24 stundir


24 stundir - 29.02.2008, Qupperneq 26

24 stundir - 29.02.2008, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Ég fermdist árið 1987,“ segir Geir Ólafsson. „Þetta var stór- kostlegur dagur og ég er þakk- látur foreldrum mínum fyrir að hafa gefið mér svona góðan dag. Ég hélt fermingarveisluna mína í Þórskaffi og var með lifandi tón- list. Grettir Björnsson heitinn lék tónlist í veislunni og var það eft- irminnilegt. Ég fékk utanlands- ferð til Winnipeg í Kanada að heimsækja ættingja mína í gjöf frá foreldrum mínum, svo fékk ég 73.000 í peningum og ég man að ég gat keypt mér hljómflutnings- græjur af fínustu sort. Ég um- gekkst peningana af miklu kæru- leysi, hef aldrei verið peningahyggjumaður og var þakklátur fyrir að geta keypt mér góðar græjur.“ Nota ennþá ermahnappana „Ég er fermdur 11. október ár- ið 1971,“ segir Bergþór Pálsson söngvari og minnist dagsins. „Ég man eftir þessum degi sem einum bjartasta degi úr minni æsku, at- höfnin var í Dómkirkjunni, veður var fallegt og ég var í einhverri ótrúlegri sæluvímu allan daginn. Ég man eftir því að mér fannst sálmurinn „Leið oss ljúfi faðir“ hljóma eins og englarnir væru að syngja! Það var matarveisla heima, 30-40 manns og maturinn var keyptur að. Ég hugsa að þetta hafi verið lítil veisla en ég á ennþá eitthvað af þeim gjöfum sem mér voru gefnar. Bækur og ermahnappa sem ég set stundum upp þegar ég er að syngja, ég fékk skrifborð frá foreldrum mínum. Jakkafötin þóttu mér fín.“ Mætti næstum of seint „Ég fermdist á hvítasunnu ár- ið1995 og mér fannst dagurinn afskaplega fallegur og skemmti- legur,“ segir Erna Hrönn Ólafs- dóttir, söngkona í hljómsveitinni Bermúda. „Ég mætti þó næstum of seint í kirkjuna þar sem bróðir minn sótti mig á vitlausa hár- greiðslustofu inn á Akureyri, en kirkjan var ca. 20 km inn af Ak- ureyri. Veislan var haldin í húsinu okkar í Eyjafjarðarsveit. Ég á stóra fjölskyldu og ég gæti trúað að í veisluna hafi komið um 80 manns. Við buðum gestunum upp á hlaðborð frá Bautanum en í eftirrétt var keypt heljarinnar fermingarkaka og mamma og Jónína frænka bökuðu kransa- köku. Ég fékk mjög margar gjafir, meðal annars rúm, hljómflutn- ingsgræjur og míkrófónstand og helling af hálsfestum. Ég á þær allar ennþá, hálsfestar voru greinilega trendið í þá daga!“ Fermingardagurinn rifjaður upp Minnisstæður dagur Erna Hrönn Ólafsdóttir, fermd 1995, Bergþór Pálsson, fermdur 1971, og Geir Ólafsson, fermd- ur 1987, eiga það öll sam- eiginlegt að hafa upp- lifað fermingardaginn hátíðlega. „Ég man eftir að mér fannst sálmurinn „Leið oss ljúfi faðir“ hljóma eins og englarnir væru að syngja!“ segir Bergþór til dæmis. Hárprúður ungur maður Bergþór í fermingarveislunni á heimili sínu árið 1971. Veislan í Þórskaffi Þjónar gengu um beina og lifandi tónlist var leikin í veislu Geirs. Fjölmenni í Eyjafjarðarsveit Sveitaveislurnar verða oft fjöl- mennar og fjörugar. Í fermingarfræðslunni segjast leiðbeinendur verða varir við sárindi fermingarbarna sinna vegna þeirrar ímyndar er þau skynja af sér í ýmsum umfjöll- unum fjölmiðla. Nefna þau þá helst að þau séu kennd við grunnhyggna græðgi og tóm- hyggju. Pálmi Matthíasson prestur segir fermingarbörn hafa orðið sér- staklega sár yfir kaldhæðnislega orðuðum pistli skrifuðum um komandi gjafavertíð í blaði einu nýlega. Fermingarbörn eru mörg sár út af því hvernig fjallað er um ferm- ingu. „Þeim fannst pistill í blaði um daginn gera lítið úr ferming- unni, þar var sagt að ferming- arbörn gætu haldið sig í her- bergjum sínum og þyrftu aldrei að fara fram með hjálp allra fermingargjafanna. Unglingarnir spurðu sig hvers vegna einhver úti í bæ þættist vita allt um þau, því ekki var talað við nein ferm- ingarbörn um málið.“ Fermingarbörn ekki sátt við að vera sögð gráðug og grunnhyggin „Við gagnrýnum ferminguna af ýmsum ástæðum,“ segir Matthías Ásgeirsson, formaður Vantrúar. „Það er verið að ferma börn of snemma. Krakkar á þessum aldri eru of ung til þess að taka þessa ákvörðun, enda sýna kannanir sem kirkjan hefur gert á trúar- viðhorfum unglinga að fljótlega eftir ferminguna missa þau trúna. Á þessum aldri eru þau leiðitöm og trúgjörn og því á versta aldri til að taka ákvörðun um að fermast. Flest þeirra fylgja hópnum. Unglingum finnst mjög erfitt að gera eitthvað annað en það sem allir hinir gera og þess vegna láta þau flest ferma sig. Borgaraleg ferming er svo ann- ar valkostur. Það eru margir sem setja sig upp á móti henni og telja að kirkjan eigi ferminguna. Ég tel hins vegar fræðsluna sem börnin fá þar mjög góða fyrir krakka á þessum aldri. Þar eru þau til dæmis að læra að mynda sér sjálf- stæðar skoðanir, þau fræðast um fordóma og svo framvegis. Það getur vel verið að það sé eitthvað slíkt í gangi í fermingarfræðslunni en þar eru þau einna helst í krist- infræðum þar sem þau eru að læra eitthvað sem guðfræðingar í dag vita að stenst ekki fræðilegar kröfur. Þau eru að læra bibl- íusögur en læra ekkert um það nýjasta í biblíurannsóknum og ég tel fermingarfræðsluna því afar einhliða. Gömul lög en standa enn Við höfum líka gagnrýnt ferm- ingarfræðsluna á þeim forsendum að verið sé að brjóta lög. Í lögum stendur að barn þurfi að vera orð- ið fullra 14 ára til að fermast en það teljast úrelt lög þegar við bendum á það. Þetta eru gömul lög en þau standa enn. En auðvit- að gagnrýnum við ekki krakkana fyrir að fermast, enda eru ýmsir fletir á þessu.“ hilda@24stundir.is Formaður Vantrúar segir fermingar- fræðsluna einhliða Eru of ung til þess að taka ákvörðun Árvakur/Jón Sigurðsson Ferming Formaður Vantrúar tel- ur unglinga ekki tilbúna til þess að taka ákvörðun um að fermast. Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is HPI Savage 3,5 fjarstýrður bensín torfærutrukkur Verð 43.400. Íslenskt handverk Tákn heilagrar þrenningar til styrktar blindum

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.