24 stundir - 29.02.2008, Síða 22

24 stundir - 29.02.2008, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Ástrúnu Friðbjörnsdóttur Pétur kemur frá trúuðu heimili, en þegar hann valdi að fara í guðfræði var það ekki endilega af því að hann er trúaður, held- ur vegna áhuga á efninu. „Það er gott að vera trúaður en það er síður en svo nauðsynlegt ef maður kýs að lesa guðfræði við Háskólann. Ég get ekki bent á eitthvað sérstakt sem hefur styrkt trúna, ég er ungur ennþá og margt á eftir að gerast. Það má frekar segja að trúin þroskist og eftir því sem tíminn líður komist maður nær einhverjum kjarna sem trúin stendur fyrir.“ Þó segir Pétur að hann efist oft á dag og það sé hluti af trúarstríði hvers og eins. „Það er hollt að efast og í raun þarf hver og einn einstaklingur að taka sína Jak- obsglímu við Guð daglega.“ Fermingin er ekki heilög „Hver og einn ætti að láta sig trúna eitthvað varða, það er ekki bara fyrir fermingarbörn og ég tek hattinn ofan fyrir hverjum þeim sem vill gera Jesú að leið- toga lífs síns og þannig takast á við spurninguna um lífið og til- veruna.“ Pétur telur að það eigi að tak- ast á um ferminguna, hún sé ekkert heilög og öll umræða ágæt til síns brúks. „Í við- sjárverðri veröld sem oftast virð- ist nær heljarþröm en ekki, er fermingin eitt af þeim menning- arlegu fyrirbærum sem síst mega tapast. Fermingin er staðfesting á því að þú viljir lifa í kærleiks- sambandi við náungann og láta þannig gott af þér leiða. Ef þú vilt gera Jesú að leiðtoga lífs þíns jafngildir það því að gera Jesú að fyrirmynd þinni.“ Pétur leggur áherslu á að með því að spyrja sig þessara spurn- inga komumst við að því hvaða manneskju við viljum bera inn í framtíðina. Árvakur/Frikki Hvernig manneskja viltu vera? Viltu gera Jesú að fyrirmynd þinni? ➤ Pétur starfar sem æskulýðs-fulltrúi í Árbæjarkirkju og hefur umsjón með ferming- arfræðslu. ➤ Hann er að skrifa BA-ritgerðina í guðfræði við Há- skóla Íslands. Hann spilar fót- bolta með úrvalsdeildarliði Fjölnis. ➤ Pétur er formaður fjármála-nefndar Stúdentaráðs fyrir hönd Röskvu. NÁM OG STARF Pétur Georg Markan er að klára guðfræði við Há- skóla Íslands og starfar sem æskulýðsfulltrúi í Ár- bæjarkirkju. „Það er gott að geta haft atvinnu af því að láta gott af sér leiða og að gera sam- félagið ögn betra.“ Pétur Georg Markan: „Fermingin er staðfest- ing á því að þú viljir lifa í kærleikssambandi við náungann.“ Í gjafaverslun Hjálparstarfs kirkjunnar má finna gjafir til handa fermingarbarninu sem gleðja bæði móttakandann hér heima og þann sem fær andvirði hennar úti í heimi. Um er að ræða sérstök gjafabréf þar sem hægt er að styrkja verkefni á vegum kirkj- unnar og lesa má frekar um flokk- ana á www.gjofsemgefur.is. Einn flokkur innan gjafabréfanna er til- valinn sem gjöf fyrir ferming- arbarn en innan hans má finna gjafir er stuðla að betri framtíð ungmenna er búa við kröpp kjör. Oft fá nemendur gjöf við útskrift, eigið atvinnutæki s.s. saumavél, verkfærakassa eða reiðhjól og veita þessar gjafir þeim ungmennum sem taka við þeim góð tækifæri til betra lífs og möguleika á að sjá fyrir sér með sæmd. Fermingarbörnin geta þá um leið leitt hugann að því við hvaða lífskjör jafnaldrar þeirra víða um heim búa. Í jólasöfnun Hjálparstarfs kirkj- unnar söfnuðust 9,6 milljónir í gegnum gjafabréfin. dista@24stundir.is Fermingarbörnin annast jafnaldra sína Gefum gjöf sem gefur Gjafabréfin nýtast vel Hjálparstarf kirkjunnar hefur meðal annars unnið að vatnsverkefni í Mósambík. Hátt í þrjú hundruð börn ferm- ast alls í Hafnarfirði í ár og Þór- hallur Heimisson, prestur í Hafn- arfjarðarkirkju, segir að af því séu um 170 börn sem fermast í Hafn- arfjarðarkirkju. „Það hefur lengi verið þannig að meirihluti barna, um 90 prósent, fermist og það er bara spurning hvar. Þeim hefur fjölgað sem kjósa að fermast borg- aralega en hins vegar er það svip- aður fjöldi ár frá ári sem kýs að fermast ekki.“ Á hverju ári eru einhverjir sem láta skíra sig áður en þeir eru fermdir og Þórhallur segir að þeim hafi fjölgað. „Það er sennilega vegna þess að hjá þeirri kynslóð sem nú eru foreldrar var algengara að skíra ekki börn sín. Það eru náttúrlega ýmsar ástæður fyrir því en börnin þurfa að skírast fyrir ferminguna. Við höfum boðið þeim börnum upp á ákveðið val; þau geta bæði komið í guðsþjón- ustu á venjulegum sunnudegi til að láta skíra sig og svo erum við með litla fjölskylduathöfn þar sem skírt er í kapellu. Þetta er allt unnið út frá þeirra eigin forsendum og þau ráða hvernig þau hafa þetta. Per- sónulega finnst mér mjög skemmtilegt ef þau vilja láta skíra sig í guðsþjónustunni og þá fæ ég þau til að lesa textana og svo fram- vegis. En mörgum finnst þetta erf- itt eða eru feimin og vilja frekar vera með fjölskyldunni,“ segir Þór- hallur og bætir við að ferming- arfræðsla hafi breyst töluvert í ár- anna rás. „Þetta er orðið miklu meiri fræðsla en var áður og verið er að vekja athygli barnanna á því góða og slæma í samfélaginu. Það er fræðsla um hjálparstarf, fíkni- efni, fjölskylduna, lífið, tilveruna, fordóma og fleira. Ég held að börnin líti meira á ferminguna sem tímamót, að þau séu komin á full- orðinsaldur og þetta sé því ákvörð- un sem tengist öllu þeirra lífi.“ svanhvit@24stundir.is Um 170 börn fermast í Hafnarfjarðarkirkju í ár Fermingin er ákveðin tímamót Þórhallur Heimisson: „Ferming- arfræðsla hefur breyst töluvert í ár- anna rás.“ fermingargjöf Flott hugmynd að Fermingartilboð 9.990 kr. Verð áður 12.990 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 41 32 7 02 /0 8 High Peak Sherpa 55+10 Góður göngupoki, stillanlegt bak og stækkanlegt aðalhólf. Einnig til 65+10 Fermingartilboð 10.990 kr. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Mikið úrval af hárskrauti og fylgihlutum Skart á mynd 1500 kr. Fermingarhanskar og krossar

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.