24 stundir - 29.02.2008, Side 13
24stundir FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 13
Undarlegt öldurót hefurorðið í kjölfar gagnrýniAndrésar
Magnússonar geð-
læknis á íslensku
útrásina í greininni
Útrás – fögur er
hlíðin. Hafliði
Helgason, fyrrver-
andi ritstjóri Markaðarins, við-
skiptablaðs Fréttablaðsins, tók til
varna sem vísað er til þannig,
„...segir að sú niðurstaða í um-
fjöllun Andrésar Magnússonar
læknis um vaxtamál á Íslandi, að
bankaútrásin sé blekking og
raunhagnaður bankanna tekinn
úr vasa húsnæðiskaupenda, sé svo
víðáttuvitlaus að það sé hneisa að
fjölmiðlamenn skuli ekki kanna
grunn hennar áður en þeir hleypa
henni í loftið.“
Á Eyjusíðu Egils Helgason-ar segir um HafliðaHelgason að hann sé út-
rásargrúppía:
„Fyrrum ritstjóri
Markaðarins, við-
skiptaútgáfu Frétta-
blaðsins, sem flutti
hallelújafréttir af ís-
lenskum við-
skiptasnillingum.
Aldrei örlaði á gagnrýnni hugsun
í Markaðnum. Þeir sem gagn-
rýndu óhóf útrásarvíkinganna
fengu þá einkunn að þeir væru
hallærislegir og öfundsjúkir.
Það var ekki alvarlegt mál þeg-
ar gengi fyrirtækja var stanslaust
kjaftað upp í Markaðnum – og
líka í sérstökum fréttaaukum á
Stöð 2 þar sem Hafliði var
fremstur í flokki – en síðan þegar
kemur fram almennur borgari úti
í bæ og gagnrýnir klabbið, þá er
það hið mesta alvörumál.
Þá eru fjölmiðlar að bregðast
samkvæmt Hafliða.
Síðar fór Hafliði til starfa hjá
REI og í hópi manna sem áttu að
fá feita kaupréttarsamninga á síð-
ustu augnablikum útrásarinnar.“
Loks bloggarPétur Tyrf-ingsson og
gerir tortryggilegt
að greinin hafi ekki
birst í heild í Mogga
og 24 stundum. Hann sakar
blaðamenn 24 stunda um að hafa
ætlað að nota greinina sjálfum sér
til frægðar með því að breyta
henni í viðtöl. Andrés Magn-
ússon læknir hefur hins vegar
svarað því og er fullsáttur við
blaðamenn 24 stunda og samstarf
við þá.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það er hvort tveggja fallegt og
átakanlegt að fylgjast með angist
tvíeykisins, Morgunblaðsins og
Sjálfstæðisflokksins, þegar um-
ræða um Evrópusambandsaðild
er annars vegar. Í Morgunblaðinu
í gær er margtuggin sú skoðun
blaðsins að aðild að Evrópusam-
bandinu sé alls ekki á næsta leiti
og hreint ekki möguleg. Í mið-
opnu er umfjöllun eftir ritstjóra
24 stunda um fund „gamalla
vina“, þeirra Geirs Haarde for-
sætisráðherra og Jose Manuel
Barroso, forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, sem
voru alls, alls ekki að ræða aðild
að Evrópusambandinu heldur
bara rifja upp gömul kynni enda
gamlir vinir eins og svo kyrfilega
er sagt frá í myndfyrirsögn með
greininni. Í þeirri „fréttaskýringu“
er jafnframt sagt frá því að ESB
vilji gjarnan fá hugmyndir Íslend-
inga þegar sjávarútvegsstefna ESB
verði endurskoðuð á næstu árum
þó það sé alls, alls ekki í samhengi
við hugsanlega aðild Íslands að
sambandinu í framtíðinni því
„það mál var ekki á dagskrá“ eins
og Morgunblaðið margítrekar.
Svo að það sé alveg á hreinu þá
er líka búið, samkvæmt leiðara
sama Morgunblaðs, að afgreiða út
af borðinu hugmyndina um ein-
hliða upptöku evrunnar.
Forsætisráðherra boðar pólitísk
vandræði sé upptaka evrunnar
hugleidd hér á landi með var-
anlegum skaða fyrir okkar góða
samstarf um EES- og Schengen-
samningana.
Alls ekki á dagskrá!
Þegar Geir H. Haarde var svo
spurður hvort aðild að ESB hefði
eitthvað komið til umræðu sagði
hann svo alls ekki hafa verið
„enda væri hún ekki á dagskrá
núverandi ríkisstjórnar“. Ég verð
að segja að mér finnst það ótrú-
legt að forsætisráðherra Íslands
skuli sitja fund með einum hæstr-
áðanda í Evrópusambandinu án
þess að aðild að því sé svo mikið
sem rædd. Við vitum vel að það
ferli tekur fjölda ára. Við vitum
líka vel að við höfum ýmislegt
með okkur og á móti þegar hæfi
Íslands er metið. Það er nútíma-
væðing landsins sem er okkur
hliðholl á meðan hagstjórnin er í
molum.
