24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 11

24 stundir - 29.02.2008, Blaðsíða 11
24stundir FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 11 Ármúli 26 • Sími 522 3000 • www.hataekni.is • Opnunartími: virka daga 9-18 | laugardaga 12-17 FERMINGARVEISLAN ER HAFIN Frábær fermingartilboð í Hátækni Nokia 5310 XpressMusic Þráðlaus heyrnartól fylgja. Fullt verð 47.990 Fermingartilboð kr. 39.995 Palladine EPT3250M HD Ready 32” LCD sjónvarp. Fermingartilboð kr. 69.995 Creative PlayDock i500 iPod tónlistarstöð. Fermingartilboð kr. 19.995 KEF Picoforte iPod tónlistarstöð. Fermingartilboð kr. 49.995 Nokia 5610 XpressMusic Þráðlaus heyrnartól fylgja. Fullt verð 52.990 Fermingartilboð kr. 44.995 P IP A R • S ÍA • 8 0 3 0 7 Mannréttindasamtökin Am- nesty International hvetja stjórnvöld í Íran til að tryggja að ekki sé brotið gegn kven- réttindakonum í landinu. Segja samtökin að konur sem hófu jafnréttisátak fyrir tveimur árum þurfi að þola linnulausa áreitni og ógnanir, auk þess sem fjöldi þeirra hafi verið handtekinn. „Í staðinn fyrir að hræða og fangelsa kvenréttindakonur ætti Íran að reyna að virkja orku kvennanna sinna,“ segir Tim Hancock frá Amnesty. Mahmoud Ahmedinejad for- seti segir að óvíða sé staða kvenna betri en í Íran. aij Mwai Kibaki, forseti Kenýa, og stjórnarandstöðuleiðtog- inn Raila Odinga undirrituðu í gær samkomulag sem vonast er til að bindi enda á ofbeldið sem geisað hefur í landinu undanfarna mánuði. Kofi Annan, fyrrum aðalritari SÞ, stýrði samningavið- ræðum. Felst málamiðlun deiluaðila helst í því að stofn- að verður embætti forsætis- ráðherra, sem talið er að Od- inga muni gegna. Áætlað er að 1.500 manns hafi látist og 600.000 orðið að flýja heimili sín síðan forsetakosn- ingar fóru fram í desember. aij Yfirvöld í Puntlandi, sjálf- stjórnarhéraði í norðanverðri Sómalíu, hafa skorið upp her- ör gegn mönnum sem bjóðast til að smygla fólki yfir til Ar- abíuskagans. Þúsundir manna leggja á sig ferðalagið á flótta undan fátækt og ofbeldi. Áætla SÞ að um 1.400 manns hafi farist undanfarið ár. Oft er þeim kastað fyrir borð af þeim sem buðust til að smygla þeim úr landi. Mohammed Muse Hersi, for- seti Puntlands, segir að héðan í frá verði dauðarefsingu beitt gegn smyglurunum. aij Amnesty átelur Íran Réttindabar- áttu hamlað Deila leysist Samið um völd í Kenýa Puntland í Sómalíu Barist gegn smygli á fólki Sænska lögreglan handtók í gærmorgun þrjá menn í Stokkhólmi sem hún segist gruna um að fjármagna og skipuleggja hryðjuverk. Á svip- uðum tíma greip norska lögreglan þrjá menn í Ósló, grunaða um að fjármagna starfsemi hryðjuverkamanna. Handtökurnar voru hluti af sameiginlegri rannsókn lögregluembættanna tveggja. Talið er að mennirnir hafi fjármagnað starf- semi sómalskra hryðjuverkamanna. Einnig seg- ist sænska lögreglan hafa fundið teikningar af heimili skopmyndateiknarans Lars Vilks, sem teiknað hefur myndir af spámanninum Mú- hameð. Jakob Larsson, talsmaður sænsku ör- yggislögreglunnar, segir þó ekkert benda til þess að til hafi staðið að fremja glæpi á sænskri grund. Í framhaldi aðgerða morgunsins gerði norska lögreglan húsleit á netkaffihúsum í miðborg Óslóar. Þar var fjöldi tölva gerður upptækur. „Það eru einstaklingar í Noregi sem styðja hryðjuverk í útlöndum. Þeir nota Noreg sem bækistöð,“ segir Jörn Holme, yfirmaður norsku öryggislögreglunnar. Hann lagði áherslu á að um væri að ræða fáa menn en hættulega. Segir Holme lögreglu hafa frétt af eldri ísl- ömskum öfgamönnum í Noregi, sem reyni að hafa áhrif á þá sem yngri eru og ráða þá til liðs við málstað sinn. Telur hann aðgerðir gærdags- ins sýna svo ekki verður um villst að innan Nor- egs starfi menn sem hafi beina tengingu við er- lenda hryðjuverkahópa. Holme varar við að aðgerðir gærdagsins verði til þess að auka fordóma gegn múslímum og bendir á að aðgerðirnar hafi byggt á náinni sam- vinnu við fólk í samfélagi múslíma. aij Samræmdar handtökur lögreglunnar í Svíþjóð og Noregi Grunaðir um að fjármagna hryðjuverk

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.