kínversk stjórnvöld íhuga að af-
leggja reglu um að hver fjölskylda
megi aðeins eiga eitt barn. Er
þessu ætlað að
bregðast við því að
þjóðin verður sí-
fellt eldri.
„Við viljum inn-
leiða þessa breyt-
ingu í skrefum,“
segir Zhao Baige,
aðstoðarráðherra
fólksfjöldamála og fjölskyldu-
áætlana. Segir hún meðalveg
þurfa að finnast á milli þess að
hafa nægjanlegar auðlindir til að
framfleyta þjóðinni, en jafnframt
nógu mikið af ungu fólki til að sjá
um þá sem eldri eru. Mun af-
skiptum ríkis af fjölskyldumálum
því ekki ljúka í bráð. aij
Fleiri börn á fjölskyldu
Kína slakar á
fjölskyldustefnu
Þegar sex ár eru liðin síðan talíb-
anar voru reknir frá völdum í
Afganistan áætlar bandarískur
sérfræðingur að þeir hafi náð
10% landsins aftur á sitt vald.
Segir Mike McConnell að stjórn-
völd í Kabúl ráði aðeins 30%
landsins. Það sem uppá vantar er
í höndum ýmissa ættbálka. Kenn-
ir McConnell stuðningi al-Kaída
að hluta um árangur talíbana. aij
Afganistan
Þriðjungur í
talíbanahöndum
Kvenréttindahópar hafa gagnrýnt
Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástr-
alíu, fyrir að útnefna aðeins eina
konu í tíu manna stýrinefnd ráð-
stefnu sem haldin verður í apríl.
Ráðstefnan, sem nefnist Ástralía
2020, á að velta upp hugmyndum
um framtíðarþróun landsins.
Rudd vísar gagnrýni þess efnis að
ráðstefnan verði karlahátíð á bug.
„Ja, þú ert miðaldra karlmaður í jakkafötum og ég líka,“ sagði Rudd
þegar hann var spurður út í málið af fréttamanni útvarpsstöðvarinnar
ABC. „Við höfum líka eitthvað til málanna að leggja.“ aij
Konur skortir á kvennaráðstefnu