Ótti Valhallar
Við hvað eru sjálfstæðismenn
hræddir? Hvers vegna má ekki
ræða þessi mál? Nóg hefur verið
malað í hálfum hljóðum en það
er eins og að nefna snöru í
hengds manns húsi að minnast á
aðild að ESB í höll sjálfstæðis-
manna. Getur verið að þegar farið
verður í saumana á stjórnarhátt-
um hérlendis óttist þeir að of
mörgum pottlokum verði lyft sem
sýni svart á hvítu kerfislæga spill-
ingu þeirra sjálfra eftir áratuga
stjórn yfir landinu? Getur verið
að þeir óttist líka áfellisdóm Evr-
ópusambandsins yfir hagstjórnar-
mistökum þeirra sjálfra undanfar-
in ár?
Upplýst þjóð er glöð þjóð
Kostir og gallar þess að ganga
til aðildarviðræðna verða ein-
hverntímann að koma upp á yf-
irborðið, sér í lagi núna þegar
meira en helmingur þjóðarinnar
lýsir yfir vilja til aðildarviðræðna.
Það er ótrúlegt að annar af
stærstu stjórnmálaflokkum lands-
ins skuli þráast svona við og neita
að viðurkenna þörfina á að taka
upp gagnrýna og ábyrga umræðu
um kosti og galla aðildar að sam-
bandinu. Hvernig stendur á því
að ekki er farið í þjóðarkynningu
á þessu fyrirbæri sem Evrópusam-
bandið er? Hvernig væri að leyfa
þjóðinni að taka upplýsta ákvörð-
un? Hvort sem sjálfstæðismönn-
um líkar betur eða verr þá mun
umræðan eiga sér stað. Því fyrr og
með þeim mun markvissari hætti,
því betra. Leggjum þetta í hend-
urnar á þjóðinni. Treystum al-
menningi til góðra verka og leyf-
um okkur öllum að taka upplýsta
ákvörðun í þessu framtíðarmáli.
Höfundur er lögfræðinemi
Haltu mér... slepptu mér...
VIÐHORF aHelga Vala Helgadóttir
Ég verð að
segja að mér
finnst það
ótrúlegt að
forsætisráð-
herra Íslands
skuli sitja
fund með einum hæst-
ráðanda í Evrópusam-
bandinu án þess að aðild
að því sé svo mikið sem
rædd.
Námskeið fyrir þig!
www.lbhi.is
Framleiðsla matarkartaflna
Getum við bætt okkur?
Í samstarfi við Bændasamtök Íslands og með
stuðningi frá Sambandi garðyrkjubænda
Námskeiðið er einkum ætlað kartöfluframleiðendum. Hentar vel
þeim sem vilja fræðast um mismunandi aðferðir til að bæta gæði
ræktunarinnar sem og að auka gæði við geymslu.
Í upphafi námskeiðs verður fjallað lítillega um ræktun og afsetning kartaflna
í Danmörku. Þá verður fjallað ræktunarskilyrði hér á landi og aðferðir til
að tryggja ræktunaröryggi á stuttum vaxtartíma. Fjallað verður m.a. um
meðhöndlun á útsæði. Hvað getum við lært af Dönum þegar horft er til
jarðvinnslu, áburðargjafar og illgresiseyðingu í tengslum við kartöflurækt. Að
lokum verður fjallað um helstu sjúkdóma og varnir við þeim og farið yfir rekstur
(kostnað á móti tekjum) í greininni.
Kennarar: Ole H. Scharff ráðgjafi hjá Dansk Landbrugsrådgivning og Magnús
Ágústsson landsráðunautur BÍ í garðyrkju.
Tími: Lau. 8. mars kl 09:00- 12:00 á Reykjum Ölfusi (4 kennslustundir)
Verð kr. 6.400. (Hádegismatur er innifalinn).
Skráningarfrestur er til 2. mars.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra kr. 2.000
(óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími,
hvaða námskeið) eða í síma 433 5000.
