24 stundir - 29.02.2008, Side 14

24 stundir - 29.02.2008, Side 14
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085 KKR, SVFR og SVH STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ Nýtt námskeið í fluguköstum í T.B.R húsinu Gnoðavogi 1 hefst 2. mars kl 20:00. kennt verður 2, 9, 16 og 30 mars. Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort). Verð kr 9.000 en kr 8.000 til félagsmanna, gegn framvísun gilds félagsskírteinis. Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm. 14 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a Það gæti orðið mikil sam- keppni um starsfólk hér á Suðurnesjum. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Björgum mannslífum! • Ávallt tilbúið til notkunar • Einfalt og öruggt • Einn aðgerðarhnappur • Lithium rafhlaða • Íslenskt tal PRIMEDIC hjartastuðtæki Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Mikillar atvinnusköpunar er að vænta á Suðurnesjum, verði allar þær hugmyndir að veruleika sem ræddar hafa verið um uppbyggingu á svæðinu. Meðal þess sem nefna má í því samhengi er væntanlegt heilsuhótel í Bláa lóninu með um 180 herbergjum og yfir 200 starfs- mönnum. „Það gæti orðið mikil samkeppni um starsfólk hér á Suðurnesjum,“ segir Anna Sverris- dóttir, fram- kvæmdastjóri fjár- mála og fjárfestinga hjá Bláa lóninu. Meðal annarra væntanlegra atvinnutækifæra á Suðurnesjum má nefna uppbygg- ingu menntaseturs, möguleg net- þjónabú og álver í Helguvík. Anna segir atvinnuástandið nú þegar vera erfitt fyrir atvinnurek- endur og slegist hafi verið um stars- fólk á Suðurnesjum undanfarin ár. Ekkert atvinnuleysi hafi verið á svæðinu, þrátt fyrir að talsvert af störfum hafi horfið með varnarlið- inu. Starfsmannafjöldi tífaldast Starfsemi Bláa lónsins hefur auk- ist ár frá ári og voru gestir lónsins um 400 þúsund talsins í fyrra. Síð- astliðið haust var lokið við að byggja töluvert við þjónustusvæði lónsins, og nær almenn baðaðstaða nú yfir sex þúsund fermetra svæði. Við það bætist 2.400 fermetra lækningalind og 1.500 femetra þró- unarsetur. Starfsmönnum hefur fjölgað í takt við það, en á undanförnum áratug hafa starfsemenn Bláa lóns- ins farið úr því að vera 20 í 220. Erfitt efnahagsástand tefur Til stóð að taka áðurnefnt heilsu- hótel í notkun árið 2010, en þegar það gerist mun starfsmannafjöldi lónsins tvöfaldast til frambúðar. Anna segir það þó ekki vera raun- hæft í því óvissuástandi sem ríkir í efnahagslífinu í dag að opna hótelið svo snemma. „En plönin eru til og þegar fer að birta til í efnahagslífinu verður vonandi ráðist í þetta verk, enda miðar sú uppbygging sem þegar hefur átt sé stað við það að hótel rísi.“ Vantar þjónustulundað fólk Anna segir að með opnun hót- elsins muni fjölbreytnin í atvinnu- lífinu á Suðurnesjum aukast tals- vert. Hún segist ekki hafa miklar áhyggjur af því að fá fólk til starfa við hótelið. „Að fá hæft og vel menntað starsfólk gæti þó verið vandamál. Það er vandi ferðaþjón- ustunnar allrar: Fólk stoppar stutt og lítur ekki á hana sem framtíð- arstarfsvettvang. Við munum fyrst og fremst vilja ráða þjónustulundað fólk með mikla tungumálakunnáttu á hótel- ið, en þjónustulund er nú eitthvað sem er ekkert sérstaklega einkenn- andi fyrir Íslendinga,“ segir Anna. Bláa lónið springur út  Býst við því að áfram verði slegist um starfsfólk á Suðurnesjum ➤ Starfsmannafjöldi Bláa lóns-ins hefur farið úr 20 í 220 á áratug, en þegar hótel verður tekið í notkun við lónið fer fjöldinn vel yfir 400. ➤ Gestir Bláa lónsins voru 400þúsund á síðasta ári. Þar af voru um 25% Íslendingar, sem eru fjölmennasta þjóðin meðal baðgesta. VÖXTUR LÓNSINS Anna Sverrisdóttir MARKAÐURINN Í GÆR             !!                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                                                                   : -   0 -< = $ ' >?55??