Ræktun káls og varnir gegn sjúkdómum
og meindýrum í ræktun
Í samstarfi við Bændasamtök Íslands og með
stuðningi frá Sambandi garðyrkjubænda
Námskeiðið er einkum ætlað þeim er stunda ræktun eða hyggjast hefja
ræktun á káltegundum og vilja auka fróðleik um ýmsar aðferðir til að
bæta gæði ræktunarinnar og geymsluaðferðir
Farið verður yfir helstu ræktunarþætti og afsetning káls í Danmörku. Fjallað
verður um aðferðir til að auka ræktunaröryggi hér á landi m.t.t. skjóls og
jarðvinnslu. Einnig verður fjallað um notkun á áburðar við ræktun, niðurfellingu
eða dreifingu. Komið verður inn á helstu meindýr (kálmöl) og sjúkdóma
(kálæxli) í ræktuninni með sérstakri áherslu á kálflugu og hvaða ráð eru gegn
henni. Að lokum verður fjallað um uppskeru og helstu úrræði við geymslu.
Kennarar: Ole H. Scharff ráðgjafi hjá Dansk Landbrugsrådgivning og Magnús
Ágústsson landsráðunautur í garðyrkju.
Tími: Lau. 8. mars kl 13:00-17:00 á Reykjum, Ölfusi (5,5 kennslustundir)
Verð: kr. 8.500. (Hádegisverður kl. 12 og kaffi)
Skráningarfrestur er til 2. mars.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra kr. 2.000.
(óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími,
hvaða námskeið) eða í síma 433 5000.
Notkun varnarefna í
landbúnaði og garðyrkju
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa
og nota efni í X og A hættuflokkum.
Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða
úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt
verður almennt frá samsetningu varnarefna og verkun þeirra og hvernig megi
nota þau á sem tryggastan hátt. Kynnt verða lög og reglugerðir er varða
notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í það hvers konar tæki eru
notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á varnarefnum, ásamt útskýringum
á virkni og meðferð tækjanna.
Kennarar: Sigurgeir Ólafsson Matvælastofnun, Elín G. Guðmundsdóttir
Umhverfisstofnun, Halldór Sverrisson LbhÍ /Skógrækt ríkisins, Guðmundur
Halldórsson Landgræðslu ríkisins, Grímur Ólafsson Heilbrigðiseftirliti
Hafnarfjarðar og Kópavogs, Jón Guðmundsson LbhÍ, Magnús Ágústsson
Bændasamtökum Íslands, Svava Þórðardóttir Háskóla Íslands, Sigríður
Jansen Umhverfisstofnun, Jóhannes Helgason Vinnueftirliti ríkisins, Helgi
Jóhannesson garðyrkjukandídat og Hjalti Lúðvíksson Frjó.
Tími: Fim. 13. mars kl. 08:30-16:00 og fös. 14. mars kl. 09:00-16:00 (18
kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti, Reykjavík, í
fundarsal á 3. hæð.
Verð: kr. 33.500. Hádegisverður og kaffi báða dagana innifalið.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5.000kr
staðfestingargjald (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími,
hvaða námskeið).
Hlýnandi veðurfar og fjölgun nýbúa á trjám
Hefur þú áhuga á veðurhorfum næstu 50 árin? Langar þig að vita hverjir
eru að éta trjáplönturnar þínar? Viltu vita hvaða skaðvaldar á trjágróðri
gætu numið hér land á næstu árum?
Þetta námskeið er ætlað öllu ræktunaráhugafólki sem vill fræðast um nýjustu
skordýrategundir og sjúkdóma á trjágróðri á Íslandi og hvaða nýbúum við
getum búist við með hlýnandi veðurfari.
Á námskeiðinu verður fjallað um hverjar eru hugsanlegar breytingar á veðurfari
næstu ára. Farið verður yfir hvaða áhrif þær breytingar kunna að hafa á
plöntusjúkdóma og skordýralíf í trjágróðri á komandi árum. Einnig verður
skoðað hvaða áhrif sú hlýnun, sem þegar hefur átt sér stað hér á landi, hefur
haft á framboð óboðinna gesta í trjágróðri. Nýjustu gestirnir í trjágróðrinum
verða skoðaðir sérstaklega og rætt hvaða varnir eru mögulegar gagnvart þeim.
Kennarar: Haraldur Ólafsson veðurfræðingur, Halldór Sverrisson
plöntusjúkdómafr. LbhÍ og Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur L.r.
Tími: Miðvikudaginn. 5. mars kl. 13:00-16:00. Reykjum, Ölfusi (4
kennslustundir). Skráningarfrestur er til 3. mars.
Verð kr. 5.100.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.000 kr.
(óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími,
hvaða námskeið) eða í síma 433 5000.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Scan Modul
vagnar
fyrir sjúkrahús og
heilsugæslustöðvar
Birgðastýring á hjólum
einfaldar vinnuferlið
Hreyfanleiki auðveldar
aðgengi og sparar tíma,
pláss og fjármuni.
Einstakt enskunámskeið
Fyrir þá sem vilja styrkja enskugrunninn,
tala og skilja enska tungu.
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.tungumal.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799