@A @B4@54>AA A4BABA?44 @4@?ACAD4 D5?>@@3@D @>44@?DB 4?BB5BB C>@5CAD@@ @@BCAD>3DD A>5DA?5@ @4D??D3?> @4A>33B3A @>AA5BBB CA5BBBB , B 5B@CCBC @A?5?3> AA>45?@ 5CAA5 ?DB5A5 , , , , @AAA5BBBB , , >E@@ ?@EDB @AEBB CE5B @DEBB A>ECB A5E@B DA>EBB A4EDB C@E3B 5E3C @@E>3 5EAB CAEBB @E55 4E5C @>AEBB @5DDEBB ?3BEBB @EB3 @3DEBB 3E@B , , , ?53BEBB >EB5 , >E@3 ?AE@5 @AE@B CE54 @DEB5 ACEA5 A5E3B DACEBB A4ECB CAE@B 5E?5 @@E>5 5EA? C3EBB @E5D 4E43 @>5E5B @5>5EBB ?3>EBB @EB? @?BE5B 3E@? AAE55 , >E5B ?5CBEBB CE>B 4EBB /   - AA A5 3B 3> >@ @B 4 @@> @?3 5 5D 3> D D , , @B A 3 @ A , , , , C , , F#   -#- A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> ADAABB> ADAABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> A>AABB> @CAABB> @>AABB> 4@AABBD AA>ABBD A>AABB> A5@ABB> @?@ABB> ● Mestu viðskiptin í Kauphöll OMX í gær voru með bréf í Lands- banka Íslands, fyrir 1,058 millj- arða. ● Mesta hækkunin var á bréfum Atorku Group, en þau hækkuðu um 2,65%. Bréf í Eimskipafélag- inu hækkuðu um 1,39%. ● Mesta lækkunin var á bréfum í Sparisjóði Reykjavíkur, en þau lækkuðu um 6,4%. Bréf í FL Group lækkuðu um 2,45%. ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,18% og stóð í 4896 stigum í lok dags. ● Íslenska krónan veiktist um 0,085% í gær. ● Samnorræna OMX-vísitalan lækkaði um 0,62% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækkaði um 1,8%, og þýska DAX-vísitalan um 1,9%. Í nýrri skýrslu OECD um íslenskt efnahagslíf segir að álver skýri að hluta ójafnvægið í efnahagslífinu og hætta sé á að ráðist verði í að reisa fleiri álver áður en stöð- ugleiki hefur náðst. Í skýrslunni er mælt með að „að því marki sem hægt er“ eigi ekki að ráðast í nýjar orkufrekar fjárfestingar fyrr en náðst hefur jafnvægi í efnahagslíf- inu. Þá er tiltekið í skýrslunni að þótt ríkisstjórnin hafi tekið fram að ekki verði farið í ný verkefni fyrr en rammaáætlun um orkunotkun á land- inu hafi verið gerð, gildi það ekki um þau verkefni sem leyfi hafi verið gefin út fyrir og rannsóknir verið gerðar. Í skýrslunni segir að ekki eigi að ráðast í slíkar framkvæmdir, jafnvel þær sem þegar er farið að skipuleggja, fyrr en kostnaðargreining hefur verið gerð og mat lagt á umhverfisáhrif slíkra framkvæmda. þkþ Lagt til að bíða með álver Í nýrri skýrslu OECD um ástand og horfur í efnahagslíf- inu á Íslandi segir að Seðla- bankinn hafi á tíðum verið of seinn að lækka stýrivexti. Val Koromazy, sviðsstjóri landa- rannsóknasviðs hagfræðideildar OECD, tók sem dæmi í kynn- ingu á skýrslunni í gær að Seðlabankinn hefði ekki lækkað vexti fyrr en í nóvember í fyrra og þar brugðist of seint við. Merki hafi verið um verðbólgu og samdrátt á húsnæðismarkaði frá miðju ári. „Í skýrslunni er jafnframt lagt til að verðbólgumælingum verði breytt, á réttum tíma, þannig að húsnæðisverð sé tek- ið út. Þetta er mjög athygl- isverð tillaga og örugglega til- laga sem ríkisstjórnin og Seðlabankinn vilja vinna að,“ segir Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra. þkþ Seðlabankinn seinn að taka við sér Alþjóðabankinn tilkynnti í morg- un um nýja útgáfu krónubréfs til eins árs að nafnvirði 14 milljarða króna. Í Morgunkorni Glitnis segir, að þetta sé önnur útgáfa febrúarmánaðar en áður voru gefnir út 2 milljarðar króna í byrjun mánaðar. Samtals hafa 8 milljarðar króna fallið á gjald- daga í mánuðinum að viðbættum vöxtum. mbl.is Meiri útgáfa krónubréfa Novator, fjárfestingarfélag Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, mun fá tvo stjórnarmenn í finnska fjar- skiptafélaginu Elisu eins og félag- ið hefur sóst eftir. Novator er stærsti einstaki hluthafinn í El- isu. mbl.is Novator fær tvo

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.